Morgunblaðið - 21.03.1997, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C
67. TBL. 85. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Átök vegna nýrrar
byggðar gyðinga
Krefjast viðræðna um
afsögn forseta Zaire
Goma. Reuter. ^
Imynd
Jeltsíns
batnar
RÚSSNESKIR embættismenn
hafa mánuðum saman reynt að
bæta ímynd Borís Jeltsíns og
sannfæra menn um að hann sé
nógu hraustur til að stjórna Rúss-
landi en þeir gátu brosað breitt
yfir myndunum sem voru teknar
á flugvellinum í Helsinki í gær.
Þar sést forseti fluttur úr flug-
vélinni í hjólastól í veitingagámi
og brosa kindarlega meðan ann-
ar fóturinn skagaði stífur fram.
Þetta var þó ekki forsetinn
með veika hjartað, heldur Bill
Clinton, sem er orðlagður skokk-
ari.
Jeltsín virtist á hinn bóginn
fóthvatur og léttur í lund þegar
hann gekk út úr spánnýrri flug-
vél sinni þremur klukkustundum
síðar. Hann brosti breitt þegar
Martti Ahtisaari, forseti Finn-
lands, tók á móti honum og stóð
berhöfðaður í hráslagakuldanum
meðan þjóðsöngvar Finnlands og
Rússlands voru leiknir.
Tónlistinni var sleppt við komu
Clintons. „Ég býst við að það sé
vegna þess að hann er í hjólastól
og það hefði ekki verið viðeig-
andi að leika þjóðsöngvana þar
sem hann getur ekki staðið upp,“
sagði embættismaður i finnska
utanríkisráðuneytinu.
Clinton var skorinn upp á
föstudag eftir að liðbönd i hné
rifnuðu þegar hann missteig sig.
„Menn sögðu að Jeltsín hinn veiki
og Clinton hinn heilbrigði myndu
koma til Helsinki en þetta reynd-
ist hafa snúist við,“ sagði Jeltsín
á mánudag.
Reuter
Fundur Jeltsíns og Bills Clintons hafinn í Helsinki
Umrót í kauphöllum
Vextimir
hækkaðir?
London. Reuter.
VERÐ hlutabréfa snarlækkaði í
kauphöllum í Evrópu og New York
og gengi dollars hækkaði í gær
eftir að Alan Greenspan, seðla-
bankastjóri Bandaríkjanna, gaf til
kynna að ákveðið yrði í næstu viku
að hækka vexti í fyrsta sinn í tvö ár.
„Ef við ákveðum að breyta pen-
ingastefnunni hefur reynslan kennt
okkur að þótt fjármálamarkaðirnir
bregðist strax við getur helstu
áhrifa á verðbólguþrýstinginn ekki
farið að gæta fyrr en seint á þessu
ári og því næsta,“ sagði Greenspan.
Hann lagði áherslu á að seðlabank-
inn yrði að bregðast skjótt við þeg-
ar teikn væru um aukna verðbólgu
til að kæfa hana í fæðingu.
Sagðír sammála um
að vera ósammála
Helsinki. Morgunblaðið.
NIÐURSTAÐA fundar leiðtoga Bandaríkjanna og Rússlands í Helsinki í
dag verður líklega sú að þeir verða sammála um að vera ósammála, ef
marka má orð Sandy Berger, öryggisráðgjafa Bills Clintons. „Ég býst
ekki við að þeir [Rússar] skipti um skoðun og þeir ættu ekki að gera ráð
fyrir því að við gerum það heldur.“ Sergei Jastrsjembskí, talsmaður Jelts-
íns, tók undir þetta, sagði ekki við því að búast að lausn fyndist á NATO-
deilunni á fundinum. Clinton og Borís Jeltsin Rússlandsforseti komu í gær
til Helsinki og hófst fundur þeirra formlega í gærkvöldi með málsverði
hjá Martti Ahtisaari Finnlandsforseta.
Vel fór á með leiðtogunum undir
borðum, að sögn Jastrsjembskís.
Göntuðust þeir hvor með heilsufar
annars og sagði talsmaður Jeltsíns
að bjartsýni og vinsemd hefði verið
ríkjandi og sér hefði virst samnings-
vilji leiðtoganna ótvíræður.
Jeltsín sagði að framundan væru
erfiðar viðræður en að hann teldi
að Clinton væri reiðubúinn að ná
samkomulagi og að þeir myndu
skilja sem vinir eins og ætíð áður.
Fagnaði Clinton þessum ummælum
í gær, sagði þau „uppörvandi".
Embættismaður í fylgdarliði
Clintons, sem ekki vildi láta nafns
síns getið, sagði í gærkvöldi að
Clinton myndi leggja fram tillögu
um að Bandaríkjamenn og Rússar
fækkuðu kjarnorkuvopnum sínum
niður í 2.500 kjarnaodda hvort ríki,
en það er meira en gert er ráð fyrir
í START-2 samningnum.
Miklar vonir bundnar
við fundinn
Leiðtogafundurinn hófst form-
lega í gærkvöldi er Jeltsín og Clint-
on sátu matarboð hjá Ahtisaari
Finnlandsforseta og snæddu hrein-
dýrakjöt í aðalrétt. í ræðu sem
gestgjafinn hélt áður en borðhald
hófst, sagði hann allra augu hvíla
á fundarmönnum og að menn byndu
miklar vonir við niðurstöðu fundar-
ins. „Evrópa eftir lok kalda stríðsins
ætti að þróast í öruggt svæði þar
sem ekkert ríki ógnar öðru,“ sagði
Ahtisaari.
■ Leiðtogafundurinn/22-23
Hugðust
myrða
konung
Svía
Stokkhólmi. Reuter.
ATHYGLI sænskra fjölmiðla
hefur á ný beinst að morðinu
á Olof Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar, eftir að sænskur
lögfræðingur skýrði frá því að
fyrrverandi skjólstæðingur
sinn hefði sagt sér frá sam-
særi um að myrða Palme og
Karl Gústaf Svíakonung.
Lögfræðingurinn, Pelle
Svensson, sagði að Lars Ting-
ström, þekktur afbrotamaður
í Svíþjóð, hefði skýrt frá því á
dánarbeðinum að hann hefði
staðið að morðinu ásamt þrem-
ur öðrum mönnum, þeirra á
meðal Christer Pettersson, sem
var sakaður um morðið en
sýknaður.
Svensson sagði að fjórmenn-
ingarnir hefðu upphaflega ætl-
að að myrða Svíakonung en
af því hefði ekki orðið þar sem
morðinginn hefði fyrir tilviljun
gengið fram á Oiof Palme á
götu í Stokkhólmi.
■ Sjúklegt hatur/20
ÍSRAELSKIR hermenn beittu
táragasi og skutu gúmmíkúlum
á Palestínumenn við jaðar
Betlehem í gær þegar þeir mót-
mæltu byggingu nýs hverfis
fyrir gyðinga nálægt Austur-
Jerúsalem. Einn Palestinumað-
ur særðist af völdum byssukúlu
og þrettán voru fluttir á sjúkra-
hús eftir að hafa andað að sér
táragasi.
ísraelskir hermenn eru með
mikinn viðbúnað vegna fram-
kvæmdanna en tugir palest-
ínskra ungmenna komust þó
framhjá þeim og köstuðu stein-
um að ísraelskum vörðum.
Yasser Arafat, leiðtogi sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna,
lýsti framkvæmdunum sem
„hryðjuverki" sem gæti valdið
blóðugum átökum.
LEIÐTOGAR uppreisnarmanna í
Zaire kröfðust í gær viðræðna við
Mobutu Sese Seko forseta og settu
það sem skilyrði fyrir vopnahléi.
Frakkar hvöttu franska borgara í
landinu til að fara þaðan og sendu
hermenn og flugvélar til tveggja
nágrannaríkja Zaire til að und-
irbúa hugsanlegan brottflutning
þeirra.
Franska varnarmálaráðuneytið
kvaðst hafa sent þijár flutninga-
vélar, tvær þyrlur og 40 hermenn
til Libreville, höfuðborgar Gabons.
60 hermenn til viðbótar yrðu einn-
ig sendir til Brazzaville, höfuð-
borgar Kóngólýðveldisins, sem er
við Zaire-fljót og örskammt frá
Kinshasa, höfuðborg Zaire.
Sonur Mobutus, sem hefur verið
á sjúkrahúsi í Mónakó, sagði að
forsetinn myndi fara til Kinshasa
í dag. Hann kvað föður sinn ekki
útiloka viðræður við uppreisnar-
mennina og ætla að ræða þann
möguleika við aðra ráðamenn í
Kinshasa. Talsmaður Laurents
Kabila, leiðtoga uppreisnarmann-
anna, sagði að hann myndi ekki
fallast á vopnahlé fyrr en eftir
viðræður við Mobutu eða fulltrúa
hans um afsögn forsetans. Mobutu
hefur verið við völd í Zaire í 32 ár.