Morgunblaðið - 13.12.1996, Síða 22

Morgunblaðið - 13.12.1996, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ /íl<ENWOOD> ^^Matvinnsluvél 400W**** ®2-4fc ' 0 M l\L-l M VVWU^k *. *Matvinnsluvél 400 W^* <4*. með ávaxta- og •«a nrafinmfitisnrfissu ^0 fíl<ENWOOD> * ^Matvinnsluvél 500W.%-#> Kennslumyndband^^ aft, á íslensku fylgir. *r * fKENWOODV Handþeytari * «- .'KENWOODV, Handþeytartá standí ■■tSa ** j* l nfmumtmv r? * jos nnjAYjK ____________________ERLEMT___________________ Gro hafði augastað á NATO Ýmis bitastæð atriði er að finna í nýrri bók Arne Olav Brundtland um lífið með fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, Gro Harlem Brundtland GRO Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætis- ráðherra Noregs og formaður Verkamanna- flokksins hafði mikinn áhuga á stöðu fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO) en hafði sig ekki nægilega í frammi, til að koma raunverulega til greina, segir eiginmaður hennar til 36 ára, Ame Olav Brundtland í nýrri bók, sem ber heitið „Giftur Gro“ og sagt er frá í Aftenposten. Ame Olav er einn helsti sérfræðingur Norð- manna í öryggis- og varnarmálum og starfar við Norsku utanríkismálastofnunina. í bók sinni fjallar hann um árin með Gro, eigið hlutverk sem maki ráðamanns, um vonir og væntingar eigin- konunnar og fjölskyldulífið en einn þriggja sona Brundtland-hjónanna svipti sig lífi fyrir nokkmm ámm. Beðið símatals frá Clinton Lesendum gefst kostur á því að skyggnast á bak við tjöldin og kynnast afstöðu Gro til hluta sem hún hefur lítið sem ekkert viljað tjá sig um, m.a. umræður um framkvæmdastjóraskipti hjá Sameinuðu þjóðunum og NATO. Af lestri bókar- innar má merkja að Gro hefur áhuga á alþjóða- starfí en hefur ekki sýnt nægilegan baráttuvilja. Fyrir réttu ári, þegar leitað var eftirmanns Willy Claes í stól framkvæmdastjóra NATO, segir eiginmaðurinn að Gro hafí ekki útilokað að hún myndi gefa kost á sér, ef einhugur myndi ríkja um málið. Ame Olav segir ástæðu þess að Solana var valinn en ekki Gro, hafa verið þá að hún hafí „ekki haft nógu mikinn áhuga á stöðunni til að vilja beijast fyrir henni... Eg er sannfærður um að Gro hefði sagt já [hefði henni ARNE Olav Brundtland kynnir bókina „Giftur Gro“. verið boðin staðan].“ Segir Arne Olav að afstaða Bill Clintons Bandaríkjaforseta hefði ráðið þar miklu um en hann hafði rætt við Gro og gekk málið raunar svo langt að kvöld eitt sat fjölskyld- an heimavið á nálum og velti því fyrir sér hvort að Clinton myndi hringja. Það gerði hann ekki. Arne Olav nefnir ennfremur að Gro hafi talið átökin í Verkamannaflokknum á síðasta áratug svo hatrömm að hún hafí íhugað að segja af sér. Þakkir og skammir til fjölmiðla Ame Olav Brundtland ræðir hispurslaust um einkalífíð. Segist fyrir misskilning hafa ýtt und- ir sögusagnir um ástarsamband Gro við Reiulf nokkurn Steen í upphafí síðasta áratugar en hann segir blaðamenn hafa misskilið og -túlkað orð sín um málið. ítarlega er fjallað um sjálfsmorð sonarins Jorgen árið 1992 en þá héldu norskir fjölmiðlar sig nær algerlega til hlés. Segir Arne Olav að missir sonarins hafí verið mesti missir sinn en Jorgen átti við geðræn vandamál að stríða. Lýst er líðan sonarins og fjölskyldunnar er hann var veikastur, m.a. sagt frá því þegar Jorgen gegndi herþjónustu í Norður-Noregi en þá rændi hann eitt sinn sjúkrabíl, tók með sér hlaðna byssu og brá sér í bæinn. Öðru sinni ruddist hann inn á nokkrar rit- stjórnir dagblaðanna til að hefna sín á móður sinni. „Við urðum að ræða við nokkra ritstjóra sem reyndust þagmælskir." Eiginmaður Gro fer þó ekki alltaf jafn fögrum orðum um fjölmiðla, sem hann segir hnýsast í einkalífið og ekki kunna sér nein takmörk. Það getur þó átt sér skondnar hliðar, Ame Olav segir frá því að þegar Gro hafði sagt af sér sem forsætisráðherra, héldu hjónin í sumarhús sitt til að hvflast. Þar bankaði upp á blaðamaður frá Arbeiderbladet og spurði Arne Olav hvort hann vissi hvar bústaður forsætisráðherrans fyrrver- andi væri. Nei, það vissi hann ekki. EVRÓPU S AMB ANDIÐ gengst næstkomandi þriðjudag fyrir „spjalli" á alnetinu við Marcel- ino Oreja, einn af fram- kvæmdastjórnarmönnum sam- bandsins, og starfslið hans. Umræðuefnið verður vænt- anlegar breyt- ingar á ESB og stofnunum þess og geta allir Evr- ópubúar, sem hafa rétta hug- búnaðinn á tölv- um sínum, „spjallað“ við Oreja. Spjallstundin, sem er sú fyrsta á vegum Evrópu- sambandsins, hefstkl. 17 að íslenzkum tima og stendur í tvær klukkustundir. Meginumræðu- efnin verða stækkun Evrópu- sambandsins, ESB sem „svæði frelsis og öryggis“ og vanda- málin, sem fylgja fijálsri för fólks innan sambandsins, at- vinnumál og hagur hins al- menna borgara af sameiginleg- um gjaldmiðli. Spyrja má spurninga á öllum opinberum tungumálum Evr- Marcelino Oreja ópusambandsins nema grísku, þar sem Grikkland notar annað stafróf en önnur ESB-ríki. Spurningunum verður svarað á tungumálinu, sem spurt er á, auk þess sem ensk þýðing birt- ist jafnóðum. Nánari upplýsingar er að finna á alnetinu: http://europa. eu.int/chat.htmen. Reuter KENNETH Clarke fjármálaráðherra (t.h.) á reglubundnum fundi með Eddie George, bankasljóra Englandsbanka, áður en hann flutti ræðu sína í þinginu. Clarke styður hug- myndina um EMU London. Reuter. KENNETH Clarke, fjármálaráð- herra Bretlands, hóf tveggja daga umræður um Evrópumál í þinginu í Westminster með því að reita and- stæðinga ESB-aðildar i þingflokki íhaldsmanna til reiði. Clarke sagðist hliðhollur hugmyndinni að baki Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu (EMU) og hann sagði að með aðild að EMU væru Bretar ekki að ganga inn í evrópskt ofurríki. „Eg hef sagt skýrt og greinilega að ég er hliðhollur hugmyndinni að baki Efnahags- og myntbandalag- Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen eðaltré, í hcesta gœðaflokki og prýða þau nú mörg hundruð íslensk heimili. t*. 10 ára ábyrgð i* 10 stcerðir, 90 - 370 cm t* Stálfótur fylgir t* Ekkert barr að ryksuga t*. Truflar ekki stofublómin t* Eldtraust t* Þarf ekki að vökva i* íslenskar leiðbeiningar íi Traustur söluaðili t*- Skynsamleg fjárfesting BANDALAG ÍSLENSKSA SKÁTA inu,“ sagði Clarke. „Hvað, sem við ákveðum, hvort sem við verðum inn- an eða utan EMU, mun það hafa áhrif á okkur. Það er Bretlandi í hag að taka áfram þátt í undirbúningi EMU og tryggja að hagsmunir Bret- lands séu varðir." Clarke sagðist hlynntur því að ríkisstjórnin héldi fast við þá stefnu sína að útiloka ekki EMU-aðild, heldur bíða og sjá hvemig mynt- bandalagið þróaðist. „Það að ræða um EMU eins og menn væm að ræða um að setja á stofn [evrópskt] ofurríki hræðir al- menning og heldur skynsamlegum, málefnalegum upplýsingi frá hinum almenna borgara," sagði Clarke. „Að mínu mati telja færri og færri á meginlandinu að EMU sé verkfæri til að koma á frekari pólitískum sam- rana.“ EMU endalok þjóðríkisins ESB-andstæðingar í röðum íhaldsmanna vom ekki ánægðir með ræðu fjármálaráðherrans. „Af hveiju haldið þið að mikill meirihluti íhaldsflokksins sé á móti sameigin- legum gjaldmiðli?" spurði íhalds- þingmaðurinn Tony Marlow. „Það er einmitt vegna þess að hann yrði endalok þjóðríkisins." Netspjall við fram- kvæmdastj ómarmann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.