Morgunblaðið - 31.12.1996, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hópur Jap-
ana á Ak-
ureyri um
áramót
FYRSTI hópur útlendinga sem
dvelur á Akureyri yfir áramót
kom í gær, en það eru Japanir
sem ætla að upplifa áramóta-
stemmningu norður í landi. Þeir
eru á vegum Ferðaskrifstofu
Úlfars Jakobsen, en Upplýs-
ingaskrifstofan á Akureyri hef-
ur á þessu ári unnið að kynn-
ingu á áramótaferðum til Akur-
eyrar.
Japanirnir dvelja á Hótel KEA
og verður boðið upp á veglegan
málsverð þar í kvöld, en að hon-
um loknum verður farið að ára-
mótabrennu og þá munu útlend-
ingamir fylgjast með flugelda-
skotum um miðnætti.
„Akureyri er nú komin á
kortið sem staður þar sem hægt
er að dvelja um áramót. Þetta
er fyrsti hópurinn sem hér dvel-
ur og þó hann sé ekki stór bind-
um við vonir við að framhaldið.
Við munum halda áfram að
kynna þennan valkost á kom-
andi ári,“ sagði Árni Steinar
Jóhannsson, formaður stjórnar
Upplýsingaskrifstofunnar á
Akureyri.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
KRAKKARNIR í Holtunum hafa verið duglegir síðustu daga og safnað efni í stóran
bálköst við Bárufellsklappir en í honum verður kveikt kl. 20.15 í kvöld.
Þijár áramótabrennur
VEITT hafa verið leyfi fyrir þremur áramóta-
brennum á Akureyri samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Akureyri.
Aratugalöng hefð er fyrir áramótabrennu við
Bárufellsklappir og einnig hefur á síðustu árum
verið kveikt í bálkesti við Réttarhvamm, gegnt
Möl og sandi. Þar verður efnt til flugeldasýningar
á vegum Hjálparsveitar skáta. Kveikt verður í
þessum áramótabrennum kl. 20.15 að þessu sinni
en ekki kl. 20 eins og venja er til. Þá var nýlega
sótt um Ieyti fyrir brennu í Síðuhverfi, suður og
ofan við Vestursíðu.
Stofnsamningur Hafnasamlags Norðurlands undirritaður
5 sveitarfélög í eina sæng
FULLTRÚAR fimm sveitarfélaga
í Eyjafirði, Akureyrarbæjar,
Grýtubakka-, Svalbarðsstrandar-,
Glæsibæjar-, og Arnarneshrepps
ásamt Halldóri Blöndal samgöngu-
ráðherra undirrituðu stofnsamning
Hafnasamlags Norðurlands um
helgina.
Halldór Blöndal sagði við undir-
ritunina að ekki kæmi á óvart að
Eyfirðingar væru fyrstir til að
stofna slík hafnasamlög, en fyrir
fáum árum var Hafnasamlag Eyja-
Ú’arðar stofnað af sveitarfélögum
við utanverðan Eyjafjörð. Menn
skildu þýðingu þess að vinna sam-
an, stilla saman kraftana, enda
væri mikill kraftur í byggðunum.
Nefndi samgönguráðherra að
eitt brýnasta verkefni í vegamálum
á svæðinu væri að ljúka veginum
til Grenivíkur, annars væri ekki
hægt að tala um Eyjafjarðarsvæð-
ið sem eitt atvinnusvæði. „Það
hefur átt sér stað markviss upp-
bygging á þessu svæði og atvinnu-
lífið einkennst af krafti. Þess vegna
kom á óvart að fækkun hafði orðið
í héraðinu, en með stærri einingum
sigrast menn vonandi á slíku. Þetta
skref er til farsældar stigið,“ sagði
Halldór.
Hugað verði að sameiningu
sveitarfélaga
Jakob Björnsson bæjarstjóri á
Akureyri sagði mikla samstöðu
meðal sveitarfélaga í Eyjafirði og
hefðu þau þegar með sér samvinnu
á mörgum sviðum. „Ég tel nauð-
synlegt að við förum að huga að
því í fullri alvöru að gera breyting-
ar á mörkum sveitarfélaga. Við
þurfum að huga að sameiningu
mjög fljótt, við komumst ekki hjá
því lengur að skoða þau mál gaum-
gæfilega,“ sagði Jakob.
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri
í Grýtubakkahreppi sagði að hart-
nær tvö ár væru nú liðin frá því
sveitarstjórn hreppsins hefði óskað
eftir viðræðum við hafnarstjórn
Akureyrar vegna sameiningar
hafnanna. Ánægjuleg niðurstaða
væri fengin þegar fimm sveitarfé-
lög gengu í eina sæng á þessu
sviði. Fyrst og fremst taldi Guðný
Morgunblaðið/Margrét Þóra
ÞORLÁKUR Aðalsteinsson, Arnarneshreppi, Oddur Gunnarsson,
Glæsibæjarhreppi, Jakob Björnsson, Akureyri, Halldór Blöndal
samgönguráðherra, Árni K. Bjarnason, Svalbarðsstrandar-
hreppi og Guðný Sverrisdóttir, Grýtubakkahreppi, undirritað
stofnsamning Hafnasamlags Norðurlands.
ÁRNI K. Bjarnason sveitarsljóri Svalbarðsstrandarhrepps, Guð-
mundur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri á Akureyri og Einar Sveinn
Olafsson, formaður hafnarstjórnar Akureyrar, glugga í stofn-
samninginn.
að nást myndi hagræðing með
stofnun hafnasamlagsins. Nú
skipti heldur ekki máli við hvaða
höfn afla væri landað innan sam-
lagsins, vissulega mætti búast við
að mestum afla yrði landað á Akur-
eyri en hún væri sannfærð um að
verkefni fyndust fyrir aðrar hafnir
innan samlagsins. „Ef við Eyfirð-
ingar ætlum að halda í við höfuð-
borgarsvæðið verða Akureyringar
að gera sér grein fyrir því að þeir
þurfa á sínu upplandi að halda og
þeir sem búa í nágrenninu fengju
litlu áorkað nema af því Akureyri
er innan seilingar. Ég tel að þetta
skref, að stofna Hafnasamlag
Norðurlands, verði okkur til fram-
dráttar,“ sagði Guðný.
Engin höfn er í Glæsibæjar-
hreppi, en Oddur Gunnarsson odd-
viti kvaðst líta svo á að „við séum
eins konar svaramenn" eins og
hann orðaði það. Fyrst og fremst
hefðu menn viljað vera með til að
slíta ekki í sundur svæðið.
ÞRÁINN Skúlason læknir
leiðbeindi skipverjum.
Skipverjar á
námskeiði
SKIPVERJAR á togurum á
Akureyri sóttu í gær námskeið,
m.a. um lyfjamál og skyndi-
hjálp sem haldið var í matsal
Útgerðarfélags Akureyringa
en Akureyrarapótek stóð fyrir
því að námskeiðið var haldið.
Böðvar Jónsson apótekari
sagði að margir stýrimenn
hefðu kvartað við sig um að
þeir hefðu ekki nægt yfirlit
yfir þau lyf sem væru í lyfja-
kistum skipanna og því kæmu
þau ekki að fullum notum.
Böðvar hafði m.a. samband við
Sigurð Kristinsson lækni á
þyrlu Landhelgisgæslunnunn-
ar og var hann að sögn Böð-
vars mjög hjálplegur við að
koma þessu námskeiði á norð-
an heiða, en þetta er í fyrsta
sinn sem slíkt námskeið er
haldið á þeim slóðum.
Farið var yfir lyfjakistur
skipanna og lyf og verkan
þeirra kynnt, þá var farið yfir
mat á ástandi sjúklinga, sam-
skipti við þyrluvakt og síma-
þjónustu í landi. Þá fengu skip-
verjar verklega kennslu i að
sauma sár og setja upp æða-
legg. Skyndihjálp var annar
þáttur námskeiðsins.
Desembermót Sund-
félagsins Oðins
Þrjú Is-
landsmet
ÞRJÚ íslandsmet voru sett á
desembermóti Sundfélagsins
Óðins sem haldið var um helg-
ina í Sundlaug Akureyrar.
Kristjana Pálsdóttir, sem
fædd er árið 1984 setti íslands-
met í 100 metra fjórsundi, synti
á 1.22,96. Hún er einn af efni-
legri sundmönnum félagsins og
keppir nú á síðasta ári í meyjar-
flokki. Þá voru sett tvö íslands-
met í garpaflokki, sem er flokk-
ur 25 ára og eldri. Karen
Malmquist setti met í 200
metra skriðsundi, synti á
2.52,75 og Gunnar V. Eiríksson
í 200 metra skriðsundi þegar
hann synti á 2.46,44.
Jón Már Héðinsson formaður
félagsins sagði að almennt
hefði árangur á mótinu verið
góður og sundmenn væru að
sýna miklar framfarir. Um 40
manns tóku þátt í mótinu, en
mikil veikindi settu strik í þátt-
tökuna. Alls æfa um 70 manns
hjá félaginu um þessar mundir.
Þjálfarinn er hollenskur og
heitir Ruud Veldmann.
Yngstu sundmennirnir, þeir
sem hófu æfingar í haust
kepptu á sérmóti í innilauginni
og fylgdust fjölmargir foreldrar
með og hvöttu börnin óspart.
Arkitektar
bjóða til
veislu
HALLDÓRA Arnardóttir flytur
opinn fyrirlestur við Háskólann
á Akureyri næstkomandi laug-
ardag, 4. janúar. Hann hefst
kl. 14 í stofu 16 í húsnæði
háskólans við Þingvallastræti.
Fyrirlesturinn sem Halldóra
nefnir „Arkitektar bjóða til
veislu“ fjallar um stöðu arki-
tekta og hvaða tækniframfarir
hafa gert það að verkum að
skynjun manna á veröldinni
breytist um leið og heimurinn
smækkar. í lok erindisins leiðir
Halldóra hugann að því hvernig
lega íslands fær aðra merkingu
og möguleikar landsins verða
meiri með tilliti til tæknifram-
fara nútímans.
Halldóra er Akureyringur að
uppruna, en hefur dvalið við
nám og störf erlendis um tíu
ára skeið. Hún nam listasögu
við University of Essex og lauk
þaðan BA-prófi. Halldór lauk
meistaraprófi í sögu nútíma
byggingalistar frá Bartlett
School of Architecture and
Planning, University College í
Lundúnum.
Endurhæf-
ingadeild lok-
að tímabundið
ENDURHÆFINGADEILD
FSA á Kristnesi í Eyjafirði var
skömmu fyrir jól og mun starf-
semin liggja niðri fram til 2.
janúar nk.
Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri FSA, segir það
gerast af sjálfu sér að starfsemi
spítalans dragist saman um jól
og áramót enda frídagar marg-
ir.
Allar bráðadeildir spítalans
hafa verið opnar um hátíðarnar
og því hægt að sinna þeim
málum sem upp koma. „Hins
vegar er dregið úr skipulögðum
innlögnum eins og kostur er
og fólk sem kemst hjá því að
vera inni á spítala um hátíðarn-
ar vill frekar vera heima hjá
sér þessa daga,“ segir Halldór.