Morgunblaðið - 21.03.1997, Side 24
ðS YGGí SHAM fS HU0Á(1UTfífV*
24 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
Myndverk
Magnúsar
Tómassonar
í Hallgríms-
kirkju
OPNIJÐ verður sýning í and-
dyri Hallgrímskirkju á verkum
Magnúsar Tómassonar mynd-
listarmanns sunnudaginn 23.
mars.
Myndverk Magnúsar og
skúlptúrar prýða margar opin-
berar byggingar og útivistar-
svæði. Meðal hinna þekktustu
eru Þotuhreiðrið við flugstöð
Leifs Eiríkssonar í Keflavík,
Minnismerki um óþekkta emb-
ættismanninn í garðinum milli
Lækjargötu og Pósthússtrætis
í Reykjavík, Amlóði, 5 metra
hátt verk úr ryðfríu stáli og
gijóti á Seltjamamesi og Grett-
istak, 7 metra hátt verk á Akra-
nesi.
Listvinafélag Hallgríms-
kirkju og Listasafn Hallgríms-
kirkju hefur boðið Magnúsi að
sýna verk sem hann hefur unn-
ið með trúarlegu ívafi. Magnús
valdi á þessa sýningu 5 verk
sem hann vann fyrir allmörgum
ámm og vöktu þá mikla at-
hygli. Þvi má nú sjá í anddyri
Hallgrímskirkju „Handhæga
settið“ úr jámi og flaueli og
verkið „5 brauð og 2 fiskar“
en bæði þessi verk vom á
kirkjulistasýningu á Kjarvals-
stöðum 1983. Þá er verk sem
nefnist „Verði ljóst“, jámverk
sem hefur skírskotanir í ýmsar
áttir og loks era tvö málverk,
sem skoða má sem eins konar
hugvekju um lífið og umheim-
inn. Sýningin í heild hefur þann
tilgang að vekja jafnt kirkju-
gesti sem aðra gesti til um-
hugsunar um píslargöngu og
upprisu Krists í dymbilviku og
á páskum," segir í kynningu.
Heimur Guð-
ríðar í Kópa-
vogskirkju
LEIKRITIÐ Heimur Guðríðar
- síðasta heimsókn Guðríðar
Símonardóttur í kirkju Hall-
gríms eftir Steinunni Jóhann-
esdóttur verður sýnt í Kópa-
vogskirkju sunnudaginn 23.
mars kl. 17.
Með helstu hlutverk í sýning-
unni fara Margrét Guðmunds-
dóttir og Helga Elínborg Jóns-
dóttir, sem báðar leika Guðríði
á ólíkum æviskeiðum og Þröst-
ur Leó Gunnarsson er í hlut-
verki Hallgríms. Tónlist er eftir
Hörð Áskelsson og leikur hann
sjálfur á hið nýja orgel Kópa-
vogskirkju _en búninga gerir
Elín Edda Árnadóttir. Höfund-
ur leikritsins, Steinunn Jóhann-
esdóttir, er einnig leikstjóri
sýningarinnar.
Sunnudagstón-
leikar í Kópa-
vogskirkju
FIMMTU tónleikamir af átta
til styrktar orgelkaupum fyrir
Kópavogskirkju verða pálma-
sunnudag 23. mars kl. 21. Að
þessu sinni leikur Kjartan Sig-
urjónsson organisti Seljakirkju
á orgelið. Efnisskrá tónleik-
anna er eftirfarandi:
A. Gabrieli: Canzona. J.P.
Sweelinck: Mein Junges Leben
hat ein End. 6 sálutilbrigði.
D. Buxtehude: Preludia og fuga
í g. moll. J.S. Bach: Fantasía
og fúga í c-moll. Max Reger:
Benedictus op. 59. Cæsar
Franck: Choral í a-moll.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Ókeypis fyrir börn og ellilífeyr-
isþega.
ni.'í * lo'JM' .o»i
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
GUÐRÚN Birgisdóttir og Peter Máté.
Tónleikar
Guðrúnar og
Peter Máté
GUÐRÚN Birgisdóttir flautuleik-
ari og Peter Máté píanóleikari
halda tónleika um næstu helgi í
Hveragerði og í Þorlákshöfn.
Fyrri tónleikarnir verða í Hvera-
gerðiskirkju laugardaginn 22.
mars kl. 17 en þeir síðari sunnu-
daginn 23. mars, pálmasunnudag,
kl.20.30.
Á efnisskrá þeirra eru sígild
verk, sem telja má til þess feg-
ursta sem ritað hefur verið fyrir
flautu og píanó, m.a. eftir Schu-
bert, Fauré og Saint-Saens. Guð-
rún og Peter léku saman á fjölda-
mörgum tónleikum erlendis á síð-
asta ári, m.a. í Prag, París og San
Francisco.
Myndlistar-
sýning
í Tehúsinu
RAGNHILDUR Stefánsdóttir,
myndhöggvari opnar sýningu í Te-
húsinu í Hlaðvarpanum laugardag-
inn 22. mars kl. 16.
Sýningin stendur til 20. apríl og
er opin einu sinni í viku, á laugar-
dögum milli 13-17. Þess á milli er
sýningin opin allan sólarhringin inn
um glugga Tehússins.
Ragnhildur lauk námj frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands árið
1981 og mastemámi frá Carnegie
Mellon University, College of Fine
Art í Pittsburg í Bandaríkjunum
árið 1987.
Ragnhildur hefur haldið fjórar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum heima og erlendis.
Islenska óperan
Dagskrá til heiðurs
Gylfa Þ. Gíslasyni
OPIÐ hús verður í
íslensku óperunni á
morgun til heiðurs
Gylfa Þ. Gíslasyni,
fyrrverandi prófess-
or, alþingismanni og
ráðherra, sem varð
áttræður í febrúar
síðastliðnum. Fjöldi
listamanna mun
koma fram; skáld
munu lesa, leikarar
leika, söngvarar
syngja og tðnlistar-
menn spila. Einnig
verður sýning á
höggmyndum, gler-
list og málverkum í
umsjá Helga Gísla-
sonar og Leifs Breiðfjörðs.
Garðar Cortes, framkvæmda-
stjóri íslensku ópemnnar, sagði í
samtali við Morgunblaðið að
ástæðan fyrir því að listamennirn-
ir vildu heiðra Gylfa með þessum
hætti væri sú að þeir bæm mikla
virðingu fyrir honum. „Við finnum
hvað Gylfi hefur verið listum,
menningu og menntun mikils virði
og viljum gera honum glaðan
dag. Sjálfur hefur hann ekki beð-
ið um að haldið yrði sérstaklega
upp á þessi tímamót
og því erum við
þama af eigingjörn-
um hvötum; við vilj-
um fá að votta þess-
um heiðursmanni
virðingu okkar.“
Kór íslensku óper-
unnar undir stjórn
Garðars Cortes mun
hefja dagskrána á
morgun og syngja
lög eftir Gylfa og
Verdi. Aðrir sem
fram koma eru Garð-
ar Cortes, Jónas
Ingimundarson, Ein-
ar Már Guðmunds-
son, Sigríður Ella
Magnúsdóttir, Fóst-
bræður, Ólöf Kolbrún Harðardótt-
ir, Þorgeir J. Andrésson, Gunnar
Eyjólfsson og Guðrún Þ. Steph-
enssen, Helgi Hálfdanarson og
Rannveig Fríða Bragadóttir. Jón
Baldvin Hannibalsson flytur er-
indi sem hann nefnir „Húmanist-
inn í íslenskri pólitík“ og Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
flytur ávarp.
Dagskráin hefst kl. 17 og er
öllum opin.
GylfiÞ.
Gíslason
SIGURÐUR Þórir Sigurðsson: Hugarburður, olía á striga.
Sýnir á tveimur
stöðum
Kvöldnám-
skeið um lestur
Biblíunnar
í DYMBILVTKUNNI, nánartiltek-
ið þriðjudagskvöldið 26. mars,
hefst námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar Háskólans
um Biblíuna, sögu hennar, tilurð,
áreiðanleika og áhrif. Námskeiðið
er haldið fimm kvöld alls og lýkur
því_23. apríl nk.
Á námskeiðinu verður Biblían
kynnt sem safn rita sem orðið
hafa til við ólíkar aðstæður á ólík-
um tímum og helstu flokkar rita
kynntir. Jafnframt verður ritunar-
saga Biblíunnar kynnt og helstu
handrit. Fjallað verður um áreiðan-
leika afritunar öld fram af öld og
lykilhugtök í Gamla og Nýja testa-
mentinu skýrð. Rætt um ólíkar
forsendur biblíulestrar (trúarlegar,
bókmenntalegar) og aðferðir
kynntar. Loks lesnir kaflar úr ólík-
um ritum.
Kennari verður Sigurður Páls-
son guðfræðingur, framkvæmda-
stjóri Hins íslenska Biblíufélags.
SIGURÐUR Þórir Sigurðsson
opnar tvær sýningar á morgun
laugardaginn 22. mars. í Norræna
húsinu verða eingöngu olíumál-
verk, en í Gallerí Ófeigs, Skóla-
vörðustíg 5, verða myndir unnar
í vatnslit og gouache. Sýningin
hjá Ófeigi verður opnuð kl. 14 en
í Norræna húsinu kl. 16.
Sigurður Þórir er fæddur og
uppalinn í Reykjavík og stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1968 til 1970, eftir
það fór hann til náms við Konung-
legu Listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn 1974 og var þar við
nám til 1978.
Sigurður Þórir hefur haldið
einkasýningar hér heima og er-
lendis og tekið þátt í samsýning-
um. Hann hefur einnig stundað
kennslustörf, en sinnt listsköpun
eingöngu frá árinu 1995. Hann
starfaði að félagsmálum myndlist-
armanna um árabil og sat í stjórn
SÍM. Sigurður bjó eitt ár í Eng-
landi og starfaði þar að list sinni
og sýndi þann afrakstur á sýningu
1992 í Norræna húsinu.
Verk eftir Sigurð Þóri eru í
eigu Listasafns Islands, Lista-
safns Reykjavíkurborgar, Lista-
safns ASÍ, Listasafns Kópavogs,
Listasafns Húsavíkur og Lista-
safns Borgarnes, auk ýmissa
stofnana, fyrirtækja og einstakl-
inga.
I kynningu segir að myndefni
Sigurðar sé maðurinn og hans
nánasta umhverfi. Einnig komi
fram í myndum sú óvissa og ógn
sem manninum stafi af tilvist sinni
og þeim andlegu og efnislegu
hlutum sem hann tileinkar sér.
Tengslaleysi mannsins við náttúr-
una má líka lesa, og þeirri and-
stöðu sem aðskilur reynsluheim
manns og konu. Maðurinn er far-
inn að lifa í sínum eigin heimi úr
tengslum við sitt nánasta um-
hverfi. Sýningarnar standa til
sunnudagsins 6. apríl.
Nýjar bækur
• Stóra orðabókin erfyrir
2-4 ára börn. Um er að ræða
harðspjaldabók sem á að auð-
velda bömum að auka orða-
forða sinn. í henni er að finna
fjölda litskrúðugra mynda af
ýmiss konar hlutum, fötum,
dýmm og öðru sem barnið
þarf að kunna skil á. Heiti
hlutanna em skráð við mynd-
irnar.
Útgefandi er Skjaldborg.
Kolbrún Benediktsdóttir
þýddi. Stóra orðabókin er 20
bls. og leiðbeinandi útsöluverð
er 790 kr.
Gömlu lögin
við Passíu-
sálmana
Hallgrímur
Pétursson
SMARI Ola-
son kirkju-
tónlistar-
maður held-
ur fyrirlest-
ur í kvöld,
föstudags-
kvöld, kl. 20
í Friðrik-
skapellu við
Hlíðarenda
um „gömlu
lögin“ við Passíusálma Hall-
gríms Péturssonar. Smári hef-
ur um langt skeið fengist við
rannsóknir á fornum íslenskum
sálmalögum og sérstaklega á
þeirri sönghefð sem lagðist nið-
ur í lok 19. aldar með tilkomu
nýrrar sönghefðar sem barst
hingað eftir að harmóníum-
hljóðfæri komu inn í kirkjur
landsins. Smári mun einnig
fjalla um upptökur á þjóðfræði-
legu efni sem gerðar voru hér
á landi, aðallega á árabilinu
milli 1960 og 1976 og sýna
samanburð á mismunandi lag-
gerðum við sálmana.
Undanfarin þrjú ár hefur
Smári sungið alla Passíu-
sálmana með „gömlu lögunum"
á föstunni. Nú í ár söng hann
þau í Friðrikskapellunni, en
hann lauk því sl. miðvikudag.