Morgunblaðið - 21.03.1997, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 35
AÐSENDAR GREINAR
Svar við viðtali Mannlífs við
séra Karl Sigurbj örnsson
Arni Stefán
Jónsson
ÉG GET ekki orða
bundist eftir að hafa
lesið viðtal við einn af
prestum þessa lands,
séra Karls Sigur-
björnsson, í Mannlífí.
Mér var bent á þessa
grein svo það var hrein
tilviljun að ég las hana.
Varð ég alveg dolfall-
inn og er þá vægt til
orða tekið.
Að voga sér að
segja: „Hið illa er
óskýranlegt, það er
eitthvað sem er þarna.
Við getum tjáð það
með því að segja að
Guð eigi sér óvin, eða
andstæðing, við getum sagt að
syndin búi í okkur sjálfum, og þar
fram eftir götunum, en allar þessar
tilraunir okkar til skýringar enda
bara í þeim punkti að þetta er óút-
skýranlegt."
Furðulegt að láta slíkt út úr sér
af manni sem er menntaður og
lærður á þessum sviðum. Ef bara
einhver venjulegur leikmaður ætti
í hlut, hefði mér ekki dottið í hug
að svara honum, heldur farið eftir
Orðskviðununum 26:4 sem ritað er:
„Svara þú ekki heimskingjanum
eftir fíflsku hans, svo að þú verðir
ekki honum jafn.“
En vegna menntunar og þekk-
ingar séra Karls á þessum málum
verður honum svarað samkvæmt
Orðskviðunni 26:5 þar sem ritað
er: „Svara þú heimskingjanum eft-
ir fíflsku hans, svo að hann haldi
ekki að hann sé vitur.“
Fyrir þá sem hafa lesið og trúa
því sem Biblían segir, er það eng-
inn vafi hvaðan hið illa kemur, frek-
ar en tilvera Guðs. Enda er það
uppistaða kristinnar trúar að trúa
því að Biblían sé orð Guðs, eins
og ritað er í II. Péturs bréfi 1:20-21:
„Vitið það umfram allt, að enginn
ritningar spádómur verður þýddur
af sjálfum sér. Því að aldrei var
nokkur spádómur borinn fram að
vilja manns, heldur töluðu menn
frá Guði, knúðir af Heilögum
anda.“
Falli djöfulsins er greinilega lýst
í Jesaja 14:12-15: ;,Hversu ert þú
hrapaður af himni 0 Lucifer, sonur
morgunsins! Hversu ert þú að velli
lagður, undirokari þjóðanna! Þú
sagðir í hjarta þínu: „Ég vil upp
stíga til himins! Ofar stjörnum
Guðs vil ég reisa veldisstól minn.
Á þingfjalli guðanna vil ég setjast
að, yzt í norðri. Ég vil upp stíga
ofar skýjaborgum, gjörast líkur
hinum Hæsta“. Já, til heljar var
þér niður varpað, í neðstu fylgsni
grafarinnar. Einnig segir í Efesu-
bréfinu 6:11-12: „Klæðist alvæpni
Guðs, til þess að þér getið staðist
vélabrögð djöfulsins. Því að barátt-
an sem vér eigum í er ekki við blóð
og hold, heldur við tignirnar og
völdin, við heimsdrottna þessa
myrkurs, við andaverur vonskunn-
ar í himingeimnum."
Einnig er ritað í Matteus
13:37-39: „Og Jesús svaraði og
sagði: „Sá er sáir góða sæðinu er
manns sonurinn (Jesús); en akurinn
er heimurinn; en góða sæðið, það
eru börn Guðsríkis, en illgresið eru
börn hins vonda (djöfulsins), en
óvinurinn er sáði því er djöfull-
inn.““ Og ennfremur í Matteusi
25:41: „Þá mun hann (Jesús) segja
við þá til vinstri handar: „Farið frá
mér, þér bölvaðir, í eilífan eldinn,
sem fyrirbúinn er djöflinum og
englum hans.““
Þetta eru bara nokkur dæmi úr
Biblíunni, það eru mörg önnur, svo
það er enginn vafi hver óvinurinn
er. Varðandi eilífðarmálin segir
séra Karl: „Ef við förum að leita í
Biblíunni að lýsingum á því sem
tekur við er eftirtekjan afskaplega
rýr. Svo undarlegt sem það er virð-
ist lítill áhugi á því í
þeirri góðu bók. Það
er næstum eins og það
komi manni ekkert
sérstaklega við. Af því
að það er þetta líf sem
skiptir svo miklu
máli.“
Þvílík fásinna frá
lærðum manni og alls
ekki rétt með farið. Að
láta þjóðina vera í þeirri
villutrú að ekkert eftir-
líf sé og „ .. .lítill áhugi
á því í þeirri góðu bók“.
Það er nú helst, því ein
aðaluppistaða boð-
skaps Jesús er um ei-
lífðina og þess vegna
kallað fagnaðarerindi. Samanber
Jóhannes 11:25-26. „Jesús sagði:
„Ég er upprisan og lífið; sá sem
trúir á mig mun lifa þótt hann deyi
og hver sá sem lifir og trúir á mig,
Fyrir þá sem hafa lesið
o g trúa því, sem Biblían
segir, segir Árni Stefán
Jónsson, er enginn vafi
hvaðan hið illa kemur,
frekar en tilvera Guðs.
hann skal aldrei að eilífu deyja.““
Hvar við dveljum í eilífðinni er
lýst mjög nákvæmlega í Biblíunni.
Opinberun Jóhannesar 21:1-4: „Og
ég sá nýjan himin og nýja jörð, því
að hinn fyrri himinn og hin fyrri
jörð var horfin, og hafíð er ekki
framar til. Og ég sá borgina helgu,
nýja Jerúsalem, stíga niður af
himni frá Guði, búna sem brúði er
skartar fyrir manni sínum. Og ég
heyrði raust mikla frá hásætinu,
er sagði: „Sjá tjaldbúð Guðs er
meðal mannanna og hann mun búa
hjá þeim og þeir munu vera fólk
hans, og Guð sjálfur mun vera hjá
þeim, Guð þeirra. Og hann mun
þerra hvert tár af augum þeirra,
og dauðinn mun ekki framar til
vera, hvorki harmur né vein, né
kvöl er framar til; hið fyrra er far-
ið.““ Síðar í sama kafla er borginni
lýst nákvæmlega.
Op. V. 10-17: „Og hann flutti
mig í anda upp á mikið og hátt
fjall, og sýndi mér borgina helgu,
Jerúsalem", sem niður steig af
himni frá Guði og hafði dýrð Guðs;
ljómi hennar var líkur dýrasta
steini, sem jaspissteinn, kristal-
skær. Hún hafði mikinn og háan
múr og hafði tólf hlið, og við hiiðin
tólf engla og nöfn á rituð sem eru
nöfn þeirra tólf kynkvísla ísraels-
sona. Móti austri voru þrjú hlið og
móti norðri þrjú hlið og móti suðri
þjrú hlið og móti vestri þijú hlið.
Og múr borgarinnar hafði tólf und-
irstöðusteina og á þeim tólf nöfn
hinna tólf postula lambsins. Og sá,
sem við mig talaði, hélt á kvarða,
gullstaf, til að mæla borgina og
hlið hennar og múr hennar. Og
borgin liggur í ferhyrning, jöfn á
Ert þú
EINN
í heiminum
Hefurðu engan að
tala við?
VINALÍNAN
561 6464 • 800 6464
öll kvöld 20-23
lengd og breidd. Og hann mældi
borgina með stafnum tólf þúsund
skeið; lengd hennar og breidd og
hæð eru jafnar. Og hann mældi
múr hennar hundrað fjörutíu og
fjórar álnir, eftir kvarða manns,
sem er mál engils.“
Eftir þessum mælingum er borg-
in 1.400x1.400x1.400 mílur, eða
sem svarar til 2 milljarðar 744
milljón rúmmílur að stærð. Þetta
er 15 sinnum grunnflötur allrar
jarðarinnar, sjór og land sameinað-
ur; múr hennar er 216 fet á breidd.
Síðan er haldið áfram að lýsa
borginni nánar í þessum sama
kafla. Mjög nákvæm lýsing og
gætum við ekki lýst þeirri borg sem
við búum í núna jafn nákvæmlega.
Þessi borg mun verða framtíðar-
heimili þeirra sem frelsaðir eru og
er það mikið tilhlökkunarefni. Við
verðum engir andar þar eins og
sumir halda, heldur reistir upp í
okkar líkama eins og Jesús Kristur
var uppreistur. Samanber Lúkas
24:36-. „En þegar þeir (postularn-
ir) voru að tala um þetta, stóð Jes-
ús sjálfur meðal þeirra og segir við
þá: „Friður sé með yður.“ En þeir
urðu skelfdir og hræddir og hugð-
ust sjá anda. Og hann sagði við
þá: „Hví eruð þér óttaslegnir og
hvers vegna vakna efasemdir í
hjarta yðar? Lítið á hendur mínar
og fætur og það er ég sjálfur. Þreif-
ið á mér og lítið á, því að andi
hefur ekki hold og bein, eins og
þér sjáið mig hafa“ (ekkert blóð).
Og er hann hafði þetta mælt sýndi
hann þeim hendur sínar og fætur.
En er þeir enn þá trúðu ekki fyrir
fögnuði og voru fullir undrunar
sagði hann við þá: „Hafíð þér hér
nokkuð til matar?“ Og þeir fengu
honum stykki af steiktum fiski.
Og hann tók það og neytti þess
frammi fyrir þeim.“
Séra Karl er spurður: „Tekur
hann (Kristur) á móti þeim sem
ekki trúa á hann?“ Og svarið var:
„Ég bið þess líka að hann geri það
og vona það. Því ég veit að Guð
er kærleikur. Það sýnir Kristur.
Og ég veit að Guð fyrirgefur.“
Auðvitað vitum við að Guð er
kærleikur, að Drottinn er réttlátur,
klettur minn sem ekkert ranglæti
er hjá. Vegur Guðs er lýtalaus, orð
Drottins er skýrt; skjöldur er hann
öllum þeim sem leita hælis hjá hon-
um. En það er engin von fyrir þá
sem ekki trúa á Jesús Krist, orð
Drottins eru mjög skýr um það.
Samanber Opinberun Jóhannesar
21:5-8: „Og sá sem í hásætinu sat
sagði: Sjá ég geri alla hluti nýja og
hann segir: Rita þú því að þetta eru
orðin trúu og sönnu. Og hann sagði
við mig: Það er fram komið. Ég er
Alfa og Omega, upphafíð og endir-
inn. Ég mun gefa þeim ókeypis sem
þyrstur er, af lind lífsvatnsins. Þeir
er sigra munu erfa þetta og ég mun
vera þeirra Guð og þeir munu vera
mín böm. En fyrir hugdeiga og
vantrúaða og viðurstyggilega og
manndrápara og frillulífsmenn og
töframenn og skurðdýrkendur og
alla lygara - þeirra mun vera í dík-
inu sem logar af eldi og brenni-
steini, sem er hinn annar dauði.“
Jafnvel að trúa á Jesús Krist
með orðunum er ekki nóg til frels-
unar. Jakobsbréf 2:19-20: „Þú trú-
ir að Guð sé einn. Þú gjörir vel;
en illu andarnir trúa því líka og
skelfast."
Við verðum að endurfæðast í
Kristi, samanber Jóhannes 3:5-7:
„Jesús svaraði: Sannarlega,
sannarlega segi ég þér, ef maður-
inn fæðist ekki af vatni og anda
getur hann ekki komist inn í Guðs-
ríki. Það sem af holdinu er fætt
er hold og það sem af andanum
er fætt er andi. Undrast þú ekki
að ég sagði þér: Yður ber að endur-
fæðast.“ Einnig segir í Rómveija-
bréfínu 8:9: „En hafi einhver ekki
anda Krists, þá er sá ekki hans.“
Einnig segir Jesús Kristur í Matt-
eusi 7:13-15: „Gangið inn um
þrönga hliðið því að vítt er hliðið
og breiður vegurinn er liggur til
glötunarinnar og margir era þeir
sem ganga inn um það, því að
þröngt er hliðið og mjór vegurinn
er liggur til lífsins (eilífs), og fáir
eru þeir sem fínna hanna. Gætið
yðar fyrir falsspámönnum er koma
til yðar í sauðaklæðum, en hið innra
glefsandi vargar.“
Frelsið er gjöf frá Guði, saman-
ber Efesubréfíð 2:8: „Því af náð
eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú;
og það er ekki yður að þakka held-
ur Guðs gjöf.“
Að lokum vil ég biðja fyrir þjóð-
inni. Ég bið að skýlu þeirri sem
fagnaðarerindi vort er hjúpað,
skýlu þeirri er guð þessarar jarðar
(djöfullinn) hefur blindað hugsanir
hinna vantrúuðu, verði svipt burt,
svo að birta af fagnaðarerindinu
um dýrð Krists, sem er ímynd Guðs,
megi skína inn í hjörtu þeirra, ég
bið þess í Drottins Jesús blessaða
nafni.
Höfundur er skipstjóri, búsetturí
Halifax íKanada.
TILKYNNING UM UTBOÐ MARKAÐSVERÐBREFA
SAMHERJI HF.
HLUTABRÉFAÚTBOÐ
Heildarnafnverð nýs hlutafjár:
Sölugengi:
Sölutímabil:
Greiðsla lilutaíjár:
Söluaðilar:
Umsjón með útboði:
Skráning:
115.000.000.- kr. Þar af hafa forkaupsréttar-
hafar nýtt 70.000.000.- kr. Til sölu á
almennun markaði koma því 45.000.000.- kr.
9,0 á sölutímabili A, en getur eftír það breyst
eftir markaðsaðstæðum.
A. 21. - 26. mars 1997.
Skila þarf áskriftarblöðujn til Landsbréfa hf.
eða í utibú Landsbanka Islands fyrir
kl. 16.00 miðvikudaginn 26. mars 1997.
B. 1. apríl - 21. september 1997.
Einungis kemur til sölu á þessu tímabili ef
hlutabréfin seljast ekki upp á fyrra
sölutímabili.
Greiðsluseðlar verða sendir áskrifendum
jafnskjótt og yfirferð áskriftarblaða er lokið
og er gjalddagi þeirra hinn 15. apríl 1997.
Skrifstofa Landsbréfa hf. Akureyri, ,
Landsbréf hf. og útibú Landsbanka Islands.
Landsbréf hf.
Jafnframt útboðinu er sótt um sjcráningu
hlutabréfanna á Verðbréfaþingi Islands.
Útboðs- og skráningarlýsing vegna ofangreindra hlutabréfa
liggur frammi hjá söluaðilum.
1»
SAMHERLi! HF
y LANDSBREF HF.
7^4« tf. f/l
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 535 2000, bréfasími 535 2001.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAPINGIÍSLANDS.