Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 72

Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 72
<o> M AS/400 er... ...mest selda fjölnotenda viðskiptatölvan í dag (Ti> nýhei MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Burðarás hf. ásamt fleirum vill kaupa hlut KEA í UA Viljayfirlýsing lík- lega undirrituð í dag STEFNT er að því að undirrita í dag viljayfirlýsingu um að Burða- rás hf., dótturfyrirtæki Eimskips hf., kaupi ásamt fleirum 11,3% hlut KEA í Útgerðarfélagi Akur- eyringa, og jafnframt verði undir- rituð viljayfirlýsing um að Sölum- iðstöð hraðfrystihúsanna kaupi 13% hlut Akureyrarbæjar í ÚA. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins verður söluverð hlutabréf- 3* anna á genginu 5,25, og kaupa Burðarás o.fl. því hlut KEA á rúm- ar 540 milljónir króna og SH hlut Akureyrarbæjar á um 625 milljón- ir. Verður því samtals um að ræða viðskipti með hlutabréf í ÚA að upphæð um 1165 milljónir króna. Búist er við að endanlega verði gengið frá sölu hlutabréfanna fyr- ir helgi, og verður hlutur Burða- ráss o.fl. og SH í ÚA þá samtals rúmlega 34% og hlutur Akureyrar- bæjar 20%. Ekki liggur ljóst fyrir hvað Akureyrarbær hyggst gera við þann hlut. Söluandvirði bréfa bæj- arins verður notað til að greiða niður skuldir bæjarfélagsins auk þess sem nota á hluta af andvirði bréfanna til framkvæmda. KEA mun hins vegar ætla sér að styrkja sjávarútvegsdeild sína og efla með því sjávarútveg á Eyjafjarðar- svæðinu. KEA sýnir bréfunum áhuga Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins höfðu forsvarsmenn KEA gefið í skyn við bæjaryfirvöld að KEA væri reiðubúið að kaupa 13% hlut bæjarins sem SH gerði tilboð í ef ekki yrði af þeim kaupum og ekki yrði af sölu bréfa KEA til Burðaráss o.fl. Ætlaði KEA þá að kaupa bréf Akureyrarbæjar á sama gengi og tilboð SH hljóðaði upp á, eða 5,25. Atlanta semur við Urval-Utsýn SAMNINGAR hafa tekist um að flugfélagið Atlanta annist allt sólar- landaflug fyrir ferðaskrifstofuna Úrval-Útsýn á tímabilinu 1. júní til 1. nóvember á næsta ári, alls 8 þús- und sæti. Ferðaskrifstofan hefur hingað til nær eingöngu skipt við Flugieiðir um sitt leiguflug, en hún er að stærstum hluta í eigu félagsins. Hörður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að Atl- anta hefði_ boðið besta brottfarartím- ann frá íslandi og lægsta verð á sæti. „Atlanta hefur mjög stóra vél sem skapar einhverja yfírburði í kostnaði á hvert sæti. Við eigum kost á því að njóta þess og gerðum því samning við félagið bæði um flug til Portúgal og Majorka." Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður forstjóra Flugleiða, sagði að_ kapp- kostað væri að halda rekstri Úrvals- Útsýnar sjálfstæðum og gefa fyrir- tækinu færi á að spreyta sig á mark- aðnum. Hingað til hefðu Flugleiðir leigt Úrval-Útsýn flugvélar og nýtt tíma þegar vélamar væru ekki í áætlunarflugi. Hins vegar væri mik- ill vöxtur í markaðnum um þessar mundir og félagið teldi sig eiga kost á að nýta þann tíma í arðbærari verkefni í áætlunarflugi. Flýgur Atlanta með 34 þúsund farþega? Að sögn Helga Jóhannssonar, for- stjóra Samvinnuferða-Landsýnar, eru samningar nú í burðarliðnum milli Samvinnuferða-Landsýnar og Atlanta um 26 þúsund sæti næsta sumar, þannig að þá gæti félagið hugsanlega flogið með 34 þúsund farþega. ■ Samið/B2 Kröfugerð Verkamannasambandsins Lágmarks- laun verði 7 0 þúsund VERKAMANNASAMBAND íslands krefst þess að lágmarkskauptaxti — sambandsins hækki upp í 70.000 Mcrónur á mánuði við undirritun næstu kjarasamninga. Jafnframt krefst sambandið þess að taxtar hækki á samningstímanum með krónutöluhækkunum en ekki pró- sentuhækkunum. „Við krefjumst verulegra hækk- ana á kauptöxtum Verkamannasam- bandsins og þar með kaupmáttar- Reykjavíkurborg Hallalaus fjárhags- áætlun FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja- víkurborgar fyrir árið 1997, sem lögð verður fram í dag, gerir ráð fyrir hallalausum rekstri. Heildartekjur borgar- innar eru áætlaðar 18,8 millj- arðar, þar af fara rúmir 4 millj- arðar til skólamála, 2,1 millj- arður í dagvistunarmál og 1,7 milljarðar félagsmál. Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að skuldir borgarinnar breytist ekki á næsta ári, en þær eru í dag 14,4 milljarða. Rekstrargjöld sem hlutfall af skatttekjum verða 82% sem er sama hlutfall og á þessu ári. ■ Stefnt er að/36 aukningu. Við bendum á aðferðir til þess að ná þessu markmiði fram. Kauptaxtar Verkamannasambands- ins eru lágir eins og allir vita og það er brýnt að hækka þá,“ sagði Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ. Kröfugerð VMSÍ gerir ráð fyrir að samið verði til 26 mánaða, en það þýðir að samningurinn rennur út 1. mars 1999. Samninganefnd Dagsbrúnar hef- ur einnig samþykkt kröfugerð í kom- andi samningum. Hún gerir ráð fyr- ir sambærilegum kauphækkunum og VMSÍ gerir í kröfugerð sinni. Kennarar krefjast 110 þúsunda í lágmarkslaun Kennarasamtökin hafa kynnt við- semjendum sínum kröfugerð í kom- andi samningum. Að sögn Eiríks Jónssonar, formanns KÍ, krefjast kennarar að lágmarkslaun kennara verði hækkuð úr u.þ.b. 75 þúsund krónum á mánuði í 110 þúsund á mánuði. Kröfurnar geri ráð fyrir að aðrir taxtar hækki með sambærileg- um hætti. Auk þess sé gerð krafa um breytingar á vinnutíma sem geti tekið gildi á 5-6 árum. Breytingin miði að því að lækka kennsluskyld- una en auka vægi annarra þátta í starfi kennara þannig að kennsla eins bekkjar verði fullt starf. Mjólkurfræðingar hafa einnig lagt fram kaupkröfur. Þeir krefjast þess að kauptaxtar hækki um 5% við undirritun samninga og 3% síðar, en þeir vilja einungis semja til 14 mánaða í einu. Flest landssambönd innan ASÍ hafa rætt um a.m.k. tveggja ára samningstíma. Auk þess krefjast mjólkurfræðingar starfsald- urshækkana og hækkunar á skóla- álagi. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Milli tanka EKKl er vitað hvaða „myrkra- vinna milli tankanna, áður en verk“ þessi starfsmaður Olíu- hann gekk út í sólarljósið, en hafnarinnar úti á Granda var að hann var sæll að sjá. Hald lagt á klám- myndbönd LÖGREGLAN í Reykjavík lagði hald á 16 myndbönd í myndbandaleigu \ Þingholtun- um á þriðjudag. Á þeim er að finna klámefni og eru ungl- ingsstúlkur á aldrinum 14-16 ára í aðalhlutverkum. í fram- haldi af þessu máli mun lög- reglan kanna hvort myndbönd af þessu tagi er að finna víðar. Lögreglan fékk vísbendingu um að klámmyndbönd með unglingsstúlkum væri að finna í myndbandaleigunni. Eigandi myndbandaleigunnar lýsti sig fúsan til samstarfs við lög- reglu og veitti heimild til leit- ar. Þá vísaði hann á herbergi inn af afgreiðslunni, þar sem var að finna töluvert klámefni. Lögreglan taldi ástæðu til að leggja hald á 16 mynd- bönd, þar sem unglingsstúlkur eru í aðalhlutverkum. Titlar myndbandanna bera með sér aldur þeirra, því þeir vísa m.a. til skólastúlkna. Eigandinn kvaðst hafa keypt myndböndin af öðrum myndbandaleigum og ein- staklingum, en einnig flutt hluta þeirra inn sjálfur. Lögreglan í Reykjavík hefur vísað málinu til Rannsóknar- lögreglu ríkisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.