Morgunblaðið - 03.01.1997, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Hættuástand skapaðist og slökkvilið
kvatt að áramótabrennu í Stykkishólmi
Kvoðu dælt yf-
ir bensíndælur
Stykkishólmi - Fljótlega eftir að
kveikt hafði verið í áramótabrennu
í Stykkishólmi á gamlárskvöld
hvessti af suðri svo ýmislegt laus-
legt fauk brennandi úr bálkestin-
um. Töluverð hætta skapaðist af
þessum sökum þar sem bensinstöð
er nálægt og var leitað aðstoðar
slökkviliðsins.
Er vindáttin breyttist byijuðu
brennandi pappakassar og annað
lauslegt að §úka, m.a. í áttina að
og yfir bensínstöðina sem er í út-
jaðri bæjarins. Logandi kassar bár-
ust víða, m.a. upp á bílskúrsþak
sem er í 200-300 metra fjarlægð
frá bálkestinum. Skapaðist tölu-
verð hætta svo að slökkviliðið var
kallað út. Dældi það kvoðu yfir
bensíndælur, bensínbíl og planið
fyrir framan bensínstöðina. Einnig
var dælt vatni á brennuna til að
minnka logana.
Brennustæðið hefur verið notað
í mörg ár og aldrei skapast hætta
fyrr, enda aðrar áttir yfirleitt ríkj-
andi hér á þessum árstíma. Seinna
um kvöldið lægði og gerði besta
veður.
Friðsamleg áramót
Áramótin fóru friðsamlega fram
í Stykkishólmi eins og til er ætl-
ast. Tveir dansleikir voru haldnir
bæði á Hótel Stykkishólmi og veit-
ingahúsinu Knudsen. Bæði þar og
í heimahúsum fögnuðu Hólmarar
nýju ári og þökkuðu fyrir það sem
var að kveðja, en það reyndist íbú-
um Stykkishólms vel.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Á LEIKFANGASÝNINGUNNI voru m.a. leikföng frá árinu 1936.
Sýning á gömlum
leikföngum
Grundarfirði - Dagana 21.-23.
desember var haldin sýning á
gömlum leikföngum og vakti hún
mikla athygli. Kenndi þar ýmissa
grasa, t.d. voru elstu leikföngin
frá árinu 1936, s.s. bollastell og
kommóða.
Þeir sem stóðu að þessari sýn-
ingu voru félagar í Unglinga-
deildinni Pjakki sem er félags-
skapur unglinga á aldrinum
14-18 ára sem hafa áhuga á
slysavörnum, björgunarmálum
og útivist.
Boðið var upp á kaffi og með-
læti.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
KÓR Landakirkju á tónleikunum.
Jólatónleikar
kórs Landakirkju
Vestmannaeyjum - Kór Landa-
kirkju í Eyjum hélt árlega jólatón-
leika sína skömmu fyrir jól. Að
vanda var fjölbreytt efnisskrá á
tónleikunum og sótti fjölmenni tón-
leikana sem haldnir voru í Landa-
kirkju. Sigrún Hjálmtýsdóttir var
einsöngvari á tónleikunum en einn-
ig léku Eva Lind Ingadóttir, Rann-
veig Rós Ólafsdóttir og Védís Guð-
mundsdóttir á þverflautu og Grettir
Jóhannesson á trompet. Guðmund-
ur H. Guðjónsson stjórnaði söngn-
um og lék á orgel.
Verk eftir Hándel, Mozart, Verdi,
Bach og Sigvalda Kaldalóns voru
meðal þess sem var á efnisskrá
tónleikanna. í lok tónleikanna
kveiktu allir gestirnir á kertum, risu
úr sætum og sungu Heims um ból
með kórnum.
Tónleikarnir voru mjög vel
heppnaðir og voru áheyrendur
geysilega ánægðir í lok þeirra.
SIGRÚN Hjálmtýsdóttir söng
einsöng á tónleikunum.
Morgunblaðið/Alds Hafsteinsdóttir
FJÖRUG tískusýningin vakti mikla athygli.
Unglingar
selja upp
tískusýningu
í Hveragerði
Hveragerði - Tískusýning er ekki
bara tískusýning. Það gera þau sér
grein fyrir nú krakkarnir í Grunn-
skólanum í Hveragerði sem settu upp
glæsilega tískusýningu á jólaballi
félagsmiðstöðvarinnar Skjálftaskjóls
í Hveragerði skömmu fyrir jól. Álls
tóku 17 unglingar úr 8., 9. og 10.
bekk þátt í sýningunni. Lögðu þau
á sig ómælda vinnu við undirbúning
og æfingar í tvær vikur en krakkarn-
ir sáu sjálf um allt skipulag sýningar-
innar. Æfa þurfti hreyfingar á svið-
inu, hugsa fyrir hárgreiðslu, málun,
fatnaði og öðru sem tilheyrir. Fatn-
aður var fenginn að láni hjá verslun-
inni Mótor í Reykjavík. Á jólaballið
mættu um 120 unglingar, þeirra á
meðal var hópur sem sérstaklega var
boðið frá Þorlákshöfn. Hljómsveitin
Riff Reddhedd lék síðan fyrir dansi
fram eftir kvöldi.
Bandaríkjamenn
á djasshátíð
Morgunblaðið/Aldís Hafsleinsdóttir
LEIKNI Johns Webers við
pianóið vakti athygli.
Hveragerði - Góðir gestir gistu
Hveragerði um síðastliðna helgi
en þá stóð Hótel Hveragerði fyrir
djasshátíð. Af því tilefni komu
hingað til lands þau Susanne Palm-
er og John Weber frá Bandaríkj-
unum.
John Weber var á ferð hér á
landi fyrr á síðasta ári er hann
sýndi snilli sína við píanóið á Lista-
hátíð. Susanne Palmer er djass-
söngkona sem notið hefur vinsælda
í Bandaríkjunum. Hún hefur sung-
ið með fjölmörgum þekktum djass-
sveitum en starfar nú sem söng-
kona Absolute-flokksins.
Á laugardagskvöldið fengu þau
Susanne og John íslenskan liðstyrk
en þá bættust þeir Guðmundur
Steingrímsson trommuleikari og
Tómas R. Einarsson bassaleikari í
hópinn. Allt sýndi hljómlistarfólkið
tilþrif þetta kvöld og vakti leikni
Johns Webers við píanóið ekki hvað
síst mikla aðdáun viðstaddra.
Einnig var gaman að fylgjast með
því hversu gott samspilið var á
milli þeirra Tómasar og Guðmund-
ar og síðan þeirra Johns og Sus-
anne, en ómögulegt var að heyra
á flutningi þeirra að þau fjögur
hittust fyrst þetta sama kvöld.
Að tónleikunum loknum klöpp-
uðu áheyrendur listamönnunum lof
í lófa og greinilegt var að viðstadd-
ir skemmtu sér konunglega.
Morgunblaðið/Jenný
NOKKRIR nemendur Drangsnesskóla með hluta af nýju verk-
færunum: Hafþór, Sölvi, Þórdís, Magnús, María, Steinar,
Birta, Olafur, Dagbjört, Unnur og Aðalbjörg.
Drangsnesskóla berast gjafir
Drangsnesi - Útgerðarmenn á Drangsnesi færðu Drangsnesskóla
ýmis verkfæri til smíðakennslu að gjöf rétt fyrir jólin.
Verkfærin til smíðakennslu í Drangsnesskóla voru bæðin orðin
gömul og léleg og voru farin að týna tölunni. Þetta ástand hefur
að sjálfsögðu komið niður á smíðakennslu í skólanum og hefur hún
legið niðri nú síðustu ár.
Nú stendur þetta allt til bóta því skólanum voru færð mörg smíða-
verkfæri, allt frá skrúfjárnum upp í súluborvél, svo nú ætti ekkert
að vera að vanbúnaði að krakkarnir læri réttu handtökin.