Morgunblaðið - 05.12.1996, Síða 16

Morgunblaðið - 05.12.1996, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Tóku að sér að baka í heilan bækling SÍÐASTLIÐIN tvö ár hafa bakara- meistarar séð um uppskriftabækling fyrir Nóa og Síríus sem kemur út fyrir jólin. í ár voru það tvær konur sem tóku sig til, söfnuðu saman uppskriftum frá sínum nánustu, að- löguðu uppskriftir úr blöðum og bjuggu þær líka til ef því var að skipta og settu saman bæklinginn Gestagangur sem kom út í nóvem- ber síðastliðnum. Hjördís Björnsdóttir vinnur hjá íslensku auglýsingastofunni og hef- ur síðastliðin fimm ár séð um gerð texta í bæklinginn og bakaði reynd- ar fyrir fyrstu bæklingana sem komu út ásamt fleirum. Þegar kom til tals að hún tæki hann alfarið að sér fékk hún vinkonu sína, Bryndísi Þórsdótt- ur lyfjafræðing, í lið með sér. „Þetta var mjög gaman og við viðuðum að okkur uppskriftum héðan og þaðan. Ein uppskriftin er meira að segja komin frá færeyskri konu og þar er hún til í mörgum uppskriftabókum. Markmiðið var auðvitað að koma sælgæti frá Nóa og Síríusi sem oft- ast að og það tókst bara prýðilega,“ segja þær. - En þurftu þær að baka sömu kökutegundirnar oft? „Nei, þetta gekk furðulega vel. Það er helst kakan Allt önnur Ella sem olli nokkrum höfuðverk," segir Bryndís. „Uppskriftin er komin frá mömmu minni og ég fékk hvergi réttu kökuformin eins og hún notar alltaf. Ég þurfti því að baka hana nokkrum sinnum og prófaði mig töluvert áfram áður en ég lét upp- skriftina endanlega frá mér.“ Hjördís segir að þær eigi sjálfar heiðurinn af flöskuísnum. „Það er eiginlega uppáhaldsuppskriftin okk- ar og við erum í raun hissa á að einhverjum skuli ekki hafa dottið þetta fyrr í hug að nota konfekt- flöskur í ísinn.“ - Nokkrar skekkjur í uppskrift- um? „Það er helst í einni uppskrift að Kropptoppum. Líklega þarf að baka þá við lægri hita því nokkrir hafa haft samband og kvartað yfir því að þeir hafí brunnið. Það þarf að minnsta kosti að fylgjast vel með bökuninni.“ Hér kemur svo uppskriftin að flöskuísnum sem þær stöllur eiga heiðurinn af. - Þegar þær eru spurðar hvort jólabaksturinn sé búinn á þeirra heimili segjast þær hafa fengið nóg af bakstri í bili en ætla þó að láta til skarar skríða um helgina. Það (er ekki mikið fyrir litlu orkuverunum frá Bese en ðhrifín eru stórkostleg. Bose hátalararnír fást í ellum stærðum og gerðum á verði frá 22.700 kr. stgr. Bose Acoustímass AmlO Dolhy Prologíc heimabíó- hátalarar á 99.900 kr. stgr. og Bose Acoustimass Am5 hátalarar á= jádjdiíboði 66.400 „gr Verð áður 75.900 Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt. TIL AtLT A0 36 MANAOA Lifandi tónleikar Venjulegir hátalarar Bose Acoustimass „Direct/Reflecting“® Morgunblaðið/Ámi Sæberg HJÖRDÍS Björnsdóttir og Bryndís Þórsdóttir ásamt syni Hjördís- ar, Unnari Geir Þorsteinssyni. Flöskuís ____________3 e99_____„ 6 msk. flórsykur l tsk. vanillusykur 'h I rjómi 18 Nóa konfektflöskur karamellu-mokka íssósa: 'h bolli púðursykur _________'h bolli síróp______ l dl rjómi I tsk. skyndikaffi leyst upp í ögn af sjóðandi vatni Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til það er ljóst og létt. Bætið vanillusykri út í. Þeytið eggja- hvíturnar. Þeytið ijómann. Myljið flöskumar í matvinnsluvél. Blandið öllu varlega saman. Frystið. Karamellu-mokka íssósa: Hitið púðursykurinn, sírópið og smjörið í potti og látið malla í 10-15 mín. Hrærið í á meðan. Takið af hellunni og setjið óþeyttan ijómann og skyndi- kaffið út í. Hrærið saman og berið sósuna fram volga með ísnum. Sósu- uppskriftin er rífleg og Bryndís og Hjördís segja að hún geymist í marg- ar vikur í ísskáp og hana megi hita upp í skömmtum í örbylgjuofni. Nýtt Hitamælir Mælir hitann á einni sekúndu KOMINN er á markað hitamælir sem mælir hita í eyra á einni sek- úndu. Mælirinn er frá fyrirtækinu Braun og nefnist ThermoScan. Hann notar innrauða tækni til að mæla hita af hljóðhimnu og vefjunum í kring. ThermoScan mælir innra hita- stig og sýnir því hitabreytingar sam- stundis. Hvorki eyrnamergur né eyrnabólga hafa áhrif á mælinguna. I fréttatilkynningu frá innflytjand- anum Donnu ehf. segir að nánast engin hætta sé á millismiti. Um þijár gerðir af mælum er að ræða, mæla fyrir sjúkrahús, einkastofur og stofnanir og síðan hitamælar fyrir heimili. Hitamælar fyrir heimili kosta í kringum 5.500 krónur. Morgunblaðið/Golli DAGNÝ Steinunn Laxdal verslunarsljóri ásamt fulltrúa Accessorize í Bretlandi, Ge- orgina Traherne. Fylgihlutaversl- un í Kringlunni í SÍÐUSTU viku var verslunin Acc- essorize opnuð í Kringlunni. Þetta er nokkurskonar fylgihlutabúð sem selur m.a. töskur, hatta, skartgripi, slæður og trefla. Accessorize er verslunarkeðja sem kemur frá Bret- landi og er íslenska búðin u.þ.b. hundraðasta verslunin þessarar teg- undar í heiminum en fyrir eru þær t.d í Frakklandi, Bretlandi og Banda- ríkjunum. Sami eigandi er að verslununum Monsoon og Accessorize en það er Sjöfn Kolbeins og fjölskylda. Gott að vita • BLÓMKÁL heldur hvíta litnum betur ef svolitlu hveiti er bætt út í vatnið sem kálið er soðið í. • KAMPAVÍN er best að bera fram í háum og mjóum glösum, svonefnd- um flutes. Þá helst gos og ilmur betur í víninu. Sé kampavín eða freyðivín borið fram eitt sér eða með söltum smáréttum er best að nota þurrt vín, brut, en með kökum eða sætindum er betra að nota sætt vín, sec eða demi-sec. • VÍN og súkkulaði eiga ekki sam- leið og í sælkerabókum er frekar mælt með að drekka mjólk, te eða kaffí með súkkulaði. • GRÁÐOSTUR og sætt púrtvín fara ævintýralega vel saman og ít- alska vínið Marsala á mjög vel við allargerðir mygluosta. Rauðvín og gráðostur eiga síður saman. • SVESKJUR er mjög gott að leggja í sætt te. Eftir nokkurra klukkutíma legu í tei verða sveskj- urnar mjúkar, sætar og bragmiklar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.