Morgunblaðið - 21.03.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 37
AÐSEMPAR GREINAR
Að lesa meira
og meira
EKKI er langt síðan það var tal-
in tímasóun á fslandi að lesa og
margar sögur eru til um þá sem
þráðu ekkert heitar en að fá tæki-
færi til að lesa og læra. Nú reynum
við með ýmsum ráðum að lokka
börnin okkar til að lesa svo þau
verði „hæfari til að lifa í upplýsinga-
samfélagi nútímans".
Það er staðreynd að börn lesa
minna nú en áður og
mörg þeirra hafa ekki
lesið „heila bók“ við lok
grunnskólans. Tengsl
eru milli lestrargetu og
velgengni í námi og
það er því augljóst að
þau börn sem ná ekki
góðu valdi á lestri
standa verr að vígi en
hin. Það er því brýnt
að foreldrar sinni vel
lestrarnámi barna
sinna og hvetji þau til
að lesa. Sannreynt hef-
ur verið að þau börn
sem mikið hefur verið
lesið fyrir frá unga
aldri hafa meiri orða-
forða, lesskilning og
málþroska en önnur börn. Þau þurfa
síður á sérkennslu að halda og
gengur betur að læra að lesa.
Börn og bókasöfn
En það er ekki bara lestrarfæm-
in sem vert er að hafa áhyggjur
af. Þau börn sem ná ekki góðu
valdi á lestrinum missa af því að
njóta þeirrar undraveraldar sem er
að finna í góðri bók. í boðskap Al-
þjóðlega barnabókadagsins 1990
(2. apríl - fæðingardagur H.C.
Andersens) er bókasöfnum líkt við
skógarrjóður með stígum í allar
áttir. Hver stígur liggur að ævin-
týri eða sögu. Vonandi eiga sem
flest börn kost á að heimsækja
ijóðrið og kanna sem flesta stíga
út frá því.
Bókaverðir í almenningsbóka-
söfnum vinna markvisst að því að
fá börn og unglinga til að nota söfn-
in. Sérstakar sögustundir eru skipu-
lagðar fyrir yngstu börnin. Kapp-
kostað er að hafa sögustundirnar
notalegar þannig að gestirnir geti
notið ánægjulegrar og rólegrar
stundar með sögumanni. Til að
krydda sögustundirnar er oft boðið
upp á annað svo sem brúðuleikhús,
skyggnusýningar, söng og heim-
sóknir ýmissa starfsstétta.
Samvinna við dagmæður, leik-
skóla og skóla er víða bæði með
útlánum og skipulögðum heimsókn-
um. Á þennan hátt kynnast börnin
bókasafninu og finna að það er líka
staður fyrir þau. Nokkur söfn hafa
boðið upp á sumarlestur (lestrar-
hvetjandi námskeið). Bókasafnið á
Selfossi reið á vaðið og þar hefur
verið sumarlestur sl. fjögur sumur
við vaxandi vinsældir. I nokkrum
söfnum eru getraunir sem tengjast
bókakosti safnanna. Mað því að
svara getrauninni læra börnin á
safnið og kynnast safnkostinum.
Unglingar og bókasöfn
Sá lánþegahópur sem bókaverðir
almenningsbókasafna hafa mestar
áhyggjur af eru unglingarnir. Við
14-15 ára aldur hætta jafnvel
mestu lestrarhestar að nota þjón-
ustu safnanna. Reynt hefur verið
að laða unga fólkið inn á söfnin
með því að lána út myndbönd og
tónlist og auka framboð af tímarit-
um og öðru efni sem unglingum
finnst áhugavert. Mörg söfn bjóða
líka aðgang að efni á margmiðlun-
ardiskum og af alnetinu. Hjá ungl-
ingum eiga allir hlutir að gerast
hratt og neyslan er oft í skyndibita-
formi. Sem afþreyingarefni hefur
myndbandið tekið við af bókinni
t.a.m. eyða íslenskir unglingar að
meðaltali um 30 klst. á viku í að
horfa á sjónvarp og myndbönd. Er
það æskileg þróun?
Barnaefni og
ríkisfjölmiðlarnir
Undirrituð hefur oft undrast það
fálæti sem barnaefni er sýnt í út-
varpi og sjónvarpi allra lands-
manna. Staða deildarstjóri barna-
efnis hjá útvarpinu var lögð niður
fyrir nokkrum árum og innlent
barnaefni sjónvarpsins er sáralítið.
Mér er kunnugt um að
fjárskorti er borið við
og sárt til þess að vita
að þeir sem erfa eiga
landið í hátíðarræðum
skuli ekki metnir meira
hvunndags. Það ætti
að vera metnaðarmál
þessara fjölmiðla að
halda á lofti höfundum
íslensks barnaefnis
(rithöfundum, laga- og
ljóðahöfundum og
myndmálshöfundum).
Við lauslega athugun
kemur í ljós að barna-
efni í ríkisútvarpinu í
byijun árs 1997 er 1
klst. og 48 mín. á viku
(með endurtekningu 3
klst. og 36 mín). Sjónvarpið á
reyndar heiður skilið fyrir talsetn-
Bókaverðir í almenn-
ingsbókasöfnum vinna
markvisst að því, segir
Sigríður Matthías-
dóttir, að fá börn og
unglinga til
að nota söfnin.
ingu bamaefnis og þar fær barna-
efni meiri tíma í mínútum talið en
í útvarpi en því miður er það að
mestum meirihluta erlent efni. Er
ekki kominn tími til að snúa við
blaðinu og gefa barnaefni meira
rúm í útvarpinu og auka hlut inn-
lends efnis fyrir börn í sjónvarpinu.
Hér á landi hefur ekki mikið ver-
ið gert af því opinberlega að hvetja
börn til lesturs. Á undanfömum
árum hafa tvívegis verið haldnar
lestrarkeppnir. Arangurinn hefur
komið fram í auknum lestri barna.
Nauðsynlegt er að nota byrinn og
láta ekki þar við sitja. Víða erlend-
is hafa íþróttamenn og poppstjörnur
tekið þátt í því að hvetja börn til
að lesa, því ekki að reyna það hér?
Allir þeir sem áhuga hafa á auknum
bóklestri barna og ekki síður þeir
sem eiga hagsmuna að gæta (t.d.
aðilar að Bókasambandi íslands)
gætu tekið höndum saman um að
auglýsa barnabækur og hvetja börn
til að iesa (hafið þið tekið eftir hve
vel kvikmyndir og myndbönd era
auglýst í sjónvarpi?). Markmiðið
ætti að vera „að lesa meira og
meira, meir í dag en í gær“.
Höfundur er barnabókavörður við
Bæjar- og héraðsbókasafn Selfoss.
Sigríður
Matthíasdóttir
Afmælistilboð!
Vönduð boxdýna með
dýnuhlífst. 90x200
Gaflar krómaðir eða svartir
Sæng og koddi
Frottéfak
Sænguverasett
Samtals:
Nú aðeins:
Sparið: 6.170,-
Str 120x200: Áðun
Nú aðeins:
Sparið: 7.370,-
14.900,-
5.990, -
2.990, -
1.290,-
990,-
26.160,-
19.900,
37.360,-
29.900,
4 mismunandi litir
Hilla með Ijósi
Mont Blanc
Glæsilega hönnuð hillusamstæða úr melamín sem
uppfyllir allar þarfir. Bókahillur, skúffur, skápar,
glerskápur, hillur o.fl. Hægt að setja saman á ýmsa
vegu. Hár glerskápur: Breidd 74 sm, dýpt 40 sm og
hæð 193 sm. Sjónvarpsskápur m/skúffum: Breidd 74
sm, dýpt 33 sm og hæð 77 sm. Mjó hillueining:
Breidd 38 sm, dýpt 33 sm og hæð 109 sm.
Fæst í eftirtöldum útgáfum (skápar/hurðir):
Beyki/beyki, svart/beyki, svart/mahogny og svart/blátt.
Innifalið: Ijós í glerskáp. Eins og á mynd
(fyrir utan Ijósahillu):
16.900,
»Sparið
4000 kr!
Bútasaums
rúmteppi n
Glæsilegt bútasaumsteppi
með mjög fallegu munstri.
100% bómull.
260x240 sm.
Verð aðeins:
Bókahillur 0%
Með 6 skúffum:
Hæð 99 sm, breidd
74 sm og dýpt 40 sm.
5.990, -
Með 4 skúffum:
Hæð 70 sm,
breidd 74 sm
og dýpt 40 sm.
3.990, -
Kommóður
í 3 stærðum,
hvítar og beyki.
Meö 3 skúffum:
Hæð 70 sm,
breidd 60 sm
og dýpt 30 sm.
1.990,-
Tilvaldar í herbergi, skrifstofu
o.s.frv. Vandaðar hillur. Hæð
175 sm, breidd 68 sm, dýpt
24 sm. Verð: 3.500,-
Hæð 85,5 sm, breidd
68 sm, dýpt 24 sm:
Áður:
Nor urtanga 3 Reykjav kurvegi 72
600 Akureyri 220 Hafnarfj r ur
462 6662 565 5560
Skeifunni 13
108 Reykjav k
568 7499
Holtag r um
v/Holtaveg
104 Reykjav I
588 7499
Nú aðeins:
Nú aðeins:
Aðeins 500 kr.
aukalega fyrir beyki
Líka til í beyki
aðeins 500 kr. aukalega
Nú adeins:
Sjöundl hlmlnn 1997