Morgunblaðið - 21.03.1997, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Willem de
Kooning
látinn
New York. Reuter.
WILLEM de Kooning,
frumkvöðull þeirrar
stefnu, sem nefnd hefur
verið afstrakt impression-
ismi, lést á Long Island á
miðvikudag 92 ára að
aldri. De Kooning var einn
áhrifamesti málari Banda-
ríkjamanna á þessari öld
og var valdur að bylting-
arkenndum breytingum á
bandarískum listum á
fimmta áratugnum.
De Kooning var með
Alzheimer-sjúkdóminn og
sagði John Silberman,
lögmaður de Kooning-
stofnunarinnar, að hann
hefði látist af náttúrulegum sök-
um. Hann hætti að mála árið
1990, en byijaði aftur nokkru
fyrir andlát sitt og þótti það að
hann tæki pensilinn fram á ný
halda sjúkdómnum í skeíjum.
De Kooning fæddist í Hollandi
og var undir miklum áhrifum frá
Arshile Gorky, Joan Miro og Pablo
Picasso. Hann málaði afstrakt og
fígúratív verk breiðum og voldug-
um pensildráttum.
Fyrsta einkasýning hans var
árið 1948 og sýndi hann þar svart-
hvít afstrakt verk. Vakti hún mik-
ið umtal og er upphaf afstrakt
impressionisma miðað við hana.
Holdgervingur
bandarískrar listar
De Kooning varð brátt hold-
gervingur bandarískrar listar og
með tímanum breyttust myndim-
ar, urðu bjartari og léttari og
svipukennd strik véku fýrir löng-
um, mjóum línum, sem dregnar
vom hvað eftir annað í mismun-
andi litatilbrigðum.
„Það var eins og að vera leidd-
ur af stórkostlegum dansara, lit-
urinn, lýríkin og lífið í því öllu,“
sagði Peter Schjeldahl, listgagn-
rýnandi í New York, um verk de
Koonings. „Hann var síðasti mikli
málarinn, sem var þannig að fýrir
honum var málverkið fullkomið
KONA I var eitt frægasta málverk Willems
de Koonings, sem lést á miðvikudag. Verkið
var málað 1952, en hann málaði mörg verk
með sama heiti. Fóru hinar afskræmdu kven-
myndir málarans fyrir brjóstið á mörgum.
milljónir dollara (um 1.456 millj-
ónir króna) árið 1989 og var and-
virði heildarverka hans þá metið
á 300 milljónir dollara (21 milljarð
króna).
De Kooning fæddist 24. apríl
1904 í Rotterdam í Hollandi. Fað-
ir hans sá um að dreifa bjór og
móðir hans rak bar. 12 ára gam-
all fór hann að vinna hjá teikni-
stofu. Hann stundaði nám við
helsta listaháskóla Rotterdam í
átta ár og fór síðan sem laumufar-
þegi til Bandaríkjanna árið 1926,
þá 21 árs. Var það sjötta tilraun
hans til að komast vestur yfir
Atlantsála.
Hann vann fyrir sér sem smið-
ur og skiltamálari í New York-
borg, en í kreppunni
miklu fékk hann
Einn áhrifa- vinnu hjá stofnun,
mesti málari sem sett var á fót tií
Bandaríkja- að hjálpa fátækum
af manna á öldinni listamönnum.
_______ Að sögn Schjeldahls
gerði de Kooning sér
fulla grein fyrir stöðu sinni í list-
heiminum. Hann var einu sinni
spurður um frægðina og til út-
skýringar svarinu skal bent á að
í þá daga voru bjöllur á hliðunum
í neðanjarðarlestimar í New York:
„Þegar ég fer í gegnum þau á ég
alltaf von á því að bjöllumar
hringi aðeins hærra.“
Willem de Kooning
vald á öllum tæknilegum hliðum
þess. Það verða ekki fleiri slíkir.
Um er að ræða svo gríðarlega
flókna hæfileika að öll menningin
þarf að hlúa að þeim.“
Margt af því, sem sigldi í kjöl-
farið, mátti rekja til de Koonings,
hvort sem það var mínimalismi,
töfraraunsæi, niðurrifsstefna eða
popplist. Helstu verk sín málaði
hann af miklu kappi og notaði til
þess venjulega húsamálningu.
Ástæðuna fyrir hraðanum sagði
hann vera þá að mikilvægt væri
„að mála svo hratt að maður geti
ekki hugsað".
Hann og Jackson Pollock, sem
vom keppinautar og vinir, vom
skæmstu stjömumar á listhimn-
inum á sjötta áratugn-
um og það var þeirra
verk að New York varð
nafli listaheimsins.
„De Kooning lækn-
aði Bandaríkin
minnimáttarkenndinni
gagnvart Evrópu,"
sagði Schjeldahl. „í Bandaríkjun-
um vom menn haldnir þeirri þrá-
hyggju að þeir gætu aldrei gert
hlutina eins vel og í Evrópu, en
de Kooning batt enda á það.“
Málverkin, sem færðu de Koon-
ing frægð, færðu honum einnig
auð. Verkið „Interchange", sem
var málað 1955, seldist á 20,8
Reuter
Ný Rússlandsstjórn
ekki verkefnalaus
Tóbaksframleiðandi
Viður kenn-
ir skaðsemi
reykinga
TÓBAKSFYRIRTÆKIÐ Ligget Gro-
up, sem framleiðir Chesterfíeld-síg-
arettur, hyggst gera samning við 21
af 22 ríkjum Bandaríkjanna, sem
hafa höfðað mál gegn tóbaksfyrir-
tækinu, þar sem það viðurkennir að
sígarettur séu vanabindandi.
Ligget Group hyggst ennfremur
vinna með ríkjunum í svipuðum
málaferlum gegn öðmm tóbaksfyrir-
tækjum. Samkvæmt samningnum á
fyrirtækið að láta ríkjunum í té þús-
undir nýrra gagna og aðstoða við
að túlka þau í málaferlunum. Þá
ætlar fyrirtækið að rifta öllum samn-
ingum um trúnaðarskyldu starfs-
manna þess til að þeir geti borið vitni
fyrir rétti í dómsmálunum.
Fyrirtækið hefur ennfremur fallist
á að setja viðvaranir á vindlinga-
pakkana um að sígarettur séu vana-
bindandi. Loks mun fyrirtækið gefa
út yfirlýsingu um að reykingar geti
skaðað heilsu manna, nikótín sé
vanabindandi og að tóbaksfyrirtækin
reyni sérstaklega að ná til ungmenna
með auglýsingum sínum.
RÚSSNESKA ríkisstjórnin kom í
fyrsta sinn saman í Moskvu í gær
eftir róttæka uppstokkun. Viktor
Tsjernomyrdín sést hér stýra
fundinum, en þar var ekki stækk-
un NATO aðaláhyggjuefnið, eins
og á fundi forsetanna Borísar
Jeltsíns og Bills Clintons i Hels-
inki, heldur voru efnahagsmálin
í landinu efst á baugi. Brýnasta
verkefnið er að gera upp við þá
ríkisstarfsmenn, sem hafa engin
laun fengið jafnvel mánuðum
saman, en búist er við, að milljón-
ir manna leggi niður vinnu í einn
dag í næstu viku til að mótmæla
þessu ófremdarástandi. Tsjerno-
myrdín situr við borðsendann, en
næstur honum er Borís Nemtsov,
fyrsti aðstoðarforsætisráðherra.
Tsjernomyrdín boðaði frekari
mannabreytingar í stjórninni eftir
heimkomu Jeltsíns forseta af
Helsinki-fundinum.
EF TIL vill verður það af
hinu góða ef Bill Clinton
Bandaríkjaforseti og Bor-
ís Jeltsín Rússlandsforseti
komast ekki að niðurstöðu á fundi
sínum hér í Helsinki, þar sem þá
gefst mönnum væntanlega tími til
þess að íhuga aðrar hliðar á þeim
vanda sem stækkun Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) óneitanlega
er,“ segir Nils Torvalds, fréttaritari
finnska ríkisútvarpsins í Moskvu.
Hann kom til Helsinki til að fylgjast
með fundinum ásamt rússneskum
blaðamanni, Fjodor Lukjanov, sem
starfað hefur lengi hjá Moskvu-
útvarpinu og ýmsum dagblöðum en
vinnur nú að því að koma á fót nýju
dagblaði í Moskvu.
Hvonigur á von á því að nokkur
niðurstaða fáist af leiðtogafundinum
og telur Lukjanov að hann minni
um margt á Reykjavíkurfundinn.
„Þar fékkst engin lausn. Leiðtogarn-
ir, Ronald Reagan og Mikhaíl Gorb-
atsjov, skildu ekki hvor annan. Að
vísu hittust þeir þarna í [annað sinn],
ólíkt Clinton og Jeltsín sem hafa
hist ellefu sinnum. En allt tal um
að þeir séu svo góðir vinir og að
vinátta þeirra muni bæta heimsfrið-
inn er út í hött,“ segir Lukjanov.
Pólitískur ávinningur
keppikefli Jeltsíns
Torvalds segir að þótt margt
slæmt megi segja um Gorbatsjov,
þá frýi honum enginn vits og hann
hafi verið einstaklega fljótur að átta
sig á stöðu mála, ólíkt Reagan. Nú
séu aðrir menn á ferð. „Við verðum
að muna að Jeltsín er pólitískt dýr
í versta skilningi þess orðs og að
allt sem hann segir og gerir miðast
við hvaða pólitískan ávinning hann
telur sig hafa af því. Hann er upp
á sitt besta þegar erfiðleikar steðja
að, keyrir á adrenalíninu. En enginn
skyldi búast við því að hann setji
fram skynsamlegt endurmat á að-
stæðum.“
- Sergei Jastrsjembskí, aðstoðar-
maður Jeltsíns, lýsti því yfir í fyrra-
kvöld að stækkun NATO væru
stærstu mistök Vesturlanda frá lok-
um kalda stríðsins. Eruð þið sam-
mála honum um það?
„Að minnsta kosti um það hvern-
ig farið var að málinu í upphafi.
Löndin sem voru á áhrifasvæði
Rússa eftir hrun Sovétríkjanna
þurftu öryggistryggingar. Rætt var
um evrópskt öryggisráð, sem komst
aldrei til starfa og gerði ekkert gagn,
og þrýstingurinn á Vesturlönd óx.
Málið kom upp í kosningabaráttunni
fyrir bandarísku forsetakosningarn-
ar og varð að baráttumáli, sem skyldi
aldrei hafa verið. Vaðið hefur verið
áfram meira af kappi en forsjá og
því tel ég það af hinu góða ef engin
niðurstaða fæst á fundinum, því þá
geta menn sest niður og reynt að
leysa vandamálið," segir Torvalds.
Evrópskt öryggisráð?
Hann segir að nýfrjálsu löndin í
Austur-Evrópu þurfi öryggistrygg-
ingar, sem komi Rússum einnig til
góða, og dragi úr tortryggni þeirra.
Skynsamlegasta lausnin sem hann
hafí heyrt á þessu sé að mynda evr-
FINNSKU forsetaþjónin, Martti og Eeva Ahtisaari, bjóða Borís
Jeltsín Rússlandsforseta velkominn við komu hans til Helsinki.
Ólíkur hátt-
ur á komu
leiðtoganna
KOMA leiðtoga Rússlands og
Bandaríkjanna til Finnlands í gær
var með gjörólíkum hætti og studdi
í raun yfirlýsingu Borísar Jeltsíns
frá því í síðustu viku um hver væri
sjúklingurinn á fundinum. Jeltsín
leit vel út og fékk konunglegar
móttökur en koma Bills Clintons
Bandaríkjaforseta bar þess öll merki
að þar færi maður í hjólastól. Var
forsetanum ekið rakleiðis á hótelið
í sendiferðabíl þar sem Clinton
kemst ekki inn í venjulega limúsínu
nema með erfiðismunum.
Nokkurs skjálfta gætti í borginni
er leiðtogamir og fjölmennt fylgdar-
lið þeirra lentu á Vantaa-flugvelli,
Clinton um hádegi og Jeltsín þremur
tímum síðar. Lögreglumönnum hef-
ur fjölgað mjög á götum úti en lög-
reglustjóri Helsinkiborgar vill ekki
gefa upp hversu margir sinna örygg-
isgæslu vegna fundarins, segir að-
eins að þeir séu nógu margir.
Við komuna var Clinton fluttur
frá borði forsetavélarinnar í gáma-
bíl sem lyft var upp að dyrum vélar-
innar, hjólastól forsetans ýtt inn og
hann látinn síga niður. Martti
Ahtisaari tók á móti Clinton og föru-
neyti, sem hélt rakleiðis til Intercont-
inental-hótelsins þar sem Banda-
ríkjaforseti býr. Ástæða þess er fyrst
og fremst að þar er góður aðgangur
fyrir hjólastóla en það sama var
ekki uppi á teningnum í gestahúsi
Finnlandsforseta þar sem Jeltsín
dvelur.
Mike McCurry, talsmaður Clint-
ons, sagði við blaðamenn hér í Hels-
inki í gær að reynsla forsetans af
því að sitja í hjólastól hefði opnað
augu hans gagnvart aðstæðum fatl-
aðra og gaf til kynna að í framtíð-
inni kynni Clinton að beita sér fyrir
að bæta þær. Hann sagði að forset-
inn léti þetta þó ekki á sig fá og
neitaði því að Clinton hefði verið
óánægður með að vera fluttur í
gámabíl úr flugvélinni. „Við gerum
okkur fyllilega grein fyrir því að
það komu engir ímyndarsmiðir ná-
lægt skipulagningu komunnar,
gámabíll og sendiferðabíll koma ef
til vill ekki vel út í sjónvarpi, en
einhvern veginn varð að koma for-
setanum frá borði og til borgarinn-
ar,“ sagði McCurry er hann svaraði j