Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.12.1996, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mikil kirkjusókn umjólin KIRKJUSÓKN var mikil um allt land yfir jólin og telja prestar að hún hafi jafnvel verið meiri en undanfarin ár, að sögn Baldurs Kristjánssonar biskupsritara. „Kirkjur voru alls staðar fullar og vel það,“ sagði Baldur. „í kirkj- um í Reykjavík þurfti fólk víða að standa eins og til dæmis í Dóm- kirkjunni, Seljakirkju og í Grafar- vogskirkju, sem tekur um 1.500 manns. Þama var allt yfirfullt og margir sem urðu að hverfa frá. Ég hugsa að allar kirkjur í Reykja- vík hafi verið yfirfullar á aðfanga- dagskvöld." Flestir fóru til kirkju kl. 18 á aðfangadag en miðnæturmessur voru einnig vel sóttar. „Miðnætur- messur eru ekki jafn almennar í kirkjunum en þær eru að ryðja sér til rúms úti á landi, þar sem víða er einn prestur sem þjónar mörg- um kirkjum og því óhægt um vik,“ sagði hann. Morgunblaðið/Ásdís Safnað í brennu VIÐ Ægisíðuna í vesturbæ er að safnast upp hin myndarleg- asta brenna, sem fuðrar svo upp að kvöldi gamlársdags. Krakkar eru að venju iðnir við að draga spýtur í brennuna, en þeir fá líka gjarnan aðstoð þeirra sem eldri eru og ráða yfir stórvirkum vinnutækjum. Á þriðja tug brenna verða á höfuðborgarsvæðinu og þótt þær verði sjálfsagt misstórar þá ætti enginn að þurfa að leita langt eftir brennu í sínu hverfi. Gaf 52 milljónir til tveggja líknarfélaga KRISTÍN Bjömsdóttir, sem lést fyrir tveim árum, arfleiddi Krabba- meinsfélag íslands og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra að stærstum hluta eigna sinna, alls rúmum 52 milljónum króna. í hlut hvors félags kom 26,1 milljón króna. Kristín var fædd að Litlu-Giljá í Húnavatnssýslu 1. júní 1909, dóttir hjónanna Söm Guðnýjar Þorleifs- dóttur og Björns Sigurðssonar. Kristín gekk í Kvennaskólann á Blönduósi og lauk þaðan prófi 1925, aðeins 16 ára gömul, yngsti nem- andi sem þaðan hefur brautskráðst. Að námi loknu fór hún til Reykja- víkur og fékk starf sem talsíma- stúlka hjá Landssíma íslands. Kristín starfaði hjá Sameinuðu i þjóðunum frá 1946. Þegar ísland gerðist aðili að samtökunum, haust- ið 1946, dró hún íslenska fánann að húni í fyrsta sinn úti fyrir höfuð- stöðvum þeirra sem þá voru í Lake Success. Kristín starfaði hjá Sam- einuðu þjóðunum allt til ársins 1967, en þá fluttist hún til íslands. Hún hafði þó ekki al- veg sagt skilið við sam- tökin og var fulltrúi ýmissa smáþjóða á ráð- stefnum á vegum sam- takanna eftir þetta. Kristín, er síðast átti lögheimili á Kleppsvegi 56 í Reykjavík, andað- ist 11. október 1994. Hún hafði gert erfða- skrá þar sem hún arf- leiddi áðurnefnd tvö líknarfélög að stærst- um hluta eigna sinna. Skal varðveitast í tveimur sjóðum I erfðaskrá hinnar látnu var áskilið að Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra varðveitti arfs- hluta sinn í sérstökum sjóði sem heitir „Sjóður Kristínar Bjömsdótt- ur, fyrrverandi starfsmanns Samein- uðu þjóðanna". Fé úr sjóðnum skal notað aðallega til að aðstoða fötluð böm og unglinga og til menntunar og sérmenntunar þeirra, sem sé í sam- ræmi við hæfni þeirra og möguleika, þannig, að þau fái sem líkasta uppvaxtarmöguleika og heilbrigð böm. Krabbameinsfélagið skal einnig varðveita arfshluta sinn í sér- stökum sjóði sem ber nafnið „Sjóður Krist- ínar Björnsdóttur, fyrrverandi starfs- manns Sameinuðu þjóðanna“. Fé úr sjóðn- um skal varið aðallega í þágu rannsókna á krabbameini í börnum og unglingum, og til aðhlynningar krabbameinssjúkra barna. I frétt frá Krabbameinsfélaginu og Styrktarfélagi lamaðra og fatl- aðra segir að samtökin meti mikils þessa höfðinglegu erfðagjöf, sem kemur að góðum notum í starfi þessara tveggja líknarfélaga. Kristín Björnsdóttir Rannsókn fíkniefnamáls sækist vel HOLLENSKT par og íslenskur karlmaður sitja enn í haldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkni- efnamáii. Islensk stúlka, sem handtekin var í tengslum við mál- ið, hefur verið látin laus. Lagt var hald á 10,5 kíló af hassi í fórum Hollendinganna og við húsleitir og handtökur íslend- inga í kjölfarið fundust um 500 e-pillur og 260 grömm af amfet- amíni, auk um 250 þúsund króna í peningum og áhalda til neyslu fíkniefna. Bjöm Halldórsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að rannsókn málsins sæktist vel, en enn ætti eftir að hnýta ýmsa lausa enda. Ekki yrðu öll kurl kom- in til grafar fyrr en á nýju ári. Nýtt kvikmyndahús opnað Bíómarkaður- inn hér sá besti í heimi Árni Samúelsson K' RINGLUBÍÓ, nýj- asta kvikmyndahús landsins, var opnað annan í jólum. Þetta er fimmta kvikmyndahús Sam- bíóanna, sem nú ráða yfir 13 kvikmyndasölum með sætum fyrir 3.300 gesti og bjóða upp á nærri 400 kvik- myndasýningar á viku. Er nægur markaður fyrir allt þetta framboð? „Það hefur ekki verið reist nýtt kvikmyndahús hér í 15 ár,“ segir Arni Samúelsson, forstjóri Sambíóanna. „Það er þörf fyrir eðlilega end- umýjun á þessu sviði ekki síður en öðrum. Við höfum séð mikla endurnýjun í versl- unarhúsnæði og öðrum byggingum, þetta var orðið tímabært.“ Húsið reis á skömmum tíma og ekki gáfust nema 20 dagar til að innrétta það. „Afhending hússins dróst, við áttum að fá það 20. nóv- ember en fengum það ekki fyrr en 3. desember og þurfti því að leggja nótt við dag til að við gætum opn- að á tilsettum tíma. Hann Sigurjón Jóhannsson, sem setti tækin upp, rétt skrapp heim til að smakka á jólasteikinni og var hér næstum öll jólin. En þetta hafðist með frá- bærri vinnu allra sem lögðu hönd á plóginn," segir Ami. Með Kringlubíói ráða Sambíóin yfir helmingi kvikmyndasala í borg- inni, að sögn Árna. „Bíómarkaður- inn hér er sá besti í heimi. íslend- ingar fara að meðaltali átta sinnum á ári í kvikmyndahús meðan ná- grannaþjóðir fara 2-3 sinnum. Það er löng hefð fyrir þessari sterku bíómenningu og margir í kvik- myndaheiminum sem líta hingað til lands fyrir það hvað þetta er sterkur markaður," segir Ámi. Hver er leyndardómurinn við þennan sterka markað? „Okkur hefur tekist að halda aðsókninni. Það hefur alltaf verið reynt að bjóða upp á það besta, bæði í aðstöðu og kvikmyndaúr- vali. Kringlubíó er nú það tækni- væddasta í Evrópu. Öll tæki af fullkomnustu gerð, það gerist hvergi betra. Þessi tæknilega full- komnun skilar sér bæði í mynd og hljómflutningi. Sætin eru þægileg og gott rúm á milli sætaraða. Eins er aðkoman góð, anddyrið rúmgott og góð aðstaða fyrir fatlaða.11 Verður annað myndaval í Kringlubíói en öðrum Sambíóum? „Við munum sýna allar stór- myndir hér ásamt öðrum. Annars eigum við eftir að ákveða nánar hvemig myndir koma til með að flytjast milli sýningarsalanna. Nú höfum við svo marga sali að það getur vel verið að við föram í auknum mæli að sýna svonefndar listrænar kvikmyndir og eins frá öðram svæðum en enskumælandi. Staðreyndin er sú að slíkar sýning- ar hafa ekki staðið undir sér og þurfa helst að njóta styrkja." Hvenær kemur að því að hætt verði að slíta kvikmyndasýningar í sundur með hléi? „Það er íslenskur siður að hafa hlé. Kvikmyndahúsin hafa notað það til að selja sælgæti, sem er tekjulind. Staðreyndin er sú að við t.d. hjá Sambíóunum höfum verið skattpínd umfram suma sam- keppnisaðila. Við höfum þurft að borga skemmtanaskatt, sem t.d. Háskólabíó og Laugarásbíó hafa sloppið við. Þrátt fyrir úrskurð Samkeppnisstofnunar frá 1994 um ► Árni Samúelsson forsljóri Sambíóanna er fæddur í Reykja- vík 12. júlí 1942. Hann giftist Guðnýju Ásberg Björnsdóttur úr Keflavík 1964. Þau bjuggu í Keflavík í 19 ár og voru með umfangsmikinn verslunarrekst- ur auk þess semþau ráku Nýja bíó, sem Eyjólfur Ásberg, afi Guðnýjar, byggði 1945. Árið 1982 flutti Arni með fjölskyldu sína til Reykjavíkur og hóf rekstur Bíóhallarinnar í Breið- holti, árið 1987 keyptu þau Austurbæjarbíó og opnuðu þar Bíóborgina, árið 1991 var Saga- bíó opnað þar sem veitingahúsið Broadway var áður til húsa og nú á annan í jólum var Kringlu- bíó opnað. Þau Guðný og Árni eiga þijú börn, Bjöm, Elísabetu og Alfreð, sem öll starfa hjá Sambíóunum. að jafnræði eigi að gilda á þessu sviði þá hefur það ekki enn komist í framkvæmd.“ Sambíóin hafa breytt verðskrá sinni og nú er aftur farið að selja sérstaka barnamiða. Hvers vegna? „Við lækkum miðaverð á dag- sýningum, nú kostar miðinn 500 krónur á sýningar kl. 13, 15, 17 og 19. Á kvöldin hækkar verðið um 50 krónur frá því sem nú er og kostar miðinn 600 krónur. Mið- ar fyrir börn yngri en 6 ára kosta nú 300 krónur og eins fá borgar- ar, eldri en 63 ára, miðann á 450 krónur. Nú borgar fjögurra manna fjölskylda með tvö börn 1.600 krónur í stað 2.200 króna áður. Þessi verðbreyting er til samræmis við þá þróun sem orðið hefur til dæmis í Bandaríkjunum. Það var orðið tímabært að breyta þessu.“ Hvernig er að vera með bíó í verslunarmiðstöð? „Það er mjög ákjós- anlegt. Nú er mikið byggt af bíóum um allan heim og langflest í tengslum við verslunar- kjarna. Hér er hægt að sameina verslunarferð og bióferð, það er stutt í veitingahús og alla þjón- ustu. Það er þægilegt að geta lagt bílnum í yfírbyggðu og upphituðu húsnæði og komið að honum hrein- um og þurrum en ekki á kafi í snjó! Við tökum mið af umhverfmu hér í Kringlunni og hefjum sýning- ar klukkan 15.00 alla virka daga og kl. 13.00 á laugardögum og sunnudögum." Hvernig hefur Kringlubíói verið tekið? „Byijunin lofar góðu. Það var uppselt á fyrstu sýningnna í Sal 1 á 15 mínútum og í allt húsið á klukkutíma." Tæknivædd- asta bfóhús í Evrópu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.