Morgunblaðið - 07.02.1997, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
h
FRÉTTIR
Allir yngri nemendur Miðskólans voru sendir heim í gær og sagt að skólinn væri lokaður
Listrænn
Vetur
Morgunblaðið/Rax
VETUR konungur sýndi lands-
mönnum hversu hann er megn-
ugur í vikunni. Fannfergi er mik-
ið af þeim sökum og fyrir vikið
breyttist floti nýrra bifreiða, sem
bíður eigenda, í mjúklega dregn-
ar höggmyndir úr snjó.
Hótað líf-
láti fyrir
50 krónur
UNGLINGSPILTUR hótaði tíu
ára gömlum dreng lífláti í gær
léti hann ekki af hendi fimmtíu
krónur fyrir fargjaldi í strætis-
vagn, auk þess að ógna honum
með beittum lykli.
Drengurinn var á heimili sínu
í raðhúsi í Kringlunni í Reykja-
vík, ásamt vini sínum. Þeim
tókst ekki að loka dyrum út í
garð vegna snjóþyngsla og þeg-
ar drengurinn steig út fyrir
mætti hann unglingspilti.
Beitti ofbeldi og hótunum
„Hann spurði hvort mamma
og pabbi væru heima og ég
sagði nei. Þá spurði hann hvort
ég gæti lánað honum pening
og ég svaraði að ég ætti engan
pening. Hann hélt samt áfram
að ganga og ýtti á mig þannig
að ég varð að bakka afturábak
inn í húsið. Ég fór inn í eldhús
og þá rak hann hnéð i magann
á mér, reif í hnakkann og ýtti
mér niður. Síðan tók hann eitt-
hvað upp úr vasanum, sem ég
held að hafí verið lyklakippa.
Einn lykillinn var lengri og
virtist vera beittari en hinir og
hann sagði að þetta væri beitt-
asti lykillinn sem hann ætti,
setti hann að hálsinum á mér
og sagðist ætla að skera mig á
háls ef ég léti hann ekki fá 50
krónur fyrir strætó upp í Breið-
holt. Ég hljóp upp stigann og
hann ætlaði að elta mig, en vin-
ur minn bannaði honum að fara
upp og þá stoppaði hann og
beið í miðjum stiganum," segir
sá sem fyrir árásinni varð.
Drengurinn fann peninga
sem sá eldri tók við og hvarf.
Drengurinn kveðst hafa verið
mjög hræddur meðan þetta
gerðist og að því loknu brast
hann í grát og hringdi í for-
eldra sína. Faðir hans kom fljót-
lega og Ieituðu þeir að pilti.
Málið hefur verið kært til lög-
reglu.
Ríkið sýknað af kröfu
yfirlögregluþj óns
Nýtt deíliskipulag
miðbæjar Kópavogs
Oánægja
með bens-
ínstöð
ÍBÚASAMTÖK vesturbæjar Kópa-
vogs stóðu fyrir opnum fundi f Gerð-
arsafni í gærkvöldi þar sem nýtt
deiliskipulag fyrir miðbæ Kópavogs
vestan gjár var kynnt. Að sögn
Hjálmars Eysteinssonar, formanns
samtakanna, mættu hönnuðir og
skipuleggjendur svæðisins á fundinn
og höfðu þar framsögu.
Hjálmar sagði að fundinum lokn-
um að almennt hefðu fundarmenn
verið sáttir við að á svæðinu yrði
miðstöð menningar og lista með til-
heyrandi lystigarði, en óánægja
væri hins vegar með fyrirhugaða
bensínstöð á gjárbarminum sem
styngi í stúf við miðbæjarkjamann
og ætti ekki heima á þessum stað.
Tillaga um ályktun þar að lútandi
var borin upp á fundinum en hún
var dregin til baka.
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær
ríkissjóð af bótakröfum Gunnars
Guðmundssonar, fyrrum yfirlög-
regluþjóns á Siglufírði, en hann
taldi að dómsmálaráðherra hefði
vikið sér úr starfí með ólögmætum
hætti og krafðist hann 12,9 millj-
óna króna í skaðabætur. Héraðs-
dómur Reykjavíkur hafði áður
sýknað ríkissjóð af bótakröfum
Gunnars.
Gunnar var leystur frá störfum
í maí 1993 þegar fram fór rann-
sókn á innflutningi og tollaf-
greiðslu á vegum embættis sýslu-
mannsins á Siglufirði. Höfðað var
sakamál á hendur Gunnari og þá-
verandi sýslumanni vegna ýmissa
atriða sem lutu að innflutningi og
tollafgreiðslu og meðferð og eyð-
ingu áfengis sem haldlagt hafði
verið á vegum embættisins.
Gunnar var sýknaður í Hæsta-
rétti í nóvember 1994 af öllum
kröfum í sakamálinu en sýslumað-
ur var sakfelldur.
Bótakröfur hans byggðust á því
að í bréfi því, þar sem dómsmála-
ráðherra vék honum frá störfum,
hafí verið tilgreindar þær brott-
vikningarástæður að Gunnar hafí
í tvö tilgreind skipti gerst sekur
um refsivert athæfí í starfí. Ríkis-
saksóknari ákærði hann vegna
þeirra atriða sem tíunduð voru í
bréfí ráðuneytisins en hvorki hér-
aðsdómur né Hæstiréttur féllust á
að sekt Gunnars væri sönnuð og
sýknuðu hann af öllum kröfum.
Vegna sýknunar væru forsendur
brottvikningarinnar fallnar.
Forsendur óhaggaðar
í dómi Hæstaréttar segir að svo
verði að líta á að tilgreind atvik í
bréfí dómsmálaráðherra hafi verið
talin bera vott um atferli sem
ósamrýmanlegt væri því ábyrgðar-
starfi er Gunnar hafði á hendi.
Samkvæmt mati dómenda í héraði
stæðu þær forsendur lausnarinnar
óhaggaðar þótt fyrir liggi að Gunn-
ar sé sýkn af þeim sökum sem á
hann voru bomar í hinu opinbera
máli pg fellst Hæstiréttur á það
mat. í dómsorði Hæstaréttar segir
að hinn áfrýjaði dómur eigi að
vera óraskaður og að Gunnar skuli
greiða ísleirska ríkinu 120 þúsund
krónur í málskostnað fyrir Hæsta-
rétti.
Mál þetta dæmdu hæstaréttar-
dómaramir Haraldur Henrysson,
Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur
Torfason, Hrafn Bragason og Pét-
ur Kr. Hafstein. Hjörtur skilaði
sératkvæði þar sem fram kemur
að hann sé sammála öðrum dóm-
endum Hæstaréttar um annað en
málskostnað fyrir réttinum sem
hann telur að eigi að falla niður.
i
>
í
fi
I
i
í
I
8
I
\
6
i
i
Launagreiðslur til
kennara dregist
ALLIR yngri nemendur Miðskóla,
rúmlega tugur, voru sendir heim í
gær og þeim sagt að skólinn væri
lokaður. Bragi Jósepsson, forstöðu-
maður skólans, sem er sjálfseignar-
stofnun, segir að nemendunum hafí
verið veitt dagsleyfí vegna þess að
kennarar þeirra hafí setið fundi með
aðilum utan skóla.
„Fyrir tilviljun rakst ég á kennara
niðri í bæ og skildist að þeir hefðu
staðið í einhveijum fundahöldum,
en í sambandi við hvað er mér ekki
kunnugt um,“ segir Bragi.
Að sögn Viðars Hreinssonar, rit-
ara stjómar skólans, sendu kennarar
nemendur hins vegar heim vegna
þess að þeir hafi ekki fengið greidd
full laun fyrir janúarmánuð.
Hafa hætt vegna óánægju
Þorkell Steinar Ellertsson, for-
maður stjórnar, segir að greiðsla frá
Reykjavíkurborg, sem ætluð er til
að greiða laun kennara, hafi dregist
um rúma tíu daga, sem hafí valdið
töfum á launagreiðslum. Ástæðan
fyrir því að kennarar kenndu ekki í
gær hafi verið ófærð og veðurútlit.
Alls eru 25 nemendur í skólanum
að sögn Braga og hefur þeim fækk-
að um fímm frá seinustu önn. „Um
áramót hættu nokkrir nemendur
vegna óánægju foreldra með ástand-
ið, meira að segja foreldra sem sitja
í stjóm skólans. Þeim leist ekkert á
blikuna og fannst allt vera komið í
rúst. Ég tel þó að kennsla bama
hafi ekki raskast svo mjög að ástæða
sé til að vera með harmakvein," seg-
ir hann.
Miðskólinn er að verða 5 ára gam-
all og hefur fengið framlag frá
Reykjavíkurborg sem ásamt skóla-
gjöldum hefur runnið til launa-
greiðslna, húsaleigu og annarra
rekstrarþátta. Borgin sagði skólan-
um upp húsnæði í Miðbæjarskóla í
fyrra og það tók fram á sumar að
fínna nýtt húsnæði, með þeim afleið-
ingum að ekki var hægt að auglýsa
skólastarfið og kennarar hættu en
aðrir ráðnjr í þeirra stað.
Lovísa Árnadóttir, sem á tvö börn
í skólanum, segir að ástandið sé
mjög slæmt og hafí bitnað á nem-
endum í vetur.
„Þetta hefur komið óskaplega illa
við böm og foreldra, ekki síst vegna
óvissunnar sem hefur skapast. Börn-
in vita að kennarar fá ekki launin
sín og óvíst er að skólinn starfí til
vors. Mörg þessara bama eru þama
því að þeim var ekki vært í hverfa-
skólum, sökum eineltis og annarra
þátta, og nú heyra þau að verið
geti að þau fari aftur í hverfaskól-
ana sem veldur þeim vanlíðan. Borg-
in lofaði svörum upp úr áramótum,
en málin hafa ekkert skýrst og
skólastarfíð hefur litast af öllu þessu
máli,“ segir Lovísa.
Þorkell Steinar segir að í það
stefni að skólinn verði að hætta
formlega og strax eftir áramót hafi
nefnd á vegum skólans hafið viðræð-
ur við Reykjavíkurborg um að yfir-
taka skólann. „Einhveijir embættis-
menn eða aðrir í borgarkerfinu hafa
reynt með tilteknum ráðum að tefja
þetta mál, þannig að við höfum beð-
ið núna á þriðju viku eftir að fá við-
brögð frá borginni um með hvaða
hætti hún taki á málum. Á meðan
er skólastarfið að hluta til í upp- ,
námi,“ segir Þorkell.
Bragi segir að borgin hafi gefið |
ákveðið fyrirheit um að skólinn verði |
starfræktur áfram á sama stað með *
sömu kennurum út þetta skólaár.
„Við höfðum vonað að breyting-
arnar gætu gengið um garð fyrir
1. febrúar, en það tókst ekki,“ segir
hann. Ekki verður kennsla í skólan-
um í dag, að sögn Braga, sökum
viðtala við foreldra. Hann á hins
vegar von á að kennsla verði með .
eðlilegum hætti á mánudag.
Munu tryggja skólavist
Gerður Óskarsdóttir, fræðslu- '
stjóri, segir að á þessu ári hafí skól-
inn fengið reglulegan rekstrarstyrk,
auk þess sem í haust hafí hann feng-
ið upphæð vegna húsnæðis og leigu.
„Vegna skuldasöfnunar hefur
skólinn staðið í viðræðum við
ykjavíkurborg, en það stendur
ci til að borgin greiði þær skuldir
n skólinn hefur stofnað til. Gefist
ilinn hins vegar upp vegna þess
fjármáiin eru í ólestri myndi borg-
:ryggja nemendum skólans skóla-
t,“ segir hún.