Morgunblaðið - 28.12.1996, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C
296. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sóttir til
saka fyrir
stríðsg’læpi
Nairóbí. Reuter.
FYRSTU stríðsglæparéttarhöldin í
Rúanda vegna þjóðarmorðs á túts-
um árið 1994 hófust í gær. Eiga
sakborningarnir tveir yfír höfði sér
dauðadóm, verði þeir sekir fundnir.
Mönnunum tveimur, Deo Bizi-
mana, hjúkrunarfræðingi, og Egide
Gatanazi, embættismanni, er gefíð
að sök að hafa skipulagt og tekið
þátt í fjöldamorðum á tútsum og
hófsömum hútúum 1994. Talið er
að um 800.000 manns hafi týnt lífi
í hemaðinum á hendur tútsum eða
allt að 75% tútsa í Rúanda. Fjöldi
hófsamra hútúa var einnig veginn.
Um það bil 90.000 manns, sem
sagðir eru hafa tekið þátt í þjóðar-
morðinu, sitja í fangelsum í Rú-
anda. Búist er við að margir þeirra
játi aðild gegn vægri refsingu nú
þegar stríðsglæparéttarhöld eru
hafin.
Fulltrúar flóttamannasamtaka
sögðu að mörg þúsund hútúa hefðu
verið handtekin á heimleið úr flótta-
mannabúðum í Zaire og ranglega
sökuð um aðild að þjóðarmorðunum
í Rúanda. Sögðu þeir réttarhöldin
vera sýndarmennsku af hálfu núver-
andi valdhafa og tilræði við eðlilegt
réttarfar.
-----» ♦ ♦-----
Vetrar-
hörkur
VETRARHÖRKUR hafa verið að
undanförnu á meginlandi Evrópu og
í Bandaríkjunum. Hollendingar gripu
til skauta um jólin er síkin lagði um
landið þvert og endilangt. í París
króknuðu fímm útigangsmenn á jól-
unum og flórir sjúklingar dóu úr
kulda í óupphituðum spítölum í Búlg-
aríu. Víða í Bandaríkjunum varð
mikil röskun vegna vetrarveðurs og
snjókomu. Margur Lundúnabúinn
sótti fé í greipar veðmangara með
þvi að taka boði þeirra og veðja um
það hvort jólin yrðu hvít eða rauð.
Hýrnaði yfir þeim er snjór féll á
Þorláksmessu i höfuðborginni.
■ Ofankoma og ísing/24
Reuter
STÚDENTAR ganga í hringi með hendur á hnakka eins og fangar fyrir framan vegg óeirðalög-
reglu, sem lokaði gönguleiðum mótmælenda i Belgrad í gær.
Jólakort-
in í end-
urvinnslu
London. The Daily Telegraph.
YFIRVÖLD póstmála í Bret-
landi hafa ákveðið að bjóða
neytendum að jólakortin sem
þeir fá verði send í endur-
vinnslu í janúar.
„Aðeins 10% af gömlum
jólakortum fara nú í endur-
vinnslu, megnið af þeim fer
í jarðvegsfyllingu á hverju
ári. Við vonum að fleiri láti
endurvinna kortin ef þeir geta
með auðveldum hætti losnað
við þau á pósthúsum um allt
land,“ sagði framkvæmda-
stjóri póstsins, John Roberts.
Hagnaður af endurvinnsl-
unni mun renna til varðveislu
skóga og náttúruverndar.
ÖSE staðfestir sigur stjórnarandstöðunnar í bæjarstjórnakosningum í Serbíu
Milosevic hvattur til
að koma á lýðræði
Genf. Belgrad. Reuter.
STJÓRNARANDSTAÐAN í Serbíu
fór með sigur af hólmi í 13 borgum
landsins og níu borgarhverfum höf-
uðborgarinnar, Belgrad, í bæjar-
stjórnarkosningum 17. nóvember
sl., samkvæmt niðurstöðum eftirlits-
nefndar Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu (ÖSE). Felipe
Gonzalez, formaður nefndarinnar,
hvatti í gær Slobodan Milosevic for-
seta til að taka niðurstöðunni og
nota tækifærið til að stuðla að
„raunverulegu lýðræði“ í landinu.
Bandaríkjastjórn fagnaði niðurstöð-
unni og sagði serbnesk stjórnvöld
verða að hlíta henni.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
fögnuðu niðurstöðu nefndarinnar
en höfðu ekki mikla trú á því, að
Milosevie myndi bregðast jákvætt
við niðurstöðu skýrslu Gonzalez.
„Við gerum ekki ráð fyrir að hann
taki niðurstöðu nefndarinnar; miklu
frekar er við því að búast, að deilur
harðni og stjórnmálakreppan
versni,“ sagði Zoran Djindjic, leið-
togi Lýðræðisflokksins.
Milan Milutinovic, utanríkisráð-
herra, sagði að jafnvægis gætti í
skýrslu nefndar Gonzalez. Ýmsar
staðreyndir hefðu hins vegar skol-
ast til í meðförum nefndarinnar.
Mikilvægasta niðurstaðan væri að
deiluaðilar í Serbíu tækju upp við-
ræður. Minntust hvorki Milutinovic
né ríkisfjölmiðlarnir á afstöðu
nefndarinnar til ógildingar kosnin-
gaúrslitanna.
Mörg hundruð lögreglumanna,
vígbúnir til að mæta óeirðaseggjum,
stöðvuðu göngu tugþúsunda há-
skólastúdenta í miðborg Belgrad í
gær. Brugðu stúdentar á það ráð
að ganga eins og fangar væru í
hringi með hendur fyrir aftan höfuð
fyrir framan vegg lögreglumanna.
Að loknum mótmælum stúdenta
hófst mótmælaganga um 80.000
stjórnarandstæðinga, ar, 38. daginn
í röð. Dönsuðu þeir og sungu af
gleði vegna niðurstöðu nefndar
Gonzalez.
Serbneska stjórnarandstaðan
hefur heitið því að halda áfram frið-
samlegum mótmælum til að knýja
Milosevic til að játa sig sigraðan.
Auk þess leggur hún traust sitt á
alþjóðlegan þrýsting á Milosevic, en
aðgangur að miklum erlendum lán-
um er honum bráðnauðsynlegur til
þess að vinna bug á efnahagslegri
eymd landsins.
■ Óeirðalögregla tekur/22
Reuter
103 menn enn í gíslingu skæruliða í Lima
Iðnveldin sýni samstöðu
Lima. Reuter.
SKÆRULIÐAR Tupac Amaru-
hreyfíngarinnar í Perú, sem halda
103 mönnum í gíslingu í bústað
japanska sendiherrans í Lima, létu
engan bilbug á sér finna í gær og
virtu að vettugi áskoranir leiðtoga
víða um heim um að semja við
stjórn landsins og láta mennina
lausa. Stjórn Japans hvatti leiðtoga
sjö helstu iðnríkja heims til að taka
höndum saman til að leiða gísla-
málið til lykta.
Yukihiko Ikeda, utanríkisráð-
herra Japans, sagði að stjórnin
hefði hafið viðræður við ráðamenn
í ríkjunum sjö um að móta sameig-
inlega stefnu í málinu. „Ljóst er
að þjóðir heims geta ekki látið
hermdarverk viðgangast,“ sagði
Ikeda. Martin Erdmann, talsmaður
þýska utanríkisráðuneytisins, sagði
að sendiherrar ríkjanna sjö hefðu
þegar komið saman í Lima til að
ræða næsta skref. Sendiherra
Rússa hefði einnig verið á fundin-
um. „Aðalmarkmiðið er að afstýra
ofbeldi," sagði Erdmann.
Neyðarástandi lýst í Lima
Neyðarástandslög gengu í gildi
í allri Lima-borg og nágrenni í
gær vegna gíslatökunnar. Með því
eru borgaraleg réttindi íbúa tak-
mörkuð og. stjórnin fær aukin
völd til að takast á við vinstrisinn-
aða uppreisnarmenn. Bandarísk
njósnaflugvél hefur safnað upp-
lýsingum um bústað sendiherrans
og sendiráðslóðina undanfarna
daga vegna hugsanlegs áhlaups á
sendiráðið, að sögn leyniþjónustu-
manna.
Jóhannes Páll páfi, Bill Clinton
Bandaríkjaforseti og fleiri leið-
togar skoruðu á skæruliðana að
slaka á kröfum sínum og semja
við stjórnina um lausn gíslanna.
Skæruliðarnir hafa sleppt
þremur mönnum síðan þeir létu
225 lausa á sunnudag. Þeir krefj-
ast þess að stjórnin láti 400 fé-
laga þeirra lausa úr fangelsi en
Fujimori hefur sagt að ekki komi
til greina að verða við þeirri kröfu.