Morgunblaðið - 31.12.1996, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996
MORGUNELAÐIÐ
FRÉTTIR
Kaupfélag Árnesinga hefur keypt verslanir Hafnar-Þríhyrnings
Keppinautar hafa
grafið stríðsöxina
Kaup Kaupfélags Ár-
nesinga á verslunum
Hafnar-Þríhymings
marka tímamót í við-
skiptalífí Suðurlands.
Með því er KÁ orðið
eina verslunarfyrir-
tækið sem eitthvað
kveður að í landshlut-
anum og jafnframt
hafa þessir andstæðu
pólar á Suðurlandi tek-
ið upp samstarf í stað
samkeppni. Helgi
Bjarnason kynnti sér
breytingamar.
GESTUR Iljaltason, framkvæmdasljóri Hafnar-Þríhyrnings, og Þorsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Kaupfélags Árnesinga, innsigla samkomulag félaganna. Við hlið Gests, lengst til vinstri, stend-
ur Kjartan Ólafsson sljórnarformaður Hafnar-Þríhyrnings og við hlið Þorsteins stendur Erlingur
Loftsson stjórnarformaður KÁ.
KAUPFÉLAG Árnesinga (KÁ) hefur
keypt verslunarrekstur Hafnar-Þrí-
hyrnings hf. á Hellu og Selfossi og
mun taka við rekstrinum 2. janúar.
Er KÁ nú orðið fjórði stærsti mat-
vælasali landsins með þrettán versl-
anir um allt Suðurland.
Kaupfélag Árnesinga hefur síð-
astliðin tvö ár einbeitt sér að dag-
vöruverslun á Suðurlandi, auk ferða-
þjónustu og sölu á búrekstrarvörum.
Á þessu tímabili hefur orðið mikið
aukning í vörusölu, bæði vegna
aukningar í þeim verslunum sem
fyrirtækið hefur rekið og vegna yfir-
töku á nýrri verslun í Vestmannaeyj-
um og á rekstri Kaupfélags Rangæ-
inga. Með kaupum á tveimur versb
unum Hafnar-Þríhyrning rekur KÁ
þrettán dagvöruverslanir á öllum
stærri stöðum Suðurlands, allt frá
Þorlákshöfn, austur á Kirkjubæjar-
klaustur og út í Vestmannaeyjar.
Rekstur Hafnar-Þríhymings
endurskipulagður
Höfn-Þríhyrningur varð til með
sameiningu Hafnar hf. sem lengi
hefur verið með verslunarrekstur,
kjötvinnslu og slátrun á Selfossi og
Þríhyrnings hf. sem á árinu 1988
yfirtók rekstur Kaupfélagsins Þórs
á Hellu og sláturhúss Friðriks Frið-
rikssonar í Þykkvabæ. Síðustu ár
hefur félagið átt í rekstrarerfiðleik-
um og vildi Sláturfélag Suðurlands
kaupa sig inn í það. Þáverandi hlut-
hafar ákváðu að halda rekstrinum
áfram og hófu endurskipulagningu
rekstrarins sem enn stendur.
Fyrir ári var hlutafé aukið um 50
milljónir, úr 40 í 90 milljónir kr.,
fyrir tilstilli Hofs hf., móðurfélags
Hagkaups, og bættust þá eign-
arhaldsfélög Eimskips og Sjóvár-
Almennra, Bónus, Skeljungur og
fleiri fjárfestar í hóp 180 hluthafa
félagsins sem flestir voru bændur.
Félagið gerðist þá aðili að Baugi,
innkaupafélagi Hagkaups og Bón-
uss.
Höfn-Þríhyrningur hefur verið
með íjölbreyttan rekstur undanfarin
ár, kjötvinnslu, sláturhús, búrekstr-
arvörur og verslanir. Slátrun og kjöt-
vinnsla hefur verið á Selfossi, Hellu
og í Þykkvabæ en verslanir hafa
verið reknar á Hellu og Selfossi
undir nafninu Kjar-val. Gestur
Hjaltason, framkvæmdastjóri Hafn-
ar-Þríhyrnings, segir miklu fé og
fyrirhöfn hafi verið eytt í endur-
skipulagningu þeirra deilda félagsins
sem ekki hafi skilað nógu góðum
árangri. Verslunin á Selfossi hafi
verið tekin í gegn og það gefið góða
raun. Aukin sala eftir breytingar
hafí þó ekki náð að vinna upp þann
sölusamdrátt sem varð á fyrri hluta
ársins og minnkaði veltan um 10%
milli ára. Salan á Hellu var svipuð
milli ára. Gestur segir að fyrirhugað
hafi verið að breyta versluninni þar
í byijun næsta árs.
„Við sáum hins vegar fram á það
að til þess að ná hagkvæmum versl-
unarrekstri yrðum við að tvöfaida
veltuna og að það gerðist ekki nema
með því að fjölga verslunum. Á sama
tíma höfum við verið að auka okkar
hlut í slátrun og kjötvinnslu þannig
að hlutur verslunarinnar var kominn
niður í 28% af veltu fyrirtækisins,"
segir Gestur. Hann segir að fram-
undan séu verulegar fjárfestingar í
kjötvinnslunni vegna aukinna krafna
og samkeppni. Þegar komið hafi í
ljós að KÁ væri tilbúið að kaupa
þessar verslanir á viðunandi verði
hafi verið talið rétt að selja þær og
nýta fjármunina til að styrkja undir-
stöður fyrirtækisins til framtíðar.
Eykurinnkaupa-
mátt KÁ
Samstarf eða sameining þessara
tveggja helstu verslunarfyrirtækja á
Suðurlandi hefur stundum komið til
tals á undanfömum árum en menn
hafa ekki náð saman. í vetur kom
málið aftur upp, vegna endurmats á
rekstri Hafnar-Þríhyrnings, en Gest-
ur Hjaltason segir að lokatörnin
hafí ekki staðið yfir nema í rúma
viku. Hvorugur aðilinn vill gefa upp
söluverð verslananna.
Rekstur Kjar-vals á Hellu og Sel-
fossi verður óbreyttur fyrst eftir eig-
endaskiptin. Þorsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri Kaupfélags Ár-
nesinga, segir að versluninni á Hellu
verði síðan breytt til samræmis við
aðrar KÁ-verslanir. Verslunin á Sel-
fossi, sem er skammt frá Vöruhúsi
KÁ, verði hins vegar rekin með
óbreyttu sniði. í henni er minna
vöruúrval og minni sérþjónusta en í
KÁ-verslunum og heldur lægra verð.
KÁ verður þannig með tvær gerðir
af verslunum, eins og margar aðrar
verslanakeðjur landsins.
KÁ yfirtók verslun KR á Rauða-
læk, skammt frá Hellu, fyrr á árinu.
Þorsteinn segir að framtíð hennar
sé ekki ráðin, ákvarðanir þar um
verði teknar þegar afkoman eftir
rekstur verslunarinnar í heilt ár komi
í ljós. Hann segir þó ljóst að yfirtaka
á versluninni á Hellu geri reksturinn
á Rauðalæk ekki auðveldari.
„Nei, maður getur aldrei keypt
af sér samkeppni," segir Þorsteinn
þegar hann er spurður að því hvort
KA sé að kaupa sig frá samkeppni
í ljósi þess að Höfn-Þríhyrningur var
orðinn eini keppinauturinn sem eitt-
hvað kvað að á Suðurlandi. „Með
þessu erum við að efla innkaupa-
mátt KÁ og renna styrkari stoðum
undir samkeppnishæfni fyrirtækis-
ins.“ Veltan í verslunum Hafnar-Þrí-
hyrnings er um 400 milljónir kr. á
ári og bætist við um 3,5 milljarða
kr. veltu KÁ.
Förráðamenn KÁ og HÞ segja að
eftir þær miklu breytingar sem orð-
ið hafa í verslunarmálum sé ekki
nóg að líta yfir götuna, á innbyrðis
samkeppni verslana á Suðurlandi.
Markaðurinn hafi stækkað og Sunn-
lendingar eigi í meiri samkeppni við
verslanir á höfuðborgarsvæðinu.
„Við höfum alltaf sett okkur það
markmið að vera með svipað verð
og verslanir í Reykjavík, það er sam-
keppnisverðið," segir Þorsteinn.
Einbeita sér að
fullvinnslu kjötvara
Höfn-Þríhyrningur hefur markað
sér þá framtíðarstefnu að beina
kröftum sínum að fullvinnslu kjöt-
vara og búrekstrarvörusölu. Fyrir-
tækið rekur áfram kjötvinnslu, slát-
urhús og pakkhús á Selfossi og þar
eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, slát-
urhús í Þykkvabæ og sláturhús og
pakkhús á Hellu. Reynt hefur verið
að sérhæfa sláturhúsin þannig að
slátrun svína fari fram á Selfossi,
naugripa og hrossa á Hellu og sauð-
fjár í Þykkvabæ. Fyrirtækið er mjög
öflugt í slátruninni, er til dæmis með
um fjórðung af nautakjötsmarkaðn-
um.
Þrátt fyrir sölu verslananna verð-
ur veltan um 900 milljónir kr. á
ári. Samhliða kaupum á verslunum
HÞ munu verslanir KA auka mjög
viðskipti sín við Höfn-Þríhyrning.
Samstarfssamningur þess efnis var
gerður samhliða kaupunum og gildir
í þijú ár. I þeim felst að viðskipti
kaupfélagsins við Höfn-Þríhyrning
munu aukast úr 35 í 90 milljónir á
ári.
Gestur Hjaltason segir Ijóst að
stjórnendur HÞ þurfi að taka til í
rekstrinum hjá sér í kjölfar þessara
breytinga. Nauðsynlegt sé að
minnka kostnað við yfirstjórn og
stoðdeildir því þær rekstrardeildir
sem eftir eru eigi ekki að gjalda
þess að verslunarreksturinn hefur
verið seldur. Starfsfólk verslananna
fær vinnu hjá KÁ og auk þess þarf
að fækka um 5-6 starfsmenn strax
á skrifstofum og í stoðdeildum, að
sögn framkvæmdastjórans. Eftir
breytingar verða 60-70 starfsmenn
hjá fyrirtækinu en fram til þessa
hafa verið á annað hundrað ársstörf
hjá_ því.
Á síðasta ári var 25 milljóna kr.
tap af rekstri Hafnar-Þríhyrnings
og útlit var fyrir að reksturinn yrði
í járnum í ár. Gestur segir að við
sölu verslananna, meðal annars hús-
næðis Kjar-vals á Selfossi, yrði til
söluhagnaður sem gerðu reikninga
ársins jákvæða.
Hugsjónirnar erfiðar
Skipting verslunar og afurðasölu
á Suðurlandi hefur átt sér djúpar
rætur og verið mörgum hugsjóna-
og tilfinningamál. Þannig litu marg-
ir á forvera Hafnar-Þríhyrnings,
Kaupfélagið Þór á Hellu, sem var
utan SÍS, Höfn á Selfossi og einka-
sláturhúsið í Þykkvabæ sem mót-
vægi gegn kaupfélagsveldinu á Suð-
urlandi. Nú hafa þessi fyrirtæki
ákveðið að grafa stríðsöxina en
reykja friðarpípu og starfa saman.
Gestur Hjaltason viðurkennir að
hugsjónirnar séu mörgum erfiðar.
Hins vegar sé umhverfið gjörbreytt.
Nefnir hann sem dæmi að bæði
verslunarfyrirtækin séu að keppa á
Reykjavíkurverði og hagur neytenda
sé tryggður með samkeppni við höf-
uðborgarsvæðið þó Höfn-Þríhyring-
ur hætti verslunarrekstri.
Hann segir að viðskiptaumhverfið
hafi sem betur fer verið að breyt-
ast. Neytendur láti verð, umhverfi
og þjónustu ráða því hvar þeir kaupi
í matinn en stjórnmálaskoðanir og
aðrar hugsjónir séu víkjandi við þá
ákvörðun. Hagsmunir bænda séu
betur tryggðir en áður. Með sölu
verslana yrði afsetning gripa og
greiðslur öruggari.
Morgunblaðið/Ásdís
Skotpallar
í ferðasjóð
NEMENDUR 9. bekkjar Æfinga-
skóla Kennaraháskóla íslands
eru að safna í ferðasjóð. Til að
vænka hag sjóðsins gripu þeir til
þess ráðs að útbúa járnhólka,
sem ætlaðir eru til að skjóta flug-
eldum úr og seldu þá í Kringl-
unni. Oft lætur fólk sér nægja
að skjóta flugeldum úr flöskum,
eða jafnvel skorða þá í skafli, en
þar sem gæta verður fyllstu var-
úðar í umgengni við flugelda er
ástæða til að hvetja fólk til að
gæta að undirstöðunum. Nem-
endurnir í Æfingaskólanum vita
því hvað þeir syngja og 500
króna hólkarnir þeirra runnu út
eins og heitar lummur.
----» ------
Bensín-
sprengjur
að sendi-
herrabústað
TVEIMUR bensínsprengjum var
varpað að dyrunum á bústað sendi-
herra Bandaríkjanna á sunnudag.
Bensínsprengjunum, svokölluð-
um Molotov-kokkteilum, var varpað
að dyrunum skömmu eftir miðnætt-
ið og er þetta í annað skipti á þrem-
ur mánuðum sem slík árás er gerð
á sendiherrabústaðinn. Engin
meiðsli urðu á mönnum nú, frekar
en í fyrra skiptið, en logandi bensín-
ið sveið hurð og veggi.
Lögreglunni og utanríkisráðu-
neytinu var tilkynnt um bensín-
sprengjurnar nú, líkt og í fyrra
skiptið. Málið verður rannsakað, en
sökudólgar höfðu ekki fundist í
gær.
----» ♦•■»--
Reykhólar
á Barðaströnd
Þriggja ára
drengur alvar-
lega brenndur
ÞRIGGJA ára gamall drengur
brenndist alvarlega þegar hann féll
í sjóðandi heitan hver á Reykhólum
á Barðaströnd á laugardag.
Drengurinn var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Landspítal-
ann. Þorsteinn Svörfuður Stefáns-
son, yfirlæknir á gjörgæsludeild,
segir líðan hans eftir atvikum góða.
Hann er enn á gjörgæslu en þó
ekki í bráðri lífshættu.
Á Reykhólum eru víða opnir
hverir og uppstreymi. Guðmundur
H. Ingólfsson sveitarstjóri segir að
sveitarstjórnin muni gera allt sem
í hennar valdi standi til þess að
koma í veg fyrir að svona slys komi
fyrir aftur. „Annars hefur geysilega
mikið verið lagað á þessum hættu-
legu stöðum og hverum lokað eftir
að Orkubú Vestfjarða tók að sér
Hitaveitu Reykhólahrepps fyrr á
þessu ári.“