Morgunblaðið - 03.01.1997, Blaðsíða 60
. 60 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLABSINS
Dýraglens
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Grettir
Ástralía -
Stephen Wardle
Akall um hjálp
Frá Amnesty International:
í JÚNÍ 1996 lagði þingnefnd til að
óhlutdræg rannsókn yrði gerð á
óleystum spurningum um dauða
Stephen Wardle á meðan hann var
í varðhaldi og
einnig ásökun-
um fjölskyldu
hans um stöðuga
áreitni lögregl-
unnar í kjölfar
dauða hans.
Stephen Wardle
var handtekinn
vegna gruns um
ölvun við akstur
og var haldið 1.
Stephen Wardle
febrúar 1988 yfir nótt í varðhaldi
án ákæru í fangaklefa í borginni
Perth. Lögreglan tilkynnti
enga sjáanlega áverka á
honum. Klukkan 5.05 næsta
morgun, fannst lík hans í
klefa með greinilega áverka
eftir harkalegar líkams-
meiðingar, áberandi mar-
bletti, bólgur og skrámur.
Amnesty Intemational ótt-
ast að Stephen Wardle hafi
sætt illri meðferð í varðhaldi
og hefur fengið upplýsingar
sem vekja efasemdir um nákvæman
tíma og orsakir dauða hans. Arið
1989 kom í ljós eftir réttarrannsókn
dánardómstjóra að Stephen Wardle
hafi látist af völdum eituráhrifa
lyÚ'a sem hann fékk samkvæmt lyf-
seðli og áfengis, og að honum hafi
ekki verið sinnt sem gerði illt verra.
Dánardómstjórinn rakst einnig á
þó nokkur misræmi í sönnunar-
gögnum og sagði að mörgum spurn-
ingum væri ósvarað þar sem allir
lögreglumennirnir, sautján talsins,
sem voru á vakt nóttina sem hann
dó, neituðu að svara spurningum
meðan á rannsókn stóð.
Frá því að rannsókn málsins
hófst, hefur fjölskyldan verið undir
smásjá lögreglunnar. Fjölmargar
smávægilegar ákærur hafa verið
settar fram á Ray Tilbury, stjúpföð-
ur Stephen Wardle, en þær hafa
flestar verið dregnar til baka. Frá
því í ágúst 1994, hafa vopnaðir óein-
kennisklæddir lögreglumenn gert
fjórar skyndilegar innrásir í húsa-
kynni fjölskyldunnar sem hafa allar
verið álitnar sem áreitni og ógnun.
Vinsamlega skrifið kurteislega
orðuð bréf og biðjið um sjálf-
stæða óhlutdræga rannsókn
á dauða Stephen Wardle og
á meintri áreitni lögreglunn-
ar á foreldra hans.
„I am supporting calls for
an independent judicial inqu-
iry into the death of Stephen
'tfr* Wardle and into alleged
police harassment of his par-
ents.“
Heimilisfang:
The Hon. Richard Court, MLA
Premier of Western Australia
Office of the Premier and Cabinet
197 St George’s Terrace
Perth 6000
Australia.
AMNESTY INTERNATIONAL,
íslandsdeild,
Hafnarstræti 15, Reykjavík.
Áskorun til S VR
Frá Hólmfríði Gröndal:
STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur
hafa tilkynnt breytingu á afgreiðslu
farmiða til fatlaðra. Breytingin er í
því fólgin að öryrkjar 75% eða yfir
þurfa frá 1. febrúar 1997 að fram-
vísa sérstöku korti með mynd þegar
keypt er afsláttarkort og einnig þarf
að framvísa þessu sérstaka korti í
hvert sinn sem stigið er upp í stræt-
isvagn og greitt með afsláttarmiða.
Rök SVR fyrir þessari breytingu
eru, að um misnotkun á afsláttar-
miðum hafí verið að ræða sem von-
andi er byggt á tölfræðilegum rökum
en ekki getgátum einum.
Ég mótmæli þessari breytingu
sem mér finnst bera anda brenni-
merkingar og niðurlægingar fyrir
öryrkja.
Mig langar til þess að benda á
hvort ekki mætti ræða um breyting-
ar á örorkuskírteinum frá Trygg-
ingastofnun ríkisins, í því formi að
setja mynd í þau. Það myndi nýtast
betur í þeim tilvikum sem öryrkjar
eiga rétt á afslætti, þ. á m. fargjöld-
um hjá SVR og yrði væntanlega til
þess að minnka tortryggni í garð
handhafa örorkuskírteina.
Ég skora á þá sem tóku ákvörðun
í þessu máli að hætta við þessa fram-
kvæmd og finna viðunandi lausn.
HÓLMFRÍÐUR GRÖNDAL,
Furugerði 9, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
- Gœiavara
Gjdfdvaid indtdi- oij kalTistell.
Allii verðflokkar.
VERSLUNIN
Heimsfrægir liöniniðir
in.d. Gianni Versace.
Líiitgavcgi 52, s. 562 4244.