Morgunblaðið - 03.01.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra lögð niður
Akureyrarbær tekur við
verkefnum skrifstofunnar
Tvær nýjar deildir stofnaðar innan félags- og fræðslusviðs bæjarins
Nefndir og t| nefndaformenn AKUREYRARBÆR: Félags- og fræðslusvið
Félagsmálaráð Sigfríður Þorsteinsdóttir Leikskólanefnd ; Valgerður Jónsdóttir ; 1 Skólanefnd | Ásta Sigurðardóttir íþrótta- & tómst.ráð Þórarinn E. Sveinsson
Stjórnam. Vinnum. Pétur Bjarnason 1 Menningarmálan. j Alfreð Gíslason
Sviðsstjóri og deildir 1 Skólan. tónlistarsk. j Jóhann Sigurjónsson
Félagsmálastjóri: Valgerður Magnúsdóttir
Atvinnudeild Atvinnuleysisskráning Atvinnuleit | Verndaðir vinnustaðir Ráðgjöf Átaksverkefni Búsetudeild Sambýli fatlaðre Frekari liðveisla ; Félagsleg liðveisla Skammtímavistun Heimilisþjónusta Heimahjúkrun Dvalarheimili Sambýli aldraðra Ráðgjafardeild Fjárhagsaðstoð Barnavernd Félagsleg ráðgjöf Stuðningsúrræði Greining og ráðgjöf fatlaðra Leiguíbúðir Leikskóladeild Leikskólar Einkareknir leikskólar ; Gæsluvellir Dagmæður Skóla- og menningardeild Grunnskólar Skólavistun Aðrir skólar Söfn Menningarmál íþrótta- og tómstundadeild íþróttamál íþróttamannvirki Félagsmiðstöðvar Tómstundamál Félagsstarf aldraðra
SVÆÐISSKRIFSTOFA um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra var formlega lögð niður um ára-
mót og verkefni hennar flutt yfir til félags- og fræðslusviðs Akureyrarbæjar.
SVÆÐISSKRIFSTOFA um málefni
fatlaðra á Norðurlandi eystra var
formlega lögð niður um áramót en
verkefni hennar hafa verið flutt yfír
á félags- og fræðslusvið Akureyrar-
bæjar. Stofnuð hefur verið ný deild
á því sviði, atvinnudeild, öldrunar-
deild sem áður var hefur tekið við
auknum verkefnum og hlotið nafnið
búsetudeild, en þessar deildir taka
við verkefnum svæðisskrifstofunnar
en að hluta færast einnig verkefni
yfir til ráðgjafardeildar.
Valgerður Magnúsdóttir, félags-
málastjóri, Bjami Kristjánsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri svæðis-
skrifstofunnar og Þórgnýr Dýrfjörð,
framkvæmdastjóri verkefna
reynslusveitarfélagsins Akureyrar,
skipuðu verkefnisnefnd sem vann
að undirbúningi málsins en hún hef-
ur nú lokið störfum. Bjarni hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu um málefni fatl-
aðra í Reykjavík.
Þjónusta veitt eftir þörfum
011 þjónusta sem áður var veitt
á Svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra er áfram fyrir hendi, íbúar
af Eyjafjarðarsvæðinu munu hér
eftir sækja þjónustuna til Akur-
eyrar, en íbúar Þingeyjarsýslna til
Húsavíkur.
í kjölfar þessara umfangsmiklu
breytinga sem nú hafa orðið hefur
ný hugsun í þessum málaflokki í
raun tekið gildi, að sögn nefndar-
manna, þjónusta er nú skilgreind
eftir þörfum en ekki eftir fyrirfram
skilgreindum hópum eins og áður
var. Að baki liggur það sjónarmið
að ná fram hagræðingu með því
að nýta betur þá fjármuni sem
fyrir hendi eru í málaflokknum og
er stefnt að því að afgangur verði
af fjárveitingum svo unnt verði að
byggja upp enn meiri þjónustu.
Vel á annað þúsund
starfsmenn
Fjárveitingar til þeirra mála-
flokka sem nú hafa verið færðir frá
ríki yfir til sveitarfélagsins nema
um 550 milljónum króna.
„Verkefni þau sem Akureyrar-
bær er nú að taka við eru stærri
en nokkurt annað sveitarfélag í
landinu hefur með höndum. í raun
er verið að taka stórt stefnumark-
andi skref með þessum breytingum
og við munum kappkosta að vinna
þau af alúð, veita sömu þjónustu
og svæðisskrifstofan áður veitti og
vonandi að bæta þjónustuna þegar
fram líða stundir," sagði Valgerður.
Skipverjum
á Sólbaki
E A sagt upp
ÖLLUM skipveijum á Sólbaki EA,
frystitogara Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf., alls um 30 manns, hef-
ur verið sagt upp störfum. Sólbakur
hefur verið auglýstur til sölu og
segir Guðbrandur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri ÚA, að ekki sé
gert ráð fyrir því að hafa skipið í
rekstri á vegum félagsins eftir 1.
mars nk. Hann segir að enn hafi
ekki borist álitlegt tilboð í togarann.
Sólbakur EA hélt í sína síðustu
veiðiferð á vegum ÚA í gær, sem
ráðgert er að standi í 4-5 vikur.
Eftir það fer togarinn í skoðun og
seinni partinn í febrúar er ráðgert
að nota skipið við loðnufrystingu.
„Við áttum fund með skipverjum
Sólbaks þar sem þessar uppsagnir
voru til umræðu. Við gerðum skip-
veijunum það jafnframt ljóst að
verið væri að leita leiða til að nýta
þau 10% sem við eigum í hlutabréf-
um í félaginu og þar erum við að
vonast til að ná í skip og eða kvóta,“
sagði Guðbrandur.
Morgunblaðið/Kristján
Fyrsti Ak-
ureyring-
urinn mynd-
ar stúlka
FYRSTA barn ársins á Akureyri
kom í heiminn á fæðingardeild
FSA skömmu eftir miðnætti í
fyrrinótt, 2. janúar. Þetta var
myndar stúlka, sem vó 16 merkur
og reyndist 52 cm að lengd. For-
eldrar hennar eru Valgerður
Björnsdóttir og Garðar Baldurs-
son, búsett á Akureyri og er
þetta þeirra fyrsta barn.
Fæðingar á fæðingardeild
FSA urðu alls 418 á nýliðnu ári
og hafa ekki verið fleiri frá árinu
1990. Alls fæddust 425 börn á
deildinni á síðasta ári og þar af
7 tvíburar. Árið áður voru 388
fæðingar á fæðingardeild FSA
og þar af 11 tvíburafæðingar.
Á myndinni eru nýbakaðir for-
eldrar, Valgerður og Garðar,
með litlu prinsessuna sína á fæð-
ingardeild FSA.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Frumflutningiir
verks eftir Snorra
Sigfús Birgisson
NÝÁRSTÓNLEIKAR Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands verða
haldnir í Glerárkirkju næstkom-
andi sunnudag, 5. janúar, og hefj-
ast þeir kl. 17.
Á tónleikunum skipa um 50
hljóðfæraleikarar hljómsveitina
undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar aðalhljómsveitar-
stjóra hennar. Á efnisskránni er
tónlist eftir Beethoven, Stravinskí
og Snorra Sigfús Birgisson.
Það sem hæst ber á tónleikun-
um er frumflutningur á nýju ís-
lensku verki eftir Snorra Sigfús
Birgisson tónskáld og píanóleik-
ara. Þetta er píanókonsert sem
hann samdi að beiðni Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands á nýl-
iðnu ári en konsertinn tileinkar
hann Guðmundi Óla stjórnanda
hljómsveitarinnar. Snorri Sigfús
er jafnframt einleikari í verkinu.
Onnur verk sem flutt verða á
tónleikunum eru sinfónía nr. 8
eftir Beethoven og tvær svítur
eftir Stravinskí.
Konsertflygill, sem keyptur hef-
ur verið til Akureyrar, verður not-
aður í fyrsta sinn á þessum tón-
leikum, en formleg vígsla hans fer
þó fram síðar.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
Jón Hallur ráðinn for-
stöðumaður fjárhagssviðs
JÓN Hallur Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
lands, hefur verið ráðinn for-
stöðumaður fjárhagssviðs Út-
gerðarfélags Akureyringa hf. og
tekur hann til starfa um næstu
mánaðamót. Jón Hallur mun hafa
með höndum fjármálastjórn og
skrifstofustjórn, auk þess sem
netaverkstæði og mötuneyti
heyra undir fjárhagssvið.
Jón Hallur tók stúdentspróf frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
árið 1980 og útskrifaðist sem við-
skiptafræðingur frá Háskóla ís-
lands 1985. A árunum 1985-1986
stundaði hann nám við háskólann
í Karlsruhe í Þýskalandi. Eftir nám
vann hann hjá Deutsche Bank
Saar í Þýskalandi en tók við starfi
framkvæmdastjóra Kaupþings
Norðurlands í september 1987 og
hefur gegnt því starfi síðan.
Jón Hallur er kvæntur Guðríði
Friðriksdóttur verkfræðingi og
forstöðumanni Húsnæðisskrifstof-
unnar á Akureyri og eiga þau hjón
tvær dætur.
Jón Lax-
dal í sýnir
í Gallerí+
SÝNING á verkum Jóns Lax-
dals Halldórssonar verður
opnuð í Gallerí+, Brekkugötu
35 á Akureyri á morgun,
laugardaginn 4. janúar kl. 16.
Sýningin nefnist Hugsun
manns og samanstendur af
þremur ritum þýska heim-
spekingsins Immanuel Kants;
gagni-ýni dómgreindarinnar,
gagnrýni hreinnar skynsemi
og gagnrýni hagnýtrar skyn-
semi.
Sýningin er opin á laugar-
dögum og sunnudögum frá
kl. 14 til 18, en þeir sem
ekki geta komið á þeim tíma
er bent á að hafa samband
við húsráðendur, Pálínu eða
Joris. Síðasti sýningardagur
er sunnudagurinn 19. janúar.
Jón Laxdal er fæddur og
búsettur á Akureyri. Hann
var valinn bæjarlistamaður
Akureyrar 1994. Hann hefur
unnið að myndlist um árabil
og haldið reglulega sýningar.
Jólin
sungin út
BJÖRG Þórhallsdóttir, Óskar
Pétursson og Tjarnarkvart-
ettinn koma fram í Hlöðunni,
Öngulsstöðum, annað kvöld,
föstudagskvöldið 3. janúar kl.
21.30,
Söngkvöldum þar sem
þessir söngvarar áttu að koma
fram var frestað á aðventunni
vegna veikinda en er nú sleg-
ið saman í söngveislu fyrir
tónlistarunnendur.
Björg flytur nokkur lög við
undirleik Helgu Bryndísar
Magnúsdóttur. Sérstakur
gestur Bjargar verður Óskar
Pétursson. Þá mun Tjarnar-
kvartettinn flytja fjölbreytta
dagskrá, m.a. með lögum af
jóladiski sínum. Aðgangseyrir
er 800 krónur.
íslandsmótið
í íshokkí
SA og Björn-
inn spila
FYRSTI leikurinn í íslands-
mótinu í íshokkí fer fram á
skautasvellinu á Akureyri á
morgun, laugardaginn 4. jan-
úar og hefst hann kl. 16 þeg-
ar Skautafélag Akureyrar
tekur á móti Birninum. Björn-
inn hefur nú fengið til liðs við
sig kanadíska leikmanninn
Clark McCormick sem spilaði
með SR síðastliðinn vetur og
var stigahæstur allra leik-
manna þá.
Sýningu
lýkur
SAMSÝNINGU þijátíu og níu
myndlistarmanna sem staðið
hefur yfir í sal Gallerís Allra-
Handa í svonefndu Hekluhúsi
síðustu vikur lýkur nú um
helgina, sunnudaginn 5. jan-
úar. Á sýningunni er fjöldi
málverka, leirlist, vefnaður og
fleira. Sýningin var haldin í
tilefni af tíu ára afmæli gall-
erísins í desember síðastliðn-
um.