Morgunblaðið - 13.12.1996, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 53-
FRÉTTIR
YFIRBYGGÐ göngngata í Mjóddinni.
Breytingu á yfirbyggingu
göngugötu í Mjódd lokið
Á MYNDINNI er Sigurður Pétursson, formaður sýningarstjórnar
Nordia 96, með vinningshöfunum, f.v. Yrja Kristinsdóttir, Ólafía
Ágústsdóttir og Hlynur Orn Ingason.
LOKIÐ er fyrri hluta breytinga við
yfírbyggingu göngugötu í Mjódd.
Hönnuður breytinganna er Gísli
Petersen.
Allir veggir er snúa að göngu-
götu eru málaðir í litum, lýsing
bætt og smíðaðir sölu- og kynning-
arbásar sem leigðir verða til fyrir-
tækja, samtaka og einstaklinga til
sölu og kynningar á vöru og þjón-
ustu. I desember verður markaðs-
Hljóðg'erningiir
í niðamyrkri í
Hinu húsinu
I HINU húsinu verður síðdegis-
uppákoma kl. 17 í dag, föstudag.
torg alla daga til jóla. Göngugatan
er um 2.500 m2 að flatarmáli.
í síðari áfanga, sem farið verður
í eftir áramót, verður komið fyrir
upphækkuðum, yfirbyggðum skála
sem notaður verður fyrir uppákom-
ur og kaffíhús. Þá verður komið
fyrir sölutumi sem kallaður verður
„Púlsinn í bænum“.
í Mjóddinni starfa um 70 verslun-
ar- og þjónustufyrirtæki.
Stilluppsteypa flytur hljóðgerning
fyrir tvö hljóðkerfi í niðamyrkri.
Stilluppsteypan fær sérstaka að-
stoð hjá japanska listamanninum
Juntare Ymanouchi sem meðal ann-
ars starfrækir hljómsveitina Geri-
gerigegege.
Aðgangur er ókeypis.
Jól liðins tíma í
Byggðasafni
Hafnarfjarðar
BYGGÐASAFN Hafnarfjarðar
stendur nú, eins og undanfarin ár,
fyrir jóladagskrá í Sívertsens-hús-
inu, Vesturgötu 6.
Alla virka daga fram að jólum
er dagskrá fyrir leikskólabörn bæj-
arins og kemur íslenskur jólasveinn
þess dags í heimsókn auk þess sem
börnin eru frædd um jólahald fyrr
á tímum.
Um helgina 14. og 15. desember
verður húsið opið fyrir almenning
og verður þá sagt og sýnt hvernig
jólahald var fyrr á tímum og einnig
koma jólasveinar í heimsókn uppúr
kl. 13.30. Safnið er opið almenningi
ki. 13-17 laugardag og sunnudag
og er aðgangur ókeypis.
Jólaskemmtun
skátakórsins
JÓLASKEMMTUN skátakórsins
verður haldin laugardaginn 14. des-
ember og hefst kl. 16.
Skemmtunin fer fram í sal Skáta-
sambands Reykjavíkur í skátahúsinu
við Snorrabraut. Húsið er opið öllum
sem hafa unun af góðum söng og
vilja lyfta sér á kreik í jólaerilnum.
Á staðnum verða seldar léttar veit-
ingar til styrktar skátakómum.
Á dagskrá em jólalög, skátalög
og gömul sígild þjóðlög. Stjórandi
kórsins er Steingrímur Þórhallsson.
Skemmtikvöld
nýbúa
MIÐSTÖÐ nýbúa stendur fyrir al-
þjóðlegu skemmtikvöldi, á morgun,
laugardag kl. 19, í Faxafeni 12.
Skemmtikvöldið kallast „Ljós í
myrkri" og er haldið árlega til að
undristrika vel heppnað starfsár.
„Miðstöðin hvetur alla áhuga-
menn til að mæta, sértaklega með-
limi hinna fjölbreyttu útlendingafé-
lag sem og aðra nýbúa. Allir taka
með sér einhvern þjóðlegan rétt
fyrir hina til að smakka á og út-
búið verður stórt hlaðborð. Tilvalið
að koma saman í skammdeginu og
gera sér dagamun innan um fjöl-
breytta menningarhópa, borða góð-
an mat, syngja og dansa,“ segir í
tilkynningu frá miðstöðinni.
■ Á SIR Oliver skemmta Laddi
og Hjörtur H. Sverris píanóleikari
föstudag og laugardag. Sir Oliver
er ný og breytt krá í Ingólfsstræti,
gegnt Islensku óperunni. Þar er
seldur matur í hádeginu og á kvöld-
in. Heitt súkkulaði og kaffi fæst
allan daginn ásamt meðlæti.
■ ÞRÍR unglingar í Reykjavík hlutu
Panasonic ferðahljómflutningstæki í
verðlaun í happdrætti sem efnt var
til í tengslum við norrænu frímerkja-
sýninguna Nordia 96. Gestir á sýn-
ingunni settu miða með nöfnum sín-
um í sérstakan póstkassa á sýning-
unni og var nýlega dregið úr tæplega
8 þúsund miðum sem komu í kass-
ann.
Jólaveisla
Felags nýrra
Islendinga
FÉLAGAR í Félagi nýrra íslendinga,
SONI, heldur árlegt íjölskyldujólaboð
sunnudaginn 15. desember kl. 15-
17b í Faxafeni 12, á 2. hæð í Mið-
stöð nýbúa.
SONI er félagsskapur fyrir útlend-
inga og velunnara. Aðalmarkmið fé-
lagsins er að efla skilning milli fólks
af öllum þjóðemum, sem býr á ís-
landi, með auknum menningarlegum
og félagslegum samskiptum.
ARCTIC CAT , árgerð '97
Það er alltaf eitthvað nýtt og spennandi
þegar ARCTIC CAT kynnir nýja árgerð.
Verið velkomin að Ármúla 13
SYNINGIN ER OPIN
föstudag kl. 9 - 18
laugardag kl.10 -16
Kjofis býður þann græna
ARMULA 13, SlMI: 568 1200, BEINN SIMI: 553 1236