Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Mikið annríki hjá læknum yfír jólin Samkeppnisráð vegna póstdreifingar Póstur og sími misbeitti stöðu sinni Básafell og Norður- tanginn í eina sæng VERIÐ er að ganga frá kaupum nýja sameinaða sjávarútyegsfyrir- tækisins Básafells hf. á ísafirði á hlutabréfum í Hraðfrystihúsinu Norðurtanganum hf. Reiknað er með samrekstri félaganna frá áramótum þó formleg sameining htutafélag- anna þurfi að hafa lengri aðdrag- anda. Fjögur sjávarútvegsfyrirtæki á ísafirði og Þingeyri, Togaraútgerð ísafjarðar, rækjuverksmiðjurnar Básafell og Ritur og útgerðarfélagið Sléttanes, sameinuðust á dögunum undir nafni Básafells hf. Á meðan á samrunaferlinu stóð voru hlutabréf í Norðurtanganum auglýst til sölu og keypti Mastur hf., eignarhaldsfé- lag Islenskra sjávarafurða og fleiri fyrirtækja, hlutabréfin í haust í þeim tilgangi að selja sameinaða fyrirtæk- inu þau síðar. Þessa dagana er verið að ganga frá kaupum Básafells á bréfunum og að sögn Amars Krist- inssonar, framkvæmdastjóra félags- ins, er við það miðað að kaupin gangi í gegn fyrir áramót. Félögin verði þá rekin sem eitt frá áramótum á meðan unnið er að formlegri samein- ingu þeirra. Sótt um úreldingu Eigendur Norðurtangans eiga þess kost að fá söluandvirði bréfanna greitt með hlutabréfum í sameinuðu félagi og er vitað að bræðumir Egg- ert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðurtangans, og Halldór Jónsson, stjómarformaður Norðurtangans og fyrrverandi framkvæmastjóri Rits, og hluthafar þeim tengdir munu nýta sér það. Um áramót rennur út frestur til að sækja um styrk til úreldingar fisk- vinnsluhúsa. Arnar Kristinsson segir ekki endanlega ljóst hvaða húsi eða húsum verður lokað en telur þó lík- Iegt að sótt verði um úreldingu ein- hverra húsa. ------♦ ♦ ♦------ Finnur og Björn ræða saman FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, og Bjöm Friðfínns- son, sem verið hefur í leyfi frá emb- ætti ráðuneytisstjóra í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, áttu með sér fund í gær. Finnur hefur skýrt Birni frá því að hann vilji ekki að hann snúi aftur til starfa sem ráðuneytis- stjóri, heldur taki að sér forstjóra- starf hjá Löggildingarstofunni. Björn segist engu að síður munu mæta til starfa í ráðuneytinu eftir áramótin. Finnur Ingólfsson vildi ekki tjá sig um málið eftir fundinn. Að sögn Áma Magnússonar, aðstoðarmanns Finns, fóru þeir Bjöm yfir stöðu málsins. „Það er verið að leita leiða að samkomulagi um það með hvaða hætti Bjöm komi til starfa eftir ára- mót,“ segir Ámi. Bjöm Friðfinnsson vildi heldur ekki tjá sig frekar um samtöl þeirra Finns. ------♦ ♦ ♦------ Rotaðist við fall STÚLKA slasaðist á höfði þegar hún féll í götuna fyrir utan skemmtistað á Akranesi í fyrrinótt. Meiðsli hennar reyndust þó ekki alvarleg. Stúlkan rotaðist og var flutt í skyndi á sjúkrahúsið á Akranesi. Þar ákváðu læknar að senda hana til Reykjavíkur. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar sótti stúlkuna og flutti hana á Sjúkrahús Reykjavíkur í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum slysa- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur reyndust áverkar stúlkunnar ekki alvarlegir og síðdegis í gær var reikn- að með að hún gæti farið heim fyrir helgina. ÓVENJU mikið hefur boríð á lasleika meðal landsmanna und- anfarið og sjaldan hefur verið annasamara hjá Læknavaktinni en yfir nýliðna hátíðisdaga, að sögn Magnúsar E. Jónassonar, vaktstjóra Læknavaktar í Reykjavík. „Aðallega eru það veirusýk- ingar í nefi, hálsi og bijósti, svo sem slæmt kvef sem fólk þjáist af en að auki virðist inflúensuf- araldurinn vera útbreiddari nú en oftast áður. 1 kjölfarið geta siglt ýmsir fylgikvillar s.s. lungnabólga, kinnholubólgur og börnunum er hætt við eyrna- bólgum," segir Magnús. Friðrik R. Guðjónsson yfir- læknir á Heilsugæslustöð Ak- ureyrar tekur í sama streng en mikið hefur verið að gera hjá læknum á Akureyri undanfarna daga. „Þetta hafa verið mikil flenspjól en það er nánast ein- hver í sérhverri fjölskyldu sem er lasinn." Eldra fólk fær síður inflúensu Að sögn Friðriks Rafns hefur nokkuð borið á vírustilfellum sem hafa uppköst og niðurgang í för með sér. MATSNEFND hefur úrskurðað að Kópavogsbær skuli greiða Vatns- veitu Reykjavíkur 12,70 kr. fyrir rúmmetrann af köldu vatni úr að- veitukerfi vatnsveitunnar inn á dreifikerfi bæjarins. Skal verð þetta gilda frá og með 1. janúar 1996. Sveitarfélögin Kópavogur, Seltjarn- ames og Mosfellsbær hafa um ára- bil keypt kalt vatn af Vatnsveitu Reykjavíkur. Á miðju ári 1995 fóru fram umræður um hækkun á verði kalda vatnsins og var þá samið við Seltjamarnes og Mosfellsbæ um verðið 9,55 kr. á rúmmetrann til ársloka 1998. Þá hafði verðið I tví- gang verið hækkað um 15%, fyrst fyrir árið 1995 og síðan frá og með 1. janúar 1996. Þessum samningi hafnaði Kópavogsbær og vísaði Aðallega er það yngra fólk sem fær inflúensu að sögn Magnúsar en hlutfallslega fáir af eldri kynslóðinni þar sem stór hluti hennar hefur verið bólusettur. „Faraldurinn hefur staðið í um fjórar vikur en ef marka má reynslu fyrri ára ætti inflú- ensan að vera í rénum. Enn sem komið er virðist ekkert lát á,“ segir Magnús. Inflúensunni fylgir yfirleitt hár hiti í nokkra daga, beinverkir, höfuðverkur, þurr hósti og særindi í brjósti. Mikið um veikindadaga Mikið hefur verið um fjar- veru starfsfólks í fyrirtækjum og stofnunum vegna veikinda í desembermánuði. Hjá Stræt- isvögnum Reykjavíkur hefur verið töluvert um veikindi og hafa bílstjórar unnið aukavinnu vegna þessa, segir Jóhannes Sigurðsson forstöðumaður þjónustusviðs. Hjá íslandsbanka og Hampiðjunni hafa veikinda- dagar einnig verið mun fleiri í desember en oftast áður en tölulegar upplýsingar liggja ekki fyrir. Vatnsveita Reykjavíkur málinu þá til matsnefndar, með vísan til nlundu greinar laga nr. 81 frá 1991 um vatnsveitur sveitarfélaga, þar sem segir m.a.: „Selji sveitarstjóm ann- arri sveitarstjórn vatn skal endur- gjald fyrir það ákveðið með sam- komulagi aðila eða mati dómkvaddra matsmanna náist eigi samkomulag.“ Krafa var gerð um 15,14 krónur Þrír menn voru tilnefndir í mats- nefnd til þess að meta endurgjald það sem Kópavogsbæ skyldi gert að greiða fyrir afnot vatns úr Vatns- veitu Reykjavíkur. Hreinn Loftsson hrl. var tilnefndur sem matsmaður af hálfu Vatnsveitu Reykjavíkur, Rúnar Mogensen hdl. af hálfu Kópa- vogsbæjar og oddamaður var til- SAMKEPPNISRÁÐ telur að Póstur og sími hafí með samkeppnishindr- andi athöfnum reynt að útiloka keppinaut sinn, Póstdreifingu ehf., frá póstdreifingarmarkaðnum og þar með misbeitt markaðsráðandi stöðu sinni á þessu sviði I skilningi samkeppnislaga. í tilkynningu frá Samkeppnis- stofnun segir að frá því I apríl 1994 hafi samkeppnisyfirvöldum borist ýmis erindi frá keppinautum Pósts og síma, þar sem kvartað er yfir hegðun fyrirtækisins á því sviði sem er utan einkaleyfisrekstrar þess. Nýjasta álit samkeppnisráðs lýtur að erindi Póstdreifíngar ehf., þar sem því er haldið fram að starfs- hættir Pósts og síma miði að því að veikja stöðu fyrirtækisins á starfsmarkaði þess, þ.e. póstdreif- ingu á höfuðborgarsvæðinu. Samkeppnisráð nefnir dæmi um misbeitingu Pósts og síma á mark- aðsráðandi stöðu sinni, meðal ann- ars þá ákvörðun Pósts og síma að neita að auglýsa I blöðum og tímarit- um af þeirri ástæðu að dreifmg þeirra sé I höndum Póstdreifingar nefndur Gunnar Torfason verkfræð- ingur. f kröfugerð Vatnsveitu Reykjavík- ur til matsnefndarinnar dagsettri 2. febrúar 1996 er þess krafist að nýtt vatnsverð verði ákveðið kr. 15,14 fyrir hvem rúmmetra og gildi það frá og með 1. janúar 1994. í matsorð- um nefndarinnar, sem hún skilaði af sér á Þorláksmessu, stendur: „Kópavogsbær greiði Vatnsveitu Reykjavíkur fyrir kalt vatn úr aðveitu- kerfí hennar inn á dreifíkerfí bæjarins kr. 12,70 fyrir hvem rúmmetra. Verð þetta tekur gildi 1. janúar 1996. Verð þetta gildir I fímm ár, til ársloka 2000. Verðið tekur breytingum með vísitölu byggingakostnaðar einu sinni á ári, I janúar ár hvert. Grunnvísitala er 205,5 stig.“ ehf. Þá er bent á, að Póstur og sími hafí veitt fyrirtækjum innritunar- kjör á ritum sem bersýnilega upp- fylli ekki þau skilyrði sem sett séu fyrir innritun I reglugerð um póst- þjónustu. Með vísan til þessa og með skír- skotun til samkeppnislaga beinir samkeppnisráð þeim fyrirmælum til Pósts o g síma að aðskilja samkeppn- is- og einkaréttarsvið stofnunarinn- j ar. Þessum fyrirmælum skal fram- fylgja fyrir 1. febrúar 1997. Þá mælir samkeppnisráð fyrir um að Póstur og sími dreifí pósti fyrir Póstdreifíngu ehf. á stöðum sem falla innan dreifbýlispóstnúmera og á stöðum sem falla undir þéttbýlis- póstnúmer þar sem eru færri en 500 heimili. „Loks er þeim fyrirmælum , beint til Póst- og símamálastofnunar i að stofnunin gæti jafnræðis þegar ' hún tekur ákvörðun um að auglýsa ) I blöðum eða ritum þannig að sú staðreynd að keppinautar stofnunar- innar sjái um dreifíngu viðkomandi rits verði ekki ákvörðunarástæða fyrir viðskiptum með auglýsingar," segir Samkeppnisstofnun. Gert klárt fyrirflug- I eldavertíð 1 HIN stutta en snarpa flugelda- vertíð hefst í dag og líkast til með miklum hvelli og látum. Flugeldasalar um allt land nýttu hveija stund í gær til að und- irbúa vertíðina og útbúa sölu- pakka af ýmsum stærðum og gerðum. A myndinni eru KR-ing- i arnir Trausti og Jón Már að útbúa fjölskyldupakka í KR- I heimilinu. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er búist við því að flug' eldar að verðmæti hundruð a milljóna króna verði sprengdir á gamlárskvöld. Jafnvel er búist við því að heldur meira verði selt af flugeldum í ár en í fyrra. Reynist það rétt er stjörnuljóst að rakettur, tívolíbombur og stjörnuljós munu rjúka út. ■ Hundruð miHjóna/29 _________________________________________________ Morginblaðið/Ámi Sæberg Úrskurður í máii Vatnsveitu Reykjavíkur gegn Kópavogsbæ 12,70 kr. fyrir rúm- metrann af köldu vatni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.