Morgunblaðið - 03.01.1997, Qupperneq 47
[
MORGUNBLAÐIÐ_____________________________________________________________FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997 47
MINNINGAR
i----------------------------------------------------------------------------------------------
i
i
)
)
>
>
I
I
I
I
.i
j
4
€
1
4
4
4
4
4
\
4
4
Sortnar þú, ský,
suðrinu í
og síga brúnir lætur.
Eitthvað að þér
eins og að mér
amar, ég sé þú grætur
Virðist þó greið
liggja þin leið
um Ijósar himinbrautir,
en niðri hér
æ mæta mér
myrkur og vegaþrautir.
Hraðfara ský,
flýt þér og flý
frá þessum brautum harma,
jörðu því hver
of nærri er
oft hlýtur væta hvarma.
(Jón Thoroddsen)
Elsku Guðrún, Gústi, Sverrrir og
Ágúst megi minningin um góða
konu lifa, í hjörtum ykkar. Missir
ykkar er meiri en orð fá nokkurn
tímann lýst.
Ásta Dís.
Elsku Sara mín, nú ert þú horfin
úr lífi mínu til hins góða ríkis.
Hvað þú komst mér oft til að hlæja
þegar ég var lítil og gerir það enn.
Þú varst mér svo kær og góð. Ekki
var líf þitt langt, bara 48 ár.
Alltaf leyndist eitthvað gott í
fjallakistunni góðu hjá ykkur Gústa
þegar ég kom í heimsókn. Hún
Sara kom hverjum einasta manni
til að hlæja. Alltaf var hún kát og
glöð við öll tækifæri, í sorg og gleði.
Og ef einhver var leiður eða í vondu
skapi þá var hann það aldrei eftir
að hún kom í heimsókn. Alltaf var
hún til staðar þegar það þurfti að
gera eitthvað eða halda upp á eitt-
hvað. Hún var mjög hjálpsöm og
hafði yndi af að hjálpa og taka til.
Þegar jólin nálguðust, 19.
desember, var hún búin að kaupa
jólamatinn og taka til heima hjá
sér og pakka jólagjöfunum inn og
búin að gera alit tilbúið fyrir jólin.
Nú vona ég að guð geymi þig um
alla framtíð á jörðu sem á himnum,
nú ert þú horfin og þér líður betur.
Guð geymi þig ávallt, elsku Sara
mín. Mundu að þú verður alltaf í
hjarta mínu.
Hrefna Líf Ólafsdóttir.
Kæra mágkona, þegar ég kom
heim föstudaginn þann 20. des.
biðu mín skilaboð að hringja í
mömmu. Hún færði mér þá sorg-
mæddu fregn að þú værir þungt
haldin upp á Borgarspítala. Þetta
var mikil sorgarfrétt og það á þeim
tíma þegar fjölskyldurnar ætluðu
að fara að gleðjast saman á einni
stærstu hátíð ársins. Svona getur
lífið verið miskunnarlaust og þú
varst kölluð frá okkur allt of
snemma. Aðeins 2 vikum áður vor-
uð þið hjónin hjá okkur að líta á
yngsta son okkar eftir bílslysið.
Eftir heimsóknina átti að fara í
bæinn að kaupa jólagjafir og und-
irbúa jólin. Næst ætluðum við að
hittast með systkinum mínum og
mökum í þorláksmessuskötu. I
þeim boðum hjá systur varstu alltaf
hrókur alls fagnaðar, enda með
vestfirskt blóð í æðum og skatan
er upphaf að jólahaldi margra Vest-
firðinga.
Fyrstu kynni okkar hjóna af til-
vonandi mágkonu minni voru þegar
þú, Gústi og mamma komuð til
Þrándheims vorið 1967, en þar var
ég að ljúka námi. Gústi var við nám
í Stavanger. Við höfðum gamlan
bíl til umráða og var þegar ákveðið
að fara í ferðalag og sýna ykkur
hluta af Noregi, en við höfðum þá
búið þar síðan 1964 og ferðast
nokkuð um og vildum láta ykkur
njóta með okkur. Farið var í sport-
vöruverslun og verslað þar til ferða-
lagsins. Mér er minnisstætt hversu
hress þú varst og tilbúin að fara í
tjaldferðalag með okkur. Búnaður-
inn var ekki mikill, fimm manna
tjald, svefnpokar og eldunaráhöld.
Fólkið var ungt og var ekki verið
að eyða í neinn óþarfa eins og dýn-
ur. Við tjölduðum bara þar sem
mjúkt var grasið. Þessi ferð var
hin ánægjulegasta. Næst þegar við
hittumst var það í brúðkaupi ykkar
Gústa 1. júní 1968. Fljótlega fóru
börnin að koma hvert af öðru og
voru börnin okkar á líku reki og
er margs að minnast. Sara var sér-
!ega barngóð og hlý manneskja.
Alltaf þótti börnunum gott að koma
í Kvistalandið og fá nammigott hjá
Gústa og Söru. Sara var einnig
hress og lífsglöð manneskja. Þegar
við hittumst í fjölskylduboðum
hafði hún einstaklega skemmtileg
orðatiltæki, svaraði stutt og
skemmtilega, allir fóru að hlæja
og gleðjast með henni.
Sara og Gústi dáðu mjög Hamra-
garða undir Eyjafjöllum, en þar
hafði hann verið í sveit. Við vorum
þess aðnjótandi að vera með þeim
í gamla bænum og síðar í nýja
húsinu. Þar leið þeim hjónum mjög
vel og var ætið gaman að koma til
þeirra.
Sara var mikil húsmóðir og lét
heimilið og börnin ávallt ganga
fyrir, enda var hún mjög stolt af
börnunum sínum og manni.
Með Söru mágkonu minni er
horfin mæt kona sem mat fjöl-
skyldu og vini mikils.
Við Dóra og börnin vottum ykk-
ur Gústi minn, Sverrir Þór, Guðrún
Olga, Aron Már og Ágúst Óskar
og öðrum ættingjum Söru og
mömmu, okkar innilegustu samúð.
Guð blessi ykkur og gefi ykkur
styrk í ykkar miklu sorg.
Daði og Dóra.
Elsku Sara. Ég hef verið hálf-
gerður heimalningur á heimili ykk-
ar Gústa í tæp 19 ár og alltaf stóð
fallega heimilið ykkar opið fyrir
mér og mínum. Alltaf varstu með
áhyggjur af því hvort ég og Guðrún
dóttir þín værum svangar og vildum
ekki fá eitthvað að borða og aldrei
fór maður svangur út af þínu heim-
ili. Á skólagöngu okkar varstu allt-
af tilbúin að aðstoða okkur og
stundum hugsaði ég hvort þú vissir
allt því það var sama f hvaða fagi
við vorum, alltaf gastu hjálpað og
gert torlesið efni skemmtilegt eins
og t.d. með sýklana og hvítu blóð-
kornin sem þú breyttir í her á
móti óvinum og lékst þetta á það
tilþrifamikinn hátt að sex ára
krakki hefði skilið, enda fórum við
lika ávallt fróðari frá þér í prófin.
Þegar Þórunn dóttir mín fæddist
komstu fram við hana eins og
ömmubarnið þitt, barst ávallt vel-
ferð hennar fyrir brjósti eins og
allra annarra, og oft fengu nú
krakkarnir þínir smá skot um það
hvenær þú fengir ekta ömmubarn
og loks fenguð þið Gústi sólargeisl-
ann ykkar hann Aron sem er nú
búinn að missa mikið eftir að þú
fórst.
Mín síðasta minning af þér Sara
er þegar þú varst að passa Aron
og ég, ísak sonur minn og Guðrún
komum til þín að ná í Aron og að
venju var sest við eldhúsborðið hjá
þér. Þú varst búin að baka tilrauna-
smákökur fyrir jólin og gafst strák-
unum jógúrt og lékst Grýlu og
Leppalúða fyrir þá og mikið var
nú hlegið og sungið enda vantaði
aldrei gleðina og húmorinn í þig.
Elsku Sara, ég mun sakna þess
sárt að sjá þig ekki aftur, en ég á
svo margar góðar minningar um
þig sem ég mun ávallt geyma í
hjarta mér. Heimili þitt verður aldr-
ei eins eftir að þú ert farin en þú
skilur eftir þig samrýnda og heil-
brigða fjölskyldu þar sem hver og
einn gefur öðrum styrk. Guð geymi
þig, Sara.
Elsku Gústi, Guðrún, Sverrir,
Ágúst, Aron ömmustrákur og aðrir
aðstandendur, engin orð geta linað
sársaukann í hjörtum ykkar og
sárin gróa aldrei, en megi Guð gefa
ykkur styrk til að læra að lifa með
honum, og ég veit að ef Sara fær
einhveiju ráðið þarna uppi mun hún
ávallt fylgja ykkur og veita ykkur
styrk og yl.
Hjördís Jónsdóttir og fjölsk.
• Fleiri minningargreinar um
Söru Bryndísi Olafsdóttur bíða
birtingar ogmunu birtast i blað-
inu næstu daga.
SVANLAUG
DANÍELSDÓTTIR
+ Svanlaug Daní-
elsdóttir fædd-
ist á Dalgeirsstöð-
um í Miðfirði í
Húnavatnssýslu,
30. apríl 1916. Hún
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 27. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðfinna
Stefánsdóttir, og
Daníel Helgason.
Árið 1929 flutti
fjölskyldan að
Litlahvammi í
sömu sveit. Svan-
laug lauk gagnfræðaprófi frá
Reykjaskóla í Hrútafirði og
auk þess stundaði hún nám í
Bréfaskóla SÍS eftir að hún
flutti til Reykjavíkur. Árið
1942 hóf hún störf þjá Hjúkr-
unarfélaginu Likn og frá árinu
1956 vann hún við Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur þar
til hún hætti störfum fyrir ald-
urs sakir. Hún keypti sér íbúð
í Barmahlíð í Reykjavík og bjó
þar, þar til hún
flutti að Rjúpna-
hæð 1 í Garðabæ
þar sem hún bjó
með systursvni sín-
um Arnari Oskars-
syni og fjölskyldu
hans. í sumar, eftir
að heilsu hennar
tók að hraka, flutti
hún á Hrafnistu í
Reykjavík. Sambýl-
ismaður Svanlaug-
ar til nokkurra ára
var Óskar Guð-
mundsson, f. 14.
júní 1924, d. 14.
júlí 1991. Uppeldissystir henn-
ar var Björg Rögnvaldsdóttir
búsett á Isafirði. Hennar börn
eru Guðfinna Margrét Óskars-
dóttir, Stefán Dan Óskarsson,
Brynjólfur Óskarsson, Rögn-
valdur Þór Óskarsson, Már
Óskarsson og Arnar Óskars-
son.
Útför Svanlaugar fer fram
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
í dag er kvödd hinstu kveðju
Svana frænka. Hún var Frænkan
okkar með stórum staf. Þegar við
systkinin komumst til vits og ára
gerðum við okkur þó óljósa grein
fyrir því að til var fleira skyldfólk
en Svana ein, en einhvem veginn
komst það aldrei með tæmar þar
sem Svana hafði hælana. Stóri
jólapakkinn var frá henni, í Barma-
hlíðinni hjá henni bjuggum við í
sumarfríunum þegar við fómm
suður. Svana var frænkan sem fór
til útlanda að kaupa falleg föt og
hluti, enda kunni hún útlensku.
Á unglingsárum mínum bjó ég
hjá Svönu meðan ég stundaði nám
og íþróttir af miklu kappi. Þar tók
ég út gelgjuskeiðið margfræga
með öllum þeim hamagangi sem
því vill oft fylgja.
Frænka reyndist mér þá, eins
og alltaf, ákaflega vel. Hún saum-
aði til dæmis allan minn fatnað
af miklu listfengi. Fylgdist svo vel
með tískunni, að ég unglingurinn
gekk hnarreist og stolt í fötunum
þeim. Oft gustaði hressilega í sam-
búðinni, enda báðar skapmiklar.
Þessi ár voru skemmtileg og lær-
dómsrík. Sérstaklega minnist ég
ferða okkar að Þingvöllum þar sem
við og Pétur Halldórsson, góður
vinur hennar til dauðadags, nutum
samverunnar og veiðiskapar.
Löngu seinna lánaði Svana
dætrum mína íbúðina sína meðan
þær voru í námi en hún bjó á
Isafírði hjá mömmu.
Svana var falleg kona og glæsi-
leg, smekkleg í klæðaburði, vel
máli farin enda vel lesin. Hún var
ljóðelsk og skrifaði fallega rithönd.
Svana lauk gagnfræðanámi frá
Reykjaskóla í Hrútafirði. Það þótti
góð menntun meðal kvenna í þá
daga. Síðan starfaði hún sem skrif-
ari hjá Halldóri Júlíussyni, sýslu-
manni Strandamanna. Fékk hún
góð meðmæli frá honum.
Árið 1942 hóf hún störf hjá
Hjúkrunarfélaginu Líkn í Reykja-
vík og þegar Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur tók yfir þá starfsemi
1956 flutti Svana sig þangað. Hún
vann öll sín verk af stakri prýði
enda sérstaklega samviskusöm
með alla hluti.
Svana hafði mikinn áhuga á
pólitík og fylgdist vel með þjóðmál-
um almennt. Ég minnist ákafa
hennar, stolti og gleði þegar henn-
ar menn, Kristján Eldjám, Vigdís
Finnbogadóttir og nú síðast Ólafur
Ragnar Grímsson urðu forsetar.
Svana frænka bjó yfir sérstæð-
um og skemmtilegum persónuleika
og hún elskaði ketti. Hún var glöð
í góðum vinahópi og blikaði þá vín
á glösum.
Hún hefur alltaf reynst okkur
systkinunum og bömum okkar sér-
staklega vel.
Elsku mamma mín, ég bið guð
að styrkja þig nú þegar þú hefur
misst hana systur þína. Hún hefur
fengið líkn og hvfld.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Guðfinna Margrét
Óskarsdóttir.
Svanlaug Daníelsdóttir er geng-
in. Hún lést rúmlega áttræð á
sjúkrastofu Hrafnistu í Reykjavík.
Við, sambýlisfólk Svanlaugar á
Rjúpnahæð 1 í Garðabæ, viljum
þakka henni sambúðina á áranum
1992-6. Þá bjuggu þau saman,
Svanlaug, Amar systursonur
hennar, konan hans Anna Magnea,
börnin Sara og Nína og Öskar
frændi og kisan Snúlla.
Svanlaug reyndist okkur öllum
vel. Að hefja sambúð með svo
mörgu fólki á gamalsaldri eru við-
brigði.
Sara er leið yfir því að Svana
frænka er dáin. Hún bankaði oft
uppá hjá Svönu og fékk að fara í
heimsókn í stofuna hennar. Þá gaf
Svana henni súkkulaðibita. Þegar
Nína fór að labba fylgdi hún á
eftir Söra og með tímanum fór hún
að geta bankað upp á sjálf. „Bless,
Svana mín,“ sagði Nína síðast þeg-
ar hún kvaddi Svönu á sjúkradeild-
inni á Hrafnistu. Óskar minnist
hennar fyrir góðmennsku hennar.
Hann fékk aldrei að dusta mott-
urnar hennar nema því fylgdi smá-
aur í lófann. Snúlla kisa hændist
mjög að Svönu og var hennar besta
vinkona. Henni fannst gott að sofa
í kjöltu Svönu. Hún mjálmaði mik-
ið fýrir framan dyrnar, ef þær
voru lokaðar inn til hennar, þangað
til að opnað var fyrir henni. Og
Svana gaf lífi Önnu og Arnars
nýja vídd og ómetanlega reynslu
af kynnum sínum við heiðarlega
og húmoríska manneskju. Við
þökkum.
Sambýlisfólkið á
Rjúpnahæð 1.
Ef vér lifum, lifum vér drottni,
og ef vér deyjum, deyjum vér
Drottni. Hvort sem vér þess vegna
lifum eða deyjum, þá erum vér
Drottins. (Róm. 14,8)
Okkur langar með örfáum orð-
um að minnast frænku og vinkonu
okkar Svanlaugar Daníelsdóttur
eða Svönu eins og við kölluðum
hana alltaf. Það er margs að minn-
ast frá liðnum árum, mörg matar-
boð, við hjá Svönu eða hún hjá
okkur, bfltúrar í Borgarfjörðinn nú
í sumar þegar við voram að skoða
lóð handa okkur undir sumarbú-
staðinn, þar hafði hún ýmislegt til
málanna að leggja enda vel að sér^
þegar kom að landinu okkar og
íslenskri náttúra eins og í svo
mörgu öðra. Það var greinilegt
öllum sem kynntust Svönu að þar
fór vel menntuð og gáfuð kona.
Fyrir nokkram áram dvöldum við
ásamt Ole Nordman syni okkar
með Svönu frænku í sumarbústað
austur í sveit í viku tíma eða svo,
fóram við víða um sveitina og kom
þá í ljós hversu stórkostlegan far-
arstjóra við höfðum því ekki var
það íjall, hóll eða þúfa sem Svana. •
kunni ekki skil á. Það var gaman ,
að tala við Svönu frænku og þá
sérstaklega þegar kom að.pólitík,
því þar hafði hún skoðanir á flestu.
Það var mikill hamingjudagur hjá
Svönu þegar þjóðin kaus Ólaf
Ragnar Grímsson forseta íslands
þá var Svana aldeilis glöð með val
þjóðarinnar. Svana hélt uppá 80
ára afmælið nú í vor við ágæta
heilsu. Þá var hún búsett á
Rjúpnahæðinni hjá Önnu og Arn-
ari, en þar byggðu þau stórt og
fallegt hús öll saman fyrir nokkr-
um árum. Það var svo nú í sumar
sem þrek Svönu minnkaði og
ákvað hún því sjálf að flytja á
Hrafnistu í Reykjavík, þar var hún*
ánægð og þar leið henni vel. Hún
hældi starfsfólki Hrafnistu mikið
fyrir góða þjónustu og umönnun.
Færam við þeim okkar bestu
þakkir fyrir.
Það er gamlársdagur núna þeg-
ar við skrifum þessi kveðjuorð en
einmitt á síðasta gamlárskvöld var
Svana hér hjá okkur og Magga
frænka líka. Áttum við þar góða
kvöldstund saman eins og svo oft
áður og eftir. Elsku Svana, við
þökkum þér allt.
Mamma, amma, við sendum þér
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Margs er að rainnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Bryiyólfur Óskarsson,
Selma Olsen og börn.
I
Byggingaplatan
sem allir hafa beðið efrir
byggingaplatan er fyrir
veggi, loft og gölf
WSaXS'byggingaplatan er eldþolin
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VÆBfiXS byggingaplatan er hægt
að nota úti sem inni
’ÍOTSÍsXSs byggingaplatan
er umhverfisvæn
^fflðSXS byggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
ÞÞ
&co
Leitið frekari upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON &CO
ÁRMÚLA 29 • S: 553 8640 & 568 6KX? 'r