Morgunblaðið - 21.03.1997, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Lúðrasveit-
in Svanur
á Norður-
landi
LÚÐRASVEITIN Svanur
' heldur tónleika með Lúðra-
sveit Akureyrar laugardaginn
22. mars kl. 15 í Laugaborg
í Eyjafjarðarsveit. Stefnt hef-
ur verið að þessum tónleikum
í allan vetur og efnisskráin
vel undirbúin. Sveitirnar
munu spila saman og hvor í
sínu lagi undir stjórn þeirra
Haraldar Á. Haraldssonar og
Atla Guðlaugssonar. Á leið-
inni til Reykjavíkur sunnu-
daginn 23. mars mun Lúðra-
sveitin Svanur halda stutta
tónleika í sjúkrahúsi Blöndu-
óss.
Helga Björg
sýnir á
Greifanum
SÝNING á verkum Helgu
Bjargar Jónasardóttur stend-
ur yfir um þessar mundir á
veitingastaðnum Greifanum
á Akureyri.
Verkin á sýningunni eru
unnin úr kínverskum hrís-
pappír sem hún litar og saum-
ar saman í myndir. Myndirnar
eru unnar á síðasta ári og eru
allar til sölu.
Helga lauk námi úr málun-
ardeild Myndlistarskólans á
Akureyri vorið 1995 en tók
einnig hluta námsins í skúlpt-
úrdeild Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands. Sýningin er
opin á afgreiðslutíma veit-
ingahússins og hangir uppi
næstu vikur.
Afmælis-
fundur
AFMÆLIS- og aðalfundur
Félags áhugafólks og að-
standenda sjúklinga með Alz-
heimersjúkdóm og skylda
sjúkdóma á Akureyri og ná-
grenni verður haldinn á
morgun, laugardaginn 23.
mars, kl. 13 í Dvalarheimilinu
Hlíð. Félagið er 5 ára. Kaffi-
veitingar í boði. Allir eru vel-
komnir á fundinn.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli verður í Sval-
barðskirkju kl. 11 næstkom-
andi laugardag, 22. mars, og
kl. 13.30 sama dag í Greni-
víkurkirkju. Kyrrðar- og
bænastund í Svalbarðskirkju
sunnudagskvöldið 23. mars
kl. 21.
Morgunblaðið/Kristján
Mikil viðbrögð við hlutafjárútboði Samheija sem hefst í dag
Sölutímabil hlutafjár
stendur í fjóra daga
SAMHERJI hf.
10 stærstu hluthafar í mars 1997
Hlutafé á nafnverði Eignarhluti
Kristján Vilhelmsson 297.918.000 kr. 23,66%
Þorsteinn Már Baldvinsson 297.918.000- 23,66%
Þorsteinn Vilhelmsson 297.918.000- 23,66%
F-15 sf. 42.499.000 - 3,38%
Anton Pétursson 31.392.259- 2,49%
Sesselía Pétursdóttir 31.392.259- 2,49%
Ásgeir Guðbjartsson Ingibjörg Pétursdóttir 22.587.097 - 20.603.238 - 1,79% 1,64%
Marías Þ. Guðmundsson 15.810.968- 1,26%
Pétur Antonsson 13.735.493- 1,09%
Aðrir hluthafar 187.188.686- 14,87%
Samtals 1.258.963.000 - 100,00%
Hlutafé aö
nafnvirði 45
milljónir boðið
á genginu 9,0
HLUTAFJÁRÚTBOÐ Samheija hf.
hefst í dag, föstudag, þegar ný
hlutabréf að nafnvirði 115 milljónir
króna verða boðin til sölu. Þrír
stærstu hluthafarnir, Þorsteinn Már
Baldvinsson og Þorsteinn og Krist-
ján Vilhelmssynir hafa ákveðið að
nýta forkaupsrétt sinn að nafnvirði
70 milljónir króna í þeim tilgangi
að framselja hann. Á almennum
markaði verða því boðnar 45 millj-
ónir króna og er gengi bréfanna 9.0.
Sölutímabil hlutabréfanna er frá
og með föstudaginum 23. mars til
kl. 16 miðvikudaginn 26. mars
næstkomandi. Á þessu tímabili
verða hlutabréfin seld með áskrift-
arfyrirkomulagi og hefur hver og
einn rétt til að skrá sig fyrir hluta-
fé að hámarki 100 þúsund krónur
að nafnverði. Lágmarksupphæð í
áskrift á sölutímabilinu er 1.000
krónur að nafnvirði.
Verði eftirspurn meiri en sem
nemur heildarfjárhæð þess hluta-
fjár sem í boði er skerðist hlutur
hvers og eins. Gert er ráð fyrir að
allar óskir að upphæð 30 þúsund
krónur og lægri verði teknar til
greina að fullu, en verði ekki hægt
að uppfylla allar óskir upp að 30
þúsund krónum að nafnvirði áskilur
félagið sér rétt til að lækka þessa
viðmiðunarfjárhæð.
Verði einhver hlutabréf í útboð-
inu óseld að loknu þessu sölutíma-
bili verða þau seld almennri sölu
og ræðst gengi þá af markaðsað-
stæðum, en félagið áskilur sér þó
rétt til að takmarka hlutafjárkaup
hvers kaupanda.
Allir eiga sama rétt
Sigurður Sigurgeirsson for-
stöðumaður Landsbréfa á Norð-
urlandi, sem annast útboðið sagði
að engu skipti hvenær á sölu-
tímabilinu fólk skilaði inn óskum
um hlutafjárkaup, allir hefðu
sama rétt. Mikil viðbrögð hafa
verið við hlutafjárútboðinu og
hefur starfsfólk Landsbréfa vart
haft undan að svára fyrir-
spurnum vegna útboðsins síðustu
daga. Margir óskuðu eftir því að
skrá sig fyrir hlut áður en útboðið
hófst.
Útboðsgögn liggja frammi hjá
Landsbréfum á Norðurland og í
Reykjavík og einnig í útibúum
Landsbanka íslands. Á þessum
stöðum getur fólk skráð sig fyrir
kaupum á hlutafé. Tekið er við
áskriftarblöðum með beinni af-
hendingu, en einnig verður tekið
við óskum um hlutafjárkaup sem
berast með pósti eða gegnum
myndsendi.
Snæfinnur
snjókarl á
Ráðhústorgi
RÁÐHÚSTORGIÐ hefur tekið
miklum breytingum síðustu daga.
Þar hafa nemar á fyrsta ári í
Myndlistarskólanum á Akureyri, í
samvinnu við starfsmenn bæjarins
byggt snjókarl sem er engin smá-
smíði. Snjókarlinn sem er tæpir 8
metrar á hæð, ber heitið Snæfinn-
ur, í höfuðið á sparibauk Búnaðar-
bankans. Myndlistarnemarnir
voru að koma hattinum fyrir á
snjókarlinum í gær og móta hann
eftir áðurnefndum sparibauk. Með
vinnu sinni eru nemarnir að Ieggja
sitt af mörkum til að lifga upp á
miðbæinn, svona rétt fyrir páska-
helgina.
Útför Sigríð-
ar Jónsdóttur
í Garði
Mývatnssveit
ÚTFÖR Sigríðar Jónsdóttur,
Garði í Mývatnssveit, var gjörð
frá Skútustaðakirkju laugardag-
inn 15. mars að viðstöddu miklu
fjölmenni. Séra Örn Friðriksson
flutti minninganæðu og jarð-
söng, kór kirkjunnar söng, org-
anisti Jón Árni Sigfússon.
Sigríður Jónsdóttir fæddist á
Siglufirði 1. júní 1906. Eigin-
maður hennar var Halldór
Árnason í Garði. Þau hófu þar
búskap árið 1928. Halidór lést
árið 1979. Síðustu árin bjuggu
þau með Árna syni sínum og
tengdadóttur Guðbjörgu Eyj-
ólfsdóttur. Halldór og Sigríður
í Garði eignuðust sex böm sem
öll eru á lífi.
Sigríður í Garði var vel látin
af öllum sem henni kynntust
enda vina- og kunningjahópur-
inn fjölmennur. Mývetningar
þakka henni langa og ánægju-
lega samleið.
Flutninga-
bíll á hliðina
FLUTNINGABÍLL með tengivagn
hafnaði utan vegar og valt á hlið-
ina á Dalvíkurvegi, skammt norð-
an við afleggjarann að Hauganesi
snemma í gærmorgun. Bílstjórinn
sem var einn á ferð slapp ómeidd-
ur og urðu litlar skemmdir á bíl
og vagni. Að sögn lögreglunnar á
Dalvík er ekki fullljóst með tildrög
óhappsins en vegurinn var nánast
auður í gærmorgun.
Flutningabíllinn var að flytja
um 20 tonn af ísfiski í körum í
40 feta gámi frá Reykjavík til
vinnslu í Ólafsfirði. Vel gekk að
koma bílnum á réttan kjöl eftir
að gámurinn var losaður af pallin-
um en við verkið voru notuð vél-
skófla, dráttarvél og vörubíll með
krana. Einnig gekk vel að koma
gámnum á réttan kjöl og var hon-
um komið á bíl og haldið með
hann í Ólafsfjörð.
Ferðafélag Akureyrar
Laus eru til umsóknar eftirfarandi sumarstörf:
A. Starf starfsmanns á skrifstofii FFA (75% staða).
B. Starf skálavarðar í Laugafelli.
Nánari upplýsingar veita Ingvar Feitsson, formaður stjórnar í
síma 462 7866 og Kristinn Jónsson, gjaldkeri í síma 462 4171,
eftirkl. 19.00.
Umsóknir sendist Ferðafélagi Akureyrar, pósthólf 48, 602 Akureyri.
Frestur til að skila umsóknum er til 5. apríl nk.
Stjórn FFA
Morgunblaöið/Kristján