Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ URVERINU 764 1994 718 1.195 Fiskafli íslenskra skipa 1994-1996 (þús. tonn) Loðna Rækja, humar og skel 35 93 ^ílj-humarogskel ¥-rækja af Flæmingjagr. djúprækja 1994 '95 '96 Linnfj.rækja Síld norsk- íslensk síld Botnfiskur I 511 494 ~ - annar botnfiskur grálúða i úthafskarfi ysa ■ þorskur úr Barentshafi þorskur '95 '96 1994 '95 '96 1994 '95 '96 Fiskaflinn hefur aldrei orðið meiri Metveiði á rækju og loðnu ERLENT Samningar um Hebron sagðir á lokastigi Benjamin Netanyahu boðar aukin útgjöld til varnarmála Jerúsalem. Reuter. Reuter ÍSRAELSKUR hermaður kannar innihald skólatösku palestínsks drengs, á eftirlitsstöð í Hebron. Eftirlit var hert eftir að bensín- sprengjum var varpað að húsi ísraelskra landnema í borginni. ÁRIÐ 1996 er mesta aflaár íslands- sögunnar. I okkar flskveiðilögsögu veiddum við um tvær milljónir tonna (1.981 þús), en ef við bætum öðrum afla við sem veiddur var á fjarlægum miðum fer aflinn yfir tvær milljónir tonna, verður 2.032 þús. tonn, sam- kvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands. Á hinn bóginn ber að líta á að botnflskaflinn á heimamiðum hefur aldrei verið jafn lítill í um hálfa öld og nær ekki þeim litla afla sem var í fyrra þó segja megi að þetta sé nánast sami afli í tonnum talið. Þor- skaflinn kemur upp nú á ný á heim- amiðum og er nú meiri en bæði árin 1994 og 1995. Verðmæti útfluttra sjávarafurða hefur heldur aldrei verið meira, eða um 95 milljarðar króna og miklar tekjur fengust vegna land- ana erlendra fískiskipa hér. Hins vegar varð aflinn í Barents- hafínu mun minni_ en á síðasta ári og má segja að við íslendingar veiðum nánast sama magn af þorski og á síðasta ári, en þá veiddust í heild um 202 þús. tonn, en nú verða það 206 þús. tonn. Á síðustu hálfri öld er meðalþorskafli íslendinga um 280 þús. tonn á ári. Á móti þessum mikla samdrætti í þorskveiðum hefur rækju- veiðin hins vegar margfaldast á nokkrum árum, þó hún hafí dregist saman um rúm 10% frá síðasta ári á heimamiðum, í heild eykst rækjuveið- in um tæp 8% og verður heildaraflinn í rækju um 90 þús. tonn á móti um 83.500 tonnum á síðasta ári. í þessu tilliti er hér einnig um nýtt aflamet að ræða. Karfaveiðin brösug Veiðar á karfa hafa gengið brösuglega á þessu ári. Verulegur samdráttur virðist í veiðinni og dregst karfaaflinn á hefðbundinni slóð sam- an um hartnær þriðjung. Fer úr 89 þús. tonnum í 63 þús. tonn í ár, sem er um 30% samdráttur. Á hinn bóginn var samið um veiðar úr karfastofnin- um á Reykjaneshrygg og var kvóti okkar veiddur þar og um 6 þús. tonn af kvóta Grænlendinga. Þannig veidd- um við um 48 þús. tonna eigin kvóta og í allt um 54 þús. tonn og höfum aldrei veitt eins mikið á þessum slóð- um fyrr. 1,4 milljónir tonna af síld og loðnu Loðnuaflinn verður nú 1.165 þús. tonn og hefur aldrei verið svo mikill. Er það aukning um 63%, en síldin hefur ekki verið veidd eins mikið og á siðasta ári og dregst saman. Bæði var að síldin í norsk-íslenska stofnin- um var kvótasett og náðist ekki allur kvótinn og að kvóti sumargotssíldar- innar var minnkaður á þessu fískveið- iári. Þá hefur svo til allur síldaraflinn í haust verið verkaður til manneldis. í heild er afli uppsjávarfiska 1.425 þús. lestir og hefur aukist um 42,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti um 50 milljarðar Verðmæti aflans á árinu 1996 er áætlað um 50,5 milljarðar króna, miðað við óslægðan físk upp úr sjó. Á árinu 1995 nam heildarverðmætið um 50 milljörðum kr. og heildaraflinn varð 1.565 þús. tonn. Á þessu ári hafa erlend fiskiskip Iandað á íslandi til vinnslu um 110 þús. tonnum á móti um 30 þús. tonn- um í fýrra, af þessum 110 þús. tonn- um er um 81 þús. tonn loðna, en loðn- an er ekki nema 6.800 tonn í fyrra. Þannig er það magn sem fer til vinnslu mjög svipað ef loðnan er dreg- in frá, eða um 20-25 þús. tonn. Mest af þessum físki fer í frystingu, eða um 21 þús. tonn, 5.300 tonn fóru í söltun og um 1.300 tonn fóru í herslu. Á fýrstu tíu mánuðum þessa árs höfðu komið 123 skip frá átta þjóðum og var fjöldi landana um 184. Auk þessa kemur svo til umskipunar (transit) verulegt magn af físki, aðallega karfi og rækja. 59 erlend fiskiskip Á fýrstu tíu mánuðum þessa árs höfðu komið 59 skip frá níu þjóðum og var fjöldi landana um 100. Ekki er vitað nákvæmlega um magn það sem þessi skip lönduðu. Þessi umsvif hafa skapað ótal störf í þjónustu og í verslun. Má ætla að þjónustugjöld og verslun við þessi skip ásamt erlend- um skipum sem koma með afla til vinnslu nemi um 3,7 milljörðum króna. Andvirði útfluttra sjávarafurða áætlar Fiskifélagið að verði um 95 milljarðar króna á árinu. Árið 1995 nam verðmæti útflutnings sjávaraf- urða 85 milljörðum króna. Það hefur því aukist um tæp 12% milli ára. Verðmæti þessa útflutnings er áætlað nema um 1.429 milljónum dollara, en það jafngildir um 9% aukningu frá því í fyrra. Þá var verðmætið um 1.311 m. dollarar. Sé miðað við SDR hefur útflutningsverðmætið aukist um 14%, er nú 984 milljónir SDR, en var 863 milljónir árið á undan. Er hér um áhrif mismunandi gengis- þróunar að ræða. Mikil veiði á Flæmingjagrunni Auk þessa afla hafa íslensk skip veitt um 23.000 tonn af físki í Bar- entshafi (Smugunni), mest af þeim afla er þorskur. Verðmæti Smugu- aflans er áætlað 1.800 milljónir kr. Þá má ætla að um 22.000 tonn af rækju hafí verið veidd af íslenskum skipum á Flæmingjagrunni við Ný- fundnaland og má ætla verðmæti þess afla um 3.850 m. kr. í heild er afli íslenskafískiskipaflot- ans 2.032 þús. tonn og hefur aflinn aldrei verið meiri í íslandssögunni. Þess ber þó að geta að botnfiskafli er nánast sá sami og á síðasta ári og var þá sá minnsti á síðasta aldar- Ijórðungi. BENJAMIN Netanyahu, forsætisráð- herra ísraels, hugðist í gær eiga fundi með palestínskum samningamönnum til að reyna að ná samningi um brott- flutning ísraelskra hermanna frá Hebron, en honum á að vera löngu lokið, samkvæmt friðarsamningi Israela og Palestínumanna. I fyrra- dag kvaðst Yasser Arafat, forseti sjálfstjómar Palestínumanna búast við að samningurinn yrði undirritaður eftir helgi. Ekki hefur hins vegar fengist uppgefið hvort af viðræðun- um varð í gær. Forsætisráðherrann lýsti því hins vegar yfír í blaðaviðtali í gær að ríkisstjómin hygðist auka útgjöld til varnarmála þegar hún hefði náð betri tökum á efnahag landsins en haft var eftir talsmönnum hersins að hann þyrfti að bæta víg- stöðu sína gagnvart Sýrlendingum, vegna hugsanlegra átaka við þá um Gólanhæðir. Arafat sagðist á fímmtudag eiga von á því að samningar um borgina yrðu tilbúnir til undirritunar í upp- hafi næstu viku, 30. eða 31. desem- ber. Fyrr í vikunni tókst samninga- mönnum, með aðstoð sérlegs sendi- manns Bandaríkjastjómar, Dennis Ross, að leysa þann hnút sem við- ræðurnar um Hebron voru komnar í. Segja Palestínumenn að það hafi gerst er ísraelar hafi fallist á að standa við samning sem stjórn ísra- elska Verkamannaflokksins gerði við Palestínumenn fyrir ári. Israelar segja hins vegar að náðst hafi sam- komulag sem tryggi frekar öryggi landnema á svæðinu. Hamas-hreyfingin fordæmdi í HOLLAND tekur við forsæti í ráð- herraráði Evrópusambandsins (ESB) um áramótin og mun gegna því fyrri helming ársins 1997. Það mun því falla í hlut Hollendinga að koma í höfn endurskoðun Maas- tricht-sáttmálans, sem staðið hefur yfir frá febrúar á þessu ári á ríkja- ráðstefnunni svokölluðu. Þetta er í tíunda sinn í 40 ára sögu ESB sem Hollendingar gegna þar forsæti. Róttækasta endurskoð- un grundvallarsáttmála sambands- ins, sem gerð hefur verið frá upp- hafí, var innsigluð í Maastricht fyr- ir fímm árum, en þá lauk ríkjaráð- stefnu, sem einnig kom í hlut Hol- lendinga að stýra á lokasprettinum. Viðfangsefni yfirstandandi ríkja- ráðstefnu eru ekki minni í sniðum. Hún á m.a. að skila samkomulagi um endurskipulagningu stofnana ESB, sem nauðsynleg er ef gera á Austur-Evrópuríkjunum, sem knýja dyra, kleift að fá aðild að samband- inu. Raunsæi fremur en áherzla á eigin stefnumál Holland er í hópi þeirra aðildar- ríkja, sem vilja hraða efnahagsleg- um og stjórnmálalegum samruna innan Evrópusambandsins. Hol- lenzkir ráðamenn hyggjast þó ekki endurtaka mistökin frá í september 1991, en þá greiddu öll hin aðildar- ríkin atkvæði gegn róttæku upp- kasti forsætislandsins að sáttmál- anum, sem síðar var samþykktur í mildari útgáfu í Maastricht. Bú- ast má við að Hollendingar leggi gær fyrirhugað samkomulag ísraela og Palestínumanna um Hebron, sagði þá síðarnefndu hafa svikið landsmenn sína og stuðlað að skipt- ingu borgarinnar á milli gyðinga og araba. Bensínsprengjum varpað að landnemum í Hebron var þremur bensín- sprengjum varpað að ísraelskri varð- stöð en hún er gegnt húsi þar sem ísraelskir landnemar búa. Enginn særðist í þessari árás sem fylgir í kjölfar raðar tilræða sem framin meiri áherzlu á raunsæi en að koma eigin stefnumálum inn í endur- skoðaðan sáttmála. „Dagskrá Evr- ópusambandsins er svo full að það er ekkert pláss á henni fyrir sér- stakar eigin óskir,“ sagði Hans van Mierlo, utanríkisráðherra Hol- lands, í síðustu viku. Wim Kok, forsætisráðherra Hol- lands mun reyna að gæta hags- muna smærri aðildarríkja. Hann hefur heitið því að þrýsta hinum 14 bandalagsríkjunum í átt að ör- uggari, lýðræð- islegri Evrópu, sem á auðveld- ara með að taka ákvarðanir og getur mótað skýr utanríkis- pólitísk mark- mið og snúið bökum saman gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Halda skriðnum á undirbúningi EMU Auk þess að stýra endaspretti yfirstandandi ríkjaráðstefnu er erf- iðasta viðfangsefnið sem bíður hol- lenzku stjórnarinnar að halda skriðnum sem kominn er á undir- búning Efnahags- og myntbanda- lags Evrópu, EMU. Samkomulag það, sem náðist fyrr í þessum mánuði um „stöðug- leikasáttmála“ vegna EMU, sem þvinga á ríkisstjórnir aðildarland- anna til að sýna aga í stjórn ríkis- fjármála, hefur rutt úr vegi einni hugsanlegri hindrun gegn því að hafa verið frá því að ísraelar og Palestínumenn tóku upp þráðinn í viðræðum sínum um Hebron en um 80% borgarinnar eiga að fara undir stjórn Palestínumanna. Árásin var gerð skömmu eftir að Netanyahu fór um borgina með að- stoðarmanni sínum. Handtók palest- ínska lögreglan nokkra menn en lét þá lausa skömmu síðar. Þá urðu ísra- elskir hermenn að grípa í taumana eftir að þarlendir landnemar hófu að grýta rusli að Palestínumönnum í hefndarskyni fyrir bensínsprengj- urnar. Hollendingar geti fagnað góðum árangri í forsætishlutverkinu að 1 þessu sinni. í þeirra hlut kemur I hins vegar að hafa umsjón með | frekari úrvinnslu stöðugleikasátt- málans, vinna að endurnýjuðu Gengissamstarfi Evrópu (ERM-II) og kynna nýju evró-myntina. Allt veltur á brezku kosningunum Sá einstaki atburður, sem mun þó valda hollenzku ESB-stjórnend- j unum mestum höfuðverk á * næstu mánuð- ) um, verða brezku þing- kosningarnar, sem búizt er við að fari fram að- eins fimm vikum fyrir hinn áætl- aða leiðtogafund í Amsterdam 16.-17. júní. Sigri Verkamanna- j flokkurinn má búast við stefnu- i breytingu í Evrópumálum, en lítill tími verður til stefnu að ljúka ríkja- » ráðstefnunni í tíma. „Ef Bretland heldur fast við afstöðu sína í öllum málum verða ekki gerðar miklar efnislegar breytingar á sáttmálan- um,“ segir Van Mierlo. „Við bind- um vonir við að eitthvert svigrúm verði til samningaviðræðna eftir kosningarnar.“ Takist Hollendingum ekki að | ljúka ríkjaráðstefnunni á leiðtoga- j fundi í Ámsterdam í júní, neyðast . þeir til að láta Lúxemborg það eft- * ir að hnýta síðustu lausu endana. Holland tekur við forsæti í ESB um áramót Lok ríkj aráðstefnu j eitt aðalverkefnið Haag. Reuter.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.