Morgunblaðið - 03.01.1997, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
9. NÁTTÚRU-
VERNDARÞING
verður haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar 1997 á
Hótel Loftleiðum. Hlutverk þingsins er að fjalia um
náttúruvernd og kjósa fulltrúa í Náttúruverndarráð.
Samkvæmt ákvæðum laga nr. 93/1996 um náttúruvernd
hefur Náttúruverndarráð samið eftirfarandi reglur um
Náttúruverndarþing.
lgr-
I samræmi við ákvæði laga nr. 93/1996 um náttúruvernd verður
Náttúruverndarþing haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar
1997 á Hótel Loftleiðum, Reykjavík. Hlutverk þess er að fjalla
um náttúruvernd og kjósa fulltrúa í Náttúruverndarráð.
2. gr.
A Náttúruverndarþingi eiga sæti:
A. Með fúllum réttindum:
1. Náttúruverndarráð.
2. Fulltrúi frá hverju setri Náttúrufræðistofnunar Islands.
3. Fulltrúi frá hverri náttúrustofu.
4. Fulltrúi kjörinn af hverri náttúruverndarnefnd.
5. Einn fulltrúi fyrir hvern eftirfarandi hagsmunaaðila,
félagasamtaka og stofnana: (sjá viðauka 1).
B. Með málfrelsi og tillögurétt:
1. Einn fulltrúi fyrir hvert ráðuneyti.
2. Einn fulltrúi fyrir hvern þingflokk á Alþingi.
3. Forstjóri Náttúruverndar ríkisins, forstjóri
Náttúrufræðistofnunar fslands, þjóðgarðsverðir.
3. gr.
Náttúruverndarráð undirbýr Náttúruverndarþing og leggur fyrir
það skýrslu um störf sín. Formaður ráðsins setur þingið og stýrir
því uns það hefur kosið sér forseta. Þingið setur sér þingsköp.
Seta á náttúruverndarþingi er ólaunuð, en hlutaðeigandi aðilar
greiða kostnað fulltrúa. Annar nauðsynlegur kostnaður af
þinghaldinu greiðist úr ríkissjóði samkvæmt úrskurði
umhverfisráðherra.
4. gr.
Náttúruverndarráð er skipað níu mönnum. Umhverfisráðherra
skipar sex þeirra í upphafi náttúruverndarþings, fimm að
fengnum tillögum Náttúrufræðistofnunar Islnads, Háskóla
Islands, Bændasamtaka íslands, Ferðamálaráðs og sipulagsstjóra
ríkisins og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður
ráðsins. Þrjá þeirra kýs Náttúruverndarþing. Varamenn eru
skipaðir og kosnir með sama hætti.
5. gr.
Reglur þessar eru settar með vísan til laga nr. 93/1996 um
náttúruvernd og öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 30. desember 1996.
Náttúruverndarráð
Arnþór Garðarsson, Kristján Geirsson.
Viðauki 1.
Hagsmunaaðilar, félagasamtök og stofnanir með sæti á
Náttúruverndarþingi 1997.
Alþýðusamband íslands
Arkitcktasamband íslands
Bandalag íslenskra farfugla
Bandalag íslenskra skáta
Bændasamtök fslands
CAFF skrifstofan á íslandi
Ferðafclag fslands
Ferðafélagið Utivist
Ferðaklúbburinn 4x4
Ferðamálaráð
Fcrðaþjónusta bænda
Fclag áhugafólks um hálendi
Austurlanas
Fclag cigcnda sumardvalarsvæða
Félag íslcnskra landslagsarkitckta
Félag íslenskra náttúrufræðinga
Fclag landfræðinga
Fclag leiðsögumanna
Fjallið (Hagsmunafélag jarð- og
landfræðinema)
Flugmálastjórn
Framtíðarstofnun
Fuglavcrndarfélag íslands
Hafrannsóknarstofnunin
Haxi (hagsmunafclag líffræðincma)
Háskóli fslands
Hið íslcnska náttúrufræðifélag
Hollustuvcrnd ríkisins
Jarðfræðafélag fslands
jökiarannsóknafclag fslands
Kennaraháskóli fslands
Kvenfélagasamband íslands
Landgræðsla ríkisins
Landlæknisembættið
Landmælingar íslands
Landssamband hcstamannafélaga
Landssamband íslcnskra
vélslcðamanna
Landssamband stangveiðifélaga
Landssamband vciðifélaga
Landssamtökin Líf og land
Landsvirkjun
Landvarðafélag íslands
Landvcrnd
Líffræðifclag íslands
Líffræðistofnun Háskólans
Náttúruvcrnd ríkisins
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands
Náttúruverndarsamtök
Austurlands
Náttúruverndarsamtök
Suðurlands
Náttúruvcrndarsamtök
Vesturlands
Orkustofnun
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Náttúrurannsóknarstöðin
við Mývatn
Rafmagnsvcitur ríkisins
Rannsóknaráð fslands
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins
Raunvísindastofnun Háskólans
Samband dýravcrndarfélaga
Islands
Samband íslenskra sveitarfélaga
Samlíf (Samtök líffræðikennara)
Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi
Samtök um umhverfismál
og náttúruvemd
Siðfræðistofnun Háskólans
Siglingastofnun fslands
Sjálfboðaliðasamtök
um náttúruvcrnd
Skipulag ríkisins
Skorvciðifélag fslands
Skógrækt ríkisins
Skógræktarfélag fslands
Surtscyjarfélagið
Ungmennafélag fslands
Vegagcrðin
Vciðimálastofnun
Veiðistjóracmbættið
Vcðurstofan
Verkfræðingafélag íslands
Verkfræðistofnun Háskólans
Vestfirsk náttúruverndarsamtök
Vinnueftirlit ríkisins
Vinnuvcitcndasamband fslands
Vísindafclag íslendinga
■ Yfirdýralækniscmbættið
þjóðminjasafn
Æðarræktarfélag fslands
Æskulýðssamband fslands
Nátcúruverndarráð bendir þeim, sem telja sig eiga seturétt á
Náttúruverndarþingi en er ekki getið í ofangreindum reglum,
að hafa samband við skrifstofu Náttúruverndar ríkisins,
Hlemmi 3, pósthólf 5324, 125 Reykjavík, fyrir upphaf
Náttúruverndarþings.
Náttúruverndarráð
IDAG
Með morgunkaffinu
Ast er...
aÖ einangra sig ekki
innan um tölvu, faxtaki
og síma.
TM rtag. U.S. Pat. Off. — ail rights reserved
(c) 1996 Los Angeles Times Syndicate
CJ&TÖ0
NEI, ég er ókvæntur og
ekki heldur í sambúð.
Eg er einn af þessum
frjálsu einstaklingum í
þjóðfélaginu.
COSPER
ÞETTA verður I síðasta sinn sem ég bið þig
um aðstoð við að renna upp.
Farsi
^ Vertu hxgurt A&k). þu viss/ra^ u/A
spiLubum upp ó' Stórst&ik. • "
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
mfmum&m
Úr tapaðist
KARLMANNSÚR úr
stáli tapaðist á mennta-
skóladansleik sem hald-
inn var á Hótel íslandi
19. desember sl. Úrsins
er sárt saknað og er
fundarlaunum heitið.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
561-1911.
Gleraugu týndust
Ný gleraugu týndust á
Þorláksmessu, líklega á
Laugaveginum. Glerin
eru hálfmánalöguð í
marglitri plastumgjörð.
Skilvís finnandi hringi í
síma 567-2149.
SKÁK
Umsjðn Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á jóla-
mótinu í Groningen í Hol-
landi sem lauk 30. desem-
ber. Enski stórmeistarinn
Julian Hodgson (2.560)
hafði hvítt og átti leik, en
Loek Van Wely (2.645),
Hollandi, var með svart.
Hodgson fann eina vinn-
ingsleikinn: 48. Dd4! (Hótar
máti í öðrum leik) 48. —
e5 49. Dh4+ - Kf5
50. Dg4+ og Van
Wely gafst upp, því
eftir drottninga-
kaupin fellur hrókur
hans óbættur.
Úrslitin í Gron-
ingen urðu þessi: 1.
Nigel Short, Eng-
landi 7 v. af 11
mögulegum, 2.-3.
Gelfand, Hvíta
Rússlandi og Jan
Timman 6'A v.,
4.-6. Leko, Ung-
verjalandi, Shirov,
Spáni og Van Wely
6 v.
7. Svidler, Rússlandi 5 'A v.
8, —12. Akopjan, Armeníu,
Viktor Kofysnoj, Hodgson,
Onísjúk, Úkraínu og Ivan
Sokolov, Bosníu 4 'h v.
HVÍTUR Ieikur og vinnur
Pennavinir
TUTTUGU og tveggja
ára finnsk stúlka með
áhuga á menningu, list-
um, tónlist og dulrænum
fyrirbrigðum:
Leena Tikkanen,
Marttilankatu 12 D7,
38200 Varnrnala,
Finland.
ELLEFU ára sænsk
stúlka með áhuga á tölv-
um og handbolta:
Anna Lundholm,
Vallstanasv. 50,
195 70 Rosersberg,
Swedeti.
ÁTJÁN ára finnsk stúlka
með áhuga á karate, list-
um, tónlist, ferðalögum
o.fl.:
Aino Vornanen,
Kettulankatu 3,
83500 Outokumpu,
Finland.
KÚBANI, 33 ára, vill
skrifast á við 35-50 ára
konur:
Juan Fernandez
Guma, Camilo
Cienfuegos 64,
54490 Casagal V-C,
Cuba.
Víkveiji skrifar...
KONA ein fór ásamt ú’ölskyldu
í stutta ferð austur að Skeið-
arársandi nýlega til að líta á afleið-
ingar hlaupsins í haust. Á leiðinni
kom hún við á bensínstöð til þess
meðal annars að kaupa bensín og
greiddi fyrir með debetkorti.
Þetta væri ekki í frásögur fær-
andi nema vegna þess að er konan
hafði greitt fyrir og undirritað
kvittun þess efnis þá tók hún eftir
því að debetkortið sem lá á af-
greiðsluborðinu var ekki hennar
heldur vinkonu hennar til margra
ára. Konan spurði afgreiðslu-
manninn hvernig stæði á því að
þetta kort lægi þarna enda vissi
hún ekki betur en viðkomandi
væri stödd í Reykjavík.
Afgreiðslumaðurinn sagði skýr-
inguna á því vera einfalda, hún
hefði sjálf greitt með þessu korti.
Konan taldi það ekki geta verið,
þetta væri ekki hennar kort enda
greinilegt þegar myndin var skoð-
uð að þarna var ekki um sömu
manneskju að ræða. Afgreiðslu-
maðurinn kippti sér ekkert upp
við þetta þó greinilegt væri að
handhafi kortsins væri ekki eig-
andi þess, hann hafði fengið sína
greiðslu og það virtist duga hon-
um.
xxx
KONAN tók kortið og hvarf á
braut, eðlilega miður sín er
hún hafði komist að því að hún
hafði greitt með korti sem hún
átti ekkert í en hennar kort var
hins vegar horfið með öllu. Af-
greiðslumanninum þótti hins veg-
ar ekkert sjálfsagðara en að konan
færi í burtu með greiðslukort sem
hún átti sýnilega ekkert í.
Síðar þennan sama dag er kon-
an kom til Reykjavíkur á ný hafði
hún samband við vinkonu sína.
Þá kom í ljós að kort kvennanna
höfðu víxlast á veitingastað sem
þær höfðu farið saman á ásamt
fleiri vinkonum úr saumaklúbbi
nokkrum dögum áður.
í millitíðinni höfðu þær keypt
hvor út á annarrar kort fyrir sam-
tals tugi þúsunda án þess að nein
athugasemd væri gerð, hvorki sök-
um þess að undirskrift kvittana
passaði ekki við undirskrift kort-
anna, né vegna myndanna en kon-
urnar eru alls ekki líkar.
xxx
AF þessu einstaka dæmi má
ekki draga of miklar
ályktanir, en greinilegt er þó að
eftirlit í verslunum getur sums
staðar verið slakt og þá virðist
ekki skipta máli hvort mynd er í
kortum eða ekki.
Auðvelt er að nefna dæmi um
hið gagnstæða og upp í huga skrif-
ara kemur atvik af annarri bensín-
stöð fyrir nokkrum mánuðum, en
þá var afgreiðslumaður mjög vak-
andi í starfi sínu. Hann sleppti til
dæmis ekki kortinu fyrr en hann
var búinn að bera nákvæmlega
saman undirskrift á kvittun og
korti. Þetta fór greinilega í taug-
arnar á viðskiptavininum sem leit
á þetta sem vantraust og hafði
orð á því. Afgreiðslumaðurinn
sagði að þvert á móti væri þetta
skylda hans og það væru svik
bæði gagnvart vinnuveitanda og
korthöfum að kanna ekki ná-
kvæmlega hvort rétt væri staðið
að málum.