Morgunblaðið - 21.03.1997, Blaðsíða 45
r
I
I
I
>
)
)
I
'i
I
I
.
.
MORGUNBLAÐIÐ___________________________________________________________________FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 45
FRÉTTIR
Ráðstefna um
„Jafnréttisreglu“
HLJÓMSVEITIN Stjörnukisi varð hlutskörpust
í Músíktilraunum Tónabæjar 1996.
Barna-
skemmtun
í Bæjarbíói
LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar heldur
barnaskemmtun í Bæjarbíói laugar-
dag og sunnudag kl. 14 og 16 sem
unnin er úr verkum Thorbjörns
Egners. Leikstjóri er Ásdís Þór-
hallsdóttir.
í fréttatilkynningu frá leikfélag-
inu segir að rifjuð séu upp nokkur
skemmtilegustu lögin og atriðin úr
leikritunum sem hann er hvað
þekktastur fyrir s.s. Karíus og
Baktus, Hinir síglöðu söngvarar,
Dýrin í Hálsaskógi og Kar-
demommubærinn. Fjöldi fólks tekur
þátt í sýningunni og þar af stíga
32 leikarar á svið til að leika og
syngja.
Einnig segir: „í tilefni af 60 ára
afmæli LH á síðasta ári hefur félag-
ið ákveðið að endurgjalda þann
mikla hiýhug sem það hefur notið
á gegnum árin með því að gefa
helming tekna af sýningunum til
Umhyggju, samtaka langveikra
bama. Allir krakkar sem koma með
teikningu af uppáhalds ævintýra-
persónunni sinni fá 100 kr. afslátt
af miðaverði, sem er 600 kr. Mynd-
irnar fara síðan í myndapott sem
úr verða dregnar myndir sem fá
verðlaun.“
Landbúnaðar-
ráðstefna SUF
á Selfossi
LANDBÚNAÐARRÁÐSTEFNA
Sambands ungra framsóknar-
manna verður haldin á morgun,
laugardaginn 22. mars, í Inghóli á
Selfossi. Ráðstefnan hefst klukkan
10 með ávarpi Árna Gunnarssonar
formanns SUF.
Fjallað verður um framtíð og
horfur í loðdýrarækt og garðyrkju,
um lífrænan landbúnað, möguleika
á auknum útflutningi reiðhrossa og
verkefni bænda á sviði skógræktar
og landnýtingar. Að loknu matar-
hléi verða umræður um kvótakerfi
í íslenskum landbúnaði og þróun
þess.
Frummælendur á ráðstefnunni
verða Sigurjón Bláfeld, Sigurður
Þráinsson, Ólafur Dýrmundsson,
Bergur Pálsson, Björn Jónsson, Jón
Erlingur Jónasson, Sveinn Sig-
mundsson og Hrafnkell Karlsson.
Ráðstefnustjóri verður Guðjón
Jónsson.
Miðilsfundur
í íþróttahúsi
KNATTSPYRNUDEILD Breiða-
bliks gengst fyrir opnum miðils-
fundi með Þórhalli Guðmundssyni
miðli í íþróttahúsi Breiðabliks, Dal-
smára 5, Kópavogi, þriðjudaginn
25. mars nk. kl. 20.30. Húsið opnað
kl. 19.30.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. For-
sala er hafin í afgreiðslu íþrótta-
hússins.
MANNRÉTTINDASTOFNUN Há-
skóla íslands stendur fyrir ráð-
stefnu um jafnréttisreglu í stjórn-
skipunarlögum og Evrópurétti laug-
ardaginn 22. mars nk. kl. 13 í A-
sal á Hótel Sögu.
Á dagskrá ráðstefnunnar sem
verður sett kl. 13 af Stefáni Má
Stefánsssyni, prófessor við laga-
deild Háskóla Islands, flytja eftir-
talin erindi: Dóra Guðmunsdóttir,
lögfræðingur hjá EFTA-dómstóln-
um: Jafnrétti launþega innan ESS,
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður: Jafnrétti og skatt-
ar, Sigurður Líndal, prófessor við
lagadeild Háskóla íslands: Jafnrétti
í tengslum við eignaskerðingar,
Margrét Vala Kristjánsdóttir, lög-
fræðingur hjá umboðsmanni Ai-
þingis: Jafnrétti við starfsráðningar
og Ragnheiður Þorsteinsdóttir, lög-
fræðingur í umhverfisráðuneytinu:
Jafnrétti við kosningar til þjóðþinga
og héraðsstjórna.
Eftir kaffíhléð um 15.30 tekur
Guðmundur S. Alfreðsson, prófess-
or við háskólann í Lundi, fyrstu til
máls í umræðum.
Fræðslufundur
um álftir heima
og að heiman
NÆSTI fræðslufundur Hins ís-
lenska náttúrufræðifélags á þess-
um vetri verður mánudaginn 24.
mars kl. 20.30. Fundurinn verður
haldinn í stofu 101 í Lögbergi, laga-
deildarhúsi Háskólans (ath. ekki
Odda). Á fundinum flytur Ólafur
Einarsson, fuglafræðingur á Nátt-
úrufræðistofnun íslands, erindi
sem hann nefnir: Álftir heima og
að heiman.
í fyrirlestrinum greinir hann frá
þessum rannsóknum sem staðið
hafa frá 1994 til ársloka 1996.
Fylgst hefur verið með farflugi álft-
anna þegar þær fara frá vetrar-
stöðvunum og einnig þegar þær
yfirgefa varpstöðvarnar á íslandi
og fljúga suður á bóginn til Bret-
lands eða írlands.
í fréttatilkynningu segir: „Þann
9. desember 1967 fylgdist þotu-
flugmaður í 3.200 m hæð nærri
Suðureyjum við strendur Skotlands
með hóp svana. Svönum þessum
var síðan fylgt eftir þar sem þeir
lækkuðu flugið til Norður-írlands.
Allt frá því er þessi athugun átti
sér stað voru menn almennt á þeirri
skoðun að þar hefðu verið íslenskar
álftir á ferð, á leið til vetrarstöðv-
anna, og var það þá trú manna að
álftir færu ávallt í háflugi milli ís-
lands og Bretlands. Þessi athugun
þotuflugmannsins varð svo kveikj-
an að rannsóknum á farflugi álfta.
Tilgangur þessara athugana var
að fá upplýsingar um farleið álfta
með hjálp gervihnattasenda en ails
hafa verið settir gervihnattasendar
á tólf álftir. Gervitunglin senda svo
gögnin til jarðar og er tekið á
móti þeim í Toulouse í Frakklandi.
Þangað er hægt að fá samband í
gegnum tölvu og ná í upplýsingar
sem komu frá gervihnattasending-
um.“
Fræðslufundir félagsins eru öll-
um opnir og aðgangur ókeypis.
Fyrrum
JC-félagar
á L.A. Café
FYRRUM meðlimir í JC Bros hafa
ákveðið að hittast í kvöld, föstu-
dagskvöldið 21. mars, á veitinga-
húsinu L.A. Café kl. 20.
I fréttatilkynningu segir að til-
efni samkomunnar sé að félagið
hefði orðið 10 ára um þessar mund-
ir og að allir fyrrum meðlimir fé-
lagsins séu hvattir til að mæta.
Ráðstefnan er hluti af rann-
sóknaverkefna um ,jafnréttisreglu
í stjómskipunarlögum og Evrópu-
rétti“ sem unnið er undir stjórn
Stefáns Má Stefánssonar prófess-
ors. Að því vinna þó aðallega fimm
íslenskar konur, lögfræðingar, sem
flestar eru búsettar erlendis.
Almenn jafnræðisregla var tekin
upp í ísl. stjórnskipunarlögum með
lögum nr. 97/1995 um breytingu á
stjómarskrá lýðveldisins á íslandi
en reglan hefur verið óskráð regla
í stjórnskipunarrétti.
Markmið verkefnisins er að rann-
saka styrkleika svonefndrar jafn-
ræðisreglu í íslenskum rétti í því
skyni að séð verði hvernig stjórnar-
skrárbundnar og alþjóðlegar skyld-
ur á þessu sviði em uppfylltar og
hvar þurfi að bæta úr. Énnfremur
að athuga ólíka túlkun og andhverf
sjónarmið í þessum málaflokki og
áhrif þessa. Jafnræði er eitt af
grundvallarhugtökum á sviði mann-
réttinda. Rannsókn á hugtakinu
mun styrkja stöðu íslensks réttar
og skýra stöðu hans í evrópsku og
alþjóðlegu réttarkerfi.
Stefnumótun
í kennslu
raungreina
FÉLAG raungreinakennara og
Samlíf, félag líffræðikennara, efna
til opins málþings um stefnumótun
í kennslu raungreina á morgun,
laugardaginn 22. mars kl. 9-16.
Málþingið er liður í vinnu félaganna
við nýja aðalnámskrá fyrir grunn-
og framhaldsskóla sem taka mun
gildi haustið 1998.
„Viðfangsefni fundarmanna
verður æskileg stefna í kennslu
raungreina og vangaveltur um:
Hvers konar náttúrufræðinám er
gagnlegt og mikilvægt íslenskum
nemendum í gmnnskóla og fram-
haldsskóla? Hvaða kröfur og þarfir
verður skólinn að koma tii móts
við? Hvemig skilyrði em líklegust
til að stuðla að því að háleit mark-
mið nái fram að ganga?
Sérlegur gestur og fyrirlesari
verður Joan Solomon, prófessor í
kennslufræði raungreina við Há-
skólann í Oxford. Höskuldur Frí-
mannsson frá Gæðastjórnunarfé-
laginu stýrir þinginu.
Málþingið verður haldið í húsa-
kynnum MH, stofu 29. Allir vel-
komnir,“ segir í fréttatilkynningu.
Málþing um
stöðu samfé-
lagsgreina
MÁLÞING á vegum fagfélaga
kennara og Kennarasambands Is-
lands um stefnumótun í kennslu
samfélagsgreina vegna fyrirhug-
aðrar endurskoðunar námskrár
verður haldið laugardaginn 22.
mars kl. 10-15 í stofu 201 í Odda.
Á málþinginu verða flutt stutt
erindi um málefni tengd samfélags-
greinum og þeir sem flytja erindi
eru: Jón Ingi Sigurbjörnsson: Til
hvers að pæla í samfélaginu? Elín
Vilhelmsdóttir: Markmið og leiðir í
samfélagsgreinum, Lilja M. Jóns-
dóttir: Samfélagsfræði í grunnskól-
um, heildstæð kennsla og skapandi
starf; Magnús Þorkelsson: Hvaða
tilgang getur sagan haft í skólum?
Þórunn Friðriksdóttir: Áherslur inn-
an samfélagsgreina; Elín B. Guð-
munsdóttir: Hvernig nýtist nám í
samfélagsgreinum? Kristín Jóns-
dóttir: Þarfir atvinnulífsins —
starfsmannaþjálfun; og Bragi Guð-
mundsson: Hvað gerist í sögutím-
um?
Fundarstjóri verður Kristín H.
Tryggvadóttir.
Urslitakvöld
Músíktilrauna
í kvöld
ÚRSLITAKVÖLD Músíktilrauna
Tónabæjar 1997 verður í kvöld og
hefst það kl. 20.
Þær hljómsveitir sem hafa þegar
komist áfram á tilraunakvöldunum
1, 2 og 3 eru: Spitsign, Ebeneser,
The Outrage, Ándhéri, Drákon,
Woofer, Flasa og Tríó Óla Skans.
Síðasta tilraunakvöldið var í gær og
bættust þá 2-3 hljómsveitir á sjálft
úrslitakvöldið.
Gestahljómsveit á úrslitum Mús-
Iktilrauna er Botnleðja, hljómsveit
ársins og sigursveit Músíktilrauna
1995.
Skákþing-
íslands í
áskorenda- og
opnum flokki
SKÁKÞING íslands 1997, áskor-
enda- og opinn flokkur, verður hald-
ið dagana 22.-29. mars í Faxafeni
12, Reykjavík. Tefldar verða 4 skák-
ir og síðan 5 kappskákir (2 klst. á
40 leiki og 1 klst. til að ljúka skák-
inni). Teflt verður eftir svissneska
kerfinu.
Þátttökurétt í áskorendaflokki
eiga tveir efstu úr opnum flokki
1996, unglingameistari Islands
1996, kvennameistari íslands 1996,
skákmenn með a.m.k. 800 skákstig
og efstu sex menn svæðamóta sem
skilgreind eru af stjórn SÍ.
Þátttökugjald í opnum flokki er
2.000 kr. fyrir 18 ára og eldri, 1.300
kr. fyrir 15-17 ára og 800 kr. fyrir
14 ára og yngri. Skráning í báða
flokka hefst á mótsstað klukkustund
áður en 1. umferð hefst.
Fyrirlestur
um spendýr
á norðurslóð
PÁLL Hersteinsson prófessor flytur
fyrirlesturinn Spendýr á norðurslóð
laugardaginn 22. mars kl. 14 í sal 3
í Háskólabíói. Fyrirlesturinn er sá
þriðji í fyrirlestraröðinni Undur ver-
aldar sem haldin er á vegum Raun-
vísindadeildar Háskóla Islands og
Hollvinafélags hennar.
Fjallað verður um aðlögun spen-
dýra að aðstæðum á norðurslóðum,
bæði veðurfari og mynstri fæðu-
framboðs.
■ ÁLYKTUN um biðlista í heil-
brigðiskerfínu var samþykkt á fundi
Félags ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík. Þar er skorað á ríkis-
stjórnina íslands að gera þegar í
stað átak til þess að eyða biðlistum
eftir lífsnauðsynlegri læknisaðstoð í
heilbrigðiskerfinu. FUJ telur að ekki
náist raunverulegur sparnaður
vegna takmarkana á þjónustu.
Sjúklingar eigi skýlausan rétt til
þjónustu og það sé ótvíræður hagur
þjóðfélagsins alls að fólk fái sem
fyrst þá aðhlynningu sem það þarf.
FUJ óskar eftir því við ríkisstjórnina
að hún slíðri niðurskurðarhnífinn
þegar um líf og limi fólksins í land-
inu er að tefla.
Aðalfundur
Parkinson-
samtakanna
PARKINSONSAMTÖKIN á ís-
landi halda aðalfund í safnaðar-
heimili Háteigskirkju laugardaginn
22. mars kl. 14.
Á fundinum heldur Elísabet Ól-
afsdóttir fyrirlestur um mataræði
parkinsonsjúklinga. Gestir frá
Söngskólanum í Reykjavík
skemmta. Gestir eru velkomnir
ásamt félagsmönnum, kaffíveit-
ingar.
I fréttatilkynningu segir að
erfða- og faraldsfræðilegu rann-
sóknimar séu í fullum gangi hjá
Sigurlaugu Sveinbjörnsdóttur á
endurhæfingadeild Landspítalans
og að panta megi tíma hjá ritara.
Félagsmenn eru til viðræðu á skrif-
stofu samtakanna á Laugavegi 25
frá kl. 17 á miðvikudögum og alla
aðra daga í síma 566-6830.
Miðstöð nýbúa
lokuð í dag
VEGNA flutnings Miðstöðvar
nýbúa í nýtt húsnæði við Skeljanes
í Stóra Skerjafirði (Skeljungshúsið)
er lokað í dag, föstudag. Miðstöðin
verður opnuð aftur mánudaginn 24.
mars nk.
■ AÐALFUNDUR Félags eldri
borgara, Garðabæ, var haldinn
nýverið. Helgi K. Hjálmsson við-
skiptafræðingur flutti skýrslu
stjórnar og kom fram í máli hans
að starf félagsins stendur með
blóma og starfar félagið í góðum
tengslum við félagsmálaráð Garða-
bæjar. Næsta verkefni félagsins
er skoðunar- og skemmtiferð aust-
ur á Skeiðarársand, m.a. undir leið-
sögn Jóns Jónssonar jarðfræðings.
Gist verður á Hótel Skaftafelli.
í fréttatilkynningu segir að
Benedikt Davíðsson, fýrrv. for-
seti ASÍ, hafí komið á aðalfundinn
og gert grein fyrir lífeyris- og
kjaramálum eldri borgara. Fundur-
inn gerði ályktun þar sem stjórn
Landssambands aldraðra er hvött
til að vinna að því, að til raun-
hæfra aðgerða komi, til að bæta
hag eldri borgara, meðal annars,
með því að vinna að því að látið
verði af skattlagningu ellilífeyris
og eftirlauna. „Aðalfundurinn tek-
ur undir og styður áhersluatriði
Landssambandsins í kjaramálum
og hvetur alla eldri borgara til að
standa fast á réttindum sínum og
vinna að því að það óréttlæti sem
nú viðgengst varðandi ýmis kjara-
mál verði leiðrétt sem allra fyrst.“
LEIÐRÉTT
Röng fyrirsögn
í BLAÐINU I gær var röng fyrir-
sögn á myndbandadómi um mynd-
ina „Multiplicity". Rétt fyrirsögn
er Góð grínmynd en ekki Bull og
vitleysa eins og misritaðist. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.