Morgunblaðið - 28.12.1996, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 J riKU MORGUNBLAÐIÐ
■BHBBBÍ^ni IIIU WK
.Ull
LBÍMiaári
lúhur
Arið sem
brátt er liðið
hefur verið gjöfult
leikjaunnendum og
stefnir í að næsta ár
verði enn skemmti-
legra, ekki síst fyrir
þá sök hve íslenskur
leikjamarkaður hef-
ur tekið við sér,
verð lækkað og
framboð stóraukist
í kjölfar harðnandi
samkeppni. Annað
sem ýtt hefur undir
gróskuna á leikja-
markaðnum er að
éinkatölvur verða
sífellt öflugri, þótt
það sé nú einu sinni
svo að tölvan virðist
aldrei vera nógu
öflug, því
leikjafram-
leiðendur
eru ævin-
lega skrefi á
undan.
Leikur ársins
hlýtur að teljast Qu-
ake, því enginn leikur
vakti aðra eins eftirvænt-
ingu og eftirspum og Qu-
ake. Hann er kannsi ekki
besti leikur ársins, en óneit-
anlega sá merkilegasti í ljósi
sögunnar. Hönnuðir Quake voru
fyrstir á markað með skotleik þess-
arar gerðar, Wolfenstein, en í Quake
var gengið enn lengra í blóði og djöf-
ulgangi, og ekki síst í frábærri hljóð-
vinnslu og skuggalegu andrúmslofti.
Eftir að Quake kom út brást flótti á
hönnuðaliðið, en ekki að vænta ann-
ars en þeir sem eftir sátu eigi eftir að
fara enn lengra í þessa átt.
í árslok kom út leikurinn sem
hreppir annað sæti í leikjatalning-
unni, Command & Conquer: Red AI-
ert. Sá er einskonar forleikur að
C&C, enda gerist hann áður en stór-
veldin sem deila í C&C urðu til. Sag-
an er skemmtilega
geggjuð: Albert
Einstein heldur
aftur í tímann og
myrðir Hitler til að
forða lífi milljóna.
Fyrir vikið leggur
annar böðull og
ekki betri, Bóndinn
í Kreml, Jósef
Stalín, Evrópu
undir sig að stórum
hluta og hefur
hrannvíg og kúgun.
Sá sem leikur get-
ur reyndar valið
hvort hann vill
slást í lið með
Stalín og hans nót-
um eða berjast
með bandamönn-
um, en hvort sem
hann velur á hann eftir að
skemmta sér hið besta, því
Red Alert er framúrskarandi
uppfærsla á C&C
og ekkert til
sparað.
Gaml-
ir í hett-
unni
muna textaleik-
ina Zork og kunnu
því vel að komast loks inn í
myndskreytt umhverfi en Zork
Nemesis var einn flóknasti og
skemmtilegasti leikur ársins. Sumum
þótti hann minna um of á Myst og víst
mátti finna samhljóm í upphafi, en
ekki var langt komið inn í leikinn þeg-
ar allar Myst-samlíkingar hurfu út í
veður og vind, því Zork var allt ann-
ars eðlis. Gáturnar og þrautirnar í
Zork voru ansi snúnar, svo snúnar
reyndar að á köflum lá við tognun á
heila.
Segja má að Duke Nukem 3D hafi
slegið Quake við að vissu leyti því
hann var á undan á markað og allir
sem sáu báru ósjálfrátt Quake saman
við hann. Leikjavanir þékkja nafnið
Duke Nukem, sem Apogee hannaði á
Tölvuleikjaþróun var
ör á árinu sem er að
líða og hér á landi
vænkaðist hagur
leikj aáhugamanna;
verð lækkaði og
framboð stórjókst í
kjölfar harðnandi
samkeppni. Árni
Matthiasson rifjar
upp tíu helstu leiki
árisns að hans mati.
sinni tíð, en stökkbreytingin í Duke
Nukem 3D vai' ótrúleg og niðurstað-
an frábærlega vel heppnaður skot-
leikur þar sem salla mátti niður alls
kyns ófreskjur og illþýði. Sitthvað
ókræsilegt var þó að finna í leiknum,
meðal annars hallærislega karl-
rembu, en yfirleitt mátti brosa að
henni.
Civilization hefur verið kallaður
besti leikur allra tíma og víst er hann
margslunginn og skemmtilegur. Ný
útgáfa af Civilization, sem heitir því
frumlega nafni Civilization II, kom
út á árinu og er mikil framför.
Reyndar hefur leikjamarkaður tekið
slíkum stakkaskiptum að hann telst
seint byltingarkenndur líkt og for-
verinn, en góður engu að síður og vel
þess virði að eiga hann.
Flestir hljóta að þekkja til þeirra
Monty Python félaga, ef ekki fyrir
annað en bestu grínmynd sögunnar;
Monty Python and the Holy Grail. I
takt við breytta tíma hafa þeir félag-
ar snúið sér að leikjahönnun og
sendu frá sér leik byggðan á mynd-
inni undir sama nafni. Skemmst er
frá því að segja að hann var eins
geggjaður og bjartsýnustu menn
þorðu að vona og inn í ótrúlega svað-
ilför Artúrs konungs, blandast leikir
eins og skjóttu svöluna, flengdu jóm-
frúna, riddarastríð, grafðu hina
dauðu og svo mætti lengi telja, að
ógleymdum svölunum og kókoshnet-
unum dularfullu. Pegar við bætist að
í leiknum eru atriði sem ekki voru í
myndinni og að auki má sjá hana alla
á skjánum, að vísu heldur hratt, telst
leikurinn skyldueign.
Broken Sword, sem kallaðist
Circle of Blood vestan hafs, er meðal
bestu leikja ársins ef ekki fyrir annað
en frábært útlit. Að leiknum komu
framúrskarandi teiknarar sem marg-
ir eru frægir fyrir myndverk sín, og
gerir leikinn frábærlega skemmtileg-
an. Hann er kannski ekki ýkja erfið-
ur, en góð dægrastytting og sagan
hæfilega flókin til að halda mönnum
við efnið.
The Dig kom snemma á árinu og
vakti athygli að hann var úr smiðju
hönnuða leikjafyrirtækis George
Lucas byggður á sögú eftir Steven
Spielberg. I lok ársins finnst eflaust
mörgum sem Dig sé gamaldags leik-
ur, þróunin er svo ör, en hann stenst
prýðilega allan samanburð sé litið til
innihaldsins og þess að aðaláherslan
var lögð á þrautirnar en ekki þung-
lamalegar hreyfimyndir og hama-
gang.
Þeir sem gaman hafa af golfi
glöddust mjög þegar sá gamli leikur
Links fékk rækilega andlitslyftingu.
Líkt og fyrri útgáfan sem var bylt-
ingarkennd á sinni tíð fyrir frábæra
myndvinnslu, þó hún þykir hallæris-
leg í dag, var Links LS með því besta
sem sést hefur og bráðskemmtilegur
í þokkabót.
Spycraft fór nýjar leiðir, en sá sem
lék gerðist leyniþjónustumaður í
bandarísku leyniþjónustunni og fékk
sífellt flóknari verkefni eftir því sem
leið á leikinn. Meðal hönnuða leiksins
var William Colby, fyrrum forstjóri
CIA, sem fórst á dularfullan hátt
skömmu eftir að leikurinn kom út, og
Oleg Kalugin hershöfðingi sem áður
starfaði hjá KGB. Siðfræðin í leikn-
um þótti sumum varasöm, en sögu-
þráðurinn er magnaður og leikurinn
hin besta afþreying.
EITTHVAÐ ANNAÐ EN JÓLAMATUR
1 vænn laukur
2 dl vatn
Ajólum gera
menn yfirleitt
betur við sig í
mat en á öðrum árs-
tíma. Að lokinni jóla-
veislunni er því ágætt
að breyta til og hér eru
nokkrar ábendingar.
Innblásturinn er ættað-
ur úr austri, en hráefn-
in eru bæði norð- og
austlæg og öll auðfáanleg. í lokin
íylgir svo sætlegur eftirréttur, sem
sæmir sér vel í ójólalegu samhengi,
en er reyndar ekki síður góður um
jólin, sem lokaþáttur í jólalegri mál-
tíð með þungum réttum og sósum.
Awstrsen tómatsúpa með
engifer og rjónta
(handa 3-4)
Tómatsúpan er frjáls túlkun á ógn-
argóðri súpu, sem ég bragðaði einu
sinni á afgönskum matstað í Stokk-
hólmi. Matstaðurinn var ágætur fyr-
ir sinn hatt og ódýr, en ekkert meira
en það, utan hvað þeir
bjóða upp á
Ef jólamaturinn
er að gera útaf
við ykkur þá er
Sigrún Davíðs-
dóttir með
ábendingar um
aðra rétti.
ljómandi góða tómat-
súpu. Bragðið kemur
af engifer, austur-
lensku kryddi og örlít-
ið sætum þeyttum
rjóma, áferðin af fin-
söxuðu grænmeti og
kókosmjöli, sem helst
á að vera sem grófast.
Engiferið er nokkuð
ómissandi, en þið get-
ið spreytt ykkur á að
nota það indverska krydd eða karrí,
sem þið eigið. Með góðu brauði, sal-
ati á undan eða eftir og ávöxtum í eft-
irrétt er súpan kjörinn aðalréttur, en
sómir sér auðvitað einnig vel sem
forréttur þegar það á við.
ítalir nota mikið tómata í öllum
myndum i mat eins og kunnugt er og
nota meðal annars það sem kallast
„passato", sem eru soðnir tómatar,
sem settir eru í gegnum sigti, svo
kjarnamir síast frá og eftir er bara
mjúkt og gott, fljótandi tómatmauk.
Ef þið náið í slíka afurð er hún kjörin
í súpuna, en notið annars niðursoðna
tómata, sem þið setið í kvöm ásamt
safanum og hakkið í mauk.
3 msk. ólífu- eða vínberjakjarnaolía
2 gulrætur
2 dósir niðursoðnir tómat-
ar og safinn með
2 d! tómatsafi
1 dl gróft kókosmjöl
1 peli rjómi, þeyttur ásamt 1 msk. sykri
3-4 sm af nýrri engiferrót,
fínrifin (eða góður biti af
þurrkaðri rót,
sem þið rifið sjálf)
1 msk. tandoori krydd
inn og fínsaxið hann. Hreinsið gul-
ræturnar og fínsaxið þær. Látið
grænmetið malla um stund í olíunni á
vægum hita ásamt kryddinu.
0Bætið tómötum, safa og vatni í
pottinn. Lá#ð suðuna koma upp og
nú á súpan að sjóða á hægum hita í
10-15 mín. Bragðið á og kryddið
frekar ef ykkur sýnist svo. Ef ykkur
finnst súpan of þykk bætið þá
svolitlu af vatni í hana.
0 Ristið kókosmjölið svo það taki á
sig ljósbrúna slikju. Það gengur
hratt fyrir sig undir grillinu, en gæt-
ið að því að það brennur líka hratt
þar. Bætið því í súpuna rétt áður en
hún er borin fram.
0 Þeytið rjómann með sykrinum.
Eg lærði það af syni ítalsks köku-
gerðarmeistara að bæta alltaf
svolitlu af mjólk í rjóma, sem þeyta á.
Skolið úr rjómafernunni með rúm-
lega dl af mjólk og hellið í um leið og
þið þeytið rjómann. Þá verður hann
léttari en ella.
Berið súpuna rjúkandi fram ásamt
rjómanum, sem hver og einn getur
bætt í diskinn að vild.
mnnBnnnnnBHB
Kínverskur kálréttur
(handa fjórum)
Að uppistöðu er þetta grænmet-
isréttur, en fyrir þá sem kjósa kjöt
er einfalt að búa hann til sem kjöt-
rétt. Þess vegna fylgja hér tvær út-
gáfur hans. Uppistaðan er hvítkál
og annað grænmeti og síðan er kín-
verskum eggjanúðlum bætt í. Þær
fást víða og galdurinn við að sjóða
þær er að þær þurfa stutta suðu, því
annars verða þær leiðinlega mjúkar
undir tönn.
3 msk. ólífu- eða vínberjakjamaolía
vænt hvítkálshöfuð
O Hitið olíuna í potti. Afhýðið lauk-
3 gulrætur
3 sellerístönglar
2 vænir laukar
um 5 sm ný engiferrót, fínrifin
250 gr kínverskar núðlur
Sósa:
9 msk. hvítvínsedik
3 msk. góð sojasósa
3 msk. tómatmauk
3 msk. sykur, gjarnan hrásykur
1 dl vatn
O Hitið olíuna í stórum potti. Sneið-
ið hvítkálið í sem þynnstar sneiðar.
Hreinsið hitt grænmetið og sneiðið
það fínt. Bætið grænmeti og engifer í
heita olíuna og látið malla við vægan
hita undir lokin í um 20-30 mín., þar
til grænmetið hefur mýkst.
0 Setjið núðlurnar í nóg af sjóðandi
vatni og látið þær mýkjast í vatninu í
nokkrar mínútur, áður en þið hrærið
í svo það rakni úr þeim. Látið þær
sjóða, en ekki of lengi eins og áður er
sagt.
0 Hrærið saman öllu sem á að fara í
sósuna. Hellið henni yfír mallandi
grænmetið, hellið vatninu af soðnu
núðlunum og bætið þeim í. Blandið
öllu vel saman og berið fram.
Kínverskur kálréttur með
kjöti (handa 4-6)
Hér mæli ég með kjúklingakjöti,
en aðrir kjósa kannski eitthvað ann-
að. Þið getið notað þá hluta kjúk-
lings, sem ykkur hentar. Reykt sví-
naflesk gefur svo enn frekar bragðið
af þessari útgáfu.
Ofangreint hráefni
500 gr kjúklingakjöt, skorið f litla bita
100 gr gott svínaflesk í sneiðum,
skornum i væna bita
ö Útbúið réttinn eins og lýst er að
ofan, en bætið kjúklingabitum í
grænmetið og látið þá síðan malla
með því.
0 Látið fleskið stikna á pönnu, svo
fitan renni úr því. Þegar fleskið er
nægilega steikt hallið þá pönnunni,
svo fitan renni af bitunum og notið þá
í réttinn, án fitunnar.
0 Bætið fleskinu í grænmetisréttinn
um leið og sósunni er hellt yfir.
Blandið fleskinu vel í og berið réttinn
síðan fram.
Sítrussalat með mintu
(handa f jórum)
Frísklegt vetrarsalat er alltaf góð-
ur endir á góðri máltíð. Mintan er
merki um áhrif frá Miðjarðarhafinu,
því víða í matargerð sunnan og aust-
an megin þess er minta nánast dag-
lega á borðum. Langbest er að ná í
nýja mintu, en annars getið þið notað
þurrkaða mintu.
4 góðar appelsínur
2 greipaldin, gjarnan blóðgreip
1 msk. reyrsykur
1 tsk. kanill
5 mintugreinar eða 1 msk. þurrkuð minta
O Skerið hýðið af ávöxtunum, svo þið
losnið við hvítuna innan á berkinum.
Skerið ávextina í sneiðar, fjarlægið
steinana og skerið ávextina í bita.
0 Blandið sykri og kanel saman,
saxið mintuna og blandið þessu sam-
an við ávextina. Látið salatið gjarnan
standa í 30-60 mín. áður en það er
borið fram, svo kryddið blandist
ávöxtunum sem best. Salatið á ekki
að vera beint úr kæliskápnum, því
kuldi deyfir bragðið.