Morgunblaðið - 21.03.1997, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
heimsótti Akureyringa í gær
Borgarstjóri fékk
mjólkurvörur að gjöf
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, brosti
sínu breiðasta er hún hélt heim
á leið um miðjan dag eftir stutta
heimsókn til Akureyrar í gær.
Borgarstjóra voru færðar
mjólkurvörur að gjöf, nýmjólk
og rjómi sem hún hafði með-
ferðis í mjólkurleysið í borginni.
Arni Steinar Jóhannsson, for-
maður stjórnar Upplýsingamið-
stöðvarinnar á Akureyri og
umhverfissljóri bæjarins, færði
borgarstjóra þessa óvenjulegu
gjöf. „Við erum vanir að gefa
bækur við svona tækifæri en
að þessu sinni fannst okkur full
ástæða til að færa borgarstjóra
nyólkurvörur að gjöf,“ sagði
Árni Steinar er hann kvaddi
borgarstjóra.
Ingibjörg Sólrún flutti m.a.
erindi á ráðstefnu um áfengis-
og vímuefnanotkun unglinga
sem hófst á Hótel KEA í gær.
Auk þess heimsótti hún fyrir-
tæki í bænum og heiðraði bæjar-
ráðsmenn með nærveru sinni í
gærmorgun.
Þórarinn líka
með mjólk heim
Þórarinn Tyrfingsson frá
SÁÁ flutti einnig erindi á ráð-
stefnunni í gær og í upphafi
máls sins sagðist hann hafa
byijað heimsókn sína til Akur-
eyrar á því að kaupa mjólk og
ijóma til að hafa með sér heim
og m.a. átti að nota við undir-
búning fermingarveislu.
Norðlendingar hafa ekki far-
ið varhluta af mjólkurleysinu á
höfuðborgarsvæðinu, frekar en
Morgunblaðið/Ágúst
Lúða gleypir þorsk
Neskaupstað, Morgunblaðið
SKIPVERJAR á Barða NK, sem
var að veiðum á Papagrunni ný-
verið, fengu 60 til 70 kg lúðu í
vörpuna sem ekki er í frásögu
færandi nema fyrir þær sakir að
þegar farið var að gera að lúð-
unni kom í ljós að hún hafði
gleypt plastbakka með tilbúnum
fiskrétti.
Nánar tiltekið var hér um að
ræða roð- og beinlausan þorsk
og var lítið farið að sjást á bakk-
anum og plastinu utan um hann.
Hefur lúðan því trúlega verið
nýlega búin að gleypa góðgætið.
Það var að sjálfsögðu framleitt
á íslandi. Þess má að lokum geta
að á bakkann var stimplaður síð-
asti söludagur - í desember
1997.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristján
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir fékk nýmjólk og rjóma frá Árna
Steinari Jóhannssyni, formanni stjórnar Upplýsingamiðstöðvar-
innar á Akureyri.
Sunnlendingar. Akureyringar,
sem hafa verið á ferð til Reykja-
víkur með flugi, hafa margir
hveijir farið með tugi lítra af
mjólkurvörum til vina og ætt-
ingja þar. Einnig hefur verið
líflegt í mjólkurflutningum í
gegnum Umferðarmiðstöðina á
Akureyri og hver farmurinn af
öðrum farið suður með Norður-
leiðarrútunni.
Kanada
hafnar
loftferða-
samníngi i
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra segir að íslensk stjórnvöld
hafi unnið að því í mörg ár að gera
gagnkvæman loftferðasamning við
Kanadamenn, en þeir hafnað slíku.
„Við treystum okkur ekki til að
gefa Kanadamönnum heimild til að
athafna sig að vild hér án þess að
við höfum gagnkvæm réttindi í
Kanada," sagði Halldór.
Hann sagði að náðst hefði samn-
ingur um að Flugleiðir mættu fljúga
með farþega til Halifax tvisvar í
viku og kanadískt flugfélag tvisvar
í viku til íslands með farþega frá
Kanada. Flugleiðir mega ekki taka
upp farþega í Halifax og fljúga
áfram til Bandaríkjanna og því er
kanadíska flugfélaginu ekki veitt
samsvarandi heimild.
„Við höfum boðið Kanadamönn-
um að opna þetta en þeir hafa ekki
viljað á það fallast," sagði Halldór.
Rafiðnaðarsambandið og ríkið gera nýjan kiarasamning
Launakostnaður í
ár eykst um 5-6%
RAFIÐNAÐARSAMBANDIÐ og
samninganefnd ríkisins undirrituðu
nýjan kjarasamning vegna rafiðn-
aðarmanna í ríkisþjónustu í gær-
morgun. Sáttafundur hafði þá stað-
ið yfir í um 30 klukkustundir. Verk-
falli, sem hófst á miðnætti i fyrri-
nótt, var frestað þegar samkomulag
lá fyrir.
Samningurinn er í öllum aðalat-
riðum hjiðstæður þeim samningum
sem RSÍ hefur gert að undanförnu
við RARIK og Reykjavíkurborg og
gildir út marsmánuð árið 2000.
Almenn launahækkun í upphafi er
4,7%, 1. janúar 1998 hækka laun
um 4%, 1. janúar 1999 um 3,5%
og 1. janúar 2000 um 1,2%. Tekið
er upp nýtt kauptaxtakerfi með til-
færslu á aldurs- og stjórnunarálags-
greiðslum að hluta inn í kauptaxt-
ana til hækkunar. Að mati ríkisins
eykst launakostnaður á fyrsta ári
samningstímans um 5-6%, að sögn
Gunnars Björnssonar, formanns
SNR.
Launabreytingar frá 4-15%
Vegna taxtakaupsbreytinganna
hækka laun starfsmanna við undir-
ritun mismunandi mikið eftir starfs-
aldri eða frá um 4% og upp í um
15%, skv. upplýsingum Helga. R.
Gunnarssonar, skrifstofustjóra RSÍ.
Samningurinn nær til um 135 raf-
iðnaðarmanna.
Um var að ræða fyrsta kjara-
samninginn sem ríkið gerir í yfír-
standandi kjaradeilu. Viðræður
standa yfir við fjölda félaga opin-
berra starfsmanna og hefur fremur
lítið miðað.
„Hvað þennan samning varðar
erum við að feta í sömu fótspor og
voru mörkuð í samningum RARIK,
Reykjavíkurborgar og LÍR, enda
urðu menn sammála um að launa-
kerfið í þessum samningum væri
byggt upp með sama hætti og að |
reynt yrði að gera sömu breytingar j
allsstaðar. Við vorum því að fylgja
þeirri markmiðssetningu," sagði '
Gunnar.
Póstatkvæðagreiðsla fer fram
um samninginn meðal rafiðnaðar-
manna til 1. apríl og talning at-
kvæða fer fram 4. apríl. Rafiðnað-
armenn eiga eftir að gera kjara-
samning við Vinnuveitendasam-
bandið vegna starfsmanna hjá Pósti
og síma hf. og verður næst tekið )
til við það, að sögn Helga. )
Dæmt prestum í vil og úrskurður skattsljóra ógiltur
Heimilt að draga kostnað
frá tekjum af aukaverkum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur telur
að aukaverk presta teljist til sjálf-
stæðrar atvinnustarfsemi og prestum
sé því heimilt að draga kostnað vegna
þeirra frá tekjum þegar þeir gera
skil á skatti. Dómurinn felldi úr gildi
úrskurð skattstjórans i Reykjavík,
sem reiknaði skatt af tekjum vegna
aukaverka eins og væru þær launa-
tekjur.
Prestur í Reykjavík höfðaði málið
gegn ríkinu. Presturinn þiggur föst
laun frá ríkinu, eins og allir prestar,
auk þess að fá greiddan embætt-
iskostnað úr ríkissjóði og aksturs-
styrk. Því til viðbótar fær hann greitt
fyrir aukaverk, eins og giftingar,
skímir og fermingar, í samræmi við
gjaldskrá sem dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið setur.
Skattstjóri endurákvarðaði opin-
ber gjöld prestsins fyrir gjaldárin
1993, 1994 og 1995 og leit á tekjur
vegna aukaverka sem launatekjur,
þ.e. tók ekki til greina kostnað við
öflun þeirra.
í niðurstöðu dómara, Valtýs Sig-
urðssonar, Helga I. Jónssonar og
Skúla J. Pálmasonar, er vísað til
þess að prestum sé lögum samkvæmt
heimilt að krefjast þóknunar fyrir
tiltekin aukastörf, sem falli utan lög-
bundinna starfsskyldna þeirra og þar
með sé í raun viðurkennt að þessi
störf falli utan þeirra verkefna sem
prestar fái greitt fyrir með launum
úr ríkissjóði. Prestur geti ekki kraf-
ist hærri greiðslu en reglur kirkju-
málaráðuneytis heimili, en geti hins
vegar tekið lægri greiðsiu eða af-
þakkað hana. „Er að þessu leyti um
að ræða einkaréttarlegt samnings-
samband milli stefnanda og þess sem
þjónustunnar nýtur og staða stefn-
anda því önnur en launþega," segir í
dóminum.
Greiðsla kostnaðar
óháð stærð sóknar
Þá er bent á, að prestar verði sjálf-
ir að innheimta þessar greiðslur og
beri þannig alla áhættu og ábyrgð.
Ráðuneytið hafi staðfest, að greiðsl-
ur vegna kostnaðar presta séu í
meginatriðum þær sömu, óháð fjölda
sóknarbarna eða mismunandi
vinnuálags. Dómurinn vísar til þessa
og segir að prestar í stærri sóknum
fái ekki endurgreiddan ailan kostnað
sem þeir hafí af embætti sfnu og
aukaverkum. „Samkvæmt því getur
það varðað stefnanda miklu að fá
að draga frá þann kostnað, sem hann
sannanlega hefur af öflun tekna
vegna aukaverka og ekki er endur-
greiddur úr ríkissjóði," segir í niður-
stöðum dómsins, sem vísar jafnframt
til þess að allt þar til yfirskattanefnd
breytti árið 1993 framkvæmd á þvf,
hvemig farið var með skattlagningu
þessarar þjónustu, hafi prestum verið
gert að greiða i ryggingargjald af tekj-
um af aukaverkum og aðstöðugjald
á meðan það var lögskylt. Dómurinn
tekur fram, að ekki verði séð að breyt-
ing hafí orðið á skattalöggjöfínni, sem
hafi gefið tilefni til að breyta fram-
kvæmdinni á þennan hátt.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
19 ára forseti bæjarstjórnar
unum í maí í fyrra, þegar Funk-
listinn fékk 18,20% atkvæða.
Þegar bæjarstjórnin skipti með
sér verkum var Kristinn kjörinn j
þriðji forseti bæjarstjórnar.
Fyrsti og annar forseti voru
fjarverandiígærogkomþað |
þvi í hlut Kristins að stýra fund-
inum.
ÞAU tíðindi urðu á bæjarstjórn-
arfundi á ísafirði í gær, að nítj-
án ára bæjarfulltrúi Funklist-
ans, Kristinn Hermannsson, sat
í forsæti og er að líkindum
yngsti forseti bæjarstjórnar sem
sögur fara af. Kristinn og félagi
hans, Hilmar Magnússon, náðu
Iqöri í sveitarstjórnarkosning-