Morgunblaðið - 13.12.1996, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 29
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
„ÞÓTT einleikarinn væri ekki með öllu óskoraður ofurfiðlari, vakti hann athygli fyrir sérlega smekk-
legar flúranir á þeim mörgu stöðum, þar sem mátti gera ráð fyrir slíku.“
Flug-
elda-
músík
TÓNLIST
Langhollskirkja
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Verk eftir Vivaldi, G. Gabrieli, Berli-
oz og Handel. Sinfóníuhljómsveit Is-
lands. Stjómandi og einleikari: Guill-
ermo Figueroa. Langholtskirkju,
fimmtudaginn 12. desember kl. 20.
„ÁRSHÁTÍÐIR Vivaldis" (eins
og óvart datt úr einum útvarpsþuln-
um í den tíð) hafa einhverra hluta
vegna hlotið sama hlutskipti og
rauð kerti og piparkökur - að vera
oftar reiddar fram um jól en á öðr-
um tíma árs. Kannski vegna vin-
sæls jólagjafahlutverks þeirra,
kannski vegna þess að jól og ára-
mót er tíminn þegar árið sem er
að líða er gert upp og árið kom-
andi er undirbúið. En fiðlukonsert-
arnir fjórir eftir rauðhærða prestinn
í Feneyjum, prentaðir í Amsterdam
og París um 1730 og samdir við
fjórar „prógramm“-sonnettur líkast
til eftir hann sjálfan, hafa alltjent
í hugum margra löngum tengzt
notalegum arineldi og púðursnjó.
Svo óvenjulega bar við á velsótt-
um jólatónleikum SÍ í Langholts-
kirkju í gær, að einleikari og stjóm-
andi var einn og sami maður, en
Guillermo Figueroa mun af kunnri
tónlistarmannaætt á Puerto Rico í
Karíbahafí. Hann á rúmlega 20 ára
stjómandaferil að baki og stjórnar
nú hinni kunnu kammersveit Orph-
eus. Á íslandi stjórnaði hann fyrst
fyrir tveim ámm, en hefur þó oftar
komið við hér, því 1974 var hann
lausamaður hjá SÍ og lék þá jafn-
framt í tríói með Guðnýju Guð-
mundsdóttur og Halldóri Haralds-
syni.
Að undangengnum þekktum
jólasálmi eftir eldri samborgara
Hándels í Halle, organistann Samu-
el Scheidt, þ.e.a.s. In dulci jubilo
(Sjá himins opnast hlið, 1630), greip
maestro fiðluna eins og annar Willi
Boskovsky að hætti valsakonung-
anna í Vín og lék einleikshlutverkið
í Vivaldi með áreynslulausum eleg-
ans. Miðað við hvað konsertarnir
eru geysiþekktir komust strengja-
sveit og prímas ágætlega frá verk-
efninu, sérstaklega þegar sumraði
í nr. 2, og gustaði verulega af leik
þeirra í Hausti og Vetri. Tempó
voru hefðbundin og sannfærandi,
og þótt einleikarinn væri ekki með
öllu óskoraður ofurfiðlari, vakti
hann athygli fyrir sérlega smekk-
legar flúranir á þeim mörgu stöð-
um, þar sem mátti gera ráð fyrir
slíku, en um það stendur ekkert
tilgreint í partitúrnum. Semballeik-
ari í fylgibassa var Guðrún Óskars-
dóttir og lék snyrtilega að virtist
eftir útfærðum nótum, en gaman
hefði verið að fá að heyra persónu-
legri flúrtilþrif og rúllöður hér og
þar, skv. upphaflegri hefð.
Lúðradeild hljómsveitarinnar
komst í sviðsljósið í þrem Canzónum
feneyska tónskáldsins Giovanni
Gabrieli, læriföður Schútz og
margra annarra kunnra tónskálda
á fyrri hluta 17. aldar. Gabrieli var
einn helzti forvígismaður „víðóms-
tækninnar" sem kennd er við cori
spezzati, aðskilda kóra, en þó að
sú hugmynd sé ævaforn (kunn m.a.
úr helgisöng gyðinga), gaf bygging-
arlag Markúsarkirkjunnar sérstakt
tilefni til slíkra antifónískra ákalla,
sem og mátti heyra í Canzona sep-
timi toni nr. 2 og Canzónu nr. 28,
en nr. 29 var hinsvegar flutt með
sveitina í einum hnapp. Blésu lúður-
þeytarar SÍ með miklum glæsibrag,
sérstaklega nr. 28.
Franska tónskáldið Hector Berlioz
hefur hlotið þá sérkennilegu ímynd
að vera einn helzti frumheiji róman-
tísku stefnunnar á tímum þegar
Þýzkaland var allsráðandi stórveldi
í tónlist. Hann veigraði sér við að
kalla kór- og hljómsveitarverkið
„L’enfance du Christ" (Bernsku
Jesú, 1850) óratóríu, þótt hún sé
það að flestu leyti, kannski vegna
óblíðu móttakanna sem fyrstu óper-
urnar hans hlutu í heimalandinu.
Hljómsveitin lék hér forleikinn að
2. þætti, Flóttann frá Egyptalandi,
sem var byggður upp sem rómantísk
fúga (= flótti (auðvitað!)) með yfir-
bragði ljóðrænnar depurðar, byrj-
andi í strengjum, en síðan tók við
lítill tréblásarakvartett (2 flautur,
óbó ög enskt horn) og skiptist á við
strengi til enda. Ákaflega tært og
fallegt verk og frábærlega vel mótað
af stjórnanda og hljómsveit.
Lokaatriði tónleikanna var Flug-
eldasvíta Hándels. Eins og nafnið
bendir til var hún upphaflega ætluð
til flutnings undir beru lofti, og til-
efnið var fengið af lyktum stríðs
Breta og Austuríkismanna 1748.
Verkið var samið fyrir risavaxna
hljómsveit, er sá um undirleik við
glæringahríð mikillar flugeldasýn-
ingar, s.s. einskonar „Gesamt-
kunstwerk" með orðalagi Wagners,
þótt frekar væri ætlað til fagnaðar
en að rista mjög djúpt. Hér mæddi
mikið á blásurum, sérstaklega á
háttliggjandi trompetröddum, en
pjátrið lét hvergi deigan síga, held-
ur lék sem herforingjasveit með
Ásgeir Steingrímsson fremstan og
efstan meðal jafningja.
Ég var ekki alveg sáttur við sum
tempí stjórnandans, einkum í Bo-
urréeinu, sem varð fremur mótt og
másandi, að maður segi ekki óró-
legt, á þessum hraða, og í hægari
köflum hefði stundum mátt óska
sér aðeins meiri þyngdar og patoss.
Sem vænta mátti reyndist vitavon-
laust fyrir strengina að hafa í tré
við brassið þegar mest gekk á, en
glæsibragur þessa gleðiverks skil-
aði sér engu að síður að fullu, þó
að himinljósadýrðin tilheyrandi væri
ekki til staðar. Því mætti hinsvegar
auðveldlega kippa í lag með því að
endurtaka svítuna á þaki hljómskál-
ans n.k. gamlárskvöld ...
Ríkarður Ö. Pálsson
Nemenda-
sýning við
Hamarinn
HELGINA 14. og 15. desember
stendur yfir sýning á verkum nem-
enda Listaskólans við Hamarinn í
Hafnarfirði.
Barnadeildin verður með úrval
verka, svo sem grafík, málverk,
teikningar, jólakort og leirmuni.
Nemendur í fullorðinsdeildum sýna
vatnslitamyndir, teikningar og olíu-
málverk auk þess sem út kemur
þriðja tölublað Kartúns sem er
myndasögublað nemenda gefið út í
lok hverrar kennsluannar.
Sýningin er til húsa á annarri hæð
í Firði, en það er nýtt nafn á
verslanamiðstöð Hafnfirðinga sem
áður hét Miðbær Hafnarfjarðar.
Sýningin er opin báða dagana kl.
13-14. Allir velkomnir.
Útgáfutónleikar í
Háteigskirkju
NÝLEGA kom út geisladiskur með
Skólakór Garðabæjar og Hljómsveit
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar. Á disknum er jóla- og að-
ventutónlist frá ýmsum tímum.
Kórinn og hljómsveitin mun halda
útgáfutónleika í Háteigskirkju á
laugardag, 14. desember, kl. 17. Þar
munu börnin m.a. flytja saman
Jólnasumbl eftir Sigursvein D. Krist-
insson, Jól eftir eftir Jórunni Viðar
og Slá þú hjartans hörpustrengi úr
Kantötu nr. 147 eftir J.S. Bach. Þá
mun hljómsveitin leika Sálm við
Klett eftir Hafliða Hallgrímsson og
kórinn syngja ýmis jólalög.
Aðventutónleikar
í Skálholtskirkju
AÐVENTUTÓNLEIKAR í Skál-
holtskirkju verða haldnir á sunnudag
kl. 21.
Skálholtskórinn syngur jólatónlist
frá ýmsum löndum, systkinin Marta,
Hildigunnur og Sigurður, Halldórs-
börn Vilhelmssonar, koma fram
ásamt Skálholtskórnum og Kam-
merkór barnakórs Biskupstungna
mun einnig flytja jólalög.
Organisti Kristskirkju, Douglas
A. Brotchie, leikur undir með söng-
fólkinu og leikur einleik. Stjórnandi
er Hilmar Örn Agnarsson.
Launasjóður rit-
höfunda kærður til
Samkeppnisráðs
GUNNAR Smári Egilsson, höfundur
tveggja bóka á jólamarkaði, hefur
kært Launasjóð rithöfunda til Sam-
keppnisráðs. Hann telur að lögin um
listamannalaun, sem Launasjóður
rithöfunda starfar samkvæmt,
stangist á við anda samkeppnislaga.
Til að gefa hugmynd um áhrif
úthlutunar úr Launasjóði rithöfunda
á samkeppnisstöðu rithöfunda hefur
Gunnar Smári tekið saman töflu sem
á að draga fram hversu háir styrkir
Aðventuhátíð í
Víðihlíð
AÐVENTUHÁTÍÐ Tónlistarfélags
Vestur-Húnvetninga verður haldin í
Víðihlíð sunnudaginn 15. desember
kl. 21.
Fram koma; Blásarasveit Tónlist-
arskólans, einsöngvararnir Halldóra
Gestsdóttir, Eggert Antonsson og
Þorbjörn Gíslason, Lillukórinn, Elín-
borg Sigurgeirsdóttir með einleik á
píanó, Kirkjukórar úr héraðinu og
margir fleiri.
Kór Víðidalstungukirkju verður
með kaffisölu í hléi. Aðgangur er
ókeypis.
liggja að baki skáldsögum, sem
koma út á þessu ári, og hversu þungt
þessir styrkir vega í samanburði við
höfundarlaun þeirra sem skrifa sög-
urnar. Miðað við töflu Gunnars
Smára hafa eftirtaldar skáldsögur
vinninginn: Blóðakur eftir Olaf
Gunnarsson, Brotahöfuð Þórarins
Eidjárns, Z — ástarsaga eftir Vig-
dísi Grímsdóttur og íslandsförin eft-
ir Guðmund Andra Thorsson.
Sjö rithöfundar
á fullum árslaunum
Síðan lög um listamannalaun voru
sett hafa sjö höfundar fengið full
árslaun öll fimm árin, að sögn Gunn-
ars Smára: Einar Kárason, Einar
Már Guðmundsson, Gyrðir Elíasson,
Pétur Gunnarsson, Steinunn Sigurð-
ardóttir, Vigdís Grímsdóttir og Þór-
arinn Eldjárn. Gunnar Smári bendir
ennfremur á að sex af þessum sjö
hafi síðast gefið út bækur hjá Máli
og menningu og Forlaginu. Hann
telur það benda til „ákveðinnar ein-
hæfni“ að af þeint „tæplega 38 þús-
und eintökum sem ríkið hefur í raun
keypt af höfundunum fyrirfram eru
68 prósent samin af höfundum sömu
útgáfusamsteypunnar — Máls og
menningar og Forlagsins".
Málstofa BSRB
Nýsjálenska tilraunin
s
og Island
Dr. Jane Kelsey,
lagaprófessor og rithöfundur frá
Nýja Sjálandi heldur fyrirlestur í þingsal 1,
Hótel Loftleiðum,
mánudaginn 16. desember,
kl. 9.00 árdegis.
Fyrirspurnir að loknum fyrirlestrinum.
Allir velkomnir