Morgunblaðið - 27.02.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 39
ÞURIÐUR
MA GNÚSDÓTTIR
+ Þuríður Magn-
úsdóttir var
fædd að Dysjum í
Garðahreppi 26.
október 1911. Hún
lést á Sólvangi 14.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Ragnheiður Þor-
björnsdóttir, f. 13.
nóvember 1866, d.
8. desember 1949,
og Magnús Brynj-
ólfsson, f. 27. októ-
ber 1879, d. 27. jan-
úar 1969, þau
bjuggu að Dysjum, þeim var
tveggja barna auðið. Guðmann,
albróðir Þuríðar, sem er látinn,
tók við búi að Dysjum af for-
eldrum sínum. Var hann lengi
hreppsljóri i Garðahreppi og
gegndi mörgum trúnaðarstörf-
um fyrir sveitafélagið, eftirlif-
andi kona hans er Ulfhildur
Kristjánsdóttir. Auk þess átti
Ragnheiður Þorbjörnsdóttir
fjögur börn af fyrra hjóna-
bandi, þau voru Guðmundur,
Guðrún, Gísli og Steinunn Anna
Sæmundarbörn sem öll eru lát-
in. Ragnheiður missti mann
sinn Sæmund Guðmundsson 28.
desember 1905.
Þuríður gekk að eiga Sigur-
bjart Vilhjálmsson
húsasmiðameistara
27. október 1934, f.
2. nóvember 1908 í
Leiru í Garði, d. 18.
október 1990. Þeim
varð tveggja dætra
auðið, þær eru: 1)
Sigrún Ásta, f. 31.
janúar 1936, gift
Halldóri Hjartar-
syni, börn þeirra:
Þuríður Erla, gift
Kristni Andersen,
synir þeirra Hall-
dór og Geir. Sigur-
bjartur, fyrrver-
andi sambýliskona Aðalheiður
Jörgensen, börn Jjeirra Bent
Bjarni og Sigrún Asta. Jóhann,
unnusta hans Margrét Lárus-
dóttir. 2) Ragnheiður, f. 23.
september 1942, er gift Ingólfi
Halldóri Ámundasyni, börn
þeirra: Aldís, gift Birni Svein-
syni, synir þeirra Sveinn, Ragn-
ar og Helgi. Helga, gift Bjarna
G. Bjarnasyni, börn þeirra Ing-
ólfur Halldór og Anna Brá.
Eygló, gift Karli M. Karlssyni,
þau eiga einn son, Nökkva.
Ragnheiður Elisa, unnusti
hennar er Kristján Hilmarsson.
Utför Þuríðar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Þuríður lést á Sólvangi eftir
langa og erfiða sjúkdómslegu. Ég
minnist Þuru minnar, því nafni var
hún alltaf kölluð, sem einnar glæsi-
legustu konu sem maður sá, virðu-
leg, vel til fara, kurteis og hlýleg
í viðmóti. Það var ánægjulegt að
umgangast slíka persónu í rúm
fjörutíu ár. Ég held að það megi
fullyrða að aldrei hafi borið skugga
á okkar kynni. Ég kynnist þeim
hjónum Þuru og Bjarti árið 1953,
um haustið þá fékk ég vinnu í
Skipasmíðastöðinni Dröfn, lágu þá
saman leiðir okkar Sigrúnar dóttur
þeirra. Við fengum inni hjá þeim,
á Skúlaskeiði 10, okkar fyrstu bú-
skaparár, þar áttum við margar
gleðistundir. Við fórum oft saman
I ferðalög, meðal annars fórum við
saman eina ferð með ms. Gullfossi
sem þau hjón höfðu mikla ánægju
af. Þau hjón Þura og Bjartur áttu
fallegt heimili, allt fágað og hreint.
Hún var natin og smekkleg. Hann
frábær smiður enda tala verkin
hans um að svo hafi verið, svo
mörg eru hans handtök í stærstu
húsum þessa bæjar. Það var jafn-
ræði með þeim hjónum, þau gengu
saman sína lífsbraut í sátt og sam-
lyndi og studdu hvort annað meðan
bæði gengu heil til skógar.
Þura gekk í barnaskólann á
Garðaholti og var mikill metnaður
í henni að standa sig sem best.
Þuríður hafði gott minni enda vel
gefin og hennar ósk var að ganga
í æðri skóla, en það var ekki mögu-
legt á þeim tíma, því lífsbaráttan
var hörð hjá þessari kynslóð. Hún
minntist oft á þá daga þegar farið
var á vetrum og skautað á Bala-
tjörn sem var skammt frá Dysjum,
mikið var um það að börn og ungl-
ingar af næstu bæjum kæmu þar
saman. Það var mjög kært með
þeim systkinum Þuru og Manna,
hann stóð henni ávallt nærri enda
hvarf Manni ekki úr huga hennar
þótt hún væri orðin mikill sjúkling-
ur og minnið farið að bila.
Senn hefur sól gengið til viðar,
við sem enn erum þessa heims ber-
um þakklæti í bijósti fyrir þær
ógleymanlegu stundir sem við átt-
um með Þuru.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta. Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast, leiðir mig
að vötnum, þar sem ég má næðis
njóta. Hann hressir sál mína, leiðir
mig um rétta vegu fyrir sakir nafns
síns. Jafnvel þótt ég fari um dimm-
an dal, óttast ég ekkert illt, því að
þú ert hjá mér, sproti þinn og staf-
ur hugga mig. 23. Davíðssálmur.
Guð gefðu látnum ró, hinum líkn
sem lifa.
Blessuð sé minning þín, kæra
tengdamóðir.
Halldór Hjartarson.
Amma Þuríður var virðuleg og
yndisleg kona. Nú, þegar hún er
horfin okkur, verður mér hugsað
til allra þeirra góðu stunda sem ég
átti hjá henni og afa. Á Skúlaskeiði
10 var oft glatt á hjalla. Meðan afi
þandi harmonikuna eða lék á munn-
hörpuna sá amma til þess að við
barnabörnin værum vel haldin og
hlóð á borðstofuborðið öllu því bak-
kelsi sem hún vissi að væri vinsæl-
ast. Og þar leið enginn skort.
Ömmu þótti gaman að ferðast
og oft fórum við með þeim ömmu
og afa út á land í bílnum þeirra.
Að gömlum og góðum sið var jafn-
TIIIIIIIIII
Erfídrykkjur
PERLAN
Sími 562 0200
>1111111111!
an sungið við raust. Amma kunni
margar sögur af stöðunum sem bar
fyrir augu og nöfn þeirra allra
þekkti hún. Það tíðkast ekki lengur
að setjast út við vegarkantinn og
gæða sér á nesti á ferðalögum, en
þetta tilheyrði bíltúrunum með
ömmu og afa og aldrei bragðaðist
nesti jafnvel og þá.
Elsku amma, ég minnist margra
dýrmætra stunda með þér. Þú hafð-
ir mikil áhrif á mig frá barnsaldri,
vaktir athygli mína á fegurð lifsins
og hvattir mig til að læra það sem
mér þótti áhugavert og skapandi.
Þótt sjúkralega þín hafi verið lang-
vinn á ég eftir þig góðar minningar
frá bestu árum okkar saman. Þér
fylgja innilegar hinstu kveðjur frá
mér, Kristni og drengjunum okkar,
Halldóri og Geir.
Þuríður Erla Halldórsdóttir.
Mig langar með örfáum orðum
að kveðja ömmu mína, Þuríði Magn-
úsdóttur og þakka henni fyrir allar
góðu stundirnar sem við áttum sam-
an. Sérstaklega minnist ég þess
þegar ég var 11 ára og var í pöss-
un hjá ömmu og afa á Skúlaskeið-
inu á meðan foreldrar mínir fóru í
siglingu með Gullfossi. Skólanum
var rétt að ljúka og við stelpurnar
í bekknum vorum að æfa dansatriði
til að sýna á opnunarhátíð ÍSÍ í
Laugardal. Ömmu fannst alveg
ómögulegt að ég væri að þvælast
ein yfir Reykjavíkurveginn til að
komast í skólann. Því fylgdi hún
mér yfir hann sjáif og fór svo heim
aftur. Þetta fannst mér algjör óþarfi
og skildi ekkert í ömmu að vera
svona hrædd um mig. Reykjavíkur-
vegurinn var þá eins og núna ein
helsta umferðargatan í Hafnarfirði.
Því get ég nú vel skilið að hún
væri smeyk um barnið sem hún bar
ábyrgð á. Þannig var amma, stóð
ávallt vel og örugglega að því sem
hún tók sér fyrir hendur.
15 árum síðar atvikuðust örlögin
þannig að ég flutti aftur á Skúla-
skeiðið ásamt Birni eiginmanni mín-
um og Sveini, syni okkar, sem þá
var á fyrsta ári. Þá svaf Sveinn
undir sömu súðinni og ég gerði
fyrstu tvö æviárin mín. Var það
mjög notalegt sambýli við ömmu
og afa Sigurbjart.
Bið ég guð að taka vel á móti
ömmu minni. Kveð ég hana með
bæninni sem hún kenndi mér.
Vertu nú yfir og allt um kring
með eitífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jó. frá Presthólum)
Aldís Ingvarsdóttir.
Erfidrykkjur
HOTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38
Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550
Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR PÁLSSON
trésmiður,
Safamýri 36,
sem lést fimmtudaginn 20. febrúar,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
föstudaginn 28. febrúar kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
sem vildu minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélagið.
Kristm Guðlaugsdóttir,
Guðlaug Helga Pétursdóttir,
Inga Anna Pétursdóttir, Þorleifur Björgvinsson,
Pétur Þorleifsson, Jóhanna Benediktsdóttir,
Ólfna Þorleifsdóttir, Jón Páll Kristófersson,
Kristin Þorleifsdóttir,
Halldór Dagur Benediktsson,
Áróra Björk Pétursdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI ÁLFGEIRSSON,
Strandaseli 8,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum 25. febrúar.
Kristfn Kristjánsdóttir,
Kristján Gíslason, Guðrfður Gestsdóttir,
Álfgeir Gfslason,
Ragnar Gfslason, Valgerður Torfadóttir,
Steinar Gíslason, Alda Búadóttir,
Ásdís Gfsladóttir
og barnabörn.
r
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐJÓN JÓNSSON,
Aðalgötu 5,
Keflavfk,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 28. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á björgunarsveitina Suðurnes.
Solveig Ólafsdóttir,
Guðrún Ólöf Guðjónsdóttir, Þorsteinn Árnason,
Jón Ágúst Guðjónsson, Ragnheiður Guðbjörg Óskarsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Ástkær bróðir okkar og mágur,
HERMANN HERMANNSSON,
Garði,
Hellissandi,
sem lést á Sjúkrahúsi Stykkishólms
laugardaginn 22. febrúar, verður jarð-
sunginn frá Ingjaldshólskirkju laugar-
daginn 1. mars kl. 14.00.
Ferð verður frá BSI’ að morgni sama
dags kl. 8.00.
Veronika Hermannsdóttir,
Arnbjörg Hermannsdóttir,
Kristbjörg Hermannsdóttir, Guðmundur Bæringsson,
Kristfn Hermannsdóttir, Sæmundur Bæringsson,
Helga Hermannsdóttir, Sævar Friðþjófsson
og fjölskyidur þeirra.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐFINNA BJARNADÓTTIR
frá Hornafirði,
Hraunbæ 114,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
föstudaginn 28. febrúar kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent
á heimahjúkrun Krabbameinsfélags
íslands.
Garðar Sigjónsson,
Bjarni Friðrik Garðarsson, Þorgerður Steinþórsdóttir,
Páll Örvar Garðarsson,
Stefán Rúnar Garðarsson, Adda S. Arnþórsdóttir,
Steinar Garðarsson, Ólaffa I. Þorvaldsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hinnar látnu.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA KJARTANSDÓTTIR,
Reynistað,
Fáskrúðsfirði,
verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðar-
kirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 14.00.
Minningarathöfn verður f kapellunni
á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
Reykjavík, laugardaginn 8. mars kl. 14.00.
Ólafur Eyjólfsson,
Jón Alfreð Ólafsson,
Eyjólfur Ólafsson, Vilma Brazaite,
Þorbjörg Ólafsdóttir, Ingibiörn Kristinsson,
Kjartan Olafsson, Elín Ósk Óskarsdóttir,
Elfsabet Ólafsdóttir, Björn Aðalsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.