Morgunblaðið - 13.12.1996, Side 55
r
!
|
)
I
>
1
I
I
J
I
9
I
i
4
4
4
4
4
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 55
FRETTIR
TRÚBROT kemur fram á Hótel íslandi eftir langt hlé.
Sljörnu-
kvöld á Hót-
el Islandi
HÓTEL ísland efnir til svokallaðra
Stjörnukvölda fyrir jólin, í kvöld,
annað kvöld og föstudagskvöldið
20. desember.
Boðið er upp á jólahlaðborð með
yfir 30 réttum. Klukkan 21 hefst
tónlistardagskrá þar sem fram
koma Ríó Tríó, söngsveitin Snör-
urnar, Rúnar Júlíusson og hljóm-
sveit og söngvararnir Bjarni Ara-
son, Ari Jónsson, Pálmi Gunnarsson
og Einar Júlíusson.
Þá kemur hljómsveitin Trúbrot
fram eftir áratuga hlé, en hana
skipa Gunnar Þórðarson, Rúnar
Júlíusson, Gunnar Jökull Hákonar-
son og Magnús Kjartansson. Loks
leikur stórsveit Gunnars Þórðarson-
ar undir dansi til klukkan 03. Verð-
ið er kr. 2.800 fyrir manninn fyrir
jólahlaðborðið og skemmtiatriðin.
BÓK Gunnlaugs er prýdd 200
litmyndum.
Sýning hjá Bíla-
búð Benna
NÝJA bókin um akstursíþróttir á
Islandi, Meistarar eftir Gunnlaug
Rögnvaldsson, er komin út. Hún
verður kynnt á sýningu hjá Bílabúð
Benna nk. laugardag.
Sýndir verða keppnisbílar úr tor-
færunni, ökumenn veita eiginhand-
aráritanir, jólasveinar mæta til leiks
og ýmsar veitingar verða í boði.
Sýningin stendur frá kl. 114-17
og lýkur með flugeldasýningu
Hjálparsveita skáta í Reykjavík.
Verslunin verður opin frá kl. 9.
Bók Gunnlaugs Rögnvaldssonar,
Meistarar, er prýdd 200 litmyndum
og viðtöl eru við helstu keppnis-
menn á síðustu árum. Þá er rakin
vinningaskrá helstu greina ís-
•enskra bifreiðaíþrótta frá upphafi.
Sjö jólatón-
leikar
JÓLATÓNLEIKAR Tónlistarskóla
ísafjarðar eru að þessu sinni sjö
talsins. A Isafirði eru tónleikarnir
haldnir í sal Grunnskólans á ísafirði
og verða sem hér segir: Föstudags-
kvöld kl. 20.30, laugardagskvöld
kl. 17, sunnudagskvöld kl. 15 og 17.
Á tónleikunum kemur fram hátt
á annað hundrað nemenda, ýmist
einir eða í samleik með öðrum.
Hljómsveit skólans flytur nokkur
lög og bamakór syngur á síðustu
tónleikunum.
Jólatónleikar á Suðureyri verða
í Suðureyrarkirkju mánudagskvöld-
ið 16. desember kl. 20.30. Þar leika
nemendur á píanó og blásturshljóð-
færi og einnig verður söngur á efn-
isskránni.
Jólatónleikarnir í útibúi skólans
í Súðavík verða þriðjudagskvöldið
17. desember. Þar verður tónleikum
nemendanna slegið saman við jóla-
hátíð grunnskólans og er dagskráin
samfelld með tónlistar- og söngatr-
iðum, upplestri og jólagríni.
Alliance
Frangaise býð-
ur í bíó
ALLIANCE Frantjaise í Reykjavík
býður í bíó föstudaginn 13. desem-
ber kl. 20.30.
Sýnd verður kvikmyndin „Le
grand blond avec une chaussure
noire“ eftir sögu Yves Robert og
Francis Veber í leikstjóm Yves
Roberts. Myndin sem er grínmynd,
er frá árinu 1972. Aðalhlutverk em
í höndum Pierre Richard, Mireille
Darc, Bernard Blier og Jean Roc-
hefort.
Myndin fjallar um háttsetta
menn hjá frönsku leyniþjónustunni
sem lenda í vanda og verða að fínna
sér blóraböggul.
Alliance Francaise er í Austur-
stræti 3 og er gengið inn frá Ingólf-
storgi.
LEIÐRÉTT
Ekki Erla Hjaltested
í MYNDARTEXTA með frétt á bls.
6 í gær, Tengt framhjá áverka á
mænu, var Hulda Sveinbjörg Gunn-
arsdóttir hjúkrunarfræðingur rang-
lega sögð heita Erla Hjaltested.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Leyft að
flytja haf-
beitarlax í
Norðlinga-
fljót
LEIGUTAKAR stangaveiðirétt-
inda í Norðlingafljóti í Borgarfírði
hafa á ný fengið undanþágu til
þess að flytja villta hafbeitarlaxa
í ána á komandi sumri. Slíkir laxa-
flutningar vom bannaðir á nýliðnu
sumri vegna smithættu eftir að
kýlaveiki gaus upp í Elliðaánum
og Fiskeldisstöð ríkisins í Kolla-
fírði.
Aðeins ein umsókn hefur verið
til afgreiðslu enn sem komið er og
verða undantekningar aðeins gerð-
ar þar sem algerlega laxlausar ár
eiga í hlut.
Gísli Jónsson físksjúkdómafræð-
ingur er ráðgjafí Fisksjúkdóma-
nefndar og staðfesti hann í sam-
tali við Morgunblaðið að gerð hefði
verið undanþága með Norðlinga-
fljót. „Það em strangari reglur að
þessu sinni og aðeins kemur til
greina að veita undanþágur þar
sem enginn lax er fyrir. Þetta var
bannað á liðnu sumri. Kýlaveikin
gaus upp sumarið 1995 og meðal
þeirra aðgerða sem gripið var til
var að banna flutninga hafbeitar-
laxa í laxlausar og laxlitlar ár
vegna smithættu. Menn vom ekki
á eitt sáttir um hvort þær ráðstaf-
anir sem gripið var til gengu nógu
langt eða öfugt, en út frá sjúk-
dómahliðinni er ekkert sem mælir
á móti því að leyfa þetta aftur
með þessum formerkjum. Veikin
lét ekki á sér kræla og laxinn virð-
ist hafa verið hreinn í hafí,“ sagði
Gísli.
Eftirlit verður aukið
Gísli upplýsti enn fremur, að
aukið eftirlit verði með laxi sem
fluttur verður í Norðlingafljót.
Ákveðið úrtak fari í rannsókn
bæði í upphafi vertíðar og aftur
um miðbik sumarsins. „Þessi und-
antekning miðast við þær forsend-
ur sem við gefum okkur núna. Ef
það fínnst svo mikið sem einn kýla-
veikur lax næsta sumar verður
allt afturkallað og endurskoðað,“
bætti Gísli við.
- kjarni málsins!
Uilíu tryggja þér
Hringdu núna og tryggðu þér skattaafslátt með kaupum f Almenna hlutabréfasjóðnum.
Þér býóst að greiða aðeins 10% út og eftirstöðvar á boðgreiðslum til 12 mánaða.
Við svörum í símann til kl. 23.30 alla virka daga til áramóta.
Þú getur einnig staðfest kaupin á heimasíðu Fjárvangs: www.fjarvangur.is
Aiinrtmi hlutabrvfmjóduriim
FJÁRVANGUR
ilum iiiiii[mmiiiii
Laugavegi 170, sími 5 40 50 60
!
fl