Morgunblaðið - 21.03.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
+ Annelise
Blomsterberg
var fædd í Nörre-
sundby 2. nóv-
ember 1906. Hún
lést á Droplaugar-
stöðum í Reykjavík
hinn 14. mars síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Nieis Madsen
Brandborg og Mar-
en Krogsgaard.
Annelise átti tvær
systur, Inger, sem
er látin, og Karen,
sem nú býr í Ala-
borg.
Hinn 9. júní 1929 giftist Ann-
elise Frederik A. Hans Blomst-
erberg sem var fæddur 6. októ-
ber 1898 í Helsingör, en hann
lést í Reykjavík 23. október
1949. Þau eignuðust tvo syni,
Niels Marius Blomsterberg,
fæddur í Reykjavík 15.1. 1927,
kvæntur Maríu Óskarsdóttur,
fædd í Reykjavík 18.6. 1931,
og Hans Blomsterberg, fæddur
í Reykjavík 9.8. 1928, kvæntur
Ástu Sigrúnu Oddsdóttur,
fædd í Steinsholti I Leirársveit,
Borgarfirði, 26.10. 1928. Af-
komendur Annelise eru 39 í
dag.
Utför Annelise verður gerð
frá Fossvogskapellu í dag, og
hefst athöfnin klukkan 10.30.
Þá er komið að kveðjustund,
amma mín Lása. Þegar horft er til
baka líða minningamar gegnum
hugann. Við vorum ekki háar í loft-
inu Emma frænka mín og ég þegar
við fengum að gista hjá þér nótt og
nótt og þá var nú glatt á hjalla hjá
okkur þrem. Við fengum að vaka
frameftir og spila við þig, hlusta á
danslögin í útvarpinu, syngja saman,
sitja saman og spjalla. Þú sagðir
okkur ýmsar sögur af þér og afa
okkar sem okkur hlotnaðist aldrei
að kynnast þar sem hann lést er ég
var á fyrsta ári en Emma frænka
mín ófædd. Að morgni
vaktir þú okkur með
heitu tei eða kakói og
öðra góðgæti sem þú
færðir okkur í rúmið á
bakka og dekraðir við
okkur eins og prinsess-
ur.
Þú sjálf sast mikið
og heklaðir ungbama-
föt í hinum ýmsu litum
sem ein vinkona þín
seldi í verslun sinni.
Tíkin þin hún Danzý
var þinn augasteinn og
hana þurfti að viðra
með göngutúrum með
þér um miðbæinn endilangan, þú
fræddir okkur um flestar þær
byggingar sem í miðbænum voru,
endurnar við Reykjavíkurtjöm
fengu sitt brauð, venjulegast end-
uðu göngutúrarnir okkar á því að
keyptur var ís og hann borðaður á
Austurvelli. Amma Lfsa bjó alla tíð
í miðbæ Reykjavíkur og undi hún
því vel að ganga um bæinn, mikið
var um gestagang hjá henni á þess-
um tímum, þær voru nokkrar vin-
konur sem spiluðu saman og þá
oftast heima hjá ömmu.
Framan af árum var öll fjölskyld-
an í mat hjá ömmu Lísu á jólum,
hún var afbragðskokkur og hafði
mikinn áhuga á matargerð. Enda
starfaði hún sem smurbrauðsdama
í Sjálfstæðishúsinu gamla við Aust-
urvöll og síðar við ýmis matreiðslu-
störf.
Kannski lýsir það ömmu minni
best að á unglingsáram okkar
barnabarna hennar komum við allt-
af meira og minna við hjá henni,
ef við vinkonur mínar vorum í
bænum var ósjaldan að einhver
þeirra stakk upp á því að koma við
þjá ömmu Lásu, hún virtist alltaf
hafa innsýn í og áhuga á okkar
málum sama á hvaða aldri við vor-
um. Það er ólýsanlegt í raun hvað
gaman var að sitja hjá henni og
spjalla um alla heima og geima.
17. júní var að sjálfsögðu alltaf
komið við hjá henni ömmu, og þá
eins og ævinlega góðgæti af ýmsu
MINNINGAR
tagi eins og hver gat í sig látið.
Amma hlustaði mikið á útvarp,
hún hafði mikla ánægju af því að
hlusta á tónlist. Einnig fylgdist hún
alla tíð mikið vel með heimspólitík,
enda var hún með tvö ef ekki þijú
útvarpstæki í íbúðinni, því hún
varð að hlusta á erlendar stöðvar
jafnt sem hina íslensku, enda mikil
málamanneskja og mjög svo vel
að sér í málefnum almennt.
Gjafmildi hennar til okkar bama-
barna og síðar bamabarnabarna
var einstök, það var hreint með
ólíkindum hvað hún passaði vel
uppá að allur hópurinn hennar
fengi sínar gjafir á jólum og eins
á hinum ýmsu tímamótum í lífi
þeirra.
Svolítið atvik kom upp í huga
mér á dögunum, amma mín þurfti
að leggjast á sjúkrahús í örfáa
daga, þá 85 ára gömul, það var
tekin skýrsla við innskrift hennar
á deildina, þegar hún sneri sér að
hjúkrunarkonunni sem var að sinna
henni og spurði er ekki möguleiki
á því að geyma þetta aðeins fram
yfir kl. X? Það er nefnilega bein
útsending í ensku knattspymunni
kl. X sem ég get ekki hugsað mér
að missa af. Þetta var amma Lísa,
áhugi hennar á fótbolta var þvílíkur
að á laugardögum sleppti maður
því alfarið að hafa samband við
hana, vegna þess að þá var það
enska knattspyrnan sem átti hug
hennar allan.
Amma bjó ein þar til í septem-
ber 1995, en þá brást heilsan og
var hún mjög ósátt við það að geta
ekki hugsað um sig sjálf. Frá því
í febrúar 1996 dvaldi amma á Drop-
laugarstöðum í Reykjavík og viljum
við aðstandendur hennar senda
starfsfólki þar alúðarþakkir fyrir
þá hlýju og aðhlynningu sem það
sýndi henni jafnt í orði sem í verki
til hinstu stundar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Amma mín, minningin um þig
mun lengi lifa með okkur afkom-
endum þínum.
Lísa.
ANNELISE
BLOMSTERBERG
BJÖRGVINA
MAGNÚSDÓTTIR
+ Björgvina Magnúsdóttir
fæddist í Reykjavík 30.
mars 1949. Hún lést í Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 14. mars síð-
astliðinn. Hún var yngst sex
barna Magnúsar Gíslasonar og
Ástrósar Guðmundsdóttur.
Eftirlifandi eiginmaður
Björgvinu er Hannes Gunnars-
son. Þau eignuðust einn son,
Gunnar ísberg, f. 20.8. 1979.
Útför Björgvinu verður
gerð frá Fossvogskapellu í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Í dag verður jarðsett yngsta
systir mín Björgvina Magnúsdóttir.
Við söknum ótrúlegrar glað-
værðar hennar sem ég undraðist
oft, svo erfitt sem hlutskipti henn-
ar var.
Hannes maður hennar hefur
árum saman verið mikill sjúklingur
og hefur hún annast hann af slíku
trygglyndi og alúð að mér hefur
stundum þótt óskiljanlegt hvernig
hún komst í gegnum það. Samband
hennar og Gunnars var mjög gott
og hefur sjálfsagt verið driffjöðrin
að því að láta hlutina ganga.
Þar sem starfsvettvangur henn-
ar var í mörg ár eingöngu innan
veggja heimilisins voru tækifærin
ekki mörg til að kynnast nýju fólki.
En hún átti nokkra trygga vini sem
mátú hana og þóttu vænt um hana.
Samband hennar við okkur syst-
umar var mjög gott og við glödd-
umst alltaf þegar hún gat verið
með okkur ásamt Gunnari. En það
gerðist við ýmis tækifæri ef hún
átti heimangengt.
Bugga var 15 árum yngri en
ég og var mér kærkomin dúkka á
þeim áram, sérstaklega þar sem
hinar yngri systur mínar voru að
mér fannst orðnar fullsjálfstæðar
fyrir það hlutverk.
8. febrúar síðastliðinn komum
við systumar saman ásamt fjöl-
skyldum okkar og skemmtum okk-
ur á þann hátt sem við gerðum
alltaf þegar eitthvað stóð til.
Bugga og Gunnar voru þar eins
og oftast undir slíkum kringum-
stæðum. Bugga var glöð og
skemmtileg og enginn hugsaði um
dauðann, en þetta var réttum mán-
uði áður en hún veiktist og viku
seinna var hún öll.
Of sjaldan hugsum við um að
sýna kærleika okkar gagnvart öðr-
um í verki á meðan þeir lifa, ef
við gerðum það yrði kannske ekki
eins erfitt að syrgja.
Stórt skarð er enn höggvið í
þennan systkinahóp. Hún er þriðja
systkini okkar sem deyr á tæpum
sex árum og öll í kringum fimm-
tugt.
Bugga var mjög falleg og vinsæl
ung kona og hefur sjálfsagt eins
og við öll gerum ætlað sér léttbær-
ara hlutskipti. En því ræður eng-
inn.
Blessuð sé minning Buggu.
Erla Magnúsdóttir.
+
Ástkær móðir okkar,
STEINUNN SIGRÍÐUR BECK,
Ásbyrgi,
Reyðarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 19. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristinn Þ. Einarsson,
Margrét Einarsdóttir,
Örn Einarsson.
FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 39^
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
EYÞÓR JÓN KRISTJÁNSSON,
Borgarbraut 65A,
Borgarnesi,
sem lést 14. mars, verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju laugardaginn 22. mars kl. 13.
Aðun Eyþórsson,
Kristján Eyþórsson,
María R. Eyþórsdóttir,
Guðmundur Eyþórsson,
Ingibjörg Eyþórsdóttir,
Þorsteinn Eyþórsson,
Vigdís Auðunsdóttir,
Marteinn Valdimarsson,
Ingibjörg Vigfúsdóttir,
Gísli Þórðarson,
Anna Þórðardóttir
og fjölskyldur.
+
Bróðir okkar,
INGVAR RAGNAR INGVARSSON
frá Hvítárbakka,
Bergholti í Biskupstungum,
sem lést á heimili sínu 12. mars sl., verður
jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugardaginn
22. mars kl. 14.00.
Jarðsett verður í Bræðratungu. Sætaferðir frá
BSÍ kl. 11.30 og Fossnesti, Selfossi, kl. 12.30.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Haukur Ingvarsson.
+
Ástkær móðir mín,
SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR,
Kjartansgötu 5,
sem lést 18. mars, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 24. mars kl. 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Bjami Jónsson.
+
SIGFRÍÐUR EINARSDÓTTIR
frá Riftúni
í Ölfusi,
er látin.
Böm, tengdaböm,
barnabörn og barnabamaböm.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRARINN SIGURVIN STEINGRÍMSSON,
Mávakletti 12,
Borgamesi,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 15. mars.
Flann verður kvaddur f Borgarneskirkju laugardaginn 22. mars kl. 15.00.
Böm, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnaböm.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
HULDA ERLA ÓLAFSDÓTTIR
(Dallý),
Engihlíð 20,
Ólafsvík,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugar-
daginn 22. mars kl. 14.00. Sætaferðir verða
frá BSÍ kl. 8.00 um morguninn.
Hjördís Björnsdóttir,
Baldur Baldursson, Anna Rún Einarsdóttir,
Auður Baldursdóttir,
Lára Ólafsdóttir, Jónas Guðmundsson,
Sigrún Ólafsdóttir, Ragnar Ágústsson,
Hilmar Ólafsson,
Sólveig Jóhannesdóttir, fvar Steindórsson.