Morgunblaðið - 07.02.1997, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Lúðra-
sveit
IRáð-
húsinu
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur heldur
tónleika í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur laugardaginn 8. febr-
úar.
Stjómandi sveitarinnar er Jó-
hann Ingólfsson tóniistarkennari,
sem stjórnað hefur síðastliðna tvo
vetur. Lúðrasveit Reykjavíkur var
stofnuð 1922 og er því elsta starf-
andi lúðrasveit á landinu.
í tilefni 75 ára afmælis sveitar-
innar í ár ætlar lúðrasveitin að
halda afmælistónleika þann 12.
apríl í Ráðhúsinu.
Valkyrjan
í Norræna
húsinu
RICHARD Wagner félagið á ís-
iandi mun á sunnudag 9. febrúar
kl. 15 halda áfram sýningum á
Niflungahring Richards Wagner í
Norræna húsinu.
Á sunnudaginn kemur er röðin
komin að Valkyijunni, sem tekur
um fjóra tíma í flutningi. Uppfærsl-
an sem sýnd verður gekk í Bayre-
uth á árunum 1988-1992. í helstu
hlutverkum í Valkyijunni eru John
Tomlinson, Poul Elming, Matthias
Hölle, Nadine Seeunde og Anne
Evans.
Aðgangur að sýningunum er
ókeypis.
Undir pari
Síðasta sýning-
arhelgi Renne
Langhorst
UM helgina er síðasta helgi á
sýningu Renne Langhorst í sýn-
ingaraðstöðunni Undir pari,
Smiðjustíg 3, og næstu helgi eða
16. og 18. febrúar verður uppá-
komuhelgi í Undir pari. Dagskrá
verður auglýst síðar.
Opið er í Undir pari fimmtu-
daga-laugardaga kl. 20-23.
Sýning á síð-
ustu verkum
Hrings lýkur
SÝNINGU sem undanfarið hefur
staðið yflr í Gallerí Fold við Rauð-
arárstíg á síðustu verkum Hrings
heitins Jóhannessonar lýkur sunnu-
daginn 9. febrúar.
Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10-18, laugardaga frá ki. 10-17
og sunnudaga frá kl. 14-17.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
SAGA Jónsdóttir, Ásdís Skúladóttir, Bryndís Petra Bragadótt-
ir og Soffía Jakobsdóttir sýna „Frátekið borð“ á Hótel Örk.
„Frátekið borð“ á
Hótel Örk
Hveragerði - Tvær sýningar á
einþáttungnum „Frátekið borð“
eftir Jónínu Leósdóttur eru fyrir-
hugaðar á Hótel Örk, Hveragerði..
„Frátekið borð“ er örlagaflétta
um tvær miðaldra konur sem seij-
ast við sama borð á veitingastað.
Konumar þekkjast ekki en í ljós
kemur að það er engin tilviljun að
einmitt þær tvær sitja við þetta
borð. Örlögin hafa leitt þær saman,
með dyggri aðstoð veraldlegra afla,
og í sameiningu rekja þær sig áfram
þar til sannleikurinn kemur í ljós.
Leikstjóri sýningarinnar er Ásdís
Skúladóttir en með hlutverkin fara
Bryndís Petra Bragadóttir, Saga
Jónsdóttir og Soffía Jakobsdóttir.
Leikþátturinn er upprunninn úr
höfundasmiðju Leikfélags Reykja-
víkur o g var sýndur á Leynibarnum
í Borgarleikhúsinu við góðar undir-
tektir. Ennfremur hefur sýningin
verið sett upp á Akureyri og Sauð-
árkróki og hvarvetna hlotið góðar
mótttökur.
Fyrri sýningin á Örkinni verður
sunnudaginn 9. febrúar, en sú
seinni miðvikudaginn 12. febrúar.
Báðar sýningamar munu hefjast
klukkan 21. Innifalið í miðaverði
er kaffl og veitingar.
Málþing
„Staða rann-
sókna á sviði
átjándu aldar
fræða“
FÉLAG um átjándu aldar fræði
heldur málþing sem ber yfirskrift-
ina „Staða rannsókna á sviði átj-
ándu aldar fræða“ laugardaginn
8. febrúar í Þjóðarbókhlöðu, fyrir-
lestrarsal á 2. hæð. Málþingið hefst
kl. 13 og því lýkur um kl. 16.30.
Á málþinginu verða flutt fímm
stutt erindi um stöðu rannsókna í
einstökum fræðigreinum á sviði átj-
ándu aldar fræða. Erindi og flytj-
endur eru sem hér segir; Guðmund-
ur Hálfdánarson, dósent í sagnfræði
við Háskóla íslands flytur erindi um
sagnfræði. Vésteinn Olason prófess-
or í íslenskum bókmenntum við
Háskóla íslands flytur erindi um
bókmenntir. Gísli Sigurðsson sér-
fræðingur við Stofnun Áma Magn-
ússonar á Islandi flytur erindi um
þjóðfræði. Svavar Sigmundsson
dósent í íslensku fyrir erlenda stúd-
enta við Háskóla Islands flytur er-
indi um málfræði. Inga Huld Há-
konardóttir, sagnfræðingur, flytur
erindi um kvennafræði.
Að erindunum loknum verða
pallborðsumræður sem fyrirlesarar
taka þátt í og auk þeirra Gunnar
Harðarson lektor í heimspeki við
Háskóla íslands.
Veitingar verða fáanlegar í kaffl-
stofu í Þjóðarbókhlöðu, 2. hæð.
Fundarstjóri verður Sveinn Yngvi
Egilsson, bókmenntafræðingur.
Kínversk mál-
verk í Perlunni
LU Hong heldur sýningu á kín-
verskum málverkum á Kínadögum
97 í Perlunni dagana 7.-9. febrúar.
Sýningin verður opin alla helgina.
Lu Hong hóf skipulagt myndlist-
amám 1972, þá 15 ára gömul og
varð hún fyrsta konan til að ljúka
námi úr Listaháskólanum í Peking,
eftir það hóf hún störf hjá Lista-
safni Pekingborgar. Árið 1986 hélt
hún til Tókýó í Japan og lagði stund
á japönsku og japanska myndlist
um fjögurra ára skeið.
Lu Hong kom til íslands 1990.
Hér settist hún að og hefur síðan
ferðast um landið, kynnst þvi og
túlkað það sem hún hefur séð með
aðferðum hefðbundinnar kínver-
skrar landslagsmálunar og notar
hún eingöngu hefðbundin kínversk
verkfæri við vinnu sína.
Lu Hong hefur haldið og tekið
þátt í jjölda sýninga í Kína, Japan
og á Islandi.
Höggmyndir í
Gerðarsafni
HELGI Gíslason myndhöggvari
opnar sýningu á höggmyndum í
vestursal Gerðarsafns í Kópavogi
laugardaginn 8. febrúar kl. 15. A
sýningunni eru sjö höggmyndir unn-
ar í gifs og íjórar mannlýsingar úr
bronsi og gifsi. Einnig mynda þijár
stórar kolateikningar sem vísa til
fyrri verka listamannsins eins konar
ramma utan um sýninguna. Manns-
líkaminn er meginviðfangsefnið í
verkum Helga að þessu sinni.
Þetta er 14. einkasýning Helga
en hann hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum hér heima og erlend-
is. Útilistaverk eftir Helga eru víða
um land. Einnig vann hann mörg
verk í Fossvogskirkju þegar hún
var endurgerð að innan 1990. Helgi
Gíslason hefur fengið ýmsar viður-
kenningar fyrir list sína, þar á
meðal bjartsýnisverðlaun Bröstes
árið 1991.
Sýningunni lýkur 2. mars og er
opin alla daga nema mánudaga kl.
12-18.
„Milli tveggja
heima“
SÝNINGU Eiríks Smith, „Milli
tveggja heirna", lýkur sunnudaginn
9. febrúar. Verkin á sýningunni eru
frá árunum 1963-1968.
Á sýningunni eru bæði olíu- og
vatnslitamyndir, samtals 65 verk.
Listasafnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17 og er kaffi-
stofa safnsins opin á sama tíma.
Magnea
Ásmundsdóttir
Það er síminn
til þín
„Á Mokka ríkir
alltaf ró og
næði. Engin
tónlist, ekkert
stafrænt áreiti,
aðeins malið í
kaffíkvöminni,
skvaldrið í gest-
unum, skijáfið í
dagblöðunum.
Dagsetning
þeirra er það
eina sem virðist minna okkur á
nálægð nýrrar aldar enda hefur
Mokka ekki breyst frá dögum mód-
emismans. En nú hringir loksins
síminn. Listamaðurinn Magnea
Ásmundsdóttir hefur hengt upp 24
síma til að ná betra sambandi við
áhorfendur. Þetta er svar við kalli
tímans", segir í kynningu.
Gestir staðarins geta að sögn
bókstaflega rætt við verkið um hvað
sem er. Símamir hanga á veggjum
umhverfís salinn og getur fólk
hringt og rætt við gestina í síma
5619080, gestir staðarins á milli
borða og jafnvel út í bæ. Klukkan
15 á þriðjudögum, fímmtudögum
og laugardögum verða listamenn á
beinni línu inn á staðinn og taka
föstum tökum á ýmsum málum í
mynlistarlífinu. Ráðamenn í
mennta- og menningarmálum munu
sitja fyrir svörum og er umræðunni
útvarpað í sal á Mokka í gegnum
ráðstefnukerfí Pósts og síma.
Ásdís Sigur-
þórsdóttir
í Gerðarsafni
ÁSDÍS Sigur-
þórsdóttir opn-
ar myndlistar-
sýningu í vest-
ursal Lista-
safns Gerðar
Helgadóttir í
Kópavogi laug-
ardaginn 8.
febrúar kl.
15-18. Þetta er
fímmta einka-
sýning Ásdísar
og hún sýnir þar rúmlega 30 mynd-
ir sem hún hefur málað á síðasta
ári._
Ásdís hóf ferii sinn sem grafíker
og vann aðallega með silkiprent
en hefur á síðari árum fært sig
alveg^yfir í málverkið. í myndunum
sem Ásdís sýnir nú leitast hún við
að sameina málverk og skúlptúr
en hún mótar myndir sínar úr bó-
mullarpappír á tréfjalir og málar
með akrýl- og olíulitum og vaxi.
Að sögn Ásdíar leitast hún við að
ijúfa kyrrstöðu hins tvívíða flatar
málverksins með náttúrulegri áferð
og formum sem samspil ljóss og
skugga draga fram.
Asdís útskrifaðist frá grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1980. Hún stundaði framhaldsnám
í Toronto veturinn 1994-1995 og
lauk þar prófí í málun.
Ásdís hefur haldið einkasýningar
í Gallerí Langbrók 1982, Gallerí
Borg 1985, Gallerí Gangskör 1987
og í Menningar- og listamiðstöð
Hafnaríjarðar 1994.
Hún hefur tekið þátt í ýmsum
samsýningum, m.a. Ungir mynd-
listarmenn á Kjarvalsstöðum 1983,
Krakov Biennalnum í Póllandi
1984, Kirkjulistasýningu á Kjar-
valsstöðum, Listahátíð kvenna á
Kjarvalsstöðum 1986, Kaffí með
Kristi á Mokkakaffi 1994 og sam-
sýningu kvenna í Toronto 1995.
Ásdís rekur vinnustofu að Ála-
fossi í Mosfelisbæ, jafnframt
stundakennsku við Myndlistaskóla
Kópavogs.
Grænjaxlar í
Tjarnarbíói
FÚRÍA Leikfélag Kvennaskólans
frumsýnir í dag föstudag í Tjarn-
arbíó leikritið Grænjaxlar. Leikritið
var skrifað fyrir 20 árum og var á
sínum tíma sýnt um land allt í
grunn- og framhaldsskólum og svo
í Þjóðleikhúsinu.
I uppfærslu Fúríu taka um 40
manns þátt og eru allt að 30 manns
á sviðinu í einu, sem er frábrugðið
hinum eldri uppfærslum þar sem
fjórir Ieikarar léku allt leikritið í
gegn.
Tónlist og dansar eiga stóran
þátt í sýningunni og voru fengnar
stelpur úr listdansskóla íslands til
að dansa með í sýningunni.
Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttir.
Tónlistin er samin af Spilverki þjóð-
anna og var gefín út á geisladisk.
Platónskar ástir prófessora
KVTKMYNPIR
Stjörnubíó
TVÖ ANDLIT SPEGILS
(THE MIRROR HAS TWO
FACES) ★ ★ 'A
Leikstjórí Barbra Streisand. Hand-
ritshöfundar Richard LaGravenes,
hyggt á handritinu Le Miroira Deux
Faces eftir Andre Cayette og Gerard
Oury. Kvikmyndatökustjóri Andrzej
Bartkowiak. Tónlist Marvin Hand-
isch. Aðalleikendur Barbra Streis-
and, Jeff Bridges, Lauren Bacall,
Mimi Rogers, George Segal, Pierce
Brosnan, Brenda Vaccaro. 126 mín.
TriStar 19%.
ROSE (Barbra Streisand), pró-
fessor i bókmenntum við Columbia
háskólann í New York, er komin vel
yfír táningsárin og tekin að örvænta
í ástamálum. Síðasta kjaftshöggið
veitti hin undurfagra Claire (Mimi
Rogers) systir hennar. Stakk undan
henni glæsimenninu Alex (Pierce
Brosnan). Annars staðar á Manhatt-
an eyju harmar Gregory Larkin (Jeff
Bridges) örlög sín í kvennamálum.
Lætur „veikara kynið“ hafa sig að
fífli. í stuttu máli skerast leiðir þess-
ara einfara og enda með giftingu.
Larkin, langþreyttur á tilfinninga-
og ástasamböndumm vill platónskt
hjónaband, byggt á gagnkvæmri
vináttu og virðingu. Rose tekur fús-
lega undir en vill fljótlega meira og
verður dauðástfangin og hefur lík-
amsrækt og grænmetisát til að
kveikja í karlinum. Hvað skyldi
koma út úr því? Getið einu sinni.
Nýjasta myndin hennar Barbru
Streisand fjallar semsagt um gam-
alkunn vandamál í miðri lífsbarátt-
unni; ástina, einmanaleikann, hafa
aldrei notið gagnkvæmra ásta og
hitt kynið sem lokuð bók. Þetta eru
örgrunnar pælingar. Tvö andlit
spegils er léttmeti, rómantísk gam-
anmynd með kynferðislegu og mið-
aldravandamála ívafi. Þó, framar
öllu öðru, vettvangur fyrir fjöl-
skrúðuga hæfileika leikarans-
/söngvarans/framleiðandan-
s/leikstjórans. Streisand er megin-
kostur myndarinnar og -galli. Hún
geislar af hæfíleikum, er það sem
kallað er á vondri íslensku „fallega
ljót“, á enn verri „sjarmerandi".
Eigum við ekki að segja misfríð?
Hrífandi persóna með afar sterka
útgeislun og nærveru. Og ekki
skemma fyrir henni fótleggimir. Á
hinn bóginn getur hún verið lítið
annað en nefið og fötin. Þetta veit
enginn betur en Barbra sjálf og
gengur myndin mikinn hluta út á
hamskipti prófessorsins.
Gallinn er sá að við vitum það
frá upphafí að hverju stefnir. Ljóta
andarunga gervið hennar Streisand
er fjári gegnsætt. Bridges er of
myndarlegur til að reynast trúverð-
ugur. (Þarf ekki annað en að fara
í bol og gallabuxur til að verða hinn
kynþokkafyllsti). Gáfnaljós á borð
við þau prófessorana, hljóta að vita
betur. Náttúrulaust hjónaband hæf-
ir þeim ekki frekar en flestum öðr-
um. Lokakaflinn alltof langur og
væminn.
Á þessum bæ er borin mikil virð-
ing fyrir Streisand, hún er eitt
kraftmesta kvenljónið í kvikmynda-
heiminum og gerir margt gott,
gustar af henni í leik og stjórn.
Bridges er einnig í miklu uppáhaldi
og hann skilar sínum undarlega
bókmenntafræðingi með láði. En
það lýsir ekki langt ástarbálið sem
á að blossa á milli þeirra. Leikarar
í minni hlutverkum er skemmtilegur
og vel valinn hópur. Engin betri en
Lauren Bacall, sem vísast fær Ósk-
arinn á vordögum. Segal, Rogers
og Vaccaro falla laglega inn í mynd-
ina, það gerir Brosnan líka, en af
öðrum ástæðum. Vönduð mynd,
ljúf, lipur og metnaðarfull afþreying
en glassúr langhundsháttur og yfir-
borðskennd skaða hana undir lokin.
Sæbjörn Valdimarsson