Morgunblaðið - 05.12.1996, Side 50

Morgunblaðið - 05.12.1996, Side 50
50 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR + Björg Eyjólfs- dóttir fæddist í Hafnarfirði 1. apríl 1930. Hún Iést á heimili sínu, Austurströnd 4, Selljarnarnesi, 28. nóvember siðastlið- inn. Foreldrar Bjarg- ar voru Eyjólfur Kristjánsson, spari- sjóðsgjaldkeri i Hafnarfirði, f. 18.1. 1902, d. 5.5. 1947, og Guðlin Jóhann- esdóttir, húsmóðir, f. 30.6. 1896, d. 10.5. 1982. Systkini Bjargar voru Einar, sjómaður, f. 13.4. 1924, d. 9.1. 1947, unnusta hans var Soffía Júliusdóttir. Guðný, húsmóðir, f. 27.10. 1925, d. 4.8. 1992, eig- inmaður hennar var Kristján Þorvaldsson. Reynir, fyrrv. for- stjóri Sjúkrasamlags Hafnar- fjarðar, f. 19.11. 1927, eigin- kona hans er Dóra S. Guð- mundsdóttir. Björg giftist Ingólfi Guð- mundssyni verslunarmanni í Hafnarfirði hinn 19. mai 1951 og bjuggu þau i Hafnarfirði til ársins 1964, er þau hófu búskap að Þórustöðum í Olfusi. Þau skildu 1973 og Björg fluttist til Reykjavíkur. Börn þeirra eru: 1) Einar, f. 29.11. 1951, kona hans Gunn- hildur Olga Jónsdóttir sjúkra- liði, þau skildu. Börn þeirra eru Sólveig, f. 18.8. 1975, og Björg, f. 24.1. 1977. 2) Gunnar, bóndi, f. 18.9.1955, d. 19.4.1988, kona hans Eygló Bjamþórsdóttir, þau skildu. Börn þeirra eru Linda Dröfn, f. 19.7. 1975, og Erla Björg, f. 16.10. 1978. Fyr- ir átti Gunnar Eygló Svövu, f. 30.9. 1974. 3) Stefán Daði, áféngisráðgjafi, f. 10.6. 1957, kona hans er Katrín M. Þor- björnsdóttir, húsmóðir og nemi, böm þeirra em El- var Órn, f. 5.6. 1985, og Ingólfur Bjöm, f. 27.6. 1992. Fyrir átti Stefán Daði Sigurlaugu Björgu, f. 9.11. 1975, og Þóri Hall, f. 18.12. 1980. 4) Auður Ingólfsdótt- ir, skrifstofumaður, f. 15.6. 1958, maður hennar er Valgeir Valgeirsson verk- fræðingur. Börn þeirra em Valgeir f. 22.12. 1980, og Björg, f. 22.4. 1985. 5) Trausti Óttar Steindórsson, fiskeldis- fræðingur, f. 17.7. 1965, fóstur- sonur. Sonur hans er Aron Ótt- ar, f. 26.12. 1985. Hinn 8. janúar 1975 giftist Björg eftirlifandi _ eiginmanni sinum Vilhjálmi Ólafssyni, f. 6.5. 1933, fyrrverandi skrif- stofustjóra Hagstofu Islands. Sonur hans af fyrra hjónabandi er Pétur, viðskiptafræðingur, f. 10.7. 1960. Björg og Vilhjálmur bjuggu fyrstu hjúskaparár sín í Reykja- vík en fluttust til Hafnarfjarðar 1980 og bjuggu þar á Ölduslóð 46 þar til í júní á þessu ári að þau fluttu á Austurströnd 4, Selljarnarnesi. Björg ólst upp i Hafnarfirði á Jófríðarstaðavegi 15. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Flens- borgarskóla 1946. Hún starfaði við verslunar- og skrifstofu- störf þar til hún giftist 1951. Frá þeim tima sinnti hún barna- uppeldi og húsmóðurstörfum. Frá árinu 1976 starfaði Björg á skrifstofu Ríkisspítalanna, fyrst i launadeild og síðar sem gjaldkeri. Hún lét af störfum þar 1986 vegna veikinda. Útför Bjargar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hún amma er farin. Hvernig er hægt að finna réttu orðin til að lýsa þessari stórbrotnu manneskju? Það vita allir sem hana þekktu hversu einstök hún var. Það var alveg sama hvernig stóð á hjá ömmu, alltaf gat hún veitt okkur styrk, alltaf hafði ** hún tíma til að taka utanum okkur og gefa af sinni lífsgleði og orku sem virtist óþijótandi. Sama hver átti í hlut, hún gat alltaf dregið fram það besta í fólki. Hún átti einstaklega auðvelt með að benda á kosti ann- arra og gerði alla í kringum sig að sérstökum einstaklingum. Hún var mikill mannþekkjari og skilningsrík persóna sem átti auðvelt með að sjá hlutina frá ólíkum sjónarhornum. Það var alltaf jafn notaleg tilfinning að koma úr hinu daglega amstri til ömmu og afa. Þar fundum við frið, því á móti okkur streymdi ótakmörk- uð ástúð og hlýja. Amma átti svo auðvelt með að sýna tilfinningar sín- ar hvort sem það var í orðum eða verki. Hún naut þess að vera með nánustu vinum og ættingjum. Hún bar af vegna glæsileika síns og per- sónutöfra, ávallt hrókur alls fagnað- ar þar sem aldrei var langt f hennar fræga húmor. Hún var kona sem við litum upp til og dáðum. Hennar óslökkvandi þrá að læra og vita meira varði til síðasta dags. Elsku amma, á þessari stundu þegar við sitjum hér saman systurn- ar til að skrifa þessi minningarorð rifjast upp samverustundir sem munu aldrei gleymast. Hver á að syngja með okkur lög Andrew’s systra, dansa við okkur í eldhúsinu eða kúra með okkur í sjónvarpshol- inu með fullt af svindli og kóki í lítra- tali? Hvar fáum við ömmu-spaghettí og -skyr? Þetta hljómar kannski sjálfselskulega, en elsku besta amma, vissir þú ekki að þú ert gull- molinn okkar? Glóandi með útbreidd- —-an faðminn, þurrkaðir tárin okkar og breyttir þeim í gimsteina. Takk, er allt sem við getum sagt. Við vitum að þér líður betur núna. Þó að þú hafir ávallt metið mikils lífið sem þú áttir hér með okkur hefur þú ætíð verið sannfærð um að eitthvert líf bíði okkar annars staðar. Nú eru sjálfsagt gleðilegir endurfundir þar sem pabbi tekur á móti þér ásamt systkinum þínum Guðnýju og Einari, mömmu þinni og pabba, Hrefnu og fleirum. Elsku afi, missir þinn er mikill, við vitum hversu sterk ást ykkar ömmu hefur ætíð verið. Við munum aldrei fylla upp í þetta djúpa skarð, en kærleikurinn sem ríkir í fjölskyld- unni mun styrkja okkur í þessari miklu sorg. Nú er mál að taka lífs- reglur ömmu Bjargar til fyrirmynd- ar; horfa björtum augum fram á veginn og halda lífsgleðinni. Elsku amma, þú verður engill í hjarta okkar - alla tíð. Eygló Svava, Linda og Erla Björg Gunnarsdætur. Það virðist svo stutt síðan þú og pabbi kynntust, en þó er liðinn tæp- ur aldarfjórðungur. Þið genguð í hjónaband í janúar 1975, og áttuð því tuttugu ára brúð- kaupsafmæli á síðasta ári. Ég minnist allra jólaboðanna hjá ykkur, þegar fjölskyldan safnaðist saman á annan í jólum. Þá gátuð þið hitt öll barnabörnin, sem eru ykkar líf og yndi. Þú getur ekki leng- ur verið með þeim í efninu, en verð- ur það alveg örugglega í andanum. Það var auðsótt að leita til þín með margvísleg vandamál, enda átt- ir þú auðvelt með að hlusta á vanda- mál annarra. Eftir erfið og langvarandi veikindi undangengin tíu ár ert þú loks farin til nýrra og betri heimkynna, sem við töluðum svo oft um. Víst er, að aðskilnaðurinn fyrir ástvini ykkar verður erfiður. Elsku Björg, ég þakka þér fyrir allar samverustundirnar og allar samræðustundimar sem við áttum um andleg og veraldleg mál. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. Hann endumærir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum; þú smyrð höfuð mitt með olíu; bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Pétur. Elskuleg mágkona mín og vin- kona Björg Eyjólfsdóttir er látin. Mig langar til að minnast hennar með örfáum orðum. Ég kynntist Björgu fyrst fyrir rúmum tuttugu árum þegar Vilhjálmur bróðir minn bauð okkur Palla og mömmu til sín, til að kynna okkur fyrir unnustu sinni. Ég hafði kviðið svolítið fyrir en það reyndist óþarfi. Hún tók okk- ur opnum örmum og þannig hefur það verið ætíð síðan. Við urðum góðar vinkonur og mjög nánar, sér- staklega síðustu ár. Björg greindist með krabbamein 1986, þá var hún mjög veik en með ótrúlegum bar- áttuvilja, jákvæðni og góða skapinu sínu náði hún sér. Björg og Vilhjálm- ur áttu góð ár framundan, þau voru mjög hamingusöm. Svo kom reiðar- slagið vorið 1995, þá greindist hún aftur með krabbamein og fór í með- ferð og allt virtist ætla að ganga vel, en svo kom bakslag, og því miður náði sjúkdómurinn yfirhönd- inni. Hún tók þessu með hetjulegri ró og gafst ekki upp. Við fórum mikið út saman og gerðum ýmislegt skemmtilegt eins og áður. Það er svo margs að minnast, ég mun sakna hennar Bjargar minnar mjög mikið. Björg, Vilhjálmur og við Palli byggð- um sumarbústaði hlið við hlið í Bjarnastaðalandi í Hvítársíðu 1989. Tíminn sem við áttum saman á Bjarnastöðum þegar við vorum að byggja sumarbústaðina og rækta landið var yndislegur tími. í sumar sem leið fórum við Björg tvær sam- an upp í Hvítársíðu í sumarbústaðinn minn. Þar dvöldum við í nokkra daga. Hún naut hverrar mínútu við að hitta vinina í sveitinni og rifja upp gamla daga þegar hún var kaupakona á Bjamastöðum og ýmis- legt fleira. Reyndist þetta síðasta ferð hennar í Hvítársíðuna. Þessi ferð mun ylja mér um hjartarætur um komandi framtíð. Björg og Vil- hjálmur fluttu í júní á þessu ári á Seltjarnarnesið. Eg var svo ánægð að fá þau svona nálægt mér. Þótt Björg væri orðin mjög veik setti hún allt á sinn stað á nýja heimilinu eins og hún vildi hafa það. Það mátti enginn hjálpa henni og tókst henni mjög vel að gera heimilið vistlegt. Hún vissi að hverju stefndj en alltaf var stutt í góða skapið. Ég kvaddi þig með trega 28. október þegar ég var að fara í frí. Þú lofaðir mér því að þú myndir sitja í sófanum þegar ég kæmi aftur og svo sannarlega varstu þar, en orðin fárveik. Tveim dögum seinna lagðistu alveg í rúm- ið. Ég þakka þér elsku Björg allar yndislegu samverustundimar sem við áttum saman. Ég veit að þér líð- ur vel núna. Ég bið guð að styrkja bróður minn, börnin, tengdabörnin, barnabörnin og okkur öll sem syrgj- um þig. Erla. í stofunni á heimili Bjargar og Vilhjálms hanga tvær myndir eftir Þorvald Skúlason sem eru einkenn- andi fyrir eitthvert glæsilegasta tímabil í myndþróun Þorvaldar, tímabil sem jafnan er kennt við Ölf- usá. Á þeim árum var hann tíður gestur á heimili Bjargar og Ingólfs, fyrri manns hennar, þegar þau bjuggu á Þórustöðum í Ölfusi. Þor- valdi varð þá oft reikað niður að ánni og varð þessi mikla og straum- þunga á honum óþijótandi efni til myndsköpunar. Á myndunum má skynja þungan nið árinnar sem streymir endalaust einsog tíminn sem líður og ekkert fær stöðvað. Þannig er lífið. Hver einstaklingur á sér upphaf og endi en lífíð í sinni margbreytilegu mynd streymir framhjá einsog áin. Það var bróður mínum mikil gæfa að kynnast Björgu, en Ieiðir þeirra lágu saman fyrir rúmum tuttugu árum. Það var án efa gagnkvæmt; saman unnu þau bug á erfiðleikum, fundu sameigin- legan lífsfarveg sem varð þeim til mikillar giftu. Það var okkur skyld- mennum Hjalla einnig mikil gæfa að fá að kynnast persónutöfrum Bjargar, hlýhug hennar og mann- kærleika. Móður minni sýndi hún einstaka ræktarsemi sem nú sér á bak öðru tengdabarni á fáum árum. Allir sem kynntust Björgu minn- ast hennar sem sterks persónuleika með jákvætt lífsviðhorf. Hún sýndi hveijum og einum áhuga á því sem hann var að gera. Á þetta ekki síður við um böm mín sem minnast henn- ar með gleði í hjarta. Börn Bjargar og barnabörn urðu mjög hænd að Hjalla og barnabörn- in nefndu hann aldrei annað en afa. Þau hafa verið honum ómetanlegur stuðningur í sorg hans við fráfall móður þeirra og ömmu. Björg hafði þann hæfileika að sjá hverdagsleikann í skáldlegu ljósi. Ofur einfaldur og venjulegur atburð- ur gat í frásögn hennar breyst í skemmtilega og spennandi sögu. Þegar henni tókst hvað best upp í frásagnargleðinni upplifði maður smáatvik sem stórfenglegt ævintýri. Ekki veit ég hvort lestur fagurra bókmennta hefur mótað þessa skáld- legu sýn hennar á hversdagsleikann. Eitt er þó víst, bókahillurnar á heim- ili Bjargar og Hjalla bera vitni vönd- uðum og góðum smekk. Bækurnar voru dýrgripir sem átti að með- höndla með virðingu en án þess að vera eitthvert stofustáss. Þegar ég kom á heimili þeirra - sem var alltof sjaldan - kvaddi ég aldrei án þess að renna augunum til bókaskápsins og laumaðist þá stundum til að grípa eina og eina bók. Átti ég þá gjarnan tal við Björgu um sameiginleg áhugamál. Björg var ein af þessum hvunn- dagshetjum sem bera harm sinn í hljóði. Hún átti við langvarandi veik- indi að stríða, barðist árum saman við banvænan sjúkdóm en kvartaði aldrei og neitaði að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Þegar sýnt þótti að hveiju stefndi síðustu dægrin beið hún þess er verða vildi af yfir- vegaðri ró þeirrar manneskju sem er heilsteypt og sönn. Dauðann ótt- aðist hún ekki; hafði fremur áhyggj- ur af framtíð bróður míns sem nú sér á bak eiginkonu og sönnum vini og félaga til margra ára. „Og fegurðin mun ríkja ein.“ Á þessum orðum lýkur Heimsljósi Hall- dórs Laxness. Fegurðina skynjum við m.a. í skáldsögum Laxness og málverkum Þorvaldar - en fyrst og fremst skynjum við hana í mannleg- um samskiptum, samlíðaninni með manneskjunni. Við fráfall ástvinar skiljum við einna helst hversu þessi samkennd, þessj samlíðan er okkur mikils virði. Á slíkum stundum skynjum við hversu lífið er dýrmætt. Sigurður Jón Ólafsson. Þegar ég minnist Bjargar, fyrr- verandi tengdamóður minnar, er það fyrsta sem kemur upp í hugann hversu skemmtileg og orðheppin hún var. Hversdagslegir atburðir urðu æv- intýralegir í hennar umfyöllun. Hún var glæsileg kona, laðaði að sér fólk og naut sín vel í margmenni. Með sínum einstaka húmor átti hún auð- velt með að sjá spaugilegar hliðar á grafalvarlegustu málum. Jafnvel þegar hún var orðin verulega máttf- arin og dauðastundin nálgaðist gat hún haldið uppi léttri skemmtidag- skrá fyrir þá sem komu til hennar með sorg í hjarta. Björg og Vilhjálmur voru einstak- Iega samhent hjón. Þau voru hvort öðru mikilvæg og stóðu saman í blíðu og stríðu. Villi á margar góðar minn- ingar um samveru þeirra sem ég vona að hjálpi honum í hans miklu sorg. Ég er þakklátur fyrir kynni mín af Björgu. Dauði hennar var ótíma- bær og ég veit að það eru margir ósáttir við hann. Ég kveð hana með virðingu og söknuði. Gunnhildur Olga Jónsdóttir. Móðursystir mín, guðmóðir og nafna andaðist að morgni 28. nóv- ember síðastliðinn. Gagga frænka eins og við systkinaböm hennar kölluðum hana, var alltaf einstök í mínum augum. Hún var 16 ára þegar ég fæddist og þar sem for- eldrar mínir bjuggu fyrstu árin hjá afa og ömmu fannst mér hún alltaf eiga heilmikið í mér. Hún frænka mín hafði einstaka kímnigáfu sem fylgdi henni fram á síðasta dag. Tveimur dögum áður en hún dó og hún gat vart haldið höfði vegna magnleysis tókst henni á sinn sérstaka hátt að koma mér og dóttur sinni til að gráta af hlátri. Ung varð hún að hætta námi þegar afi minn og faðir hennar dó aðeins 45 ára gamall. En sú grunn- menntun sem hún hafði fengið í Flensborg reyndist henni gott vega- nesti enda var hún skörp með af- brigðum. Við þá menntun jók hún í skóla lífsins og var óspör að miðla reynslu sinni til annarra. Hún var sú sem ég leitaði til þegar ég var að lesa fyrir próf í menntaskóla og fannst systkini mín þrengja að mér heima fyrir. Alltaf var hún reiðubúin til að setjast nið- ur og hlýða mér yfir og aðstoða mig eftir föngum. Lestur bóka var henni mjög hug- leikinn og ekki hvað síst ljóðalest- ur, en hún kunni ógrynni af ljóðum og svo vel að veikindi eða lyf sljóvg- uðu ekki huga hannar í þeim efnum. Hún frænka mín hafði svo mikið að gefa og fyllti mig sjálfsöryggi og vellíðan í hvert skipti sem ég heimsótti hana. Ég á erfitt með að hugsa mér heiminn án hennar og mömmu, sem dó fyrir 4 árum. Það er enginn sem fyllir það skarð, sem þær skilja eftir. En minningin um yndislega frænku mun lifa með mér í framtíð- inni. Þegar ég kvaddi hana hinsta sinni, skömmu áður en hún dó, hvíslaði hún í eyra mér „ekki gleyma Göggu frænku". Ekki er hægt að gleyma slíkri konu. Hún lifir og dafnar með manni um ókomna tíð. Ég kveð þig með söknuði og þakka þér allt sem þú hefur gefið mér og fjölskyldu minni. Elsku Villi, Auður, Stebbi, Einar og Trausti og allir sem eiga um sárt að binda. Guð veri með ykkur á þessari sorgarstundu. Björg. Elsku frænka okkar, hún Gagga, er látin langt um aldur fram. Hún hafði átt við erfið veikindi að stríða undanfarin ár og þótt lífsvilji og baráttuþrek þessarar einstöku konu hafi verið með ólíkindum, varð hún að lokum að lúta í lægra haldi. Margs er að minnast. Við systk- inin eigum ákaflega góðar minning- ar um frænku okkar. Fyrstu æviár okkar bjuggu fjölskyldur okkar í sama húsi í Hafnarfirði. Eftir að Gagga, Gúlli og krakkarnir fluttu að Þórustöðum í Ölfusi vorum við með annan fótinn þar, ýmist í sum- ardvöl eða styttri heimsóknum. Á þeim bæ ríkti engin meðalmennska. Þau hjón ráku stórbú, þar sem hús- móðirin stjórnaði af mikilli röggsemi og af annáluðum myndarskap stóru og mannmörgu heimili, þar sem ætíð var mikill gestagangur. Þar var alltaf líf og fjör og heitar umræður um ýmis mál. Þangað komu margir andans menn og kynlegir kvistir, sem við krakkarnir höfðum mjög gaman af að snúast í kringum. Eftir að Gagga flutti aftur í bæinn stóð heimili hennar og Villa okkur og fjölskyldum okkar ávallt opið og þang- að var alltaf jafnnotalegt að koma. Gagga frænka var okkur öllum afar kær. Hún var ein kraftmesta og duglegasta kona, sem við höfum kynnst. Okkur systkinabörnum sín- um reyndist hún ákaflega vel og gott var til hennar að leita, þegar eitthvað bjátaði á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.