Morgunblaðið - 28.12.1996, Page 61

Morgunblaðið - 28.12.1996, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 61 FÓLK í FRÉTTUM HLJÓMSVEITIN Bentley Rythm Ace frá Englandi. Carbotechno- disco í Digranesi HUOMSVEITIN Bentley Rythm Ace frá Birmingham á Englandi er komin hingað til lands og leikur á þrem tónleikum, þar af einum í íþróttahúsinu í Digranesi í kvöld kl. 21 ásamt hljómsveitunum Botn- leðju, Quarashi, Súrefni, Hönkum ' frá Keflavík (samstarfsverkefni Botnleðju og Súrefnis) og plötu- snúðunum Derek de Large frá Wall of Sound sem einnig er þekkt- ur undir nöfnunum Ceasefire og Naked All Star, Agga og Daða. Með hljómsveitinni kemur sérstak- ur gestur og vinur hljómsveitar- meðlima, söngvari hljómsveitar- . innar EMF, og mun hann koma fram með hljómsveitinni. Bentley Rythm Ace var stofnuð í fyrrasumar af Michael Stoke, 23 ára og Richard March 22 ára. Hún hefur gefið út tvær smáskífur með danstónlist sinni sem Michael, eða Mike, kallar í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins carbo- technodisco. Hann segir að þeir hafi nýlokið við gerð stórrar plötu sem er væntanleg í mars á næsta ári. „í hljóðverinu vinnum við Ric- hard alla tónlistina tveir saman en á tónleikum viljum við flytja sem mest af henni með hljómsveit með okkur,“ sagði Mike. Með þeim hingað til lands kemur til dæmis þriðji meðlimur hljómsveitarinnar, trommuleikari, sem leikur ávallt með þeim á tónleikum. Hann segir að hljómsveitin hafi nóg að gera við tónleikahald. „Við höfum leikið víða á Englandi á klúbbum og á danshátíðum sem haldnar eru á sumrin. Síðan er búið að bóka okkur á tónleika í Hollandi, Þýska- landi og í New York í janúar, það verður mjög spennandi," sagði Mike. Á tónleikum eru þeir vanir að vera með íburðarmikla hreyfanlega sviðsmynd með sér sem þeir gera úr ýmiss konar drasli eins og kló- settrúllum, lími, ýmsu plastdrasli og dúkkum. Mike segist því miður ekki geta tekið sviðsmyndina með hingað til lands, hún er of stór, tónlistin ein verður að duga í þetta skipti, að hans sögn. Hann segir tónlist þeirra hafa náð nokkurri hylli í Englandi og smáskífurnar hafi selst vel enda hafi þeir meðal annars náð inn á síður hins þekkta tímarits Face. Þeir vita lítið sem ekkert um ísland og eru spenntir fyrir að koma til landsins og upp- lifa áramótin hér. „Hvernig er gamlárskvöld á íslandi?" var það síðasta sem Mike og blaðamanni fór á milli og lofaði blaðamaður honum að mjög líklega gæti hann fundið sér eitthvað til skemmtunar á því kvöldi. Áramótadansleikxir 31. desember. Husið opnar Id. 23:00. Dansað til kl. 04:00.18 ára aldurstakmark. Verð kr. 2.000. Miðasala og borðapantanir daglegaá Hótel íslandi kl. 13-17. Sími 568-7111. LIAMS LAUSNARGJALDIÐ SPENNUMYND ÁRSINS ER KOMIN!!! Nýr, hörkuspennandi tryllir frá leikstjóranum Ron Howard (Backdraft, Appollo 13). Stórleikararnir Mel Gibson (Bravehaert), Rene Russo (Get Shorty), Gary Sinse (Forrest Gump) og Lily Taylor (Cold Fever) fara á kostum og gera „Ransom" að einhverri eftirminnlegustu kvikmynd sem komið hefur í langan tíma ÞESSARI MÁTTU ALLS EKKI MISSA AF!!! Sýnd kl. 9 og 11.20. B. I. 16 ÁRA Sýndkl. 12.45,2.50,5,7.15, 9.30 og 12. B. I. 16 ÁRA FRUMSÝNING SAMM SAMBM SAMMÍ Mánudaginn 30. desember verða engar 3 og 5 sýningar vegna formlegrar opnunar. Sýnd . kl. 12.50, 2.55, 5, 7.05, 9.10 og 11.15. SHDIGITAL ÍÍDQDIGITAL ifllIwpM ifl WíjPilíM iiHliyjViífÍirfnj l WriiMtMí\ Sýnd kl. 1, 3, 5 og 7. JÓLAMYjjjb 1996 w’ Komdu og sjáðu Robin Williams fara á kostum sem stærsti 6. ekkingur í heimi. Ótrúlegt grín og gaman í frábærri mynd fyrir alla fjölskylduna. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.