Morgunblaðið - 21.03.1997, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hönse
bouillon
Fiske
bouilion
Svine
3 kodkraft
* f kodkraft
Bouillon
til Pasta
bouillon
Klar bouillon
Sveppa-
kraftur
teningnum!
'fCflcW'
-kemur
með góða
bragðið!
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
JIM Carrey - gúmmíkarlinn gæti orðið gúmmíinu að bráð.
Gríma geiflumeistarans
EINS og hvítur stormsveipur
kom Jim Carrey inn í bandaríska
grínmyndagerð, villturogtrylltur
eins og Robin Williams, fetti sig
og bretti eins og Jerry Lewis, en
jafnframt með líkamstjáningu og
andlitsleikfimi sem er alveg hans
eigin. Þetta var kvikmyndin um Ace
Ventura gæludýraspæjara (1994);
hún markaði tímamót í amerísku
gríni - til bæði góðs og ills - og
á ferli þessa gúmmíkarls. Fyrir
þessa mynd hafði Jim Carrey, sem
nú er 34 ára, verið árum saman
með uppistand á grínklúbbum, leik-
ið í skammlífri grínsápu í sjón-
varpi, sem hét The Duck Factory,
fengið smáhlutverk í bíómyndunum
Once Bitten (1985), Peggy Sue Got
Married (1986, þar sem hann lék
uppivöðslusaman bekkjarbróður
Kathleen Tumer) og Earth Girls
Are Easy (1989). Fyrst vakti hann
verulega athygli fyrir kyndugt
framlag sitttil sjónvarpsþáttanna
In Living Color (1990—94).
Sama ár og Ace Ventura gerði
Jim Carrey að stærstu grínstjörnu
samtímans var frumsýnd myndin
Gríman (The Mask, SÝN, sunnu-
dagur, 23.20), þar sem Carrey var
við sama heygarðshornið í hlutverki
vandræðalegs bankastarfsmanns
sem ekki á nokkurn sjans fyrr en
hann finnur foma grímu sem getur
breytt honum í kvenhollt en kald-
rifjað orkubúnt. Þetta er enn eitt
tilbrigðið við dr. Jekyll og hr. Hyde-
stefíð borið uppi af miklum tölvu-
tæknibrellum og fítonskrafti
Carreys, nánast eins og leikin
teiknimyndasaga. Gríman tryggði
stöðu Carreys enn frekar og Dumb
And Dumber (1995) innsiglaði
hana. Síðan þá hafa þreytumerki
gert vart við sig; Carrey hefur orð-
ið innlyksa í einhæfum leikstíl og
The Cable Guy (1996) tókstekki
að snúa þróuninni við. Tjáningar-
geta sem virtist takmarkalaus hefur
reynst takmörkuð. En enn er von.
Gríman ★★’A
HELGARMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Mér blæðir -
þess vegna er
ég íslendingur
BLÓÐSÚTHELLINGAR glæpa-
myndar Brians DePalma um manninn
með örið (Scarface) höfðuðu meira til
íslensku þjóðarinnar en dramatísk
ævintýramynd úr Suðurhöfum um
uppreisnina á Bounty; þar stóðu 1.400
atkvæði gegn 1.200 í símakosningum
Sjónvarpsins um laugardagsmyndina
í síðustu viku. Helgina áður bar hlátur-
inn sigur úr býtum, þar sem var gam-
anmyndin Næturvaktin. Niðurstöður
þessara tveggja kosninga gefa mér
tilefni til að draga þá ályktun að í
kvöld muni Tom Cruise í hjólastól
vinna samúðarsigur í kosningunum
með Fæddur fjórða júlí eftir Oliver
Stone. Segðu mér á hvernig myndir
þú horfir og ég skal segja þér hver
þú ert.__________________________
Föstudagur
Sjónvarpið ►23.00 írski leikstjórínn
Pat O’Connor hóf feril sinn af stakri
snilld með Cal (1984), sem fjallaði um
ástandið í heimalandi hans af mikilli
næmni og mannúð. Fljótlega dró
Hollywood hann á tálar og síðan hefur
hann ekki fundið fyrra form. Fyrir
bandarískt kapalsjónvarp gerði hann
myndina Zelda (1993) um sviptinga-
samar ástir rithöfundarins F. Scotts
Fitzgerald (Timothy Hutton) og titil-
persónunnar (Natasha Richardson),
sem enduðu með ósköpum. Þetta
áhugaverða efni segja Martin og Pott-
er fá fáránlega og þvingaða meðferð
þótt Richardson standi sig vel. Þau
gefa ★ ★ (af fímm mögulegum).
Stöð 2 ►13.00 og 0.40 Kvikmyndin
Blákaldur veruleiki (Reality Bites,
1994) e r fremur skemmtileg frumraun
’leikarans Bens Stiller í leikstjórn, þar
sem hann reynir að gera það við X-
kynslóðina svokölluðu sem John Say-
les og Lawrence Kasdan m.a. gerðu
í sínum myndum fyrir ’68-kynslóðina.
Winona Ryder er að fóta sig á frama-
braut í efnahagslegri hálku 10. ára-
tugarins um leið og hún þarf að velja
tilfinningalega milli tveggja manna,
hins slétta og fellda MTV-gosa (Still-
er) og hins svala iðjuleysingja (Ethan
Hawke illþolandi). Myndmálið er sam-
sett úr ríkjandi fjölmiðlatísku, þ.á m.
heimamyndböndum, og hentar efninu
vel. En myndin rembist einum of við
að vera með á nótunum. ★ ★ ‘AEP
Stöð 2 ►20.55 Hinn fjölhæfi breski
leikstjóri Peter Yates stýrir snoturri
smámynd, Ungur í anda (Roommat-
es, 1995) um samskipti aldraðs bak-
ara í Pittsburgh (Peter Falk) og barna-
barns hans og uppeldissonar til
margra áratuga (D.B. Sweeney). Hlý-
legur húmor prýðir þessa mynd sem
byggð er á endurminningum handrits-
höfundarins Max Apple, en nokkur
tilfínningasemi ryðst inn á köflum.
★ ★*/2
Stöð 2 ►22.55 Leikrit Sams Shep-
ard um kynslóðaátök innan fátækrar
fjölskyldu á krepputímanum er grunn-
ur sjónvarpsmyndarinnar Blóð hinnar
sveltandi stéttar (Curse of the Star-
vingClass, 1994). Astralski leikstjór-
inn Bruce Beresford gerði handritið
og framleiðir en leikstjómin er í hönd-
um J. Michaels McClary. Ég hef ekki
séð þessa en Maltin segir hana vel
leikna af James Woods, Kathy Bates,
Randy Quaid, Henry Thomas og fleir-
um en bætir við að dramað sé heldur
niðurdrepandi. Hann segir myndina í
meðallagi; Martin og Potter eru enn
neikvæðari en gefa samt ★ ★ Vi (af
fímm).
Sýn ^21.00 Ungir kvenleikstjórar
eiga kvöldið á Sýn. Jill Goldman stýr-
ir spennumyndinni Teflt á tæpasta
vað (WildAngel, öðru nafni Bad Love,
1992) en hefði betur sleppt því. Pam-
ela Gidney leikur langhijáða unga
skvísu sem tekur saman við skapheit-
an drullusokk, leikinn af Tom Size-
more, en hefði betur sleppt því. ★
Sýn ►23.30 í Breiðgatan (Bouie-
vard, 1994) spreytir sig á leikstjórn
Penelope nokkur Buitenhuis og þótt
hún geri ekkert frumlegt er þessi
kanadíska mynd bærileg lýsing á
ranghverfu borgarlífsins í Toronto,
nánar tiltekið vændiskonum, annarri
reyndri (Rae Dawn Chong), hinni ný-
græðingi (Kari Wuhrer), sem taka
höndum saman gegn melludólgi (Lou
Diamond Phillips) og spilltri löggu
(Lance Henriksen). ★ ★________________
Laugardagur
Sjónvarpið ^21.45 Æsilegur elt-
ingaleikur á hraðbrautum er eina efn-
ið í hasarmyndinni Eftirförin (The
Chase, 1994). Charlie Sheen leikur
saklausan fanga sem á flótta rænir
auðmannsdóttur (Kristy Swanson).
Ekkert kemur á óvart og hraðamælir-
inn afmarkar skemmtigildið. ★ xh
Sjónvarpið ►23.15Urslitheimilis-
kosninganna liggja ekki fyrir en í
framboði voru:
Næturbrönugrasið (TheAsian
Connection: Midnight Orchid, 1995).
Enn ein spennumyndin úr áströlsku
miðlungssyrpunni um einkaspæjarann
John Stamford (John Waters).
Sakborningar (The Accused, 1988).
All harkalegt en svolítið klisjukennt
sannsögulegt drama um baráttu ungr-
ar konu, sem er nauðgað á krá, við
nauðgarana, aðra viðstadda, réttarfar-
ið og almenningsálitið. Jodie Foster
er afbragð í aðalhlutverkinu, enda
fékk hún Óskarsverðlaun fyrir, og
Kelly McGillis er frambærilegur sak-
sóknari. Jonathan Kaplan leikstjóri
nálgast smekkleysi í umdeildri nauðg-
unarsenu. ★ ★ Vi
Ránfiskar (Rumbie Fish, 1983). Eftir
dýrkeypta stórmyndadrauma rifaði
Francis Ford Coppola seglin með þess-
ari óvenjulegu „unglingamynd” um
samband tveggja bræðra í ofbeldis-
þrungnu umhverfí. Byggð á sögu S.E.
Hinton, rétt eins og The Outsiders sem
Coppola gerði um leið og þessa. Aðal-
hlutverk Matt Dillon og Mickey Ro-
urke. Stílfærslan og svört-hvít mynda-
takan getur farið í taugarnar á sum-
um. ★★★
Fæddur fjórða júlí (Born on the Fo-
urth ofJuly, 1989). Trúlega besta
mynd hins brokkgenga en áhugaverða
þjóðfélagsrýnis Olivers Stones er
áhrifamikil og sannsöguleg hremm-
ingarsaga um einstakling og samfélag
sem koma bæði lömuð út úr Víetnam-
stríðinu. Tom Cruise, sem yfirleitt leik-
ur aðeins mikið, hefur hvorki fyrr né
síðar leikið betur. ★ ★ ★ Vi
Stöð2 ►15.00 Sumarbúðir fyrir
ungar fitubollur eru sögusvið gaman-
myndarinnar Hlunkarnir (The He-
avyweights, 1994). Maltin segirað
húmorinn faili ekki að boðskap mynd-
arinnar en gefur ★ ★ ogsama gera
Martin ogPotter (af fimm). Leikstjóri
Steven Brill en í aðalhlutverkum eru
Ben Stiller (Reality Bites), Tom
McGowan ogAaron Schwartz.
Stöð2 ►21.05Fyrstablökku-
mannaflugsveit Bandaríkjahers þurfti
ekki aðeins að beijast við hina opin-
beru óvini í heimsstyijöldinni síðari,
heldur hroka og hleypidóma heima
fyrir og meðal yfírmanna. Þetta er
hið áhugaverða viðfangsefni kapal-
myndarinnar Flugsveitin (The
Tuskegee Airmen, 1995) en það er
leikur Laurence Fishburne, Cuba Go-
oding o.fl. sem er hins vegar aðals-
merki hennar. Leikstjóri Robert
Markowitz. ★ ★ Vi
Stöð 2 ►22.55 Antonio Banderas,
spænska kyntröllið sem erfiðlega hef-
ur gengið að sanna leikhæfileika sína
eftir að hann fór að leika í Ameríku,
nær ekki að sanna eitt eða neitt í
spennumyndinni Feigðarboð (Never
Talk to Strangers, 1995), nema það
að kvenkyns glæpasérfræðingur, leik-
inn af Rebecca DeMomay, ætti ekki
að láta spænsk kyntröll draga sig á
tálar. Miðlungsafþreying en afar ótrú-
verðug. ★ ★
Stöð 2 ►0.20 Fyrirsætumorðin
(The Cover Girl Murders, 1993) e r
lummulegur reyfari um hóp af fyrir-
sætum sem falla í valinn ein af ann-
arri fyrir morðingjahendi á hitabeltis-
eyju. Agatha Christie gerði þetta bet-
ur en James A. Contner er leikstjóri.
★
Sýn ►21.00Jacker 12áraogbýr
í hálfgildings draugahúsi ásamt létt-
gölnum föður sínum (Danny DeVito í
fínu formi), sem stýrir hryllings-
myndasýningum í sjónvarpi og næsta
nágrenni er heldur ekki sérlega hag-
stætt fyrir hamingjuríkan uppvöxt.
Kvikmynd Marshalls Herskowitz
Pabbi er bestur (Jack The Bear,
1993) er óvenjuleg og kostuleg
þroskasaga, sem þó gengur ekki alveg
upp. ★ ★ V-i_____________________
Sunnudagur
Sjónvarpið ►14.40 Sænska myndin
Leyndardómar neðanjarðar (Únd-
erjordens hemlighet, 1992) segir frá
sambandi og uppátækjum tveggja
stráka sem kynnast á sjúkrahúsi.
Ekki vandamálamynd heldur vönduð,
vel gerð og skemmtileg. Leikstjóri
Claes Lindberg. ★ ★ ★
Sjónvarpið ► 22.35 Francisco J.
Lombardi er einn helsti leikstjóri Perú
ogþví er fengur að sýningu myndar
hans Án miskunnar (Sin Compasión,
1994), sem er samframleiðsla heima-
lands hans, Mexíkó og Frakklands.
Hér sviðsetur hann sígilt meistarverk
Dostojefskís Glæpur og refsing í Líma,
þar sem ungur heimspekistúdent
myrðir leigusala sinn út úr fjárkrögg-
um en með heimatilbúinni heimspeki-
legri réttlætingu. Úrvinnslan er nokk-
uð frumstæð, en efnið er áhugavert,
kynt með hita og ástríðu. ★ ★ ★
Stöð2 ►23.15 Kona hverfur (The
Disappearance of Christina, 1993) á
skemmtisiglingu ásamt eiginmanni og
kunningjahjónum þeirra og eiginmað-
urinn er grunaður um morð. Miðlungs-
reyfari með nokkrum frískum vend-
ingum. Leikstjóri Karen Arthurogí
aðalhlutverkum eru John Stamos, Kim
Delaney, CCH Pounder og Robert
Carradine. ★ ★
Sýn ►23.20 - Sjá umfjöllun í
ramma.
Árni Þórarinsson