Morgunblaðið - 21.03.1997, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Olíufélagið hf. stendur í miklum framkvæmdum
Þjónustumiðstöð
reist á Ártúnshöfða
Komur erlendra
ferðamanna til
landsins frá 1987
87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97
Erlendir ferðamenn
í janúar-febrúar
1997
Fjöldi %
Breyt. frá
fyrra ári
I.Bandaríkin 3.306 23,6 ■5,2%
2. Bretland 2.089 14,9 53,9%
3. Danmörk 1.703 12,2 ■27,4%
4.Noregur 1.319 9,5 24,0%
S.Svíþjóð 1.164 8,3-29,3%
ilfiMlgt 7,0 ■35,3%
7. Holland 655 4,7 20,8%
8. Finnland 263 1,9 19,5%
9. Frakkland 258 1,8 ■28,9%
lO.Sviss 89 0,6 0%
Önnur 2.171 15,5 35,3%
Samtals 13.999 100,0 ■1,1%
Ferðamönnum
fækkar
LÍTILSHÁTTAR samdráttur varð á
fjölda erlendra ferðamanna sem
komu til landsins fyrstu tvo mánuði
ársins, samkvæmt yfírliti frá Utlend-
ingaeftirlitinu. Þannig komu hingað
um 14 þúsund erlendir gestir eða um
1% færri en á sama tímabili 1996.
Eins og sést á meðfylgjandi töflu
er þróunin þó ákaflega misjöfn hvað
snertir þjóðemi þeirra sem hingað
komu og vekur athygli um helmings
aukning gesta frá Bretlandi, en
umtaisverð fækkun frá mörgum öðr-
um Evrópuríkjum.
OLIUFELAGIÐ hf. hefur ákveðið
að endurbyggja nú í haust bensín-
stöð félagsins á Ártúnshöfða og reisa
þar þjónustumiðstöð með veitinga-
aðstöðu. Félagið keypti nýverið
Nesti hf. í þessu skyni sem hafði
um langt skeið rekið veitingasölu á
Ártúnshöfða og fleiri stöðum á höf-
uðborgarsvæðinu í tengslum við
bensínstöðvar.
Þetta var m.a. til umræðu á aðal-
fundi Olíufélagsins sem haldinn var
í gær. Geir Magnússon forstjóri
sagði í ræðu sinni að félagið hefði
haft forgöngu um að auka vöruúrval
á bensínstöðvum, en kosið að kalla
þær stöðvar sem hefðu verið endur-
skipulagðar Hraðbúðir ESSO. Hrað-
búðirnar væru nú níu talsins, sex í
Reykjavík og þijár utan Reykjavík-
ur. Ráðgert væri að fjölga þeim enn
frekar á næstunni og í því skyni
hefði Nesti verið keypt á dögunum.
Þá kom fram að félagið stóð í
töluverðum framkvæmdum á síðasta
ári á bensínstöðvum sínum. Stærsta
framkvæmdin var á Egilsstöðum,
þar sem byggt var við bensínstöð
og verslunarrými stækkað til muna.
Þá var byggð ný bensínstöð á Pat-
reksfirði ásamt veitingaaðstöðu. Af
öðrum framkvæmdum má nefna að
félagið réðist í verulegar breytingar
á skipulagi og innréttingum í aðal-
stöðvum sínum á Suðurlandsbraut
og er áætlað að þeim Ijúki á þesu ári.
Hlutabréf keyptfyrir
287 milljónir
Sömuleiðis fjárfesti félagið í ýms-
um fyrirtækjum tengdum sjávarút-
vegi á árinu, en seldi hluti í öðrum.
Námu fjárfestingar í eignarhlutum
í öðrum félögum 287 miiljónum, en
seldir voru eignarhlutar fyrir 136
milljónir. Af fjárfestingum bar hæst
samruni fjögurrafyrirtækja í útgerð
og fiskvinnslu í ísafjarðarbæ undir
nafni Básafells hf. og síðar kaup
Básafells hf. á Norðurtanganum hf.
á ísafirði. Síðar rann Kambur hf. á
Flateyri saman við Básafell. Er Olíu-
félagið stærsti hluthafinn í þessari
samsteypu með 35,4% hlutafjárins.
Bókfært verð hlutabréfa í eigu
félagsins sem skráð eru á hluta-
bréfamarkaði nam samtals 1.935
milljónum í árslok 1996, en mark-
aðsverð þeirra á sama tíma var 3.443
milljónir. Þá má nefna að félagið á
13,37% hlut í Vátryggingafélagi ís-
lands hf. sem ekki er á hlutabréfa-
markaði. Miðað við kaupverð Lands-
bankans á 50% hlut Eignarhaldsfé-
lag Brunabótafélags íslands nemur
verðmæti bréfanna rösklega 900
milljónum króna, en bókfært verð
þeirra er 132 milljónir í árslok 1996.
Eins og fram hefur komið nam
hagnaður Olíufélagsins á síðasta ári
295 milljónum króna og óx um 12%
frá árinu 1995. Þetta svarar til 7,7%
ávöxtunar eigin fjár á árinu 1996 á
móti 7,4% árið á undan. Gert er ráð
fyrir að afkoman verði betri á árinu
1997 þegar áhrif af starfsemi Olíu-
dreifingar til lækkunar á dreifingar-
kostnaði skila sér betur en á árinu
á undan.
Á aðalfundinum var samþykkt að
greiða hluthöfum 10% arð af hlutafé
og að gefin verði út jöfnunarhluta-
bréf sem nema 15% af hlutafé.
Stjórn félagsins var endurkjörin.
Stjórnarformaður Olís á aðalfundi félagsins í gær
Gera verður þá kröfu
aðjafnræði gildi
GISLI Baldur Garðarsson, formaður
stjórnar Olíuverslunar íslands hf.,
sagði á aðalfundi félagsins sem hald-
inn var í gær, að hluthafar Olís, sem
nú hefðu orðið að Iúta úrskurði sam-
keppnisyfirvaida um að tveir af þeim
stjórnarmönnum sem Oiíufélagið hf.
hefði tilnefnt í stjórn OIís skuli víkja
úr stjórninni, hlytu að gera þá kröfu
að í þessum efnum gilti jafnræði og
miðað verði við hlutlægar reglur sem
verði öllum birtar til eftirbreytni.
Þær reglur verði látnar gilda um
alla í þjóðfélaginu, líka þá sem fyrir
daga Samkeppnisstofnunar mynd-
uðu hringi fyrirtækja sem í dag séu
ráðandi í íslensku viðskiptalífi.
„Verði það gert veit ég að for-
ráðamenn Olíufélagsins hf. munu
una vel þessari ákvörðun sam-
keppnisyfirvalda. Þeir hafa marg
lýst því yfir að þeir hafi ekki í huga
að hafa áhrif á stjórn Olís nema til
þess að efla hagsæld og sjálfstæði
þess félags, og sú hefur orðið raun-
in. Enda hefur fjárfesting þeirra í
félaginu borið góðan ávöxt.“
Hann sagði að sjónarmið sam-
keppnisyfírvalda væru um margt
skiljanleg, og með þessu væri ætl-
unin að spoma við því að samkeppn-
isaðili geti haft þau áhrif á stjórnun
fyrirtækisins að það raski sam-
keppni. Hins vegar setti hann spurn-
ingarmerki við það hvort þessar að-
gerðir sem nú hefði verið gripið til
séu raunhæfar.
„Reglur sem setja jöfnumerki
milli 1% eignaraðildar og hugsan-
legrar óhlutdrægni eða aðrar reglur
af slíku tagi eru til óþurftar. Þetta
eru ekki almennar reglur, þær eru
nánast huglægar og þeim er bara
beint gegn einu fyrirtæki," sagði
Gísli Baldur.
Hann sagði að stjórnendur Olís
hvettu samkeppnisyfírvöld til allra
góðra verka og þeir teldu mikla þörf
á að fylgja því fram að hringamynd-
un af ýmsu tagi komi ekki í veg
fyrir eðlilega samkeppni.
„Bankar eru að kaupa vátrygg-
ingafélögin, frelsi í fjölmiðlun um
ljósvaka er orðið að einkarétti eins
aðila, einokunar og fákeppnisfyrir-
tæki eru að mynda hræðslubandalag
gegn eðlilegri samkeppni með nýrri
aðferð, tryggðarkorti, og hlutafélag-
ið sem hefur einkarétt á því að flytja
fólk til og frá landinu er búið að
tryggja sér nánast allt hótelrými á
landinu. Það verður því erfitt fyrir
aðra aðila að flytja hingað fólk nema
það ætli að sofa í tjaldi. Og það er
af nógu öðru að taka.
í Morgunblaðinu í gær kom úr-
dráttur úr nýrri skýrslu Samkeppn-
isstofnunar um þetta ákveðna loft-
flutningahlutafélag. Þar kemur fram
að mjög víða er pottur brotinn, og
samband þessa fyrirtækis við ýmis
dótturfyrirtæki eða skyld fyrirtæki
með þeim hætti að það varði við
samkeppnislög. En þar er látið stað-
ar numið. Engin skilyrði sett fyrir
stjórnarsetu,“ sagði Gísli Baldur.
10% arður til hluthafa
Hluthafar Olíuverslunar íslands í
árslok voru 737 talsins og fækkaði
þeim um 63 á árinu. Tveir hluthafar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
EINAR Benediktsson, forstjóri Olíuverslunar íslands hf., heilsar
Geir Magnússyni, forsijóra Olíufélagsins hf., við upphaf aðalfund-
ar Olís í gær. Á milli þeirra stendur Gísli Baldur Garðarsson,
stjórnarformaður Olís, sem gerði úrskurð samkeppnisyfirvalda
varðandi setu í stjórn félagsins að umtalsefni.
áttu yfír 10% hlut í félaginu, en
þeir eru Hydro Texaco A/S og Olíu-
félagið hf. með 35,5% eignarhlut
hvor. Á aðalfundinum var samþykkt
að greiða 10% arð til hluthafa á
árinu 1997.
Úr stjórn Olís gengu Ólafur Ólafs-
son, Kristinn Hallgrimsson og Claire
Scobee Farley. í aðalstjórn félagsins
á næsta starfsári voru kosnir Gísli
Baldur Garðarsson, Þorsteinn Már
Baldvinsson, Ágúst Einarsson, Ólaf-
ur G. Sigurðsson, Viðar Viðarsson,
Karsten M. Olesen, og Erik Knud
Larsen.
habitat
K R I N G t U N N I