Morgunblaðið - 03.01.1997, Blaðsíða 66
MORGUNBLAÐIÐ
66 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
HASKOLABIO
/ /
Háskólabíó
BRAD PITT
DUSTIN HOFFMAN
ROBERT DENIRO
KEVIN BACON
JASON PATRIC
S LEE PERS
Umtöluð stórmynd með heitustu stjörnunum dagsins í
dag í aðalhlutverkum. Þetta er mögnuð mynd sem þú
gleymir seint. Leikstjóri er Óskarsverðlaunahafinn Barry
Levinson (Rain Man, Good Morning Vietnam).
Fjórir vinir lenda á upptökuheimili eftir að hafa, fyrir
slysni, orðið manni að bana. Á upptökuheimilinu eru
þeir ofsóttir af fangavörðum og beittir miklu ofbeldi.
Mörgum árum síðar rennur stund hefndarinnar upp.
Myndin er sögð byggja á sönnum atburðum.
Sýnd kl. 3, 5, 8 og 11.
MIÐAVERÐ KR. 600. B.l. 16 ÁRA.
Martin
Landau
Jonat
or»T
ATH. BORN YNGRI EN
FJÖGURRA ÁRA FÁ FRÍTT INN.
BRIMBROT
STARMAN
★ ★★ÁSBylgjan ★★★ ÁÞ Dagsljós
„Brimbrot er ómissandi" ★ GB DV
★ ★★V2SVMBL
SÝND KL. 6 og 9.
DENNIS QUAID SEAN
DRAG^NHHAPJ
Dragonheart er bráðfyndin ævintýramynd með
toppleikurum um sígilda baráttu góðs og ills.
Spenna og frábærar tæknibrellur.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.10. B. i. 12 ára
I EKKI MISSA AF PESSUIV |
Splúnkuný og bráðskemmtileg leikin mynd fyrir alla
fjölskylduna um ævintýri Gosa.
Myndin er byggð á ævintýrinu sígilda.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Ghita Sorbi*
HAM:
SÝND KL. 9 og 11.
Stórkostlegt kvikmyndaverk um einn merkasta rithöfund
sögunnar. Við innrás Þjóðverja í Noreg hvatti Knut Hamsun
landa sína til að leggja niður vopn og síðar hélt hann á fund
Hitlers. Miklifengleg sviðssetning eins umdeildasta tímabils í
lífi Hamsuns.Aðalhlutverk Max von Sydow og Ghita Norby
Svnd kl. 6 oq 9.
HELGARMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Þrengt um
þrettán göt
XÐ afloknum nokkrum veisluhöldum
við jóla- og áramótahlaðborð sjón-
varpsstöðvanna, þar sem voru á sjötta
tug smá-, for-, aðal- og eftirrétta, er
okkur þessa helgina mestmegnis boðið
á ný upp á gamlar kjöttægjur, létt-
væga brauðmylsnu og heldur geijað
bland. Einhver megrun er trúlega
nauðsynleg en matur þarf samt að
vera til í búðunum.
Föstudagur
Sjónvarpið ►21.10 Leiðir Daníels
og Ágústu skerast nokkrum sinnum
fyrir tilviljun og þau verða skotin þótt
þau hafi bæði önnur járn í eldinum.
Þetta er það sem vitað er um róman-
tísku gamanmyndina Regnhlíf handa
þremur (Un paragvs para tres) frá
Spáni. Spurningin er: Hver er númer
þijú undir regnhlífinni? Svar: Sá eða
sú sem er ofaukið.
Sjónvarpið ►23.30 Fyrirtveimur
mánuðum eða svo sýndi Sjónvarpið
gamanhasarmyndina Skaðræðisgripur
eða Lethal Weapon, þar sem Mel Gib-
son og Danny Glover léku skrýtið
löggupar í ævintýrum. Nú er komið
að framhaldinu Skaðræðisgripur II
(Lethal Weapon II, 1989) sem - eins
og framhalda er siður - reynir að slá
út forverann en þynnir hann út í stað-
inn. Og sögufléttan er enn lygilegri;
skúrkarnir njóta dipiómatískrar frið-
helgi. Góð afþreyingen ofbeldisfull.
Leikstjóri er sem fyrr Richard Donner.
★ ★1/2
Stöð 2 ►13.00, 22.45 og 0.20-
Sjá umfjöllun í ramma.
Stöð 2 ^21.05 Phoebe Cates leikur
flækingsstúlku sem fínnst á kornakri
nærri Bristol á Bretlandi árið 1817
og kveðst vera Caraboo prinsessa í
bandarísku ævintýrasatírunni Prins-
essan (Princess Caraboo, 1994), sem
byggð er á sönnum atburðum. Þessa
hef ég ekki séð en mönnum ber saman
um að hún sé prýðilega gerð og leikin
- auk Cates af Jim Broadbent, Wendy
Hughes, Kevin Kline, John Lithgow
og Stephen Rea m.a. Leikstjóri er
Michael Austin. Maltin gefur ★ ★ ★
og Martin og Potter líka (af fimm
mögulegum).
Stöð 3 ► 21 .05 Breski spaghetti-
vestrinn Hnefafylli (A Fistful OfFin-
gers, 1995) - beina þýðingin Hnefa-
fylli af fingrum væri fyndnari titill -
var gerður fyrir eina milljón íslenskra
króna með hestum úr pappa og skóla-
nemendum í aðalhlutverkum. Ég hef
ekki séð þessa furðulegu skopstælingu
en heimildir herma að hún beri vitni
um töluverða hæfileika leikstjórans
Edgars Wright.
Stöð 3 ► 22.45 Kanadíski leikstjór-
inn Patricia Rozema vakti mikla at-
hygli fyrir áratug með frumraun sinni
I Heard The Mermaids Singing, femín-
ískri gamanmynd. í Náttmyrkri
(When The Night Is Falling, 1995)
daðrar hún við lesbíuerótík með sögu
af konu, sem er prófessor við Kalvín-
istaskóla og hyggst giftast samkenn-
ara sínum, þegar hún fellur fyrir flöl-
leikahússkonu. Maltin segir þetta
skemmtilega mynd og gefur ★ ★ ★.
Stöð 3 ►0.15 Eftir ofannefndar
óhefðbundnar Stöðvar 3-myndir erum
við komin á hefðbundnari veiðilendur
stöðvarinnar með Föðurást (Thicker
Than Biood), þar sem Peter Strauss
leikur föður sem berst fyrir forræði
sonar síns - jafnvel eftir að hann
kemst að því að hann er ekki sonur
hans. Miðlungs sjónvarpsdrama. ★ ★
SÝN ►21.00 Njósnaþrillerinn
Áhugamaðurinn (The Amateur,
1982) er heldur slappur eltingaleikur
Johns Savage við hermdarverkamenn-
ina sem myrtu kærustu hans. Leik-
stjóri Charles Jarrott. ★1/2
Laugardagur
Sjónvarpið ►20.40 Bandaríski leik-
stjórinn George Roy Hill (Butch
Cassidy . .., The Sting) reyndi fyrir
sér með rómantíska gamanmynd þar
sem er Ástarævintýri (A LittleRo-
mance, 1979) um unglingaástir í Par-
ís. Sjarmerandi fis en fis samt. Fyrsta
mynd Diane Lane og Sir Laurence
Olivier er kostulegur sem gamall
svindlari. ★★■Æ
Sjónvarpið ►22.35 Casablancaer
hún ekki þótt hún reyni það, pólitísk
og rómantísk mynd Sidneys Pollack
Havana (1990), þar sem Robert Red-
ford og Lena Olin reyna að vera
Humphrey Bogart og Ingrid Bergman
á Kúbu Battistatímans. Dálítið
þunglamalegt drama en ekki alls varn-
að. ★ ★ 'h
Stöð2 ►15.05 Einhver frumlegasti
og persónulegasti leikstjórinn í Holly-
wood, Tim Burton, á frumkvæðið og
ýmsar hugmyndir að hreyfimyndinni
Jólamartröð (The Nightmare Before
Christmas, 1993) þótt hann leikstýri
henni ekki sjálfur heldur Henry Selick.
Hér rambar Hrekkjavökugaur inn í
Jólaland og snýr þar öllu á annan
endann. Bragðmikið augnakonfekt -
og eyrna reyndar líka þar sem er tón-
list Dannys Elfman. ★ ★ ★
Stöð 2 ^21 .20 Hjónin Ted Danson
og Mary Steenburgen, sem við sáum
síðast um jólin í tilkomumikilli sjón-
varpsmynd um Ferðir Gúllívers, leika
afar ólíka foreldra 11 ára drengs í
Ökuferð til tunglsins (Pontiac Moon,
1994), en titillinn vísar til þess að
faðirinn fer með drenginn i ferðalag
sem hann stillir saman við fyrstu lend-
ingu manna átunglinu árið 1969. Eg
hef ekki séð þessa mynd Peters Medak
en Maltin segir að 11 ára börn gætu
haft gaman af henni og gefur ★ 'h,
Martin og Potter segja að það lífleg-
asta í myndinni sé hárkollan á Danson
en gefa ★ ★ 'h (af fimm).
Stöð 2 ►23.10 Dauðyflið hann
Christopher Lambert og John Lone
beijast við ninja-stríðsmenn í fárán-
legri hasarmynd, Eftirförin (The
Hunted, 1995). Algjört neyðarbrauð.
Leikstjóri J.F. Lawton. ★
Stöð2 ►1.10 Leikstjórinn Abel
Ferrara tekur einatt ofbeldishneigð
amerískra kvikmynda út í afbrigðileg-
ar öfgar en í Líkamsþjófar (Body
Snatchers, 1995) endurgerir hann
fræga vísindahrollvekju Dons Siegel
(1956), sem Philip Kaufman hefur
áður endurgert (1978). Sagan um það
hvernig samfélag er smám saman
gegnsýrt utanaðkomandi áhrifum -
utan úr geimnum - hefur pólitískt
tákngildi, sem Ferrara tekst að halda
þokkalega til haga. Mörg mögnuð at-
riði þótt heildaráhrifin séu ekki full-
nægjandi. ★★1A
Stöð 3 ►20.20 Kanadíski leikstjór-
inn Sandy Wilson gerði árið 1986
prýðilega sjálfsævisögulega þroska-
sögu, My American Cousin og í Líf
og fjör (American Boyfriends, 1989)
er söguhetjan Sandy orðin að unglingi
og mætir í brúðkaup ameríska frænd-
ans úr fyrri myndinni. Þetta framhald
hef ég ekki séð en Martin og Potter
gefa ★ ★ ★ '/2 og Maltin ★ ★.
Stöð 3 ► 1.50 Kanadískar myndir
setja nú ánægjulegan svip á dagskrá
Stöðvar 3 þótt óþarfi sé að dæla þeim
inn í bunum. Graham Greene leikur
indjána vel enda er hann indjáni og í
Clearcut (1992) berst hann við kana-
díska pappírsverksmiðju sem leggur
undir sig indjánaland með því að ræna
forstjóranum. Martin og Pottergefa
★ ★ ★ og Maltin ★ ★ 'h. Leikstjóri
Richard Bugajski.
Stöð 3 ►23.20 í skugga morðingja
(In The Shadow Ofa Killer)er
löggudrama með Scott Bakula, þar
SJÁ BLS. 68
Raggi Bjama og
mættir aitur í góðu
cdn Jökulsson
i á Mímisbar.
-þín saga!