Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997 31<
MINNINGAR
JONAS
PÉTURSSON
+ Jónas Pétursson, bóndi og
fyrrverandi alþingismaður,
fæddist á Hranastöðum í Eyja-
firði 20. apríl 1910. Hann lést
í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum
hinn 18. febrúar síðastliðinn og
fór útför hans fram frá Egils-
staðakirkju 1. mars.
Leiðir okkar Jónasar hafa legið
saman með nokkrum hléum í hálfan
fimmta áratug. Fyrstu kynnin voru
þau, að eg fór í sveit til hans uppí
Skriðuklaustur ellefu ára gamall.
Við urðum samferða í gamla Ford
jeppanum frá Egilsstöðum. Hann
var að koma að norðan. Anna var
á Akureyri, þá ófrísk að yngsta
barni þeirra hjóna, syninum Pétri
Þór. Þetta var að vorlagi og vegur-
inn hálf ófær vegna aurbleytu. Ferð-
in gekk hægt en örugglega. Jónas
kom mér fyrir sjónir sem öruggur
og viljastekur maður sem vildi hafa
sitt lag á hlutunum. Sú skoðun
breyttist ekki við nánari kynni.
Næstu fjögur sumur var eg á
Skriðuklaustri. Þar var allt í föstum
skorðum, vandvirkni, reglusemi og
umhyggja fyrir mönnum og mál-
leysingjum var í fyrirrúmi. Starf-
semin á búinu var fjölþætt. Auk
hefðbundinna starfa við landbúnað
var þáttur tilraunastarfseminnar
nokkuð umfangsmikill þau ár sem
eg var á Klaustri. Starfsfólkið var
því fleira en venjulegt var á búum
af svipaðri stærð. Yfir sumarmánuð-
ina var heimilisfólkið vel á annan
tug. Anna, eiginkona Jónasar, var
verkstjórinn innanhúss og reyndist
öllu þessu fólki sem besta móðir.
Hlýlegt viðmót hennar réð bagga-
muninn, að drengur á tólfta ári, sem
var að fara að heiman í fyrsta sinn
festi yndi á staðnum. Til hennar var
hægt að leita með vandamál sem
maður vildi ekki bera á torg. Utan-
húss sá Jónas um verkstjórnina af
röggsemi og hafði vakandi auga
með að vinnubrögðin væru eins og
honum líkaði. Eg fékk þann starfa
að sjá um smalamennsku og taka
þátt í umönnun fjárins við sauðburð
og síðar var eg mikið á vélum við
jarðvinnslu og heyskap. í fyrstu
fannst mér allar kindumar eins, en
eftir að hann benti á mismunandi
einkenni í vaxtarlagi og útliti sá ég
að auðvelt var að þekkja þær.
Mér er mjög minnisstætt hvað
Jónas var umhirðusamur og ná-
kvæmur í öllum vinnubrögðum og
krafðist þess sama af öðrum. Upp-
eldisáhrifin voru ómetanleg af þess-
ari leiðsögn hans. Á þessum árum
var ég ekki alltaf sammála fóstra
mínum og fannst hann full smá-
munasamur. Einhveiju sinni þurfti
ég að taka með mér verkfæri niður
á Nes til þess að dytta að tækjum.
Eg vildi-ég ekki tefja mig á að koma
með verkfærin heim strax að notkun
lokinni, heldur láta það bíða til
kvölds. Jónas lagði hinsvegar mikið
uppúr að verkfærin væru sett strax
í verkfæraskápinn að notkun lok-
inni. Við þetta tækifæri var fóstri
JONDAL
ÞÓRARINSSON
+ Jón Dal Þórar-
insson fæddist í
Jórvík í Hjalta-
staðarþinghá 12.
nóvember 1911.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
23. febrúar síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Bú-
staðakirkju 4. mars.
Aðeins örfá orð, afi
minn, til minningar um
þig. Fyrir mér varstu
maðurinn með gull-
hjartað. Afinn sem var
heill hafsjór af visku og fróðleik,
og áttir öll þessi ógrynni af bókum
sem þú gerðir þitt besta til að kenna
mér, krakkakjánanum að meta.
Þú varst einn af þeim sem alltaf
eru ungir í anda, enda varstu bara
eins og hver annar vinur minn, þó
svo að þú værir nokkrum áratugum
eldri. Við gátum spjallað tímunum
saman um allt á milli himins og
jarðar, enda varstu einstaklega
skemmtilegur viðræðu og vel að þér
um flest alla hluti. Núna ertu farinn
yfir í annan heim og þetta er lík-
lega það síðasta sem ég skrifa frá
mér til þín? Ég er þess samt full-
viss að þér líður vel, að þú ert ein-
hvers staðar þar sem fuglarnir
syngja og sólin skín í heiði og fylg-
ist vel með okkur hinum.
Sérfræðingar
í blómaskrevtinRum
„Hafðu ekki
áhyggjur, lífið sér allt-
af um sína,“ sagðir þú
við mig í síðasta skipt-
ið sem ég hitti þig.
A.m.k. er ég örlaga-
nomunum mjög þakk-
lát fyrir að hafa fengið
að eiga þig fyrir afa,
og ég vona að ef ég
eignast bamabörn þá
takist mér að vera jafn
góð við þau og þú varst
við mig.
Takk fyrir allt.
Sigurveig.
minn óvenju ábúðarfullur og sagði
af sinni alkunnu stjórnsemi:
„Komdu með verkfærin strax að
notkun lokinni. Mundu, drengur, að
það er komið sem fyllir mælinn."
Árin á Skriðuklaustri liðu hratt.
Ég held að Jónasi hafi fundist þau
vera einn besti tími iífsins. Þar sinnti
hann störfum sem áttu hug hans
allan. Árið 1959 var Jónas kjörinn
á þing fyrir Austfirðinga og sat á
þingi allan sjöunda áratuginn. Þar
hafði hann forgöngu um mörg hags-
munamál í kjördæminu. Eg held að
fmmkvæði hans um að Ijúka hring-
veginum og að brúa Skeiðará sé
óumdeilt. Hann kom með hugmynd
um að fjármagna framkvæmdir með
happdrættisláni. Þá var hann einn
af fmmkvöðlum þess að virkjun var
byggð við Lagarfoss.
Þegar hann hætti þingmennsku
1971 störfuðum við saman við bygg-
ingu virkjunarinnar. Hann var eins-
konar staðarráðsmaður á virkjunar-
staðnum fyrir Norðurverk hf. á
Akureyri sem annaðist verklegar
framkvæmdir. Hann sá um launa-
greiðslur, rekstur mötuneytis og
fleira sem tilheyrði rekstri staðarins.
Eftir að virkjunarframkvæmdum
lauk sá hann um rekstur Verslunar-
félags Austurlands í nokkur ár.
Starfsævi Jónasar var giftudijúg og
fjölþætt. Að loknu námi í Búnað-
arskólanum á Hólum 1932 vann
hann á heimaslóðum og gerðist
hann búnaðarráðunautur í Eyja-
firði. Hingað austur á Hérað fluttti
hann 1947 og veitti forstöðu til-
raunastöðinni á Hafursá. Tveimur
ámm síðar var hún flutt að Skriðu-
klaustri, þegar Gunnar Gunnarsson
skáld gaf ríkinu jörðina. Á efri ámm
sagði Jónas einhveiju sinni, að lífs-
starfið hefði verið sinn skóli og árin
á Alþingi á við háskólanám. Mér
fannst Jónas vera maður með heil-
brigð lífsviðhorf og trausta eðlis-
greind. Hann var sjálfstæðismaður
með ríkan skilning á afli félagslegra
samtaka. Hann gerði aldrei lítið úr
sérvisku sinni enda sagði hann
gjaman að séiyiskan væri ein teg-
und af visku. Ég var svo lánsamur
að heimsækja hann á sjúkrahúsið
nokkmm dögum áður en hann dó.
Líkamlegir kraftar vom að fjara út
en lífsviljinn var óbugaður og hugs-
unin skýr. Með Jónasi Péturssyni
er fallinn frá virtur höfðingi á Hér-
aði. Hann var grandvar maður og
heiðarlegur sem vann öll sín verk
af einstakri alúð. Eg kveð Jónas
fóstra minn með söknuði og þakk-
læti. Við hjónin sendum börnum
hans og öðmm aðstandendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sveinn Þórarinsson.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
HULDU ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Miðhrauni,
Ljósheimum 11.
Sérstakar þakkir til starfsfóks á A-7
Borgarspítala.
Þórólfur Ágústsson,
Ágúst Magni Þórólfsson,
Valgerður Kristjánsdóttir
og barnabörn
Erla Þórólfsdóttir,
Rannveig Gunnlaugsdóttir,
við öll tækifæri
I ‘nblómaverkstæði
(lllNNA
.'^4-
Skólavörðustíg 12.
á horni Bergstuðastrætis,
sími 551 9090
+
Elskuleg eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ODDNÝ GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Álfaskeiði 88,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 6. mars kl. 15.00.
Gunnar Halldórsson,
Guðrún Helga Ágústsdóttir,
Magnúsfna Ágústsdóttir,
Oktavía Ágústsdóttir,
Anna María Valtýsdóttir,
Hafsteina Gunnarsdóttir,
Stefán Þ. Sigurðsson,
Kristján Gunnar Ólafsson,
Karl Kristensen,
Jón Bjarni Hermannsson,
Helgi Bentsson,
barnabörn og barnabamaböm.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
skipstjóri,
Höfðagrund 15,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstu-
daginn 7.mars kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Elfn Frímannsdóttir,
Guðrún Sigrfður Kristjánsdóttir, Friðjón Edvardsson,
Davíð Kristjánsson, Sigrún Edda Árnadóttir,
Kristján Kristjánsson, Ingibjörg Guðbrandsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
auðsýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
ÞÓRÐAR JÚLÍUSSONAR,
Krókabyggð 24,
270 Mosfellsbæ.
Karen Lövdahl,
Jóhanna Halla Þórdardóttir, Rúnar Björgvinsson,
Snorri Þórðarson, Inga Jónsdóttir,
Hildur Þórðardóttir, Ingemar Báck
og bamabörn.
+
Systir okkar og mágkona,
BJARNHEIÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
garðyrkjufræðingur
frá Skeggjastöðum í Flóa,
Reynimel 84,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. mars kl. 13.30.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Margrét Halldórsdóttir,
Guðmundur H. Halldórsson,
Gunnar Halldórsson, Sigrfður Guðjónsdóttir.
+
Ástkær fósturmóðir okkar og tengdamóðir,
ÓLAFÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hallsstöðum,
sem lést á Sólvangi föstudaginn 28. febrúar
sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 7. mars kl. 15.00.
Reynir Snædal Magnússon, Eygló Ásmundsdóttir,
Gylfi Guðjónsson, Elfa Guðmundsdóttir,
Rafn Vigfússon, Karen Gestsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ALFREÐ KRISTINSSON,
sem lést mánudaginn 24. febrúar, verður
jarðsundinn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
6. mars kl. 13.30.
Bjami Geir Aifreðsson,
Kristinn H. Alfreðsson,
Sigrfður Alfreðsdóttir
og barnabörn
Herdís Björnsdóttir,
+
Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem
auðsýndu okkur samúð við andlát og útför
móður okkar,
ELÍNAR KARÍTASAR BJARNADÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki á
deild 11E Landspítala fyrir þá elsku og um-
önnun sem henni var veitt.
Eins sendum við hjúkrunarfræðingum hjá Ka-
ritas innilegar þakkir.
Guðrún Ragnarsdóttir,
Edda Björk Bogadóttir,
Bjami Bogason,
Hrafnhildur Bogadóttir,
Jenna Kristín Bogadóttir,
Ingi Bogi Bogason.
r«