Morgunblaðið - 13.12.1996, Side 62
62 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ekki missa af þessari frábæru kvikmynd
Sýningum fer fækkandi!!
JOLAMYND 1996
foblN WÍLLÍAMS
GEIMTRUKKARNIR
HANN IfV:
ELDIST ^ J
FJÓRUM !
SINNUM
HRAÐAR EN
VENJULECT
FÓLK.. i
HANN ER
LANG-
STÆRSTUR í
BEKKNUM..
KLIKKAÐI PRÓFESSORINn]
BRIMBROT
STAÐGENGILLINN
ALLTI GRÆNUM SJO
Komdu og sjáðu Robin Williams fara á kostum sem stærsti
6. bekkingur í heimi, ótrúlegt grín og gaman í frábærri mynd
fyrir alla fjölskylduna.
Aðalhlutverk: Robin Williams, Diane Lane og Bill Cosby.
Leikstjóri: Francis Ford Coppola.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
** _ W _ ....að í Háskólabíói er gólfhalli í söliim nógn mikill til
f GG 'W'mr WrW'WÆ að gefa þér óhindrað útsýni á STÓR SÝNINGARTJÖLD.
^w* ™ W^ Wrw* pú horfir því ehki í hnakkann á næsta gesti eða á milli
™ hausa eins og svo víða annarstaðar. Háskólabíó státar líka af
vönduðum Dts og Dolby Digital sterio hljóðkerfum sem tnjggja frábær hljóðgæði.
HÁSKÓLABIÓ - GOTTBÍO
£.I~~~H
HASKÓLABÍÓ
SÍMI552 2140
Háskólabíó
Gott
B16
HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Brotin einhæfni
sýnileg
á f lótta
sérflokki þessa helgina
________ er sýning Stöðvar 2 á Roger og ég
(Roger & Me, 1989, sunnudagur ►23.30), einhverri umdeildustu,
skemmtilegustu og fróðlegustu heimildamynd sem gerð hefur verið í
Bandan'kjunum í seinni tíð og má raunar deila líka um það hvort um
heimildamynd sé að ræða. Höfundurinn, Michael Moore, fæddur 1954,
tekur sér fyrir hendur að sýna hnignun bandaríska biiaiðnaðarins eins
og hún birtist í sögu heimabæjar hans, Flint í Michigan, þar sem um
40,000 mrnns missti lffsviðurværi sitt á einu bretti þegar General Motors
lokuðu verksmiðju sinni þar. Moore stillir saman bjartsýninni sem ríkti á
betri dögum Flints - á 6. áratugnum - og vonleysi, fátækt og fólksflótta
á þeim 9. Þetta gerir hann á bæði grimman, kaldhæðinn og persónulegan
hátt, teflir saman þeim sem ekkert hafa og þeim sem allt hafa og eitist
við stjómanda General Motors, Roger Smith, en eftir þeirri skondnu viður-
eign heitir myndin. Afar forvitnileg blanda af heimildaskráningu og hat-
rammri ádrepu. ★ ★★%
STEFNUR og straumar í kvikmynda-
vali sjónvarpsstöðvanna voru til um-
ræðu í þessum dálki fyrir skömmu og
það nefnt að vandratað væri einstigið
milli markvissrar stefnu og fjöl-
breytni; afmarkaðir valkostir væru
æskilegir en mættu ekki leiða til ein-
hæfni. Nokkur reynsla er komin á
stefnu Sjónvarpsins og Stöðvar 2; þar
gildir stefnulaus fjölbreytni. Árangur-
inn er betri á Stöð 2; þar leiðir einfald-
lega meiri myndafjöldi til meiri fjöl-
breytni. Erfiðara er að átta sig á hvert
nýbúarnir Sýn og Stöð 3 stefna. Þess-
ar stöðvar eru tæplega fyrsti kostur
nokkurs manns; þeirra hlutur gæti því
verið að bjóða upp á öðruvísi dagskrá
en þá sem reynir að þjóna öiium með
fjölbreytni. Sýn hefur reynt þetta en
með óljósum hætti; stöðin tekur ýmsar
beygjur frá markaðri stefnu. Um dag-
inn var engu líkara en hún væri að
færa sig frá hrollvekju-, spennu-
mynda- og hasarstefnunni og verða
athvarf eldri gullmola af ýmsu tagi.
En þeir tilburðir eru bara sýnilegir
viku og viku. Stöð 3 hefur lengi verið
innlyksa í dáðlitlum, meinlausum en
miðlungi góðum amerískum sjón-
varpsmyndum, sem flestar virðast
heita Broken Trust, Broken Promises
eða Broken Hearts. Nú örlar aðeins á
því að Stöð 3 sé að brjótast út úr
þeirri fábrotnu stefnu. í því tilviki er
stefnulaus fjölbreytni betri en mark-
viss fábreytni.
Föstudagur
Sjónvarpið ►23.05 Fínn leikhópur -
Jon Voight, Barbara Hershey, Lou
Gossett jr., William Petersen, Oliver
Reed m.a. - prýðir vestrasyrpuna Ný
svaðilför (Return To Lonesome Dove,
1993), sjálfstætt framhald frægrar
sjónvarpsmyndar (Svaðilförin/The
Lonesome Dove, 1989), sem byggð
var á skáldsögu Larrys McMurtry. Sú
var afbragðs afþreying en ég hef ekki
séð framhaldið. Martin og Potter segja
hana skorta frumleika og dirfsku for-
verans en vera samt grípandi, breiða
vestraepík um átök og ævintýri á leið-
inni frá Texas tii Montana. Þau gefa
★ ★ ★ ★ (af fímm). Syrpan verður
sýnd í fjórum hlutum, um þessa helgi
og þá næstu. Leikstjóri er Mike Robe.
Stöð 2 ►13.00 og 0.50 Rúmumára-
tug áður en ýmsir vandaðir kvik-
myndagerðarmenn fóru að filma sögur
Jane Austen voru bækur E. M. Forst-
ers í tísku. Þær eru töluvert þyngri,
átakameiri og tormeltari en leikandi
léttleikinn hjá Austen. Ein af Forster-
myndunum var Hiti og ryk (Heat And
Dust, 1983),gerðafsjálfumJames
Ivory, konungi bókmenntabíósins.
Viðfangsefnið er nánast dulrænt og
dulkynferðislegt samband bældra
breskra kvenna á tveimur tímaskeið-
um við Indland. Julie Christie og Greta
Schacchi eru fyrirtak og myndin er
vönduð þótt ekki nái hún fullum
dramatískum mætti. ★ ★ 'h
Stöð 2 ^21 .05 Naggurinn hann Joe
Pesci, Christian Slater og spænska
stjarnan Victoria Abril ná ekki að
bjarga Hollywoodsatírunni Johnny
Hollywood (1994) fráfalli. Sagan fer
út og suður og húmorinn líka. Barry
Levinson leikstjóri finnur hvorki haus
né sporð, enda hvorugt fyrir hendi. ★
Stöð 2 ►23.10 Eftir að barnapíu-
hrollvekjan varð til með Halloween eða
Hrekkjavöku Johns Carpenters (1978)
komu ótal minni spámenn og hjuggu
í sama knérunn og hjuggu og hjuggu
og hjuggu. Einn þeirra var Sean S.
Cunningham en mynd hans Föstu-
dagurinn 13. (FridayThe 13th, 1980)
um morðæði í sumarbúðum gat af sér
fleiri framhöld en aðrar barnapíuhroll-
vekjur eða alls átta - öll ástæðulaus.
Hér er engin saga, engar persónur -
ekki neitt nema blóðslettur. Munið þó
að í dag er föstudagurinn 13. ★ 'h
Stöð 3 ^21 .05 Kanadíska skop-
ádeilan Stórfiskaleikur (Northern
Extremes, 1993) um afleiðingar mis-
heppnaðrar byggðastefnu í sjávar-
plássi fær þokkalega dóma. Martin
og Potter segja myndina gerða af
vanefnum en hún bæti það upp með
skarpri ádeilu og persónusköpun. Þau
gefa ★ ★ ★ (af fimm). Leikstjóri Paul
Donovan.
Stöð 3 ►22.35 og 0.05 Engar um-
sagnir liggja fyrir um vísindahrollvekj-
una Samansaumaður (Mr. Stitch)
með Rutger Hauer og dramatísku
myndina Á götuna (Price OfLove)
um ungan pilt sem leiðist út í vændi
í Hollywood.
Sýn ^21.00 Bruce Willis náði að
skapa nokkuð lunkna hasarhetju þar
sem var löggan John McClane í Á
tæpasta vaði (Die Hard, 1988) og
John McTieman leikstjóri bjó til hrað-
skreiða ofbeldisafþreyingu. Átæp-
asta vaði II (Die Hard 2,1990) er
óvenju velheppnað framhald undir
stjórn Rennys Harlin. Glórulaus en
grípandi. ★★★
Sýn ►23.50 Jafn ágætir menn og
Nicolas Cage og Samuel L. Jackson
eru viti sínu ijær í Amos og Andrew
(Amos & Andrew, 1993), bjánalegri
„gamanmynd" um samskipti kynþátt-
anna í voða fínu byggðarlagi. Leik-
stjóri er E. Max Frye, sem vonandi
er dulnefni. 'h stjama.
Laugardagur
Sjónvarpið ►21.20 Titillinn á Garn-
prinsessunni (The Yarn Princess,
1993) er ekki aðlaðandi en undir hon-
um leynist drama um móður sem berst
fyrir forræði sex barna sinna. Forræð-
ismyndir eru að verða ný tíska sem
virðist njóta töluverðs fylgis, einkum
á Stöð 3. Um þessa veit ég ekkert
nema hvað leikstjóri er Tom McLough-
lin og aðalleikarar Jean Smart og
Robert Pastorelli.
Sjónvarpið ►23.00 - Ný svaðilför
- sjá föstudag.
Stöð2 ►lö.OOÞijúbíóiðerfjöl-
skyldumynd um strák í Jugóslavíu sem
býr til töfrasnjókarl enda heitir mynd-
in Töfrasnjókarlinn (The Magic
Snowman, 1988). Blockbuster Video
gefur ★ ★ 'h I aðalhlutverkum eru
Roger Moore, Justin Fried og Dragana
Maijanovich. Leikstjóri C. Stanner.
Stöð 2 ^21 .20 Jólaþunglyndi og
jólafár sækir að Steve Martin, sem
rekur vinalínu fyrir fólk í sjálfsmorðs-
hugleiðingum í fremur mislukkaðri
svartri gamanmynd, Bjargvættir
(Mixed Nuts, 1994) eftir Nora Ephron,
höfund hinnar ágætu Sleepless in
Seattle. Hún nær ekki sama flugi hér
en sumt er þó léttfyndið. í góðum leik-
hópi eru, auk Martins, Madeline Kahn,
Rita Wilson, Anthony LaPaglia o.fl.
•k'h
Stöð 2 ►23.00 Áður en þýski leik-
stjórinn Roland Emmerich skoraði ótal
dollaramörk með Independence Day
gerði hann ævintýramyndina Stjörnu-
hliðið (Stargate, 1994) um vísinda-
menn á fleygiferð um tíma og rúm.
Kurt Russell er vörpuleg hetja, James
Spader og Jaye Davidson frekar úti á
þekju, en myndin er góð afþreying
framanaf. Svo fer í verra í seinni hlut-
anum. ★ ★ 'h
Stöð 2 ► 1.05 Oscar (Budd) Boettic-
her var afkastamikill og naskur leik-
stjóri, einkum vestra, en Kviðdómur-
inn (The MissingJuror, 1944) erhins
vegar spennumynd um kviðdómendur
sem sæta ofsóknum ókunns morð-
ingja. Myndin er úr I Love A Mystery-
syrpunni og þykir reffilegur B-reyf-
ari. Maltin gefur ★ ★ ★. Aðalhlutverk
Jim Bannon, Janis Carter og George
Macready.
Stöð 3 ►20.50 Engar umsagnir
fínnast um rómantísku gamanmynd-
ina Tveggja manna vist (Solitaire
For 2) með Amanda Pays og segir frá
kvennabósa sem lendir í konu sem er
hugsanalesari!
Stöð 3 ►22.20 Erótíska spennu-
myndin Árátta (Obsession, öðru nafni
Passion To Kill, 1993) er þokkalegur
afþreyjari með snoturri lokafléttu, um
geðlækni sem fellur fyrir konu vinar
síns sem síðan finnst látinn. Scott
Bakula er í hlutverki geðlæknisins,
trúlega vegna þess að Tim Matheson
hefur verið sloj, en til staðar eru einn-
ig Chelsea Field, Sheila Kelley og John
Getz. Leikstjóri Rick King. ★ ★ 'h
Stöð3 ►23.50 Kalli gamli Brons
reynir að slétta úr krumpunum í