Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
>
;
j
)
j
j
i
3
J
J
3
3
i
i
3
I
Í
Í
i
I
:
4
4
4
4
4
MIIMIMINGAR
ÓLAFUR
ANDRÉSSON
+ Ólafur Andrés-
son fæddist í
Reykjavík hinn 17.
nóvember 1949.
Hann lést á Land-
spítalanum 24. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Andrés Ásgríms-
son, f. 2. des. 1921,
og Halldóra Jó-
hannsdóttir, f.
12. september 1922.
Bræður hans eru
Gústaf Adolf og
Jóhann Salómon.
Ólafur var fráskil-
inn er hann lést. Hann eignað-
ist áður Ólöfu Lindu, f. 1972.
Hann átti einnig Berglindi Ósk,
f. 22. apríl 1976.
Ólafur stundaði sjómennsku
mestalla sína ævi en þó mest
hjá Landhelgisgæslunni.
Útför Ólafs fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Hjartkær sonur okkar og bróðir.
Hver skilur tilgang lífsins? Af
hvetju ert þú farinn burt frá okkur
á besta aldri? Þetta verða nokkur
fátækleg orð því okkur er orða vant.
Við áttum ástríkan son að eiga þig,
þú varst alltaf svo hlýr og góður
við alla og alltaf var hægt að leita
til þín.' Þú vildir alltaf allt fyrir
okkur gera og fyrir alla sem til þín
leituðu var svarið jákvætt frá þinni
hendi.
22 ár ert þú í starfi hjá Landhelg-
isgæslunni og þar af 19 ár á varð-
skipinu Tý. Þeir sýndu það líka
skipsfélagar þínir hvað þeim þótti
vænt um þig með því að koma hver
á fætur öðrum og heimsækja þig á
sjúkrahúsið, þú varst svo glaður að
fá þá í heimsókn. Þökk sé þeim
öllum fyrir góðar samverustundir.
Elsku drengurinn okkar, við
kveðjum þig með söknuði, þú ert
vel geymdur hjá Guði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku drengurinn okkar. Kveðja.
Mamma, pabbi og bræðumir.
Elsku pabbi minn. Ég spyr mig
oft: Hví varstu tekinn frá mér?
Missirinn er svo mikill, pabbi minn,
en ég veit að þú ert vel varðveittur
hjá Guði. Eina huggunin er sú að
þú þurftir ekki að þjást meira af
þessum hræðilega sjúkdómi sem þú
fékkst. Þú sem varst
alltaf svo mikil hetja í
mínum huga og munt
ætíð vera, pabbi, ég er
svo stolt af þér.
Sjómennskan var
þér mikils virði en fjöl-
skyldan þín var þó mik-
ilvægari. Þú stundaðir
sjómennskuna frá
unglingsaldri, varst í
mörg ár hjá Eimskipa-
félaginu og þá á Fjall-
fossi, varst síðan í 22
ár hjá Landhelgisgæsl-
unni, á Baldri í þorska-
stríðinu, Árvakri, varð-
skipinu Þór en þó lengst af á varð-
skipinu Tý, um 19 ár. Þar áttir þú
líka góða vini og ég veit að þú
munt alltaf vera í hjarta þeirra eins
og allra.
Elsku pabbi, eins og ég hef sagt
þér áður, hefur þú alltaf verið eng-
illinn minn og vakir alltaf yfir mér,
rétt eins og litla stúlkan þín mun
alltaf vaka yfir þér.
Fyrir rúmum mánuði uppgötvað-
ist illkynja æxli í líkama þínum sem
enginn ræður við og þar sem líkami
þinn var svo sterkur, barðist hann
og hrinti öllum einkennum frá sér
í langan, langan tíma.
Ástarengillinn minn, hve dugleg-
ur og jákvæður þú varst á þessum
erfiðu tímum og hve þú barðist fram
á síðustu stundu. Við vitum að það
var allt gert sem í mannlegu valdi
stóð til að bjarga þér en lífið hefur
sinn tilgang, sjúkdómurinn sigraði,
en ég veit líka að Guð elskar þig
svo mikið að hann tók þig strax til
sín heldur en að horfa upp á þig
þjást.
„Þó ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta. Ég er
svo nærri að hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur, en þegar þið
hlæið og syngið með glöðum hug,
lyftist sál mín upp í mót til Ijóss-
ins. Verið glöð og þakklát fyrir allt
sem lífið gefur og ég, þótt látinn
sé, tek þátt í gleði ykkar yfir líf-
inu.“ (Ók. höf.)
Elsku pabbi minn, engillinn minn,
ég kveð þig með þeim orðum, hve
yndislegur og ástkær faðir þú varst
mér. Þú studdir mig í gegnum lífið
af ómótstæðilegri ást og umhyggju
og takk fyrir að hafa verið til og
leyft mér að koma við í þínu lífi.
Minningarnar á ég miklar um
okkar samverustundir sem voru svo
dýrðlegar, þú oft að gantast við
mig, alltaf svo rólegur og mikil gleði
í þér, vel skipulagður og vel til fara,
já, elskan mín, ég hef lært mikið
af þér.
Ég er afar þakklát fyrir að hafa
fengið það tækifæri að búa hjá þér
síðustu þijú ár, bjuggum tvö sam-
an, yndislegur tími.
Guð varðveiti þig, elsku pabbi
minn, og ég elska þig af öllu mínu
hjarta.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.“ (K. Gibran.)
Með ástar- og saknaðarkveðjum.
Þín dóttir,
Berglind Ósk.
Ég fæ því ekki með orðum lýst
hversu agndofa ég varð er ég fékk
þær skelfilegu fréttir að þú værir
látinn, elsku Óli minn.
Á stund sem þessari er fátt um
orð en efst í huga eru allar góðu
minningamar um samverustundir
okkar frá því þú komst inn í líf
mitt er ég var níu ára gamall og
þú tókst þér fyrir hendur að sjá um
Huldu, Gústa og mig, er þú og
mamma giftust, og svo einu ári
seinna fæddist hún Berglind elsku-
lega, litla systir mín.
Þú sem varst alltaf svo hugul-
samur, umhyggjusamur og yndis-
legur stjúpfaðir. Alltaf fannst mér
það jafn spennandi að hlusta á sög-
urnar frá því þegar þú varst á sjón-
um og ferðaðist um hinn stóra heim,
og beið ég spenntur eftir því þegar
ég hafði aldur til að feta í fótspor
þín. Ég fór á sjóinn og fór að sjá
mig um í hinum stóra heimi, en
síðastliðin fimm ár hef ég búið í
Flórída eins og þú veist og því mið-
ur höfum við nú ekki sést mikið
undanfarið.
Aldrei hefði mér dottið í hug
þegar við hittumst í apríl síðastliðn-
um, að það yrði í síðasta skipti sem
við sæjumst. Og er greinilegt að
þegar dauðinn knýr dyra er enginn
greinarmunur gerður á manngæsku
né aldri, aðeins þeir góðu deyja
ungir.
Elsku Óli minn, þakka þér fyrir
allt, þín er virkilega sárt saknað.
Megir þú hvíla í friði.
Ég kveð þig nú, elsku Óli minn,
og vona að þér líði vel hinum megin.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Þinn stjúpsonur,
Eyjólfur Guðmundsson.
Elskulegur stjúpfaðir minn hann
Óli er dáinn. Það er eitthvað sem
maður sættir sig aldrei við, en verð-
ur að læra að lifa með. Minningarn-
ar eru margar og góðar enda varstu
yndislegur stjúpfaðir minn frá því
ég var fjögurra ára gömul. Aldrei
hvarflaði að manni að þú yrðir veik-
ur, þú sem varst alltaf svo hraustur
og sterkur og kveinkaðir þér aldr-
ei. Við vorum varla búin að með-
KRISTÍN
SIGFÚSDÓTTIR
+ Kristín Helga
Sigfúsdóttir
fæddist 21.11. 1912.
Hún lést 26. nóvem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ástríður Ingi-
mundardóttir og
Sigfús Pétursson
trésmiður á Seyðis-
firði. Eftirlifandi
systir hennar er
Ragnheiður Sigfús-
dóttir. Kristín ólst
upp á Seyðisfirði og
starfaði þar og rak
þar sína eigin
saumastofu og hélt fjölmörg
Háteigskirkju í dag
og hefst athöfnin kl.
15.00.
Það er með söknuði
sem við kveðjum Stínu
frænku okkar. I hugan-
um sitja eftir margar
góðar minningar frá
veru okkar í Bólstað-
arhlíðinni. Það var alltaf
tilhlökkunarefni að fá
að gista yfír nótt hjá
Stínu. Bjallan hennar
var sérmerkt með lím-
bandi fyrir okkur svo
við rötuðum aftur inn
eftir að hafa leikið okkur í garðinum.
í kapphlaupi hlupum við upp tröpp-
saumanámskeið á vegum Kven-
félagasambands íslands víða
um Austurland. Hún flutti til
Reykjavíkur árið 1957 og starf-
aði þar við iðn sína.
Útför Krístínar fer fram frá
urnar þar til við komum á stigapall-
inn þar sem flest blómin voru. Þá
vissum við að við værum á réttum
stað. Stína tók ætíð á móti okkur
með brosi á vör eins og hún var
vön. Það var alltaf nóg fyrir okkur
að gera hjá Stínu. Langir göngutúr-
ar sem enduðu með heitu súkkulaði
og nýbökuðum kleinum. Piparköku-
baksturinn vel skreyttur með glassúr
var fastur liður fyrir jól á hveiju
ári. Við sátum oft yfír henni á með-
an hún saumaði föt á bangsana og
dúkkurnar okkar. Það var sama
hvort um var að ræða jólakjól eða
dúkkuföt, allt var þetta fallega saum-
að. Heimili hennar var mikið ævin-
týraland. Við höfðum gaman af að
skoða hlutina og bækumar hennar.
Margar stundir sátum við í litla eld-
húskróknum og teiknuðum. Betri
leiðbeinanda var ekki hægt að hugsa
sér. Elsku Stína okkar. Við kveðjum
þig með þakklæti fyrir allar góðu
stundimar sem þú gafst okkur.
Næm, skynsöm, ljúf í lyndi,
lífs meðan varstu hér,
eftirlæti og yndi
ætíð hafði eg af þér,
í minni muntu mér;
því mun eg þig með tárum
þreyja af huga sárum,
heim til þess héðan fer.
Þórdís, Arnar,
Ögmundur og Ragnheiður.
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 ’53
taka það að þú værir orðinn veik-
ur, svo skyndilega ertu tekinn frá
okkur.
Ég bið fyrir, að Guð vaki yfir
þér, elsku Óli minn, og ég vil þakka
þér fyrir allar dýrmætu og ógleym-
anlegu stundimar sem við áttum
með þér. Það er eitt sem aldrei
verður frá manni tekið - minning-
arnar. Elsku Begga systir mín, ég
bið góðan guð að gefa þér styrk í
þessari miklu sorg.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verld var gjöf, sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku Óli minn, ég kveð þig nú
og bið ég góðan Guð að geyma þig.
Þín stjúpdóttir,
Hulda.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Vinur minn, Ólafur Andrésson,
er látinn eftir stutta en þunga sjúk-
dómslegu. Stundum er það svo í líf-
inu að tungan lamast og orðin stað-
næmast einhvers staðar og komast
vart til skila. Svo er það nú. Ég
veit líka fyrir fullt og fast að sá
prúði og hæverski vinur sem við
kveðjum núna, hefði ógjaman viljað
sjá mikið orðskrúð og lofsyrði um
sig látinn. En þakkaryrðin fyrir allt
hið góða verða þó að birtast, og það
vil ég reyna af veikum mætti.
Óli, vinur minn og nafni, var
ekki viðhlæjandi allra, en þeir sem
áttu vináttu hans höfðu hana alla.
Óli var dulur og svo dagfarsprúður
og orðvar að jaðraði oft við feimni.
Vegna þess virkaði hann oft á tíðum
fáskiptinn, en þeir sem þekktu hann
vissu að undir niðri sló heitt hjarta
og heit og viðkvæm lund.
Óli kunni að gleðjast með öðrum,
var spaugsamur og ótrúléga fljótur
að sjá broslegu hliðina á hlutunum.
Þá upptendraðist hann allur og hið
góðlega og smitandi bros hans verð-
ur flestum ógleymanlegt. En tryggð-
in og skapfestan var hans aðal.
Gæti ég tínt til mörg dæmi þessu
til sönnunar, en læt hér aðeins fylgja
þakklæti mitt fyrir tryggðina og vin-
áttuna. Mætti ég þó láta fylgja hér
með sérstaka þakkarkveðju frá Gísla
Óla Jónssyni og Halldóru Ragnars-
dóttur, systur minni.
Óli hafði gengið lengi á sætrjám,
hóf ungur sjómennsku og undi sér
vel til sjós. Þó mátti stundum greina
vissan söknuð vegna fjarvista við
ástvinina. En þetta er hlutskipti
sjómannsins og Óli tók á þessu
vandamáli á sinn sérstaka hátt og
mættu margir læra þar af.
Óli var afskaplega vinsæll meðal
s
N
M
.1 M M M M M É M li 1 pj
Erfidrykkjur
*
P E R L A N
Sími 562 0200
skipsfélaga sinna og samstarfs-
manna og veit ég að þaðan berast
heitar kveðjur og þakklæti. Þó Óli
byrjaði ungur til sjós og hefði verið
víða, þá var hans skip Týr. Þar
hafði hann siglt í tæp 20 ár og
kynnst gleði og sorg, en alltaf stað-
ið jafn traustur hvað sem bjátaði
á. Þetta kunnu margir að meta og
þó orðin væru ekki mörg, þá fundu
menn samúðina í fasi hins trygg-
lynda manns. Og þó hann væri
ákafur stuðningsmaður og einn af
frumherjum eigendafélagsins svo-
kallaða um borð, spillti það ekki
vinsældum hans. Og það sýnir best
mannkostina sem prýddu Óla.
Samband Óla við foreldra sína
var alltaf einstaklega kært og náið.
En hafi einhver átt hjarta hans, þá
var það Begga dóttir hans. Hún var
augasteinn hans og veittu þau hvort
öðru óskipta ást í gegnum lífíð. Og
Óli hafði alltaf gott samband við
Hildi móður hennar og komu þau
tengsl berlega í ljós nú undir lokin.
Og stærstur var Óli síðasta mán-
uðinn. Þó veikindin tækju sinn toll
og þó hann væri umvafinn ást og
umhyggju sinna nánustu, þá var
það samt svo að hann veitti jafnvel
meir en hann þáði. Og undir niðri
bar hann mikinn kvíðboga fyrir sín-
um nánustu, en hugsaði minnst um
sjálfan sig. Og það lýsir honum
betur en mörg orð. Ég veit að vinir
hans, skipsfélagar og samstarfs-
menn, kveðja hér öðling með tryggð
í hjarta. En mest er þó sorgin hjá
nánustu ættingjum, því hér er
kvaddur góður sonur, góður bróðir,
góðir faðir, en umfram allt góður
maður. Megi góður Guð styrkja
þau, varðveita og blessa í sorg sinni.
Er ég kveð vin minn og nafna
hinstu kveðju, er ég þakklátur fyrir
vináttuna og tryggðina í gegnum
árin. Mér fínnst ég svo miklu betri
maður að hafa kynnst honum og
átt vináttu hans, og svo er víst um
fleiri.
Með _vinarkveðju.
Ólafur Þór Ragnarsson.
Erfidiykjqur
Glæsileg kaffi-
hlaöborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
ísúna 5050925
og 562 7575
JS
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LOFTLfilDLR
Erfidrykkjur
HÓTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38
Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550
t
KRISTÍN HÖGNADÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
er látin.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum sýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnhildur Þóroddsdóttir,
Þorragötu 7.