Morgunblaðið - 03.01.1997, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÉG VERÐ að segja það, þú ert búin að bjarga öllu bankakerfinu frá því að verða féflett
af þessura voðalegu sægreifaræningjum, Siv mín . . .
VR og viðsemjendur gera samning um lífeyrismál
Kostur á frjálsum
viðbótarspamaði
FORYSTUMENN Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur annars
vegar og VSÍ, Félags íslenskra stór-
kaupmanna, Kaupmannasamtaka
íslands, Verslunarráðs og Samtaka
iðnaðarins hins vegar, hafa undir-
ritað nýjan samning um lífeyrismál
vegna starfsemi Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna (LV).
í samningnum er m.a. kveðið á
um að sjóðurinn starfí á samtrygg-
ingargrundvelli og að eignir sjóðs-
ins ásamt framtíðariðgjöldum og
ávöxtun þeirra séu jafnan a.m.k.
jafnar heildarskuldbindingum hans
skv. reglugerð.
Ákvæði er í samningnum þar sem
segir að samningsaðilar hafi orðið
sammála um að sjóðfélögum gefist
kostur á að byggja upp frjálsan
viðbótarlífeyrissparnað hjá sjóðnum
og muni beita sér fyrir því að þeir
fái skattfrestun á viðbótariðgjöld í
því skyni. Sjóðfélagar hafi frjálst
val um það, hvar þeir tryggja sér
réttindi umfram lágmarksákvæði
kjarasamninga og ákveða hvort það
er skv. séreignarfyrirkomulagi eða
einhveiju formi trygginga.
Sérsamkomulag í framhaldi
af samningi ASÍ og VSÍ
Að sögn Þórarins V. Þórarinsson-
ar, framkvæmdastjóra VSÍ, hafa
nokkrir lífeyrissjóðir stefnt að því
að geta boðið upp á séreignadeild
en fjármálaráðuneytið ekki enn
staðfest heimild sjóðanna til þess.
Nú sé verið að ganga frá breytingu
á reglugerð hjá LV sem gerir ráð
fyrir að sjóðfélagar geti greitt auka-
iðgjald í séreignardeild, sem verði
unnt að breyta aftur í lífrentu ef
þeir kjósa svo. „Lífeyrissjóður verzl-
unarmanna er að taka skref fram
úr öðrum sjóðum með þessari til-
lögu, sem öll aðildarfélög sjóðsins
hafa nú samþykkt, um að taka upp
séreignardeild og skapa möguleika
á að breyta séreign yfír í trygg-
ingu,“ segir Þórarinn.
Samningurinn er gerður í fram-
haldi af rammasamningi sem ASÍ
og VSÍ gerðu á seinasta ári um
starfsemi lífeyrissjóða á almenna
markaðinum. Verslunarmenn voru
ekki alls kostar sáttir við þann
samning og varð niðurstaðan sú að
gerður var sérstakur samningur
vegna Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, að sögn Magnúsar L.
Sveinssonar, formanns VR.
Magnús sagði að Lífeyrissjóður
verzlunarmanna starfaði í talsvert
öðruvísi umhverfi en lífeyrissjóðirn-
ir sem stofnaðir voru 1970 og hefði
samningur ASÍ og VSÍ í fyrra tek-
ið mið af því. „Þess vegna vildum
við gera samning sem tæki meira
mið af okkar umhverfi," segir
Magnús.
Með samkomulaginu eru settar
starfsreglur og rammi um starfsemi
lífeyrissjóðsins. Er m.a. fjallað um
lágmarksréttindi og skuldbindingar
sjóðsins og settur er rammi utan
um hlutverk stjórnar og forstjóra
sjóðsins.
Frumvarp um brottkast á afia
Undirmál verði utan kvóta
MEÐAL síðustu þingmálanna, sem
lögð voru fram fyrir jólahlé Alþing-
is var frumvarp til laga um breyt-
ingu á fiskveiðistjórnunarlögunum,
sem miðar að því að minnka brott-
kast á afla fískiskipa. Fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins er Ágúst
Einarsson, en flutningsmenn með
honum eru fimm aðrir þingmenn
úr þingflokki jafnaðarmanna.
Meginatriði frumvarpsins eru
þessi:
• Undirmál verði allt utan kvóta,
en það verði að vera innan við 10%
af afla þeirrar tegundar í hverri
veiðiferð.
• Smábátum verði heimilt að koma
með undirmál að landi utan kvóta
eins og öðrum skipum.
• Undirmáli verði haldið aðgreindu
um borð í hverju veiðiskipi og selt á
fiskmarkaði, sem m.a. tryggi eftirlit.
• Söluandvirði fyrir undirmál komi
aðeins að hluta (1/4) til skipta, en
renni að öðru leyti til verðugra
málefna, þ.e. slysavarna sjómanna
(1/4), hafrannsókna (1/4) ogorlofs-
mála sjómanna (1/4).
í greinargerð með frumvarpinu
er ennfremur bent á tvö önnur at-
riði, sem eiga að geta unnið gegn
brottkasti og stuðlað að verndun
smáfisks. Það fyrsta er notkun smá-
fiskaskilju. Undanfarið hefur verið
unnið að því að innleiða notkun
hennar með almennum hætti. Smá-
fískaskilja skilur smáfisk frá öðrum
físki við veiðar þannig að honum
er sleppt aftur lifandi í sjóinn. Hitt
atriðið er að nýjasta tækni verði
virkjuð til að bæta eftirlit með
brottkasti.
Brautryðjandi tölvunarfræði
Skyldleiki hirð-
skálda og hug-
búnaðarmanna
OddurBenediktsson
DR. ODDUR Bene-
diktsson, stærð-
fræðingur og pró-
fessor í tölvunarfræðum við
Háskóla íslands, hlaut í síð-
ustu viku heiðursverðlaun
verðlaunasjóðs Ásu Guð-
mundsdóttur Wright fyrir
brautryðjendastarf í tölvun-
arfræðum hér á landi. Oddur
segir að Islendinga bíði mik-
il tækifæri á sviði hugbúnað-
argerðar en mannaflaskort-
ur hái greininni nokkuð.
Hann segir að enn meiri
tækni á sviði tölvubúnaðar
og fjarskipta bíði lands-
manna á nýrri öld. Afi Odds
var Einar Benediktsson
skáld og segist Oddur sjá
skyldleika með hugbúnaðar-
gerð íslendinga og skáld-
skap þeirra fyrr á öldum.
- Hvenær tekur þú að þér um-
sjón með kennslu í tölvunarfræðum
við Háskólann?
„Við hófum kennslu í tölvunar-
fræðum í verkfræðinámi við HÍ
strax árið 1965 þegar Háskólinn
fékk sína fyrstu tölvu. Þetta var
IBM 1620, upphaflega með 20 kíló-
bæta minni. Fyrir um tíu árum
breytist tölvunarfræðin úr því að
vera hliðargrein í verkfræði og
stærðfræði yfir í það að vera sjálf-
stætt háskólafag. Þetta er þróun
sem á sér stað um allan heim.
Eins og sakir standa bjóðum við
upp á þriggja ára BS nám en vinn-
um nú að því að taka upp masters-
nám og auka fjölbreytnina á þann
hátt að hugvísindamenn geti einnig
tekið tölvunarfræði sem aukagrein.
Vonandi verður hægt að koma á
mastersnámi í tölvunarfræðum á
næsta ári. Á ári hveiju fara u.þ.b.
fimm manns í mastersnám en það
myndu fleiri gera það ef boðið
væri upp á námið hér á landi. Við
áætlum að það sé um 400 manns
sem hefðu áhuga á þessu námi.“
- Hvernig standa íslendingar
sig á þessu sviði í samanburði við
aðrar þjóðir?
„Ég tel að hugbúnaðargerð sé
sú hátæknigrein sem henti okkur
einna best. Hugbúnaðargerð getur
verið mjög verðmætaskapandi. Á
þessu ári er áætlað að útflutningur
á tölvuvæddum tækjum og hug-
búnaði' nemi á þriðja milljarð
króna. í fyrra var nettóútflutning-
ur ÍSALs að verðmæti um fjórir
milljarðar króna. Vegna smæðar
þjóðarinnar er mannafli hér afar
takmarkaður og skiptir meginmáli
að störfin séu arðbær til langs tíma
og gefandi fyrir starfsfólk og sam-
félagið. Umtalsverður atgervis-
flótti er nú frá íslandi, þar á með-
al hafa nokkrir tölvunarfræðingar
sem ég þekki horfið til starfa er-
lendis. íslensk stjórnvöld leggja nú
sem fyrr ofurkapp á að nýta fail-
vötn til orkufrekrar stóriðju. Með
þeim 20 milljörðum sem nú á að
vetja til stórframkvæmda mætti
til lengdar bæta kjör kennara svo
um munaði, lagfæra skólakerfið
og kennaramenntun og
gera starfsaðstöðu við
Háskólann viðunandi.
Stjórnvöld ættu að
vinna markvisst að því
að skapa atvinnuað-
stæður sem eru sambærilegar við
aðstæður í nærliggjandi löndum
svo unga fólkið geti og vilji starfa
hér.“
- Á hvað vildir þú helst leggja
áherslu í atvinnumálum?
„Það er mikið atriði að það sem
við gerum sé verðmætaskapandi.
Þjónusta er ekki verðmætaskap-
andi, þ.e. samsetning á tölvubún-
aði eða verksmiðjustörf. Við getum
► Oddur Benediktsson er
fæddur í Reykjavík 5. júní 1937.
Hann er giftur Hólmfríði R.
Árnadóttur og á með henni tvö
börn, auk þess á Hólmfríður tvo
syni. Fyrri kona Odds var Auður
Hildur Hákonardóttir en þau
skildu. Þau eiga tvö börn. Oddur
er stærðfræðingur frá Renssela-
er Polytechnic Institute í New
York fylki í Bandaríkjunum.
Hann tók þaðan doktorspróf
1965. Hann vann hjá IBM á ís-
landi frá 1969-1972, SKÝRR
1972-1973 og varð dósent við
HÍ 1973 og prófessor frá 1982.
tekið Björku sem dæmi en hún er
ríkasti og mest verðmætaskapandi
íslendingur sem uppi er í dag. í
Bretlandi skapar hún eflaust fleiri
tugi eða hundruði starfa. Aðalmál-
ið fyrir okkur Islendinga er að
halda í okkar fólk, einkum á sviði
kvikmyndagerðar, popptónlistar
og hugbúnaðargerðar. Þegar gott
forrit hefur verið skrifað eða lag
samið þarf aðeins að fjölfalda það
og selja.“
- Hver er framtíðarsýnin í
tölvuheiminum?
„Ég held að áhrif upplýsinga-
tækninnar sé lítið farið að gæta
enn. Ég held að við eigum eftir
að sjá mun meiri breytingar vegna
upplýsingatækninnar en ennþá eru
komnar fram. Tenging sjónvarps,
alnets og heimilistölvunnar á eftir
að valda miklum breytingum og
enn ein bylting í tölvusímatækni
er framundan. Tölvutækni er nán-
ast komin inn í öll störf og sú þró-
un heldur áfram. Tölvutæknin hef-
ur tekið störf frá fólki. Ýmis konar
handavinna í bönkum og trygg-
ingafélögum, svo dæmi séu tekin,
hefur horfið í kjölfar tölvutækninn-
ar. Enn meiri vélmennisvæðing
verður í frystihúsum og enn meiri
handavinna á eftir hverfa í tölvu-
vædd tæki. Einnig munu skapast
ný störf við sjálfa tölvutæknina.
Ég held að það henti íslendingum
mjög vel. Við höfum ekki haft
tækniiðnað um aldir eins og sumar
þjóðir, eins og t.d. Þjóðveijar og
Svíar. Við höfum ekki
sama bakgrunn til
framleiðslunnar. En
hugbúnaðargerð er
nýtt svið þar sem hið
„maníska" eðli íslend-
inga að skrifa, grúska, fylgjast
með nýjungum og koma þeim á
framfæri, fær notið sín. íslensku
skáldin við hirðirnar í gamla daga
eru dæmi um það að landsmenn
hafa verið að gera sig gildandi á
alþjóðavettvangi með skáldskap.
Þetta eðli skilar sér og hugbúnað-
argerð hentar okkur sérstaklega
ef aðstæður hér eru hliðhollar
starfseminni."
Mastersnám í
tölvunarfræð-
um í undirbúið