Morgunblaðið - 31.12.1996, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samkomulag milli ASI og VSI um vinnutímatilskípun ESB
Hvfldartími verður lengd-
urúr lOtímumí lltíma
VSÍ og fimm landssambönd ASÍ undirrituðu í gær
samning um framkvæmd vinnutímatilskipunar
Evrópusambandsins. Samningurinn gerir ráð fyrir
þeirri meginreglu að meðalvinnutími á sex mán-
aða tímabili megi ekki vera umfram 48 klukku-
stundir. Samningurinn gerir ráð fyrir að daglegur
hvildartími lengist úr 10 klukkutímum á sólar-
hring í 11.
Samkomulagið tekur gildi 1. janúar en kemur
endanlega til framkvæmda 1. apríl nk. Gert er
ráð fyrir að það gildi fyrir vinnumarkaðinn í heild
en ASÍ er í viðræðum við Vinnumálasambandið
og sveitarfélögin um sambærilegan samning. Op-
inberir starfsmenn eru einnig í viðræðum við sína
viðsemjendur og gert er ráð fyrir að frá þeim
samningum verði gengið á fyrstu dögum nýs árs.
Vinnutímatilskipunin heimilaði að miða há-
marksvinnutíma við meðalvinnutima í íjóra, sex,
eða 12 mánuði. Halldór Grönvold, skrifstofustjóri
ASI, sagði að samkomulag hefði tekist um að
miða við sex mánuði fremur en fjóra en á móti
hefði verið reynt að hafa fráviksheimildir sem
fæstar. Samkomulagið veitir samningsaðilum
heimild til að semja um lengri viðmiðunartíma,
þ.e. eitt ár. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði hugsanlegt að verkalýðs-
félag sæi sér hag í því að semja um að t.d. starfs-
menn loðnubræðslna miðuðu meðalvinnutíma sinn
við eitt ár í stað sex mánaða.
Með samkomulaginu er vinnutími skilgreindur
upp á nýtt. Vinnutími telst aðeins unninn tími.
M.ö.o. greiddur vinnutími og unninn tími er ekki
Morgunblaðið/Þorkell
ÓLAFUR B. Ólafsson formaður VSÍ og
Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ takast í
hendur að lokinni undirritun.
sami hluturinn. Árlegt launað lágmarksorlof, veik-
indaforföll og lög- eða samningsbundið fæðingar-
orlof skulu teljast til vinnutíma og vera hlutlaust
við meðaltalsútreikninga.
Mikilvægt skref
I samkomulaginu er næturvinnutími skilgreind-
ur frá kl. 23 að kvöldi til 6 að morgni. Jafnframt
er samkomulag um að starfsmenn sem vinna
næturvinnu skuli njóta sérstakrar vemdar í starfí.
Þeir eiga t.d rétt á heilbrigðismati sér að kostnað-
arlausu áður en þeir hefja störf og síðan á þriggja
ára fresti.
Með samningnum fellur úr gildi samkomulag
um framkvæmd hvíldartíma og frítímaákvæða
frá árinu 1981. Þar eru ákvæði um hvaða greiðsl-
ur eiga að koma á móti ef vinnutími fer yfir
ákveðin mörk. Nýja samkomulagið gerir ráð fyr-
ir að starfsmaður verði að taka út hvíldartíma
ef hann vinnur fram yfir skilgreind mörk. Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði að launaliður
þessa máls yrði umfjöllunarefni í kjaraviðræðum
sem nú standa yfir. Samkomulagið frá 1981 félli
ekki úr gildi fyrr en nýtt samkomulag hefði ver-
ið gert.
„Það er mikilvægt að það hefur náðst sam-
komulag um vinnutímatilskipunina. Ég efast ekki
um að stjómvöld munu staðfesta þetta samkomu-
lag. Með því er verið að stíga skref í átt að skikk-
anlegum vinnutíma. Það ræðst af því hvort það
verður virkt eða ekki, en ég hef trú á því að það
verði virkt því að viðhorfin til hins langa vinnu-
tíma eru að breytast," sagði Grétar.
„Með þessu samkomulagi er í fyrsta sinn verið
að setja hámark á vinnutíma í kjarasamningum.
Það þak sem sett er á yfirvinnu er tiltölulega
rúmt. Mælingar hafa þó sýnt að töluverður fjöldi
einstaklinga er með lengri vinnutíma en hér er
gert ráð fyrir. Ég á ekki von á öðru en menn
reyni að halda sig við þessi mörk. Þetta kemur
því til með að hafa áhrif, kannski ekki mjög
mikil fyrst um sinn, en talsverð til lengri tíma,“
sagði Hannes G. Sigurðsson.
KÁ kaupir
verslanir
Hafnar-Þrí-
hyrnings
KAUPFÉLAG Ámesinga keypti
í gær verslanir Hafnar-Þríhym-
ings hf. á Hellu og Selfossi.
Höfn-Þríhymingur hefur þar
með hætt verslunarrekstri og
mun einbeita sér að öðmm
rekstri.
Með kaupunum á verslunum
Hafnar-Þríhymings, sem KA
tekur við 2. janúar, verður fyrir-
tækið fjórði stærsti matvælasali
landsins, með þrettán verslanir
um allt Suðurland og eina versl-
unarfyrirtækið sem eitthvað
kveður að í landshlutanum. Þessi
fyrirtæki og forverar þeirra hafa
lengi verið í samkeppni í verslún
á svæðinu. Forráðamenn fyrir-
tækjanna segja hins vegar að
viðskiptaumhverfíð sé gjör-
breytt. Nú sé samkeppnin ekki
yfír götuna heldur meira við
verslanir á höfuðborgarsvæðinu.
Starfsfólki Hafnar-Þrihym-
ings mun fækka verulega en fyr-
irtækið mun áfram reka slát-
urhús, kjötvinnslu og pakkhús á
Selfossi, sláturhús og pakkhús á
Hellu og sláturhús í Þykkvabæ.
Framkvæmdastjóri félagsins
segir að söluandvirði verslan-
anna verði notað til að styrkja
þennan rekstur.
■ Keppinautar grafa/10
Morgunblaðið/Þorkell
Ásaprestakall í
V-Skaftafellssýslu
Séra Hanna
María kjörin
sóknarprestur
Hnausum. Meðaliandi.
SÉRA Hanna María Pétursdóttir,
fyrrverandi sóknarprestur og þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, var í g*r
kjörin sóknarprestur í ÁsaprestakalH
í Vestur-Skaftafellssýslu.
Auk séra Hönnu Maríu var í fram-
boði Lilja Kristín Þorsteinsdóttir guð-
fræðingur. Á kjörfund mættu allú
kjörmenn úr þremur sóknum presta-
kallsins; sóknarnefndarmenn o g
varamenn þeirra, alls átján að tölu.
Kosning fór þannig að Hanna
María var kjörin með tíu atkvæðum,
Lilja Kristín fékk sjö atkvæði og einn
seðill var auður.
Séra Hanna María var áður sókn-
arprestur í Ásaprestakalli á árunum
1981-1985.
Finnur Ingólfsson og Björn Friðfinnsson ná samkomulagi
Sinnir EES-ráðgjöf
SAMKOMULAG náðist í gær milli
Finns Ingólfssonar iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og Bjöms Friðfinns-
sonar um það með hvaða hætti
Björn komi til starfa nú um áramót-
in, þegar hann lætur af störfum sem
stjórnarmaður hjá Eftirlitsstofnun
EFTA.
Samkomulagið felur í sér, að
Björn muni næstu tvö árin veita
ríkisstjórninni og öðram íslenzkum
stjórnvöldum ráðgjöf um málefni
er varða framkvæmd samningsins
um hið evrópska efnahagssvæði,
EES. í því felst m.a. að hann vinni
að kynningu á samningnum innan
stjórnarráðsins og utan. Að sögn
Finns er Björn þarna á heimavelli;
hann hafí í gegn um störf sín hjá
ESA mjög mikla reynslu af fram-
kvæmd EES-samningsins og muni
„reynast stjómvöldum mjög dijúgur
í því starfí“. Að öðru óbreyttu mun
hann um áramótin 1998-1999, snúa
aftur í stól ráðuneytisstjóra iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneyta.
„Þetta var nú reyndar alltaf
meiningin með því sem ég var að
bjóða Bimi, þar sem ég var að óska
eftir að hann kæmi ekki beint inn
í ráðuneytið þegar hann kæmi
heim,“ sagði Finnur.
Ástæðuna fyrir þessu segir ráð-
herrann vera þá, að í ráðuneytunum
báðum séu mörg verk á mjög við-
kvæmu stigi. Þar sé ekki sízt um
að ræða samninga sem nú standa
yfir í stóriðjumálum.
„Núverandi ráðuneytisstjóri hef-
ur leitt þessa samninga. Það var
og er mitt mat að það væri mjög
óheppilegt að skipta um ráðuneyt-
isstjóra á þessari stundu, þegar
samningarnir stæðu yfir. Það var
það sem ég vildi ganga til samn-
inga við Björn um, með hvaða
hætti hann kæmi þess vegna til
starfa. Ég taldi það einfaldlega
ekki þjóna hagsmunum þeirra
verka sem ég hef verið að vinna
að innan ráðuneytisins - og þá um
leið íslenzkra hagsmuna - að
skipta um mann einmitt núna, á
miðri leið í svo vandasömum verk-
um.“ Loks benti Finnur á, að Hall-
dór Kristjánsson væri þriðji maður-
inn, sem gegndi embætti ráðuneyt-
isstjóra á 20 mánaða löngum ráð-
herraferli sínum.
I samstarfi við utan-
ríkisráðuneyti
Birni er, að sögn Finns, ætlað
að rækja hið nýja hlutverk sitt í
nánu samstarfi við ráðuneytisstjóra
utanríkisráðuneytisins, og a.m.k-
fyrst um sinn mun hann hafa skrif-
stofuaðstöðu í forsætisráðuneytinu.
Laun og annan starfskostnað mun
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
greiða.
Samkomulag Finns og Björns
undirrituðu í staðfestingarskyn'
bæði Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra. Björn Friðfinnsson vild'
ekki tjá sig nánar um málið að svo
stöddu.
Banaslys
ekkifærrí
í 44 ár
ÞRJÁTÍU og tveir hafa látist af
slysförum hér á landi á þessu ári,
25 karlar og 7 konur. Banaslys á
ári hafa ekki verið jafn fá frá því
að Slysavamafélag Islands hóf að
skrá banaslys á þann hátt sem
gert er í dag, eða frá árinu 1952.
Þá hafa banaslys í umferðinni
ekki verið jafn fá frá árinu 1968,
eða 11 talsins. í fyrra fórast 28 í
umferðarslysum.
í bráðabirgðaniðurstöðum
Slysavarnafélagsins kemur fram
að banaslysum er skipt í fjóra
flokka. í þeim fyrsta eru sjóslys
og drukknanir og eru 12 banaslys
skráð þar, eða 38% af heildar-
fjölda. Þar af fórust 10 sjómenn,
fimm sem fórust með skipum, fjór-
ir sem féllu útbyrðis og einn í
vinnuslysi um borð í skipi.
11 dóu I umferðarslysum
í öðrum flokki eru umferðarslys
og létust 11 í þeim á árinu sem
er að líða, eða 34% af heildarfjölda
banaslysa. Af þessum 11 vora 7
ungmenni undir tvítugu.
Enginn fórst í flugslysi á árinu,
en 9 banaslys eru skráð í flokknum
ýmis slys, þ.e. vinnuslys, hrap,
fall, dauði af völdum brana o.fl.
Útför Péturs
Sigurðssonar
ÚTFÖR Péturs Sigurðssonar, fyrr-
verandi alþingismanns, var gerð
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
gær að viðstöddu miklu fjölmenni.
Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson
jarðsöng. Líkmenn voru Davíð
Oddsson, Matthias Bjamason,
Sverrir Hermannsson, Matthías Á.
Mathiesen, Guðmundur Hallvarðs-
son, Sævar Gunnarsson, Jónas
Garðarsson og Hannes Þ. Hafstein.
Banaslys á Islandi 1986-96
58
57
Ymis slys
22 I (28,1 %)
Umfer&ar-
slys (34,4%)
Sjóslys (37,5%)
1968 70 73 74 77 ’86 ’87 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96