Morgunblaðið - 05.12.1996, Side 47

Morgunblaðið - 05.12.1996, Side 47
1 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 47 AÐSENDARGREINAR ' Undarlegir bóksalar BÓKSALAR hegða sér mjög undarlega gagnvart Hagkaupi, Bónusi og öðrum stórmörkuðum. Bóksalar gagnrýna stórmarkaðina fyrir að fleyta ijómann ofan af jóla- bókasölunni en hjálpa þeim samt við ijóma- fleytinguna. Rjóminn í jólabókaversluninni er 10 til 20 söluhæstu bækurnar. Stór- markaðirnir kaupa þær í stóru upplagi, fá góð- an afslátt og bjóða við- skiptavinum sínum á lækkuðu verði. Þar með missa bóksalar af mik- illi verslun. Fyrir þessi jól koma út rúmlega 400 nýjar bækur á íslensku. Að auki eru áður útgefnar bækur á boðstólum. Hvemig vita Hagkaup, Bónus og hinir hveijar verða 10 til 20 söluhæstu bækumar? Beðið eftir metsölulistunum Vom stórmarkaðirnir búnir að panta 10 til 20 söluhæstu jólabæk- urnar hjá útgefendum um miðjan nóvember? Nei, því þá vissu þeir ekki hveijar yrðu söluhæstu bæk- urnar. Vom stórmarkaðirnir búnir að panta söluhæstu bækurnar í gær til að bjóða þær á kostakjömm? Nei, þeir vissu ekki heldur í gær hveijar yrðu söluhæstu bækumar. Hvenær vita stórmarkaðirnir þá hveijar verða vinsælustu bækumar? Þeir fá að vita það um leið og bók- salarnir, vinir þeirra, hafa upplýst DV og Félagsvísindastofnun, fyrir hönd Morgunblaðsins, um það hvaða jólabækur falli best í kramið hjá almenningi. Bókabúðirnar eru kjörinn vett- vangur fyrir söfnun upplýsinga af þessu tagi. Bókabúðimar byija að selja nýju bækurnar um leið og þær koma út og reyna að vera með sem flestar þeirra á boð- stólum. Fólk hefur góðan aðgang að úr- vali bóka í bókabúðun- um. Þar gefst tími og næði til að vega bæk- urnar og meta. Hvers vegna að upplýsa um viðskipta- leyndarmál? Fyrstu daga des- embermánaðar er hins vegar lítið til af bókum í stórmörkuð- unum, ef þá nokkuð. Fáar eru á lægra verði en gengur og gerist. í stórmörkuðunum bíða menn eftir að DV og Morgunblaðið birti met- sölulistana sem eru unnir eftir upplýsingum frá bókabúðunum. Þá geta þeir farið að panta met- sölubækurnar og_ hirða viðskiptin af bóksölunum. Ég átta mig ekki á því hvers vegna bóksalar hjálpa sínum skæðustu keppinautum með því að upplýsa þá um viðskipta- leyndarmál af þessu tagi. Ef eng- inn væri metsölulistinn fyrir jól ættu stórmarkaðirnir í erfiðleikum með að gera stórar pantanir á örfá- um bókum til að fá mikinn afsátt. Þeir yrðu bara að kaupa sitt lítið af hveiju - með litlum afslætti. Þar með mundu þeir standa í svip- uðum sporum og bóksalar. En þar sem bóksalar hafa meiri þekkingu á bókum og betra úrval mundi al- Ólafur Hauksson Ef enginn væri metsölu- listinn fyrirjól, segír Ólafur Hauksson, ættu stórmarkaðirnir í erfíð- leikum með að gera stórar pantanir á örfá- um bókum til að fá mik- inn afslátt menningur líklega frekar kaupa jólabækurnar hjá þeim. Hvað gera bókaútgefendur? En þó bóksalar snúi vöm í sókn með því að upplýsa ekki um við- skiptaleyndarmál sín eru þeir upp á náð og miskunn bókaútgefenda komnir um hvort það heppnast. Bókaútgefendur búa nefnilega yfir flestum þeim upplýsingum sem þarf til að gera metsölulista. Reynsla undanfarinna ára bendir ekki til þess að bókaútgefendur standi með bóksölum. Á stuttri jóla- bókavertíð vilja útgefendur selja sem mest. Staðgreiðsla stórmark- aða á stórum sendingum af „met- sölubókum" er ákaflega freistandi. Hefðbundnar bókabúðir eru lengur að skila greiðslum. Þar að auki vita bókaútgefendur að bókabúðimar hætta ekkert að kaupa bækur hjá þeim þótt þeir taki hagsmuni stór- markaðanna fram yfir einn mánuð á ári. Höfundur er blaðamaður og starfar við almannatengsl. Opið virka daga 9-18 Laugardaga 10-16 Sunnudaga 14-16 iiiumHiniiiiiii af öllum yfirhöfnum fimmtudag, föstudag og laugardag. Þægileg og falleg föt sem endast og endast. Opið laugardag 10.00-18.00 Opið sunnudag 13.00-18.00 Sendum í póstkröfu BARNASTIGUR BRUM'S 0-14 SÍÐAN 1955 - sendum bæklinga út á land ef óskað er. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI 552 1461 Barnaskór í úrvali Helgartilboð Laugard. 10-18 ITlÍílÍbcl Mán.- Fös. 9-18 svartir STOÐTÆKNI Císli Ferdinandsson efif Lækjargötu 4 • S: 551 4711 hvee hriagir, á&iir eih svorafc m Með þar til gerðum síma eða tæki, sést númer þess sem hringir, áður en símtólinu er lyft af. í flestum slíkum tækjum er hægt að geyma númer þeirra sem hringdu, þegar enginn var við. Sækja þarf um þjónustuna hjá Pósti og síma og greiða ársfjórðungsgjald kr. 190, en ekkert stofngjald er tekið. Þegar hringt er frá útlöndum, úr NMT-farsímakerfinu eða síma með númeraleynd kemur ekki fram númer þess sem hringir. í vissum tilvikum er ekki hægt að veita símnotanda þessa þjónustu. PÓSTUR OG SÍMI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.