Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 33 ÍWttipwMÍMí STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VARÐVEIZLA MENNINGARARFS ENGINN vafi er á því, að mikil gróska er í menningar- lífi landsmanna um þessar mundir og hefur reyndar verið um langt skeið. Þetta á ekki hvað sízt við tónlist- ina. Þar er svo mikið um að vera, t.d. í hvers kyns tón- leikahaldi, að ómögulegt er að fylgjast með því öllu. Við lifum á tímum örrar þróunar í fjölmiðlun og búum við aukið áreiti í þjóðfélagi, sem einkennist af hraða og tíma- skorti. Þetta leiðir hugann að því, hvort við gætum þess á líðandi stundu að varðveita til framtíðar ýmsar menning- arperlur, sem fá sífellt skemmri tíma í sviðsljósinu og víkja fyrir nýjum. Jónas Ingimundarson, píanóleikari, víkur nýlega að varðveizlu slíkra menningarverðmæta í viðtali við Morgunblaðið. Hann bendir á, að Ríkisútvarpið hafi mark- að djúp spor í tónlistarsögu íslendinga með kynningu á öllum tegundum tónlistar og þar hafi verið tekið upp og haldið til haga ýmsu af því, sem íslendingar hafa verið að gera. Hann spyr t.d., hvort við myndum sætta okkur við, að söngur Stefáns íslandi þurrkaðist út? Hann bend- ir á, að þótt margar gersemar séu geymdar í segulbanda- safni Ríkisútvarpsins þá heyri íslendingar næstum aldrei í sumum af frumkvöðlum tónlistarstarfs á íslandi, eins og t.d. Birni Ólafssyni, fiðluleikara, Einari Vigfússyni, sellóleikara, og píanóleikurunum Árna Kristjánssyni, Ás- geiri Beinteinssyni og Jóni Nordal. Jónas spyr, hvort við varðveitum það sem vel er gert á sviði tónlistar nú með allri þeirri tækni sem við ráðum yfir, söfnum fyrir fjölskyldualbúm þjóðarinnar? Þessi spurning á fullan rétt á sér, því varðveizla á verkum ís- lenzkra tónskálda, hljómlistarmanna, söngvara, kóra og hljómsveita er mikilvæg til eflingar íslenzkri menningu og þjóðarvitund til allrar framtíðar. En jafnframt varð- veizlu tónlistararfsins þarf að geyma upplestur helztu skálda og rithöfunda, svo og ávörp, ræður og viðtöl við helztu forustumenn þjóðarinnar í menningarlífi, stjórn- málum og atvinnulífi. Að þessu þarf að vinna með skipu- legum hætti. Þótt við blasi, að Ríkisútvarpið hafi hér sérstökum skyldum að gegna þurfa forvígismenn annarra aðila, t.d. fjölmiðla, að sinna þessu mikilvæga verkefni í þágu menningar og sögu þjóðarinnar. ÞANÞOLIÐ ÞROTIÐ ÞORKELL Helgason, orkumálastjóri, vék að breyttum viðhorfum til opinbers rekstrar á ársfundi Orku- stofnunar. Hann sagði m.a.: „Á seinustu árum hefur víða í hinum vestræna heimi farið fram endurmat á hlutverki ríkisvaldsins. Tilefnið hefur víðast verið það að þanþol hins opinbera rekstrar er talið vera þrotið, þar sem ekki verði lengra gengið í almennri skattheimtu ...“ Endurmatsþörf á hlutverki ríkisvaldsins er hin sama hér og í umheiminum. Orkumálastjóri sagði af því tilefni að hér sé í gerjun stefnubreyting í þessum efnum, sem eigi breiðan pólitískan hljómgrunn. Forstöðumenn opin- berra stofnana verði að miða stefnu og stjórnun við þá staðreynd, sem feli m.a. í sér: 1) Vaxandi aðhald í fjár- veitingum til opinbers rekstrar; 2) afnám einokunarstöðu hins opinbera til rekstrar, þar sem því verður við komið. Opinber rekstur verður í vaxandi mæli færður til einka- markaðar; 3) opinber rekstur, sem eftir lifir, verður að standast allar sömu kröfur og rekstur á samkeppnismark- aði; 4) fjárveitingavaldið lítur í ríkara mæli á sig sem kaupanda þjónustu; 5) krafizt verður síaukins árangurs. Stjórnendur, sem ekki uppfylla væntingar, verða látnir víkja. Þessi orð lýsa aðstæðum og kröfum, sem ekki verður undan vikizt. Opinberar stofnanir þurfa á hinn bóginn að fá svigrúm til að laga sig að breyttum aðstæðum og viðhorfum. „Fyrir það fyrsta verður fyrirkomulag starfs- mannamála og kjör hjá hinu opinbera að vera hliðstæð því sem gildir á einkamarkaði," svo notuð séu orð orku- málastjóra. Endurmat á ríkisbúskapnum er óhjákvæmilegt. Opin- ber rekstur verður að laga sig að breyttum aðstæðum. Skattfé borgaranna þarf og að nýta betur. LEIÐTOGAFUNPUR BANDARÍKJANMA OG RÚSSLAMPS í HELSINKI Stefnt að lýðræðislegri og friðsamlegri Evrópu Leiðtogum Bandaríkjanna og Rússlands tókst ekki að komast að samkomulagi um stækkun Atlantshafsbandalagsins á fundi sínum í Hels- inki í gær, en yfirlýsingar um að komið verði á samstarfi Rússlands og NATO þykja bera því vitni að mikil áhersla verði lögð á að þessi ágreiningur „stefni samskiptum ríkjanna ekki í voða“. Urður Gunnarsdóttir í Helsinki greinir frá niðurstöðum leiðtogafundaríns. Reuter BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, og Borís Jeltsín, forseti Rúss- lands, á sameiginlegum blaðamannafundi eftir að viðræðum þeirra lauk í bústað Finnlandsforseta í gær. Þýðing úr rússnesku féll niður á kafla á fundinum og ber svipur Clintons því vitni. EINS OG spáð hafði verið urðu leiðtogar Bandaríkj- anna og Rússlands, Bill Clinton og Borís Jeltsín, sammála um að vera ósammála á leiðtogafundi sínum í Helsinki í gær. Þeir náðu hins vegar samkomulagi um fimm atriði sem varða öryggi í Evrópu, afvopnunarmál og efna- hagsstuðning við Rússland en Rússar héldu fast við andstöðu sína við stækkun Atlantshafsbandalagsins (NATO). Urðu leiðtogarnir ásáttir um að fela Jevgení Prímakov, utan- ríkisráðherra Rússlands, og Javier Solana, framkvæmdastjóra NATO, að ganga frá samkomulagi um sam- skipti Rússa og bandalagsins. Rússar fá „rödd en ekki neitunarvald" í álykt- unum og ákvörðunum NATO, að sögn Clintons. Utanríkisráðherra hans, Madeleine Albright, sagði niðurstöðu fundarins „sögulegan árangur". Jelts- ín og Clinton lögðu áherslu á að góð samskipti þjóðanna væru svo mikil- væg að ágreiningur á vissum sviðum, mætti ekki stefna þeim í hættu. Niður- staða fundarins styddi þetta. Clinton sagði niðurstöðu fundarins hvað varðaði öryggismál Evrópu vera þá að stefna að „lýðræðislegri og friðsamlegri Evrópu í fyrsta sinn í sögunni". í ályktun leiðtogafundarins segir að forsetunum beri skylda til þessa vej;na stöðu og ábyrgðar ríkj- anna. A fundinum lagði Clinton áherslu á að ekki væri verið að draga nýja línu aðskilnaðar í Evrópu, austar en járntjaldið hefði verið, heldur væri verið að tryggja öryggi í álf- unni svo að engu ríki fyndist sér vera ógnað. Clinton sagði að stækkun NATO myndi fara fram á tilsettum tíma, á leiðtogafundi NATO í Madrid í júlí og eftir fundinn fullyrti Albright að NATO yrði ekki aðeins stækkað á fundinum í Madrid, heldur myndu fleiri ríkja fylgja í kjölfarið. Itrekar andstöðu Rússa Jeltsín gerði grein fyrir andstöðu Rússa við stækkun NATO og sagði Rússa óttast að hún leiddi til þess að herafli NATO færðist nær landa- mærum þeirra. Clinton ítrekaði að NATO hefði ekki „áform, ástæðu eða áætlun“ um slíkt. Er hann var spurð- ur hvort að með þessu væri verið að skilgreina stöðu væntanlegra nýrra aðildarþjóða NATO á þann veg að þær yrðu annars flokks, neitaði hann því algerlega, sagði ekkert aðildarríki bandalagsins lægra sett en annað. Á fundi forsetanna bauð Clinton að orðalagið um „engin áform, ástæðu eða áætlun“ yrði í hluti samnings Rússa og NATO og lýsti Jeltsín sig sammála því. Skuldbinding en ekki lagalega bindandi Leiðtogarnir urðu sammála um að Solana og Prímakov myndu ljúka samningi um samskipti NATO og Rússa fyrir leiðtogafund NATO. Hann verður borinn undir þjóðþing Rússa en Jeltsín sagði það verða of tímafrekt að leggja hann fyrir öll þjóðþing aðildarríkja NATO. Því yrði látin nægja undirritun þjóðarleiðtoga bandalagsins. Jeltsín sagði samninginn „bind- andi“ en hann er þó ekki lagalega bindandi eins og Rússar hafa gert kröfu um. Albright líkti honum við Helsinki-sáttmálann að því leyti að mikilvægi hans fælist í því að hann yrði undirritaður af þjóðarleiðtogum. Clinton líkti honum við sáttmála þann sem samstarf Rússa og NATO í frið- argæslu í Bosníu er byggt á og í ályktun fundarins segir að samkomu- lag Rússa og NATO eigi að byggjast á grundvallarhugmyndum Helsinki- sáttmálans, m.a. um rétt allra ríkja til að velja sjálf hvernig þau kjósa að gæta öryggis síns. Urðu forsetarn- ir ennfremur sammála um að styrkja hlutverk öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu, ÖSE, sem byggir á Helsinki-sáttmálanum. Samningur Rússa og NATO mun byggjast á samráði, samræmingu og sameiginlegum ákvörðunum, þegar ástæða þykir til. Rússar fá ekki neit- unarvald á ákvarðanir NATO. Leiðtogarnir lögðu áherslu á að samningur um fækkun hefðbundins herafla í Evrópu (CFE) tæki gildi en viðræður um hann fara nú fram í Vín. Sögðu þeir hann mikilvægt skref í átt að auknu öryggi í Evrópu. Þá náðu þeir samkomulagi um efnavopn en þar segir að forsetarnir ítreki þá ætlun sína að grípa til nauð- synlegra aðgerða til að samningurinn um bann við efnavopnum taki gildi. Kvaðst Clinton myndu beita sér fyrir því að Bandaríkin yrðu með í hópi fullgildra ríkja er hann tekur gildi í apríl nk. og að í því skyni myndi hann þrýsta á öldungadeild Banda- ríkjaþings að grípa til viðeigandi að- gerða. Jeltsín minnti á það að samn- ingurinn væri nú til meðferðar í Dúmunni og að hann hefði hvatt ein- dregið til þess að hann yrði sam- þykktur fljótt og örugglega. START-2 afvopnunarsamkomulag Bandaríkjanna og Rússlands frá 1993 var einnig rætt á fundinum og náðist samkomulag um framhald á honum þegar hann hefur tekið gildi. Samkvæmt samkomulagi forsetanna mun Jeltsín leita samþykkis Dú- munnar við START-2 samningnum, en hún hefur dregið að staðfesta hann í fjögur ár. „Eg geri ráð fyrir að hún muni fara að mínum ráðum,“ sagði Jeltsín þungbrýndur og Clinton gat ekki á sér setið að óska þess að hann ætti svo auðvelt með að eiga við Bandaríkjaþing. Er rætt var um hversu óstýrilát þjóðþing Rússlands og Bandaríkjanna hefðu verið forset- unum, laumaði Clinton því ennfremur út úr sér að það væri einfaldlega „bölvun lýðræðisins". Þegar samþykki rússneska þings- ins á START-2 samningnum liggur fyrir, munu þegar hefjast viðræður ríkjanna um START-3 samkomulag sem miðar að því að árið 2007 hafi kjarnorkuvopnum hvorrar þjóðar um sig fækkað um 80% frá lokum kalda stríðsins, 1992, niður í 2.000 til 2.500 kjarnaodda á hvort ríki, en START-2 kveður á um 3.000 til 3.500. Sögðu leiðtogarnir ekki fordæmi fyrir slík- um niðurskurði. Þá var samþykkt að fresta lokaáfanga START-2 til 2007. Aukin aðild að helstu iðnríkjum heims Efnahagsmál voru rædd og kom- ust Jeltsín og Clinton að samkomu- lagi um aðgerðir til að ýta undir markaðsumbætur í Rússlandi. Féllust þeir á auknar fjárfestingar Banda- ríkjamanna í Rússlandi, sem væru þó háðar því að rússneska stjórnin gerði breytingar á skattakerfinu, herti baráttuna gegn glæpum og kæmi á umbótum í orkumálum. Að- spurður hvort Rússar væru að þiggja ölmusu af Bandaríkjamönnum í formi fjárfestinga gegn því að láta af and- stöðu sinni við NATO, svaraði Jeltsín því til að hann sæi ekki hvaða gjaf- mildi væri í því fólgin að aðstoða bandaríska borgara við að fjárfesta í Rússlandi. Það kæmi sér vel fyrir Bandaríkjamenn. Bandaríkjamenn heita því að vinna að því að Rússar fái aðgang að ýms- um efnahagsstofnunum, svo sem OPEC, Parísarklúbbnum á þessu ári, Heimsviðskiptastofnuninni (WTO) á því næsta og síðast en ekki síst, aukna aðild að fundum sjö helstu iðnríkja heims. Orðalagið um sjö helstu iðnríkin var fremur óljóst en Rússar hafa lagt fram kröfu um að verða áttunda iðn- veldið í hópnum. Rússum verður boð- ið til fundar iðnríkjanna í Denver í júní og verður hann undir heitinu „Fundur ríkjanna átta“. Lét Clintori að því liggja að framhald yrði á slík- um fundum en Clinton og embættis- menn hans lögðu hins vegar á það áherslu að áfram yrðu viss atriði er vörðuðu efnahagsmál aðeins rædd á meðal ríkjanna sjö. Bandaríkjamenn og Rússar munu grípa til aðgerða til að auka aðgang þjóðanna að mörkuðum hvorrar ann- arrar og vinna að því að „vildarkjör“ Rússa í viðskiptum við Bandaríkin verði varanleg og án skilmála. Madel- eine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að með efna- hagsstuðningi sínum vildu Banda- ríkjamenn tryggja að Rússland yrði sterkur félagi, Bandaríkin hefðu það ekki að leiðarljósi að veikja stöðu Rússa. Málin rædd af hreinskilni Jeltsín sagði leiðtogana hafa rætt málefni fundarins af hreinskilni og að á fundum sem þessum ættu tilfinn- ingamar það til að taka yfirhöndina en svo hefði ekki verið að þessu sinni. Sagði hann leiðtogana vinna að því að komast yfir fyrra vantraust, og að þeir yrðu að vera ákveðnir og þolin- móðir, þá myndi þeim takast að leysa öll þau mál sem upp kæmu. Ekki kom fram á fundinum hvaða önnur mál hefðu verið rædd, t.d. staða Eystrasaltsríkjanna, ástandið í Albaníu eða Mið-Austurlönd. Finnsk- ur blaðamaður spurði leiðtogana um viðbrögð þeirra, lýstu Finnar yfir áhuga á að ganga í NATO. Clinton sagðist styðja viðhorf Martti Ahtisa- aris, forseta Finnlands, sem taldi rétt, að Finnar héldu opnum möguleikum sínum varðandi aðild að hernaðar- bandalögum. Skiptu þeir um skoðun og vildu ganga í slíkt bandalag, ættu þeir að hafa möguleika til þess. Jelts- ín bar lof á utanríkisstefnu Finna, sagði að ástæða góðra samskipta og mikilla viðskipta ríkjanna, væri sú að Finnar væru óháðir. Bandaríkja- forseti van- svefta en Jeltsín hress Helsinki. Morgunblaðið. VARKÁRNIN sem einkenndi um- ræðurnar fyrir leiðtogafund Bill Clintons Bandaríkjaforseta og Bor- ís Jeltsíns Rússlandsforseta í Hels- inki var lögð til hliðar um hádegis- bil í gær er talsmenn beggja for- seta lýstu því yfir að bjartsýni ríkti á fundinum, hreinskilni og „upp- byggilegur andi“. Þá dróst fundur- inn á langinn, sem þótti til marks um að tíðinda væri að vænta af honum. Sú varð einnig raunin. Jeltsín var jafnhressilegur við komuna til fundarins í embættisbú- stað Finnlandsforseta og í gær. Kvaðst hann telja að þeir leiðtog- arnir myndu ná samkomulagi, þeir „myndu leita málamiðlana og ýta úr vegi öllum ágreiningi. Það er skylda leiðtoga stórveldanna tveggja að gera svo. Við teljum að báðir aðilar séu reiðubúnir til að fara hluta leiðarinnar." Clinton ræddi ekki við blaða- menn við komuna, en er hann lagði af stað frá hóteli sínu sagði hann að sér liði vel. „Þetta er fallegur dagur og ég er viss um að þetta verður góður fundur,“ sagði forset- inn, sem þótti þreytulegur. Skýring- in kom í Ijós eftir hádegisverðinn en þá upplýsti talsmaður Clintons, Mike McCurry, að forsetinn hefði sofið illa vegna hávaða á hæðinni fyrir ofan hann. Um þung högg hefði verið að ræða og gerði Clin- ton að gamni sínu við Jeltsín, sagð- ist haida að hann hefði jafnvel feng- ið „stórvaxinn Finna“ til að standa fyrir hávaðanum. Ekki er ljóst hvað hélt vöku fyrir Clinton en á næstu hæð fyrir ofan svefnstað hans er saunabað hótelsins og er talið að vatnsrörum sé um að kenna. Vel fór á með leiðtogunum á fundinum, sem hófst um stundar- fjórðungi fyrir kl. 10. Áætlað var að þeir ræddust við í tvo klukku- tíma en það dróst um hálfa klukku- stund. Fyrir hádegi ræddu þeir ör- yggismál í Evrópu og stækkun NATO en að því loknu var haidið til hádegisverðar þar sem leiðtog- arnir ræddu aðallega efnahagsmál en hann dróst einnig nokkuð á iang- inn. Afvopnunarmál voru á dagskrá fundarins eftir hádegi og honum Iauk á formlegum umræðum um efnahagsmái. Er hlé var gert á viðræðunum lýsti Sergei Jastrsjembskí, talsmað- ur Jeltsíns, því yfir að leiðtogarnir hefðu hvor um sig stigið mikilvæg skref í átt að sjónarmiðum hins og Mike McCurry, talsmaður Ciintons, sagði viðræðurnar vera „langsam- lega innihaldsríkustu og nánustu samræður sem þeir hafa nokkru sinni átt.“ Jeltsin og Clinton lögðu enda kapp á að sýna að vel færi á með þeim og að báðir væru við góða heilsu, en heilsufar beggja hefur verið áberandi þáttur í vangavelt- um manna í tengslum við fundinn. Fór enda svo að fótarmein Clintons var upphafs- og lokastef sameigin- legs blaðamannafundar forsetanna. Hann hófst á því að Clinton bað viðstadda, sem risið höfðu úr sætum í virðingarskyni við forsetana, að fá sér sæti, svo að hann sæti ekki einn, og lauk fundinum á því að segja að sér liði „vei“ um leið og hann rúllaði sér rösklega á brott í hjóiastóinum. Á hálum ís ÖRY GGIS VERÐIR áttu náðug- an dag meðan forsetar Banda- ríkjanna og Rússlands funduðu í bústað Finnlandsforseta við Eystrasaltið í gær. Landa- mæraverðir á svifnökkva skár- ust þó í leikinn þegar hjólreiða- maður þótti fara fullnærri for- setabústaðnum. Maðurinn forðaði sér eftir að lögregla hafði varað hann við. Talsmenn leiðtoganna sláandi andstæður Jastrsjembskí stjama fundarins Reuter Helsinki. Morgunblaðið. MISMUNURINN á komu Banda- ríkjamanna og Rússa hefur vakið athygli íjölmiðlamanna í Finnlandi. Rússar hafa komið með fjölmenn lið embættis- og stjórnmálamanna sem Sergei Jastrsjembski, talsmaður Rússlandsforseta, hefur farið fyrir og komið á framfæri á áberandi hátt. Óhætt er að segja að Jastrsj- embskí og Borís Jeltsín hafi verið stjörnur fundarins, nokkuð sem kom- ið hefur mönnum á óvart. Hins veg- ar eru líklega engar ýkjur að segja að Naína Jeltsín hafi haldið sig í skugganum, dagskrá hennar hefur nær ekkert verið sinnt í fjölmiðlum. Ólíkt Rússum hefur bandaríska sendinefndin haldið sig á Intercontin- ental-hótelinu, þar sem fáir aðrir hafa komist að. Lítið hefur verið um að embættis- og stjórnmálamenn tjái sig formlega eða óformlega og sjálf- ur hefur Bandaríkjaforseti lítið látið hafa eftir sér, enda líklega orðinn þreyttur á því að svara endalausum spurningum um það hvernig hann sé í fætinum. Talsmenn forseta Bandaríkjanna og Rússlands koma fyrir á ólíkan hátt. Jastrsjembskí kom tveimur dögum á undan Rússlandsforseta til Helsinki og hefur haldið hvern blaða- mannafundinn á fætur öðrum þar sem hann hefur verið óhræddur við að gefa, á köflum harðorðar, yfirlýs- ingar. Mike McCurry, talsmaður Bills Clintons, fylgdi hins vegar forseta sínum til Finnlands og hefur verið varkár og gætti þess vandlega að segja sem minnst um fund leiðtogana áður en þeir ræddust við. Jastrsjembskí sagði á einum af þeim fjölmörgu fundum sem hann hefur haldið frá því að hann kom, að Rússar myndu veija hagsmuni sína „sem aldrei fyrr“ en viður- kenndi að enn væri mögulegt að leið- togarnir kæmust að niðurstöðu, þótt Rússar hefðu verið rændir mikilvæg- um þætti í þíðunni eftir lok kalda stríðsins, traustinu. „Það er ekki markmið fundarins að komast að ákveðinni niðurstöðu, heldur að auka gagnkvæman skilning eins og mögu- legt er til að skilja áhyggjuefni Rússa og ástæður fyrir ákvörðun Banda- ríkjamanna um að stækka NATO.“ Jastrsjembskí sagði á miðvikudag að ákvörðun um stækkun NATO væru mestu mistök Vesturlanda frá lokum kalda stríðsins. Var þessi af- dráttarlausa yfirlýsing talin benda til þess að Jeltsín kynni að endurtaka leikinn frá fundi Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu í Búdapest árið 1994 er hann réðst harkalega á stefnu Clintons og sagði að NATO kynni að vera að kalla nýtt kalt strið yfir Evrópu. Utanríkisstefnan endurskoðuð Jastrsjembskí hefur farið í gegn- um þau atriði sem Rússar leggja mesta áherslu á, á fundinum. Rússar vilja að stigin verði ákveðin skref til að breyta NATO í pólitískari stofnun en nú er. Þá vilja þeir að komið verði á fót stofnun, óháðri NATO, til að stýra samskiptum Rússa og NATO, þar sem öll ríkin hafi jafna stöðu, Rússar verði ekki aukaaðili. Þá sagði Jastrsjembskí Rússa ekki krefjast neitunarvalds um ákvarðanir NATO, en þeir vildu hins vegar tryggja sig gegn óvæntum uppákomum. A fimmtudag sneri hann svo alveg við blaðinu, sagði að gæfu Banda- ríkjamenn ekkert eftir varðandi stækkun NATO, kynnu Rússar að neyðast til þess að endurskoða utan- ríkisstefnu sína og halla sér í vax- andi mæli að Kína, Indlandi og íran. Varkárni og skynsemi Á löngum fundi McCurrys með blaðamönnum seinnipartinn á fimmtudag komu orð á borð við var- kárni og skynsemi oft fyrir. McCurry vildi sem minnst spá í efni fundarins og niðurstöðu en lagði á það áherslu að menn horfðu til hans af raunsæi. „Við höfum lagt stóru línurnar, reynt að gera okkur grein fyrir því hvern- ig við viljum að samskiptum Rússa og Bandaríkjamanna verði háttað á næstu öld. Það er vissulega erfitt að brúa bilið á milli þjóðanna, deilu-- atriðin eru mörg en ég efast ekki um að það verður unnið vel að því að leysa þau öll,“ sagði McCurry meðal annars. Hann kvaðst gera ráð fyrir að forsetarnir yrðu sammála um að verða ósammála. Að samband þeirra héldi áfram, þeir þekktust það vel að það ætti ekki að bíða skaða af. „Tónninn á fundum þeirra hefur yfir- leitt verið vinsamlegur en þó stund- um ákveðinn." McCurry bar, eins og fleiri bandarískir embættismenn lof á uppstokkunina í rússnesku ríkis- stjórninni og sagði yfirvöld myndu fylgjast grannt með þróun mála. McCurry sagði bandarísk stjóm- völd gera sér fulla grein fyrir því að • NATO væri ekki það mál sem brynni helst á rússneskum almenningi. Því yrðu efnahagsmál og -aðstoð ofar- lega á baugi á leiðtogafundinum. Borís Beresovskí segir Rússa geta sjálfum sér um kennt Rússar sváfu á verðinum gagnvart stækkun NATO Helsinki. Morgunblaðid. „RÚSSAR gerðu þau mistök að senda röng skilaboð um afstöðu sína til stækkunar Atlantshafsbandalags- ins. I tvö ár heyrðist ekkert frá rúss- neskum stjómvöldum, sem mátti skilja sem svo að þeir væru henni ekki andsnúnir, sagði Borís Ber- esovskí, varaformaður rússneska ör- yggisráðsins, á blaðamannafundi í Helsinki í gær. Vísaði Beresovskí til þess að Rússar hefðu verið of upp- teknir af innanríkismálum og slæm- um efnahag til að bregðast við í utan- ríkismálum og telja fréttaskýrendur að hann hafi með þessu óbeint ráðist á Andrei Kozyrev, fyrrverandi utan- ríkisráðherra. Er hann var spurður hverjum væri um að kenna, sagðist hann ekki vilja nefna nein nöfn. Beresovskí sagði að Rússar myndu ef til vill ekki geta komið í veg fyrir fyrstu stækkun bandalags- ins en að þeir myndu beita sér fyrir því að koma í veg fyrir enn frekari stækkun. Það væru „hræðileg mis- tök“, tækist það ekki. Auk Beresovskís sátu Sergei Karaganov, sem situr í forsætisráð- inu, Vladimír Lúkín, formaður al- þjóðamálanefndar Dúmunnar, og Júrí Batúrín, ráðgjafi Rússlandsfor- seta, fyrir svömm á fundinum. Batúrín segir Rússa ekki vera í aðstöðu til að ganga í NATO, slíkt kæmi ekki til greina að óbreyttu hlutverki bandalagsins. Það kæmi hins vegar til greina ef hlutverki þess verður breytt, með vísan til þess að það verði pólitískara. Karaganov tók ekki undir þetta, sagði augljóst að NATO myndi stækka en lagði engu að síður fram þá kröfu að hætt yrði við stækkun. Það þýddi að Eystrasaltsríkin mættu ekki undir nokkrum kringumstæðum ganga í NATO, og að það sama ætti við um Ukraínu og Hvíta Rúss- land. Sagði hann að Eystrasaltsríkin ættu að láta sér nægja að ganga í Evrópusambandið, gengju þau í NATO yrði það „sviksamlegt bragð“ en hann sagði ekki af hálfu hverra. Mikið hefur verið rætt um bága fjárhagsstöðu rússneska hersins og hættuna á því að hermenn fari í verkfall til að fá laun sín greidd. Var Batúrín spurður hvernig brugð- ist yrði við slíkum kröfum en hann lét sér nægja að svara því til að rússneski herinn gæti ekki haldið uppi her af sömu stærð og Sovétrík- in sálugu. Þegar efnahagsmál bar á góma, tók Beresovskí fram að efnahagur Rússlands væri ekki eins bágur og fullyrt væri og að gripið hefði verið til þess ráð að stokka upp í ríkis- stjórninni og fjölga umbótasinnum í henni til að auka bjartsýni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.