Morgunblaðið - 13.12.1996, Side 56
56 FÖSTUDAGÚR 13. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlan 1103 Reykjavik 9 Sími 5691100 9 Simbréf 5691329
9 Netfang: lauga@mbl.is
Til varnar
Einari Þorsteini
Grettir
Smáfólk
HERE'5TMEU)0RLPU)ARI
FLVIN6 ACE 5ITTIN6
IN A SMALL CAFE
50MEUJHEREIN FRANCE
Hér situr flugkappinn í
fyrri heimstyijöldinni á
litlu frönsku kaffihúsi
einhvers staðar í Frakk-
landi.
TME U)AR PRA65
0N..MEI5 LONELY
ANP DEPRE55EP...
^3------------—"
Stríðið dregst á
langinn... hann er
einmanna og niður-
dreginn...
Hann þarfnast ein-
hvers til að halda í
höndina á sér.
S0RRY5IR..I PIPN'T MEAN
TO 5ET TME ROOT BEER
POWN 0N YOUR MANP..
Afsakaðu, herra... ég ætlaði
ekki að setja rótarbjórinn ofan
á höndina á þér.
Frá Konráði Eyjólfssyni:
EF AF einhverju er gnótt í veröld
vorri er það helst þröngsýni og
það er skringilegt til þess að hugsa
hversu auðveldlega jafnvel eðlis-
greindir hugir formyrkvast innan
ramma hennar. Kannski er það
enn merkilegra að samtímis því
að hinn vestræni heimur hefur
fagnað einlægt uppgötvunum
mestu hugsuða þessarar aldar
hafa þessir sömu hugsuðir verið
fordæmdir fyrir þær hugsýnir
þeirra sem þeir sjálfir töldu merki-
legastar. Nægir að nefna Thomas
A. Edison, Dr. Helga Pjeturs og
Albert Einstein en vissulega áttu
þessar hugmyndir þeirra það sam-
eiginlegt að vera svo langt á und-
an þekkingu sinnar samtíðar að
þær eru jafnvel ósannanlegar enn
út frá ofurgrunnum þekkingar-
brunni eðlisfræðinnar. Það er til
gamalt máltæki sem segir að það
sé einn maður heimskari þeim er
allt veit og það sé sá sem rífst
við hann, ég ætla ekki að rífast
við unga eðlisfræðinema sem nú
þegar hafa höndlað þekkinguna
heldur senda þeim kveðju Þór-
bergs „við sem fylgjum vísiddun-
um“. (Skens Þórbergs um al-
menna þekkingu oflátunga).
Eðlisfræðinemamir telja í grein
sinni að eðlisfræðin megi alveg við
einni byltingu enn og þeim verður
víst ábyggilega að ósk sinni því
enn er ósvarað mörgum stórum
spumingum, s.s. hvað verður um
raforku sem beint er til jarðar,
hvernig berast hugboð og gæti
virkjanleg orka í vatni nægt til að
knýja bíl?
Agæti Einar Þorsteinn, ég
þekki þig ekki af öðru en greinum
þínum en ég veit að okkur er
mörgum mikil ánægja að lestri
þeirra og að þær vekja undantekn-
ingarlaust umhugsun um viðkom-
andi efni svo endilega haltu áfram
á sömu braut og varðandi hvatn-
ingu nemanna til Morgunblaðsins
um að gefa þér frí, þá fellur hún
um sjálfa sig sem vitlítil því þeir
lesa greinar þínar auðsjáanlega
líka og það með athygli. Nú um
helgina sannaðist svo endanlega
hversu víðfeðmur lesendahópur
þinn er þegar bæði pizza-sendill
og prófessor fundu sig knúna
fram á ritvöllinn vegna greina
þinna, geri aðrir greinahöfundar
betur.
KONRÁÐ EYJÓLFSSON
iðnrekstrarfræðingur,
Austurströnd 14, Reykjavík.
Upplýsmgar um
alnetstengingu við
Morgunblaðið
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upp-
lýsingar um blaðið, s.s netföng
starfsmanna, upplýsingar um
hvernig skila á greinum til blaðs-
ins og helstu símanúmer.
Morgunblaðið
á alnetinu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á alnetinu á tvo vegu.
Annars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða
með því að tengjast heimasíðu
blaðsins og velja Morgunblaðið
þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á alnetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um alnetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir
og myndir eins og fram kemur á
heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við alnetið
Þeir sem hafa Netscape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik
að tengjast blaðinu. Einungis þarf
að slá inn þá slóð sem gefin er
upp hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar.
Hægt er að nota afkastaminni
mótöld með Gopher-forritinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.