Morgunblaðið - 13.12.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 13
FRETTIR
Samstarfssamningur íslands við Schengen-ríkin undirritaður í næstu viku
Framkvæmd samningsins
gæti dregizt til aldamóta
AÐILDARSAMNINGAR norrænu
ESB-ríkjanna þriggja og samstarfs-
samningar íslands og Noregs við
ríki Schengen-vegabréfasamkomu-
lagsins verða undirritaðir í Lúxem-
borg næstkomandi fimmtudag. Að
því búnu fer samningurinn til um-
fjöllunar þjóðþinga viðkomandi
ríkja og er gert ráð fyrir gildistöku
hans á árinu 1998. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins stefnir
hins vegar í að ákvæði samningsins
komi ekki til framkvæmda gagn-
vart Norðurlöndunum fyrr en á ár-
inu 1999, jafnvel ekki fyrr en 2000.
Ástæða þess að framkvæmdinni
gæti seinkað eru tæknileg vand-
kvæði á að færa Schengen-upplýs-
ingakerfið (SIS) út til nýrra aðildar-
ríkja. Kerfið er upphaflega hannað
fyrir fimm ríki, en brátt verða þau
fimmtán og þurft getur að setja
upp nýja móðurtölvu. í SIS eru
skráðar upplýsingar um hættulega
eða eftirlýsta einstaklinga, fólk sem
hefur horfið og eftirlýsta hluti.
Gæti breytzt í tvíhliða
samning við ESB
Leiðtogar aðildarríkja Evrópu-
sambandsins ræða í dag á fundi
sínum í Dublin tillögur írlands, sem
nú er í forsæti ráðherraráðs ESB,
að breytingum á stofnsáttmála
sambandsins. Þar á meðal eru til-
lögur um að ESB verði „svæði frið-
ar, öryggis og réttlætis", en í því
skyni er m.a. lagt til að eftirlit á
innri landamærum aðildarríkjanna
verði aflagt, þau samræmi eftirlit
á ytri landamærum sambandsins
og taki upp samræmda stefnu varð-
andi vegabréfsáritanir og hælisveit-
ingu. Þetta þýðir í raun að stórir
hlutar Schengen-samkomulagsins
verði hluti af löggjöf ESB.
Schengen-samningurinn var
upphaflega gerður til þess að meiri-
hluti aðildarríkja ESB gæti náð
markmiðum Rómarsáttmálans um
fijálsa för þegna aðildarríkjanna
innan sambandsins. Bretland hefur
aldrei viljað taka upp samræmdar
reglur á þessu sviði og Irland neyðzt
til að sigla í kjölfarið.
Tillögur íra gera ráð fyrir að
nýjar ESB-reglur geti gengið í gildi
í ársbyijun 2001. í Bretlandi er
hins vegar áfram mikil andstaða
við tillögurnar og geta Bretar hindr-
að samkomulag um nýjar reglur.
Jafnframt eru raddir í öðrum aðild-
arríkjum ESB um að bezt sé að
halda sig við Schengen-samninginn,
þar sem Bretar geti frekar spillt
fyrir vegabréfasamstarfinu ef þeir
verði innan vébanda þess.
Verði tillögurnar hins vegar að
veruleika, mun bróðurpartur
Schengen-samningsins falla úr
gildi, enda er í samningnum kveðið
á um að ákvæði hans megi ekki
stangast á við ESB-rétt. Samstarfs-
samningar íslands og Noregs við
Schengen-ríkin myndu þá að öllum
líkindum breytast í tvíhliða samn-
inga við Evrópusambandið um þátt-
töku í vegabréfa- og dómsmálasam-
starfi. Áheyrnaraðild ríkjanna
tveggja að Schengen-ráðinu myndi
þá væntanlega breytast í áheyrnar-
aðild að ráðherraráði Evrópusam-
bandsins er það fjallaði um mál, sem
heyrðu undir viðkomandi samninga.
Ferðaskrifstofa
Islands festir
1 / TT / i 1 TTt« p
kaup a Hotel Hofn
skoða þetta betur og fá jafnvel lög-
fræðilega ráðgjöf um hvort það hef-
ur í sjálfu sér eitthvað jákvætt gildi
að inn í þetta frumvarp um samn-
ingsveð, komi texti þar sem tekið
er fram að óheimilt sé að veðsetja
veiðiheimildirnar einar og sér. Eg
ætla ekki að útiloka að óathuguðu
máli að það hafi eitthvert gildi sam-
anber sameignarákvæði fyrstu
greinar laga um stjórn fiskveiða.
En þegar í sömu andrá er svo leyfð-
ur sami hlutur í reynd, er einfaldlega
komin upp mótsögn á milli lagatext-
ans og framkvæmdarinnar," segir
hann.
Steingrímur segir að sér sýnist
að frumvarpið tryggi stöðu lánveit-
enda. „Þannig að í reynd sé sigur-
inn þeirra, þótt sérstaklega fram-
sóknarmenn séu að reyna að halda
því fram að þeir hafi unnið sigur
lagalega á pappírnum. Spurningin
er hversu mikils virði er hann,“ seg-
ir hann.
Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins, segist ekki hafa séð
frumvarpið ennþá en segir að ef
frumvarpið tryggi að Alþingi geti
breytt fiskveiðistefnunni án þess að
það skapi skaðabótakröfu þá sé það
í lagi. Hann segir að nauðsynlegt
sé að fá álit lögfræðinga á ákvæðum
frumvarpsins áður en það verður
tekið til afgreiðslu á Alþingi og telur
útilokað að frumvarpið verði afgreitt
fyrir áramót.
„Veðsetning kvóta er
heimiluð í reynd“
í frumvarpinu rekur sig hvað á
annars horn, að mati Ágústs Ein-
arssonar, þingmanns í þingflokki
jafnaðarmanna. „Það er lagt bann
við veðsetningu kvóta en á hinn
bóginn eru veittar mjög nákvæmar
heimildir um með hvaða hætti lán-
veitendur eiga að tryggja sig gagn-
vart því að eiga veð í kvóta. í reynd
er því heimilað að veðsetja kvóta
með þessu frumvarpi þó svo að
bannað sé að veðsetja kvótann ein-
an sér. Það er því ótvírætt í þessu
frumvarpi að veðsetning kvóta er
heimil þegar hann fylgir fiskiskipi,
og kvóti hefur jú alltaf fylgt fiski-
skipi,“ segir hann.
„Við jafnaðarmenn erum alfarið
á móti þessu frumvarpi af sömu
grundvallarástæðum og við höfum
haldið því fram að menn eigi ekki
að veðsetja það sem þeir eiga ekki.
Þjóðareign á fiskimiðunum er tryggð
samkvæmt lögum en hér er verið
að setja fram frumvarp, til að auð-
velda lánastofnunum vinnu sína.
Þær hafa getað tryggt sig hingað
til með fijálsum samningum og eiga
að gera það áfram. Það þarf ekki
atbeina löggjafans til þess. Þetta er
vont frumvarp og gengur í þveröf-
uga átt við áherslu okkar á þjóðar-
eign fiskimiðanna,“ segir hann.
Ágúst segir einnig að með lög-
festingu frumvarpsins verði ekki
annað séð en að varanlegt framsal
veiðiheimilda verði mjög erfitt í
framkvæmd. „Væntanlega verður
aðili að ganga fyrir alla sína veð-
hafa áður en hann framselur veiði-
heimildir varanlega af skipi sínu.
Það getur reynst mjög örðugt í
framkvæmd ef menn eru með slíka
lánssamninga. Ég tel að þetta muni
kalla á viðbótarvandræði í núver-
andi fiskveiðistjórnunarkerfi,“ segir
Ágúst.
„Ég er gáttaður á ríkisstjórnar-
meirihlutanum að ætla að heimila
veðsetningu með þessum hætti. Að
mínu mati er tal framsóknarmanna
og annarra um að það sé verið að
banna veðsetningu yfirklór og blekk-
ingar. Megintilgangur frumvarpsins
er að tryggja hagsmuni lánveitenda
þannig að þeir geti haldið kvótanum
sem tryggingu fyrir lánum sínum.
Það markmið næst, enda eru lána-
stofnanir mjög ánægðar," segir Ág-
úst.
Guðný Guðbjörnsdóttir, þingkona
Kvennalista, sagðist ekki geta tjáð
sig um efni frumvarpsins fyrr en það
verður lagt fram. „Mín afstaða hefur
almennt verið sú að ég er andvíg
veðsetningu aflaheimilda. Ég tel
mjög varhugavert að setja það í lög,
bæði vegna þess að það mun tryggja
kvótakerfið í sessi og hugsanlega
vera lóð á þá vogarskál sem styrkir
eignarrétt kvótahafa yfir lögsög-
unni,“ segir hún.
Höfn. Morgnnblaðið.
FERÐASKRIFSTOFA íslands
keypti í gær Hótel Höfn. Kaupverð
er trúnaðarmál milli kaupenda og
seljenda. Með þessum kaupum
tryggir ferðaskrifstofan stöðu sína
á Suðaustur- og Austurlandi. Fyrir
á hún 24% í Hótel Eddu á Kirkjubæj-
arklaustri og um 20% í hóteli sem er
í byggingu á Egilsstöðum. Að auki
rekur ferðaskrifstofan sumarhótel í
skólum á sama svæði.
Til eru teikningar af viðbyggingu
við Hótel Höfn en að sögn Kjartans
Lárussonar, framkvæmdastjóra
Ferðaskrifstofu íslands, eru ekki
áform um að byggja við hótelið í
bráð og yrði reksturinn fyrst í stað
með svipuðu sniði og verið hefði.
Sagði hann að á þessu hóteli hefði
ávallt verið faglega unnið. Fyrir-
tækið væri traust og gott og hótel-
ið uppfyllti vel þær kröfur sem
ferðamenn gerðu um góðan aðbún-
að.
Á hótelinu eru 40 herbergi, veit-
ingaaðstaða og bar. Það var tekið
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir frumvarp ríkis-
stjórnarinnar til laga um fiskveiðar
utan lögsögu Íslands ekki tak-
marka á neinn hátt „útrás ís-
lenzkra skipa eða möguleika þeirra
á að afla sér veiðireynslu í úthöfun-
um,“ eins og fullyrt væri af nokkr-
um gagnrýnendum frumvarpsins,
en það var tekið til annarrar um-
ræðu í gær.
Sjávarútvegsnefnd Alþingis skil-
aði þrískiptu nefndaráliti um frum-
varpið; einu frá meirihluta nefndar-
innar, öðru frá fulltrúum þingflokks
jafnaðarmanna, Sighvati Björgvins-
syni og Lúðvík Bergvinssyni, og því
þriðja frá Steingrími J. Sigfússyni,
fulltrúa Alþýðubandalags.
Meirihlutinn vill að frumvarpið
verði samþykkt með smávægileg-
um breytingum, er lúta m.a. að
heimildum ráðherra til að skilyrða
í notkun árið 1966 en hefur verið
endurbætt verulega síðan. Eigendur
frá upphafi hafa verið þeir sömu,
hjónin Árni Stefánsson og Svava
Sverrisdóttir og Ólöf Sverrisdóttir
og Þórhallur Dan Kristjánsson, sem
er látinn. Áður höfðu sömu aðilar
rekið lítið hótel á Höfn í 6 ár.
Ómæld vinna
Árni sagði að eftir 36 ár í þessum
rekstri hefði þeim þótt vera kominn
tími til að hægja ferðina enda eytt
ómældum tíma og orku í vinnu_ við
þetta fyrirtæki. Einnig sagði Árni
að viss straumhvörf væru nú í ferða-
þjónustu á Islandi.
Ferðaskrifstofa íslands hf. mun
taka við rekstri hótelsins 1. janúar
nk. Sólborg Steinþórsdóttir hefur
verið ráðin hótelstjóri. Sólborg er
lærður framreiðslumaður og hefur
verið hótelstjóri á Edduhótelunum á
Stórutjörnum og Laugum í Dal-
asýlsu auk þess sem hún hefur rek-
ið veitingastað í Reykjavík.
veiðar utan lögsögu úr íslenzkum
deilistofnum og ákvæðum um við-
urlög gegn skipum sem bijóta gegn
alþjóðasamningum sem Island er
aðili að. Steingrímur leggur í sínu
áliti áherzlu á að „alls ekki beri
að skoða samþykkt þessa frum-
varps sem aðgerð tii að leggja stein
í götu aukinnar sóknar íslenzkrar
útgerðar á úthafið", en setur fyrir-
vara á þær „rúmu“ heimildir sem
tillögur meirihlutans gera ráð fyrir
að leggja í hendur ráðherra.
Ótímabært
Jafnaðarmenn leggja hins vegar
til að frumvarpið beri ekki að af-
greiða að svo stöddu, þar sem þeir
telja það ekki tímabært, m.a. vegna
þess að úthafsveiðisáttmáli Samein-
uðu þjóðanna hefur ekki enn geng-
ið í gildi, og segja að ráðlegra sé
að sjá til hvernig þau lönd sem eiga
Morgunblaðið/Stefán Ólafsson.
ÁRNI Stefánsson hótelstjóri
fyrir utan Hótel Höfn sem
hann hefur nú selt.
í samkeppni við íslendinga á úthöf-
unum haga löggjöf um þetta efni,
áður en slík löggjöf sé sett hér.
Slíkt leggi ótímabærar takmarkanir
á möguleika íslenzkra útgerða til
sóknar á úthöfunum. Alvarlegustu
fyrirvarana við frumvarpið setja
Sighvatur og Lúðvík hins vegar við
það sem þeir telja vera framsal á
valdi til ráðherra til að ákveða
íþyngjandi ráðstafanir, „þar á með-
al í því skyni að takmarka athafna-
frelsi".
Sjávarútvegsráðherra vísaði því
á bug, að frumvarpið fæli í sér slíkt
valdaafsal og ítrekaði þá skoðun
sína, að brýnt væri að setja ný lög
um veiðar utan lögsögu íslands, um
veiðar m.a. úr íslenzkum deilistofn-
um, í nafni verndar fiskistofnanna.
Ekki stæði til að vega að neinu leyti
að stjórnarskrárbundnu athafna-
frelsi manna.
Ibúar í blokk komust
ekki út sökum reyks
Eldsupptök
rakin til
skreytingar
ELDUR kviknaði í íbúð í fjölbýlis-
húsi við írabakka um klukkari 3 í
fyrrinótt og eru eldsupptök talin
vera í jólaskreytingu sem þar var.
Talsverðar skemmdir urðu á íbúð-
inni, samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu í Reykjavík.
íbúi í húsinu vaknaði við reyk-
skynjara og tilkynnti um eldsvoð-
ann auk þess sem aðrir nágrannar
gerðu viðvart um atburðinn og
vegfarandi sem sá rúðu i íbúðinni
springa vegna hita.
Ekki í teljandi hættu
Að sögn slökkviliðsins logaði út
um gluggann og reykur barst um
stigagang hússins, þó svo að ekki
væri um mikinn eld að ræða. Fólk
á efri hæðum hússins komst ekki
niður stigaganginn sökum reyks,
en var ekki í teljandi hættu að
mati slökkviliðsins. „Hefði eldurinn
uppgötvast hálftíma síðar hefði
getað farið illa, en reykskynjarinn
gerði sannarlega sitt gagn í þessu
tilviki sem sýnir mikilvægi hans,“
sagði Erlingur Lúðvíksson aðal-
varðstjóri hjá slökkviliðinu í
Reykjavík.
Stigi var reistur við húsið og var
einum íbúa bjargað með þeim hætti
úr úr húsinu og var hann og annar
íbúi fluttur á slysadeild vegna
gruns um væga reykeitrun.
Slökkvistarf gekk greiðlaga fyrir
sig.
Grunur leikur á að eldurinn hafi
kviknað út frá rafljósaseríu í
glugga íbúðarinnar.
Slökkviliðinu í Reykjavík var
gert viðvart um eld í tveimur jóla-
skreytingum í gær og var í báðum
tilvikum um að ræða svokallaða
aðventukransa með kertum. Ekki
varð mikið tjón af þessum sökum.
Brenndist á handlegg
Eldur kviknaði í bllskúr í Hafnar-
firði um klukkan 15 í gær og fór
slökkviliðið þar á vettvang. Einn
maður var fluttur á slysadeild þar
sem óttast var að hann hefði feng-
ið reykeitrun, auk þess sem hann
hlaut væg brunasár á handlegg.
Eldsupptök eru ókunn, en maður-
inn var við vinnu sína í bílskúrnum
þegar eldurinn kviknaði.
Útrás íslenzkra skipa
ekki takmörkuð