Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ Vetrarríki vestanhafs og austan Ofankoma og ísing valda vandræðum San Francisco, Sofiu. Reuter. SNJÓKOMA og frostrigning gerðu fólki í vestanverðum Bandaríkjun- um lífíð leitt í fyrradag og ófærð og rafmagnsleysi settu samgöngur úr skorðum. Um miðjan dag í gær var versta veðrið gengið yfír en spáð er nýju áhlaupi í Kaliforníu um helgina. Kalt er víða á megin- landi Evrópu og hefur verið lýst yfir neyðarástandi í norðaustan- verðri Búlgaríu vegna snjóa. Mikil ísing olli því, að um 100.000 manns í Oregon voru án rafmagns í nokkum tíma og féll niður allt flug frá Portland. I Seattle og víðar í Washington-ríki olli snjókoman miklum vandræðum í umferðinni og óttast er, að úrkoman valdi vatnavöxtum og flóðum. í Kaliforníu var veðrið skárra en annars staðar við vesturströndina, nokkur rigning og snjókoma til fjalla en fjallvegum tókst að halda opnum. Veðurfræðingar spá hins vegar versta veðri um helgina, eink- um í norðurhluta ríkisins, með djúpri lægð, sem nálgaðist utan af Kyrrahafi. Er óttast, að hún geti valdið flóðum á láglendi og enn meiri fannkomu í Sierra Nevada þar sem fólk er enn að grafa sig út úr húsunum. Um síðustu helgi var jafnfallinn snjór sums staðar allt að þrír metrar í fjalllendinu á landamærum Kaliforníu og Nevada. Deyja í ókyntum sjúkrahúsum Miklir snjóar eru í Búlgaríu og þar hafa um 470 þorp og bæir ver- Reuter ÍBÚAR í Svartahafsborginni Varna í Búlgaríu berjast gegn veðurofsanum. Er fannfergið mest í norðausturhluta landsins en víða hafa snjóplógar og önnur tæki komið að litlu gagni vegna olíuleysis. ið einangruð og rafmagnslaus í tvo og þrjá daga. Er ástandið verst í norðausturhluta landsins og hefur fólki verið skipað að halda sig innan dyra þar til tekist hefur að ryðja vegi. Síðustu tvo daga hafa kuldarnir dregið fjóra sjúkiinga til dauða á geðsjúkrahúsi í bænum Radnevo en það hefur verið ókynt í 1Ö daga. Einn þeirra, kona, kastaði sér út um glugga um leið og hún hróp- aði, að hún væri að deyja úr kulda. I Frakklandi hefur einnig verið mikil kuldatíð síðustu daga og þar hafa fímm manns, allt heimilislaust fólk, orðið úti. PAPRIKU- STJÖRNUR flestra val K JALAPENO N fyrir þá sem vilja það sterkt ' PAPRIKU- N SKRÚFUR við öll tækifæri VEISLUCHILE frábært með ^ steikinni Nafn STJORNU- OSTAPOPP mest selda v. poppið ‘V*** W’í’í 'tV-f ISUBentu á snakkið sem að þér þykir best. Stjörnusnakk... ...í partýinu, með sjónvarpinu, til að slappa af, læra heima... Fáðu vinning Segðu okkur hvaða tegund af Stjörnusnakki þér finnst best. VEISLUDILL\ Þá gætirðu unnið heilan kassa af ( nlaðninnnr rneð lsnakki! (Vinningar eru 50 talsins, m g ; ViyU TTi // og í hverjum kassa eru allar IlSKinum y vinsælustu tegundirnar af Stjörnusnakki.) Mér finnst best: __________ Heimili Sími Sendist til: Iðnmairk ehf., Pósthólf 259, 222 Hafnarfiröi. Dregið verður úr innsendum miðum 20.01.1997. Hringt verður í vinningshafa og nöfn þeirra birt í dagblöðum. Heildarverðmæti vinninga er 150.000 kr. Verkföll vegna nýrrar vinnulöggjafar í Suður-Kóreu Skipasmíða- stöðvar og bíla- smiðjur lokast Seoul. Reuter. RÚM MILLJÓN manna lagði niður vinnu í Suður-Kóreu í gær til að mótmæla nýrri vinnulöggjöf, sem heimilar atvinnurekendum að segja upp starfsmönnum, taka upp sveigj- anlegan vinnutíma og ráða nýja starfsmenn í stað verkfallsmanna. Áður hafði framleiðsla á bílum stöðv- ast nær algjörlega og skipasmíða- stöðvum var lokað vegna verkfalls hálfrar milljónar starfsmanna í verkalýðssambandi sem stjórnvöld hafa ekki viðurkennt. Um 10.000 starfsmenn 14 sjúkra- húsa lögðu einnig niður vinnu í gær og búist var við að efnt yrði til verk- falla á fleiri sjúkrahúsum í dag. Lestastjórar neðanjarðarlesta í Seoul hafa boðað verkfall í dag og búist er við miklu umferðaröngþveiti þar sem lestirnar flytja rúmlega fjórar milljónir farþega á dag. Strætis- vagnastjórar í fímm öðrum borgum ætla einnig að leggja niður vinnu í dag. Verkföllin sögð ólögleg Samband verkalýðsfélaga í Suð- ur-Kóreu, einu verkalýðssamtökin sem stjórnvöld viðurkenna, hóf í gær verkfall, sem í fyrstu átti aðeins að standa í sólarhring en ákveðið var að framlengja það til nýársdags að minnsta kosti. 1,2 milljónir verka- manna eiga aðild að sambandinu og aðgerðir þess koma nokkuð á óvart þar sem það hefur hingað til þótt leiðitamt stjórnvöldum. Aðeins tæp 20% vinnuaflsins eru í verkalýðsfé- lögunum en þau eru þó öflug í helstu útflutningsfyrirtækjunum. Han Seung-soo, fjármálaráðherra Suður-Kóreu, sagði verkföllin ólög- leg og að verkalýðssamtökunum yrði refsað. Hann lofaði þó nýjum lögum sem ættu að bæta kjör verkamanna og auka starfsþjálfun þeirra. Verka- lýðssamtökin höfnuðu tilboðinu og sögðu það engu breyta. Han sagði að vinnulöggjöfín bætti atvinnuöryggið í landinu til lengri tíma litið þar sem efnahagurinn yrði sveigjanlegri og því samkeppnishæf- ari. Stærstu samtök atvinnurekenda sögðu að fyrirtækin myndu ekki notfæra sér uppsagnarákvæði vinnulöggjafarinnar nema í neyðar- tilvikum. Ronnie Scott látinn London. Reuter. JASSTÓNLISTARMAÐURINN Ronnie Scott lést í Lundúnum á þorláksmessu, 69 ára að aldri. Scott lék á saxófón en var þó líklega þekktari fyrir víðfrægan jassklúbb sem hann rak í heima- borg sinni, þar sem jasstónlistar- menn hvaðanæva að komu fram. Tónlistarmenn minntust Scott með hlýhug á aðfangadag, en á meðal þeirra sem komu fram í jassklúbbi hans voru Dizzie Gii- Iespie, Sarah Vaughan, Django Reinhardt og Jimi Hendrix. „Klúbburinn var þekktur um all- an heim. Ef jasstónlistarmaður ætlaði að fara til London, spurði hann ævinlega fyrst um Ronnie Scott klúbbinn," sagði tónlistar- maðurinn Johnny Dankworth. Scott þótti mikið ljúfmenni og húmoristi. Klúbbinn opnaði hann árið 1959 að bandarískri fyrir- mynd, en hann hafði ferðast vítt og breitt um Bandaríkin. Klúbb- urinn hefur verið sagður vagga breska jassins en þar stigu marg- ir jassleikarar sín fyrstu spor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.