Morgunblaðið - 13.12.1996, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 57
BREF TIL BLAÐSIIMS
Opið bréf til íslenskra
útvarpsstöðva
Hvað eru
vandamál?
Frá Herði H. Valssyni:
„HLUTIRNIR verða ekki að vanda-
málum fyrr en þú lítur á þá sem
vandamál."
Þú gætir til dæmis lent í þvi að
manneskja sem þér þykir aðlaðandi
myndi ávarpa þig með einhverjum
orðum sem þér þættu móðgandi.
Þú mundir þá gera aðstæðurnar að
vandamáli, vegna þess að mann-
eskjan sem þér þykir svo vænt um
kemur illa fram við þig. Hins vegar
gæti hinn aðilinn verið að meina
vel, orðalag eða eitthvað annað
gæti hafa skolast til, og þar sem
að hann meinar vel, þá gerir hann
aðstæðurnar ekki að vandamáli,
hann upplifir sem sagt „Status
Quo“ eða óbreytt ástand.
Þess vegna verða vandamál til
vegna ályktana hvers og eins um
það hvað sé slæmt og hvað ekki.
Með öðrum orðum, ef þú hefur eitt-
hvað við þessi skrif að athuga, þá
er það þín eigin hugsun sem truflar
þig en ekki áreiti mitt.
HÖRÐUR H. VALSSON,
verkamaður,
Svarfaðarbraut 9, Dalvík.
Frá stjórn Tónlistarráðs íslands:
FYRIR stuttu óskuðu forsvarsmenn
félaga og samtaka í tónlistarlífinu
eftir því að islenskar útvarpsstöðvar
veittu upplýsingar um stefnu sína
varðandi flutning íslenskrar tónlist-
ar í útvarpi. Ástæðan er augljós,
þ.e. minnkandi hlutur innlendrar
tónlistar í dagskrárgerð stöðvanna.
Viðbrögðin komu á óvart, og töldu
stöðvarnar sem málið varðar m.a.
að fyrirspurnin væri gerð vegna
fjárhagslegra hagsmuna þeirra sem
óskuðu upplýsinganna. Það á að
sjálfsögðu ekki við rök að styðjast.
Þegar hafa birst í dagblöðum svar-
bréf við þessari óvæntu „árás“ tón-
listarmanna inn í ríki valinkunnra
útvarpsmanna. Hæst ber í við-
brögðum ljósvíkinga þá furðu að
frammámenn tónlistarmanna skuli
leyfa sér að viðra þá skoðun að ís-
lensk menning eigi hugsanlega
brýnna erindi við landsmenn á öld-
um ljósvakans en sú fjölþjóðlega
engilameríska tónlist sem stöðvarn-
ar flíka hvað mest.
Tónlistarráð íslands óskar hér
með eftir að íslenskar útvarpsstöðv-
ar svari hver um sig hver stefna
þeirra er varðandi fiutning ísienskr-
ar tónlistar og ennfremur hvort þær
telji sig hafa sérstöku menningar-
hlutverki að gegna í þágu Islend-
inga. Ef svo er, hvernig hyggjast
þær framfylgja stefnu sinni og
menningarhlutverki?
STJÓRN TÓNLISTARRÁÐS
ÍSLANDS,
Aðalstræti 4, Reykjavík.
• aSCOHl Hasier
• Frímerkjavél framtíðarinnar
• Stílhrein, falleg hönnun
• Svissnesk tækni og nákvæmni
Elizabeth Arden
kynning verður í dag
í Hygea, Austurstræti.
Kynntur verður nýi ilmurinn,
Chloe Innocence.
Spennandi tilboð ,i nyrtivðru veralu n
Austurstræti, sími 511 4511.
Um trygg-
ingar og
skoðun
bifreiða
Frá Kristni Björnssyni:
ALLTAF er ég hissa að heyra að
verið sé að klippa númer af bílum
vegna skulda á trygginga- og skoð-
unargjöldum. Jafnframt er það
óhugnanlegt að vita af ótryggðum
og óskoðuðum bílum í umferðinni.
Því spyr ég: Hvers vegna er hér
ekki beitt sömu innheimtuaðferðum
og notaðar eru við fasteignagjöld
af húseignum og aðrar skuldir á
þeim sem komnar eru í eindaga?
Þ.e. eignir viðkomandi eru auglýst-
ar og seldar á uppboði til að greiða
skuldirnar.
Þetta virðist einföld og sjálfsögð
leið, jafnframt mannlegri og eðli-
legri gagnvart bíleiganda heldur en
að ráðast á bíl hans með klippum
að næturlagi. Einnig fá þá trygg-
ingafélög og bifreiðaeftirlit gjöld sín
greidd af andvirði bílsins.
Vera má að lagabreytingu þurfí
til að fara þessa leið, en þá er bara
að koma henni í framkvæmd þegar
í stað.
Hafa ekki tryggingafélög og aðr-
ir aðilar íhugað málið?
KRISTINN BJÖRNSSON,
Espigerði 4, Reykjavík.
sokkabuxumar komnar.
nýjasta
gegn a
20% afsláttur
af öllum OROBLU sokkabj
östud. 13. des. o;
kl. 13:00-18:0
VESTURBÆJAR APOTEK
Melhaga 20-22 - Sími 552 2190
NEW GmateUaUc
18k Gull og/eda stál.
Hert safirgler.
iwmel5a(S)l
KRINGLUNNI
S 553-1199
Cindy Crawford veit, hvemig hún sameinar
glæsileika og ímynd med stíl frá heimsins
stærstu hönnudum. Hversdags og vid hátídleg
tækifæri velur hún Omega. “Trust your
judgement, trust Omega” - Cindy Crawford
Í5UKK* AtrCittf*