Morgunblaðið - 13.12.1996, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
/íl<ENWOOD>
^^Matvinnsluvél 400W****
®2-4fc ' 0
M l\L-l M VVWU^k
*. *Matvinnsluvél 400 W^*
<4*. með ávaxta- og
•«a nrafinmfitisnrfissu ^0
fíl<ENWOOD>
* ^Matvinnsluvél 500W.%-#>
Kennslumyndband^^
aft, á íslensku fylgir. *r
* fKENWOODV
Handþeytari *
«-
.'KENWOODV,
Handþeytartá standí
■■tSa **
j*
l
nfmumtmv
r? * jos nnjAYjK
____________________ERLEMT___________________
Gro hafði augastað á NATO
Ýmis bitastæð atriði er að finna í nýrri bók Arne Olav Brundtland um lífið
með fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, Gro Harlem Brundtland
GRO Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Noregs og formaður Verkamanna-
flokksins hafði mikinn áhuga á stöðu fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO)
en hafði sig ekki nægilega í frammi, til að koma
raunverulega til greina, segir eiginmaður hennar
til 36 ára, Ame Olav Brundtland í nýrri bók,
sem ber heitið „Giftur Gro“ og sagt er frá í
Aftenposten.
Ame Olav er einn helsti sérfræðingur Norð-
manna í öryggis- og varnarmálum og starfar
við Norsku utanríkismálastofnunina. í bók sinni
fjallar hann um árin með Gro, eigið hlutverk sem
maki ráðamanns, um vonir og væntingar eigin-
konunnar og fjölskyldulífið en einn þriggja sona
Brundtland-hjónanna svipti sig lífi fyrir nokkmm
ámm.
Beðið símatals frá Clinton
Lesendum gefst kostur á því að skyggnast á
bak við tjöldin og kynnast afstöðu Gro til hluta
sem hún hefur lítið sem ekkert viljað tjá sig um,
m.a. umræður um framkvæmdastjóraskipti hjá
Sameinuðu þjóðunum og NATO. Af lestri bókar-
innar má merkja að Gro hefur áhuga á alþjóða-
starfí en hefur ekki sýnt nægilegan baráttuvilja.
Fyrir réttu ári, þegar leitað var eftirmanns
Willy Claes í stól framkvæmdastjóra NATO,
segir eiginmaðurinn að Gro hafí ekki útilokað
að hún myndi gefa kost á sér, ef einhugur myndi
ríkja um málið. Ame Olav segir ástæðu þess
að Solana var valinn en ekki Gro, hafa verið þá
að hún hafí „ekki haft nógu mikinn áhuga á
stöðunni til að vilja beijast fyrir henni... Eg er
sannfærður um að Gro hefði sagt já [hefði henni
ARNE Olav Brundtland kynnir
bókina „Giftur Gro“.
verið boðin staðan].“ Segir Arne Olav að afstaða
Bill Clintons Bandaríkjaforseta hefði ráðið þar
miklu um en hann hafði rætt við Gro og gekk
málið raunar svo langt að kvöld eitt sat fjölskyld-
an heimavið á nálum og velti því fyrir sér hvort
að Clinton myndi hringja. Það gerði hann ekki.
Arne Olav nefnir ennfremur að Gro hafi talið
átökin í Verkamannaflokknum á síðasta áratug
svo hatrömm að hún hafí íhugað að segja af sér.
Þakkir og skammir til fjölmiðla
Ame Olav Brundtland ræðir hispurslaust um
einkalífíð. Segist fyrir misskilning hafa ýtt und-
ir sögusagnir um ástarsamband Gro við Reiulf
nokkurn Steen í upphafí síðasta áratugar en
hann segir blaðamenn hafa misskilið og -túlkað
orð sín um málið.
ítarlega er fjallað um sjálfsmorð sonarins
Jorgen árið 1992 en þá héldu norskir fjölmiðlar
sig nær algerlega til hlés. Segir Arne Olav að
missir sonarins hafí verið mesti missir sinn en
Jorgen átti við geðræn vandamál að stríða. Lýst
er líðan sonarins og fjölskyldunnar er hann var
veikastur, m.a. sagt frá því þegar Jorgen gegndi
herþjónustu í Norður-Noregi en þá rændi hann
eitt sinn sjúkrabíl, tók með sér hlaðna byssu og
brá sér í bæinn.
Öðru sinni ruddist hann inn á nokkrar rit-
stjórnir dagblaðanna til að hefna sín á móður
sinni. „Við urðum að ræða við nokkra ritstjóra
sem reyndust þagmælskir."
Eiginmaður Gro fer þó ekki alltaf jafn fögrum
orðum um fjölmiðla, sem hann segir hnýsast í
einkalífið og ekki kunna sér nein takmörk. Það
getur þó átt sér skondnar hliðar, Ame Olav
segir frá því að þegar Gro hafði sagt af sér sem
forsætisráðherra, héldu hjónin í sumarhús sitt
til að hvflast. Þar bankaði upp á blaðamaður frá
Arbeiderbladet og spurði Arne Olav hvort hann
vissi hvar bústaður forsætisráðherrans fyrrver-
andi væri. Nei, það vissi hann ekki.
EVRÓPU S AMB ANDIÐ gengst
næstkomandi þriðjudag fyrir
„spjalli" á alnetinu við Marcel-
ino Oreja, einn af fram-
kvæmdastjórnarmönnum sam-
bandsins, og starfslið hans.
Umræðuefnið verður vænt-
anlegar breyt-
ingar á ESB og
stofnunum þess
og geta allir Evr-
ópubúar, sem
hafa rétta hug-
búnaðinn á tölv-
um sínum,
„spjallað“ við
Oreja.
Spjallstundin,
sem er sú fyrsta
á vegum Evrópu-
sambandsins,
hefstkl. 17 að
íslenzkum tima
og stendur í tvær
klukkustundir.
Meginumræðu-
efnin verða stækkun Evrópu-
sambandsins, ESB sem „svæði
frelsis og öryggis“ og vanda-
málin, sem fylgja fijálsri för
fólks innan sambandsins, at-
vinnumál og hagur hins al-
menna borgara af sameiginleg-
um gjaldmiðli.
Spyrja má spurninga á öllum
opinberum tungumálum Evr-
Marcelino Oreja
ópusambandsins nema grísku,
þar sem Grikkland notar annað
stafróf en önnur ESB-ríki.
Spurningunum verður svarað á
tungumálinu, sem spurt er á,
auk þess sem ensk þýðing birt-
ist jafnóðum.
Nánari upplýsingar er að
finna á alnetinu: http://europa.
eu.int/chat.htmen.
Reuter
KENNETH Clarke fjármálaráðherra (t.h.) á reglubundnum
fundi með Eddie George, bankasljóra Englandsbanka, áður en
hann flutti ræðu sína í þinginu.
Clarke styður hug-
myndina um EMU
London. Reuter.
KENNETH Clarke, fjármálaráð-
herra Bretlands, hóf tveggja daga
umræður um Evrópumál í þinginu í
Westminster með því að reita and-
stæðinga ESB-aðildar i þingflokki
íhaldsmanna til reiði. Clarke sagðist
hliðhollur hugmyndinni að baki
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu (EMU) og hann sagði að með
aðild að EMU væru Bretar ekki að
ganga inn í evrópskt ofurríki.
„Eg hef sagt skýrt og greinilega
að ég er hliðhollur hugmyndinni að
baki Efnahags- og myntbandalag-
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen
eðaltré, í hcesta gœðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
t*.
10 ára ábyrgð
i* 10 stcerðir, 90 - 370 cm
t* Stálfótur fylgir
t* Ekkert barr að ryksuga
t*. Truflar ekki stofublómin
t* Eldtraust
t* Þarf ekki að vökva
i* íslenskar leiðbeiningar
íi Traustur söluaðili
t*- Skynsamleg fjárfesting
BANDALAG ÍSLENSKSA SKÁTA
inu,“ sagði Clarke. „Hvað, sem við
ákveðum, hvort sem við verðum inn-
an eða utan EMU, mun það hafa
áhrif á okkur. Það er Bretlandi í hag
að taka áfram þátt í undirbúningi
EMU og tryggja að hagsmunir Bret-
lands séu varðir."
Clarke sagðist hlynntur því að
ríkisstjórnin héldi fast við þá stefnu
sína að útiloka ekki EMU-aðild,
heldur bíða og sjá hvemig mynt-
bandalagið þróaðist.
„Það að ræða um EMU eins og
menn væm að ræða um að setja á
stofn [evrópskt] ofurríki hræðir al-
menning og heldur skynsamlegum,
málefnalegum upplýsingi frá hinum
almenna borgara," sagði Clarke.
„Að mínu mati telja færri og færri
á meginlandinu að EMU sé verkfæri
til að koma á frekari pólitískum sam-
rana.“
EMU endalok þjóðríkisins
ESB-andstæðingar í röðum
íhaldsmanna vom ekki ánægðir með
ræðu fjármálaráðherrans. „Af
hveiju haldið þið að mikill meirihluti
íhaldsflokksins sé á móti sameigin-
legum gjaldmiðli?" spurði íhalds-
þingmaðurinn Tony Marlow. „Það
er einmitt vegna þess að hann yrði
endalok þjóðríkisins."
Netspjall við fram-
kvæmdastj ómarmann