Morgunblaðið - 09.02.1997, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C/D
33. TBL. 85. ÁRG.
• •
Oryggisráð-
herra í gíslingu
STJÓRN Tadjikistans greindi í gær
frá því að skæruliðar hefðu tekið ör-
yggisráðherra landsins, Saidamir
Zukhurov, í gíslingu. Þeir hafa þegar
í haldi fjóra gísla úr starfsliði flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna
og fjóra rússneska blaðamenn, sem
voru teknir fyrir rúmri viku.
Sagt var að Zukhurov hefði verið
tekinn í gíslingu síðla föstudags. Hann
var í nefnd, sem stjórnin hafði sent
til að semja við skæruliða um lausn
starfsmanna Sameinuðu þjóðanna.
Mannræningjarnir börðust eitt sinn
fyrir islömsku stjórnarandstöðuna, en
ekki er ljóst hver málstaður þeirra
er nú utan hvað þeir krefjast þess að
vopnabræður þeirra í Afganistan fái
að snúa óhindrað aftur til Tadjikistan.
Boða sólarhrings
lestaverkfall
SÓLARHRINGS lestaverkfall átti að
hefjast á Italíu klukkan átta í gær-
kvöldi og var búist við að samgöngur
í landinu myndu lamast að miklu leyti.
Starfsmenn járnbrautarlestanna
eru óánægðir með áætlanir Romanos
Prodis forsætisráðherra um að skipta
lestafyrirtæki landsins í tvennt fyrir
lok þessa árs auk þess sem tillaga um
að þeir og fjölskyldur þeirra fái ekki
lengur að ferðast endurgjaldslaust
með lestum á Ítalíu fer fyrir brjóstið
á þeim.
Segja Fergie
skuldlausa
BRESK slúðurblöð sögðu í gær að
hertogaynjan af Jórvík, Sarah Fergu-
son, eða Fergie eins og hún hefur
verið kölluð, væri nú skuldlaus og
hefði greitt 4,2 milljóna punda (um
420 milljóna króna) yfirdrátt í banka
sínum með tekjum af samningum um
auglýsingar, bókarskrifum og að
koma fram i fjölmiðlum.
„Þetta hefur ekki i för með sér að
ég geti tekið lífinu með ró,“ hafði
dagblaðið The Sun eftir hertogaynj-
unni, sem þótti koma bresku konungs-
fjölskyldunni í hin mestu vandræði
með íburðarmiklum lífsstíl og eyðslu-
semi. „Enn á ég enga peninga, þetta
hefur allt farið í yfirdráttinn.“
Hertogayiyan skildi við Andrew
prins á síðasta ári eftir 10 ára hjóna-
band og var hermt að hún hefði heit-
ið að greiða allar skuldir sínar á inn-
an við ári.
„Fjárreiður „hertogaynjunnar" eru
alfarið hennar mál,“ sagði talsmaður
Elísabetar Bretadrottningar í Buck-
ingham-höll.
SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter.
LENNOX Lewis varð í gær heimsmeistari
Heimshnefaleikasambandsins (WBC) í
þungavigt þegar dómarinn úrskurðaði að
hann hefði sigrað með tæknilegu rothöggi
vegna þess að andstæðingur hans, Oliver
McCall, hefði ekki viljað berjast.
Viðureign Lewis og McCalls var öll hin
undarlegasta. McCall virtist úti á þekju og
í fjórðu lotu reyndi hann aðeins tvisvar
að reiða til höggs og einu sinni í þeirri
fimmtu, en dómarinn stöðvaði viðureignina
Brast í grát og
hætti að berjast
þegar 55 sekúndur voru liðnar af henni.
Talið er að McCall hafi fengið tauga-
áfall og hafa íþróttayfirvöld í Nevada, þar
sem viðureignin fór fram, lýst yfir því að
Fjöldamorð fram-
ið á Nýja-Sjálandi
Wellington. Reuter.
VOPNAÐUR maður gekk berserksgang í
bænum Raurimu á Norðurey á Nýja-Sjálandi
í gær og myrti sex manns og særði fímm.
Þetta er fimmta fjöldamorðið, sem framið er
á þessum áratug á Nýja-Sjálandi.
Lögregla handtók mann, sem talinn er hafa
framið verknaðinn, skömmu síðar og hefur
hann verið ákærður. Hann fannst nakinn og
óvopnaður skammt frá staðnum þar sem
morðin voru framin. Að sögn lögreglu er hinn
grunaði 24 ára gamall og gæti verið að hann
væri skyldur einhverju fórnarlambanna. Ekki
er talið að hann sé aðkomumaður. Þyrluflug-
maður, sem flutti særða á braut, sagði að
aðkoman hefði verið „eins og á vígvelli í Víet-
nam“.
Nýja-Sjáland hefur orð á sér fyrir að vera
friðsælt og fallegt land, en atburðir undanfar-
inna ára hafa varpað skugga á þá ímynd.
Árið 1990 myrti ungur maður 13 manns í
þorpinu Aromana. Lögregla skaut hann til
bana eftir umsátur. í maí 1992 skaut og stakk
64 ára gamall bóndi sex manna fjölskyldu
sína til bana og fyrirfór sér síðan. Mánuði
síðar myrti 25 ára gamall, atvinnulaus maður
sjö ættingja sína, þar af fimm börn, í Master-
ton, kyrrlátu sveitaþorpi. 1994 voru faðir,
móðir og þijú börn þeirra myrt.
hann muni ekki fá þær þijár milljónir
dollara (rúmlega 200 milljónir króna), er
sá sem tapaði viðureigninni átti að fá í
sinn hlut, fyrr en málið hafi verið rannsak-
að.
McCall neitaði að setjast niður eftir
þriðju lotu og ráfaði um hringinn. Eftir
fjórðu lotu var hann í slíku uppnámi að
tárin runnu niður vanga hans. í lotunum
varðist hann vart og hljóp jafnvel undan
Lewis eins og sést á myndinni.
Skipskaði
við Noreg
Ósló. Reuter.
GRÍSKT flutningaskip sökk undan ströndum
suðvesturhluta Noregs í miklu óveðri í gær.
20 Pólveijar voru í áhöfn skipsins og kváð-
ust leitarmenn ekki hafa séð nein merki um
að þeir hefðu komist af.
Skipstjóri skipsins sendi neyðarkall um
klukkan sjö í gærmorgun og sagði að gat
væri á stefni og skipið væri að fyllast af
vatni. Sambandið rofnaði í miðju samtali
við stjómstöð björgunarmanna.
Skipið fórst skammt frá Stafangri og
kváðust leitarmenn aðeins hafa séð loftbólur
á yfirborði sjávar og tvo tóma björgunar-
báta. Sagt var að ölduhæðin hefði verið sex
metrar þar sem skipið fórst. Um var að
ræða 22 þúsund tonna flutningaskip, sem
var á leið frá Murmansk í Rússlandi til
Póllands með jám.
Ofbirta í augiim
Umræðan um
nasistagull tendrar
gyðingahatur
Alvegaðná
24 takmarkinu