Morgunblaðið - 03.01.1997, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
SVEINN VIGFÚSSON,
Skíðabraut 13,
Dalvík,
sem lést 30. desember sl., verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 4. janúar kl. 13.30.
Þórdis Rögnvaldsdóttir,
Ingvi Eiríksson, Sigrún Þorsteinsdóttir,
Vignir Sveinsson, Valdís Gunnlaugsdóttir,
Soffia Sveinsdóttir, Stefán Jakobsson,
Ragna Sveinsdóttir, Heiðar Ólason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
lúðvIk thorberg
ÞORGEIRSSON,
Hæðargarði 35,
sem lést 27. desember sl., verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
3. janúar kl. 10.30.
Guðríður Halldórsdóttir.
Halldór Geir Lúðvíksson,
Birgir Lúðvíksson, Helga Brynjólfsdóttir,
Þorgeir Lúðvíksson, Valdís Gróa Geirarðsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
LÁRUS KJARTANSSON
bóndi,
Austurey I,
. Laugardal,
sem lést á heimili sínu þann 22. desem-
ber, verður jarðsunginn frá Selfoss-
kirkju laugardaginn 4. janúar kl. 13.30.
Jarðsett að Laugarvatni.
Sætaferð frá B.S.i. kl. 12.00.
Hermannía Sigurrós Hansdóttir,
Kjartan Lárusson, Auður Waage,
Ragnar Matthías Lárusson, Fríða Björk Hjartardóttir,
Margrét Sigurrós Lárusdóttir, Karl Eiriksson,
Hanna Lárusdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson,
Kristin Jóhanna Andersdóttir, Ástgeir Arnar Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÞÓRÓLFURBECK
SVEINBJARNARSON
húsgagnasmiður,
er lést á Landspítalanum 22. desem-
ber, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju í dag, föstudaginn 3. janúar,
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Fríða Guðrún Árnadóttir,
Árni Þórólfsson, Guðbjörg Elín Danfelsdóttir,
Arna Björk Árnadóttir,
Danfel Bjartmar Sigurðsson.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir og og systir,
BJARNEY GUÐRÚN
SIGURJÓNSDÓTTIR,
Bakkahlíð 3,
Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri föstudaginn 27. desember,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 6. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Norðurlandi eystra eða Krabba-
meinsfélag Akureyar.
Birgir Arason,
Sigurjón G. Sveinsson, Arney Ingólfsdóttir,
Nanna Bára Birgisdóttir,
Dagný Birgisdóttir,
Anna Valdimarsdóttir,
Þröstur Magnússon,
ívar Sigurjónsson,
Stefán Slgurjónsson.
AGUSTJONSSON
+ Ágiist Jónsson, fyrrverandi
skipstjóri, fæddist í Reykja-
vík 2. ág-úst 1926. Hann Iést á
Landspítalanum 26. desember
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Seltjarnarneskirkju 2.
janúar.
Ágúst Jónsson skipstjóri er lát-
inn eftir langvarandi veikindi og
erfiða sjúkdómslegu nú í lokin. Ég
kynntist Ágústi fyrir tæpum 30
árum, eftir að hafa kynnst og síðan
kvænst mágkonu hans. Mikil og
sterk vinátta tókst strax með okk-
ur enda var Ágúst sérlega heii-
steyptur maður. Ekki dró það held-
ur úr að innan fjölskyldu þeirrar,
sem við höfðum báðir kvænst inn
í, eru fjölskyldubönd sérlega sterk
og samheldni mikil. Reyndar höfðu
fjölskyldur okkar þekkst áður, en
móðursystir Ágústs og móðir mín
voru æskuvinkonur. Börnin okkar
voru tíðir gestir á heimili Ágústs
og Margrétar og litu á þau nánast
eins og afa og ömmu. Þar voru þau
í pössun þegar þau voru lítil og
þegar þau stækkuðu komu ferðir
I sumarbústað, veiðiferðir og um-
hyggja sem fylgdi þeim nánast
hvert spor og meðan Ágúst var á
sjónum var heimkomanna beðið
með eftirvæntingu. Fátt var meira
spennandi en að taka á móti skip-
inu þegar það kom.
Þegar ég kynntist Gústa var
hann 1. stýrimaður og síðar skip-
stjóri hjá Eimskipafélagi íslands.
Hann var samviskusamur og far-
sæll í því starfi, og víst er að eng-
inn var svikinn af störfum hans
þar, hvorki Eimskipafélagið né
skipsfélagarnir. Ágúst var trúaður
maður og trúrækinn og hann var
trúr í öllum samskiptum sínum við
samferðamenn sína. Samvisku-
semin og skylduræknin voru ein-
mitt ein helstu persónueinkenni
Ágústs. Hann var traustur skip-
stjórnandi og þótt skipstjórnendur
nútímans hafi fullkomin siglingar-
tæki sér til aðstoðar auk himin-
tunglanna, þá er það víst að sterk
trú og drengskaparlund áttu þar
sinn hlut að máli. Ágúst hélt áfram
störfum á skrifstofu Eimskipafé-
lagsins eftir að heilsan bilaði og
átti þar marga trausta vini.
Ágúst var félagslyndur maður,
hann var félagi í Víkingi, starfaði
í Kiwanisklúbbi Ness og í Odd-
fellowhreyfingunni, Landssam-
bandi hjartasjúklinga auk ýmissa
annarra félaga, og vissulega mætti
telja Eimskipafélagið þar með, því
það félag var honum meira en bara
vinnuveitandi. Við störfuðum um
tíma saman í sóknarnefnd Seltjarn-
arneskirkju og var hann þá for-
maður þeirrar nefndar er annaðist
kyrrðarstundirnar, og sóttu þau
hjónin þær reglulega, einnig eftir
að hann lét af störfum í sóknar-
nefndinni, allt til hins síðasta. Fyr-
ir um 19 árum bilaði heilsan. Hann
hafði veikst er hann var með skip
sitt í Rúmeníu og varð fljótt ljóst
að hér var engin umgangspest á
ferðinni. Hann þurfti að gangast
undir hjartaaðgerð, og þótt aðgerð-
in tækist vel náði Ágúst aldrei fullri
heilsu aftur. Einstakur dugnaður
og umhyggja Margrétar eiginkonu
Ágústs ásamt óbilandi trú þeirra
beggja hefur þó án vafa veitt hon-
um betri heilsu en annars hefði
verið. Við eftirlifandi vinir hans
minnumst hans fyrst og fremst
sem góðs drengs, því hann hafði
ekki aðeins trú, hann hafði einnig
kærleika. Eftirlifandi eiginkonu,
börnum, tengdabörnum og barna-
börnum votta ég einlæga samúð.
Guðmundur Einarsson.
Kveðja frá bekkjar-
systkinum úr MR
Það var glaðvær og samstilltur
hópur ungmenna sem lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
KRISTJÁN SIGURÐSSON
frá Bergi,
Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju
laugardaginn 4. janúar kl. 14.00.
Sigurður Kristjánsson, Þorgerður Halldórsdóttir,
Björg Kristjánsdóttir, Ólafur Jónsson,
Ólafia Kristjánsdóttir, Helgi Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR INGIMUNDARSON
fyrrverandi alþingismaður,
bæjarfógeti og sýsiumaður,
Miðleiti 7,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 7. janúar
kl. 13.30.
Valdfs Einarsdóttir,
Ingimundur Einarsson, Guðrún H. Ragnarsdóttir,
Ingveldur Einarsdóttir, Ársæll Friðriksson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HANNA STELLA
SIGURÐARDÓTTIR,
Suðurgötu 22,
Siglufirði,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 4. janúar kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Krabbameinsfélagið.
Kristinn Georgsson.
Inga Sjöfn Kristinsdóttir, Oddur Magnússon,
Fríða Birna Kristinsdóttir, Jón Gunnar Jónsson,
Georg Páll Kristinsson, Lfney Hrafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Reykjavík í júní 1947. Áfanga var
náð að loknu ströngu námi sem
jafnframt hafði verið blandað góðri
skemmtan og leik með vinum.
Hugur Ágústs stóð til náms í
læknisfræði og innritaðist hann í
læknadeild Háskóla íslands haust-
ið 1947. En örlög hans áttu eftir
að verða önnur en að verða læknir
eins og faðir hans hafði verið.
Veturinn 1947-8 kom mikil og
óvænt síldarganga inn á Faxaflóa
og fyllti öll sund fyrir utan Reykja-
vik svo og Hvalfjörð af vaðandi
síld, sem veidd var grimmt. Síldina
þurfti að flytja norður til Siglu-
fjarðar til bræðslu og voru fengin
öll tiltæk flutningaskip til þeirra
hluta. Þar á meðal var gamli Sel-
foss Eimskipafélagsins. I jólafríinu
1947 fékk Ágúst pláss á Selfossi
sem háseti til að vinna sér inn
nokkurt skotsilfur. Þar með voru
örlög hans ráðin því segja má að
hann hafi varla farið í land aftur
nema til að ljúka prófi frá Stýri-
mannaskólanum 1952. Vann hann
hjá Eimskipafélagi íslands alla sína
starfsævi, fyrst sem háseti en
seinna sem stýrimaður og farsæll
skipstjóri. Árið 1978 hætti hann
störfum á sjónum vegna heilsu-
brests en starfaði áfram á skrif-
stofu Eimskipafélagsins við léttari
störf.
Ágústs verður ávallt minnst af
bekkjarsystkinunum sem hins
glaðværa og hressa félaga er lét
sig aldrei vanta á samkomur ár-
gangsins væri hann á annað borð
á landinu. Lagði hann ávallt sitt
af mörkum til að gera stemmning-
una góða og glaðværa. Blessuð sé
minning hans.
Eftirlifandi eiginkonu hans og
börnum sendum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Stúdentar frá MR1947.
Ágúst Jónsson bjó í tæpa þrjá ára-
tugi á Seltjarnarnesi. Hann var
einn af þeim glaðlyndu, góðu
mönnum sem settu svip á samfé-
lagið á nesinu. Ágúst fylgdist vel
með þjóðmálum. Alloft hitti ég
hann þar sem hann var að sækja
hana Margréti sína á bæjarskrif-
stofuna. Þá spjölluðum við iðulega
um hvað bæri hæst á vettvangi
þjóðlífsins. Ágúst var mjög félags-
lyndur maður. Hann starfaði á
skrifstofu framsóknarmanna á Sel-
tjarnarnesi, bæði í tengslum við
sveitarstjórnarkosningar sem og
alþingiskosningar. Þar vann hann
við hlið Guðmundar Einarssonar,
mágs síns, sem hefur verið einn
af forystumönnum framsóknar-
rnanna á Seltjarnarnesi í áraraðir.
Ágúst var jákvæður og uppbyggi-
legur í öllu sínu starfi. Það fylgdi
honum góður andi og því var gott
að vinna með honum. Ágúst átti
því láni að fagna að vera hluti af
samheldinni stórfjölskyldu. Mar-
grét Sigurðardóttir, kona hans,
systur hennar ásamt mökum og
börnum voru samheldinn hópur
sem ég he_f fylgst með og þekkt
um árabil. Ég votta Margréti, börn-
um Ágústs, barnabörnum og öðr-
um aðstandendum mína innileg-
ustu samúð. Blessuð sé minning
Ágústs Jónssonar.
Siv Friðleifsdóttir.
Kveðja frá Knattspyrnu-
félaginu Víkingi
Ágúst Jónsson, eða „skipstjór-
inn“ eins og vitnað var til Ágústs
í daglegri umræðu meðal fjölda
Víkinga, æfði íþróttir og keppti
undir merki Víkings á sínum yngri
árum og var alla .tíð dyggur stuðn-
ingsmaður Víkings bæði í orði og
verki. Sem dæmi má nefna að um
árabil var Ágúst ómetanlegur við
sölu getraunaseðla fyrir félagið.
Víkingar minnast Ágústs sem
hins glaða og prúða og einlæga
Víkings og drengskaparmanns.
Víkingur kveður Ágúst Jónsson
með þakklæti og virðingu og vottar
eiginkonu hans og fjölskyldu dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning Ágústs Jóns-
sonar.