Morgunblaðið - 31.12.1996, Side 68

Morgunblaðið - 31.12.1996, Side 68
RpC IÁOMMÍKSOFNÍMI ENCIN ILMEFNi |Ht rgtiuM&l* tfr MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 KEYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI I ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Nýjar reglur um heil- brigðiseftirlit með fiski á landamærum Rússar láta skrá skíp sín RÚSSNESK útgerðarfyrirtæki hafa 4-5 mánuði til að skrá skip sín, sem selt hafa íslenzkum fiskvinnslufyrir- tækjum fisk, á lista EBS yfir fisk- vinnslustöðvar og skip, sem mega „ selja fisk til ríkja EES. Á nýlegum lista frá rússneskum stjórnvöldum n yfir fiskvinnslustöðvar og skip, sem . „*_»uppfylla heilbrigðiskröfur ESB, eru aðeins tvö skip sem gerð eru út frá Múrmansk, en nánast allur Rússa- fiskur, sem íslendingar kaupa, kem- ur úr skipum frá Múrmansksvæð- inu. Nýjar reglur ESB um heilbrigðis- eftirlit með sjávarafurðum á landa- mærum verða hluti af EES-samn- ingnum í apríl eða maí og taka þar með gildi á Islandi og í Noregi. Eft- ir það mega fyrirtæki í löndunum tveimur aðeins flytja inn fisk frá erlendum fyrirtækjum, sem njóta 'viðurkenningar ESB. Verður ekki vandamál Jón Sigurðarson, framkvæmda- stjóri Fiskafurða hf., sem kaupa mikið af Rússafiski, segist telja að í sjávarútvegsráði Rússlands hafi verið einhver misskilningur á ferð- inni og annars konar skip en þau, sem gerð eru út frá Múrmansk, hafi því verið skráð á listann. Jafn- framt hafi Rússarnir sennilega ekki áttað sig á að sama ætti að ganga yfir ísland og Noreg í þessum efnum og yfir aðildarríki Evrópusambands- ins. Hann sagðist ekki eiga von á að þetta yrði vandamál. Það þyrfti — Veinungis að skrá skipin. Morgunblaðið/Golli Pjakkur á sundi Hálfsextugur Hafnfirðingur fannst látinn við Krýsuvíkurveg Með skotsár og fleiri áverka FIMMTÍU og fimm ára gamall Hafnfirðingur, Hlöðver S. Aðal- steinsson, fannst látinn rétt utan Krýsuvíkurvegar, skammt austan Reykjanesbrautar, um klukkan 10.30 á sunnudagsmorgun. Maður- inn bar skotsár eftir haglabyssu á handlegg og aðra áverka, sem þykja minniháttar. Ekki er búið að kveða upp úr um dánarorsök. Vegfarandi um Krýsuvíkurveg varð var við lík Hlöðvers sem hafði verið komið fyrir skammt frá vegar- kantinum. Hörður Jóhannesson yfirlög- regluþjónn RLR segir að rætt hafi verið við nokkra einstaklinga í tengslum við rannsóknina, en ekki sé hægt að gefa frekari upplýsingar um hvernig henni miðar. Ýmsar vísbendingar hafi komið fram um ferðir bifreiðar Hlöðvers eftir að hann fór að heiman frá sér þar til hún fannst. Hlöðver var einhleypur og búsett- ur við Álfaskeið í Hafnarfirði. Hann mun hafa farið að heiman frá sér um klukkan fjögur aðfaranótt sunnudagsins og ekið burt á bifreið sinni, Lada Sport jeppabifreið, hvítri að lit, árgerð 1994, með skráningar- númerið UH 748. Ekki er vitað með vissu um ferðir hans frá þeim tíma og jjar til hann fannst látinn. Árni Aðalsteinsson, bróðir hins látna, er búsettur í sama húsi og v; Fnr að heiman f BifreiO hans I fannst viO 1 Herjólfsgötu\ \umkl. 4 aöfarar-1 nótt sunnudags | //mim _ HAFNAR- FJÖRÐUR Fannst látinn viO Krýsuvíkurveg um kl. 10.30 á sunnudagsmorgun I segir að Hlöðver hafi farið að heim- an á umræddum tíma, og hafi hann gert svo nokkrar seinustu helgar sem hafi verið óvenjulegt. Skömmu seinna hafí símhringingar í íbúð Hlöðvers raskað nætursvefni hans. Vitna leitað Bifreiðin fannst um miðjan dag á sunnudag á Heijólfsgötu í Hafnarfirði, nokkru vestan við sundlaugina þar, um ellefu tímum eftir að Hlöðver fór frá heimili sínu. Eru þeir sem telja sig geta veitt upplýsingar um ferðir bifreiðarinn- ar, beðnir um að gefa sig fram við lögreglu. Bandarískt tölvu- fyrírtæki sýnir Óbreytt framkvæmd/11 MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út föstudaginn 3. janúar. HUNDURINN Pjakkur skellti sér í sjóinn við Eyrarbakka fyrir skömmu, sér til hressing- ar og samfylgdarmönnum til skemmtunar. Pjakkur er einn þeirra sem áttað hafa sig á að hófleg sjó- böð eru fallin til að styrkja bæði sál og líkama. A Eyrarbakka eins og víðar á landinu hefur verið einstök veðurblíða um jólin. áhuga á Skýrr BANDARÍSKA tölvufyrirtækið Computer Sciences Corporation (CSC) hefur sýnt áhuga á að kaupa Dæmi um aðfólkgangií nýtt hjónaband þótt það eldra standi enn ÞAÐ virðist nokkuð útbreiddur misskilningur hjá fólki að lögskiln- aður gangi sjálfkrafa í gegn eftir að ár er liðið frá skilnaði að borði og sæng. Þess vegna hefur það komið oftar en einu sinni fyrir að fólk hefur uppgötvað að það er enn í löglegu hjónabandi þegar það ætlar að giftast í annað sinn. Þá eru nokkur dæmi þess að fólk hefur gengið í hjónaband er- lendis, án þess að hafa fengið lög- skilnað hér á landi og því gerst sekt um fjölkvæni eða fjölveri. Hjá embætti ríkissaksóknara er nú til meðferðar mál manns, sem kvænt- ist öðru sinni í Bandaríkjunum, en uppgötvaði síðar að hann var enn kvæntur hér á landi. Fyrr á árinu var til umfjöllunar mál konu, sem giftist öðru sinni í útlöndum, en var enn gift hér. Engin dæmi munu þó þess að fólk sé sótt til saka vegna þessa enda ekki um vísvit- andi brot að ræða. Áslaug Þórarinsdóttir, lögfræð- ingur í dómsmálaráðuneytinu, staðfesti að mál af þessu tagi * kæmu upp öðru hvoru. „Fólk virð- Eiga tvo maka vegna mistaka ist oft ekki átta sig á að sækja þarf sérstaklega um lögskilnað enda er þessi regla, að fyrst sé sótt um skilnað að borði og sæng, ætluð til þess að fólk fái umþóttun- artíma. Þess vegna væri óeðlilegt að lögskilnaður yrði sjálfkrafa." Áslaug sagði að dómsmálaráðu- neytið fengi ábendingar frá Hag- stofunni, ef í ljós kæmi að fólk hefur gerst sekt um fjölkvæni eða fjölveri. „Við vísum málunum lög- um samkvæmt til embættis ríkis- saksóknara." Brúðkaupum frestað Áslaug sagði að ekki kæmi fyrir að fólk gengi í hjónaband öðru sinni hér á landi, án þess að gengið hefði verið frá skilnaði frá íslenskum maka enda þyrfti að leggja fram vottorð um hjúskaparstöðu frá Hagstofunni áður en hjónavígsla færi fram. „Það hefur hins vegar gerst nokkuð oft að fólk, sem ætlar ef til vill að gifta sig um komandi helgi, hefur uppgötvað á Hagstof- unni að það er enn gift. Við reynum eftir fremsta megni að leysa úr þeim vanda en stundum er ekki hægt að ná í fyrri maka í tæka tíð. Þá er ekki um annað að ræða en að neita um hjúskaparleyfi og fólk hefur þurft að fresta brúð- kaupi sínu vegna þessa. Það eru dæmi þess að fólk hafi verið í hjóna- bandi í áratugi eftir skilnað að borði og sæng.“ Áslaug kvaðst ekki þekkja hvaða kröfur væru gerðar til þess, til dæmis í Bandaríkjunum, að fólk legði fram vottorð um hjúskapar- stöðu og lögskilnaðargögn ef það hefði verið í hjónabandi áður. Fangelsi fyrir vísvitandi brot Samkvæmt þeim kafla almennra hegningarlaga, sem fjallar um sif- skaparbrot, er allt að 3 ára fang- elsi við því að kvæntur karl eða gift kona gangi í hjónaband að nýju. Ef hinum aðilanum, þ.e. nýja makanum, var ókunnugt um hjú- skaparstöðuna er refsingin fangelsi allt að 6 árum. Ákvæðið gerir greinilega ráð fyrir að fólk geri sér grein fyrir hjúskaparstöðu sinni og bijóti þvl lögin vísvitandi. Þá er tekið fram, að sé brot framið af stórfelldu gáleysi varði það varð- haldi eða fangelsi allt að 1 ári. Eins og áður sagði má rekja þau tilfelli, sem koma upp hér á landi, til vanþekkingar fólks á reglum um lögskilnað, svo ekki hefur komið til ákæru vegna þessa. 51% hlutafjár í Skýrr hf. sem ríki og Reykjavíkurborg áforma að selja á næsta ári. Fyrirtækið keypti í sum- ar 75% hlutafjárins í systurfyrirtæki Skýrr í Danmörku, Datacentralen, þegar það var einkavætt. Fulltrúi fyrirtækisins, Carl Esp- osti, var staddur hér á landi fyrir skömmu í því skyni að kynna sér stöðu Skýrr, en hann hafði umsjón með kaupum CSC á hlutafénu í Datacentralen. CSC er eitt af stærstu fyrirtækjum heims á sviði upplýsingatækni og veitir árlega 4,2 milljörðum Bandaríkjadala. Starfsmenn eru 34 þúsund talsins í yfir 575 útibúum víðsvegar um heiminn. Rætt í heimsókn forsetans „Eg hef fylgst mjög vel með þró- uninni á Norðurlöndunum, sérstak- lega hjá Datacentralen í Kaup- mannahöfn," sagði Jón Þór Þórhalls- son, forstjóri Skýrr. „Fyrir rúmum mánuði tók ég þátt í fundi sem var haldinn í tengslum við heimsókn forseta íslands til Danmerkur. Þar var fjallað um möguleika á fjárfest- ingum erlendra aðila á Islandi og dönsk fyrirtæki hvött til þess að horfa til íslands." Jón Þór segist telja að Skýrr geti lagt ýmislegt af mörkum til banda- ríska fyrirtækisins, en Skýrr gæti jafnframt notið góðs af samstarfinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.